Þjóðviljinn - 03.04.1985, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 03.04.1985, Qupperneq 2
FRÉTTIR Borgin TORGIÐ Leigubílstjórana á þing! Það Shell, auðvitað Norskt fyrirtœki bauðst til að lœkka asfaltverð ef olía lœkkaði Á borgarráðsfundi í gær ákvað meirihluti ráðsins að taka tilboði Skeljungs/Shell í asfaltútbúnaði fyrir þetta ár. Tilboðstalan er 72 miljónir. Frá Mynes í Noregi barst tilboð sem metið var jafnt Shell-tilboðinu, en norska fyrir- tækið bauðst til að lækka tilboðið ef olía lækkaði á heimsmarkaði. Lækki olia til dæmis dollar á tonn hefði söluverð norðmanna lækk- að um 2,8 milljónir. Minnihlutafulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna og lagði Sigurjón Pétursson fram sérstaka bókun um málið. „Mér sýnist að við hefðum átt von í lækkuninni," sagði Sigurjón við Þjóðviljann eftir fundinn. En Shell naut hylli meirihlutans í ráðinu. - m Pípugerðin lögð niður? Hugmyndir um að borgin hœtti að steypa pípur og kaupiþœr afÓsi í Garðabœ. Nauðsynleg endurnýjun í borgarfyrirtœkinu bíður úrslita. Forstjóri Óss er bróðir Vilhjálms Þ. í borgarráði Iborgarráði liggur nú óafgreitt erindi sem borgarverkfræðing- ur beindi þangað á fyrra ári um að leggja niður Pípugerð Reykja- víkurborgar og kaupa framvegis holræsapípur af Steypuverk- smiðjunni Ós í Garðabæ. í pípugerð borgarinnar starfa að jafnaði um fimmtán menn. Þar eru framleiddar pípur fyrir borgina og aðra viðskiptamenn, og hafa um þrír fimmtu fram- leiðslunnar runnið til borgarinn- ar. Að auki þar verið steyptar gangstéttarhellur og -steinar, í litlum mæli þó. Að sögn Vals Guðmundssonar sem sér um mál- efni Pípugerðarinnar hjá borg- inni eru tæki verksmiðjunnar görriul og slitin og bráðliggur á að endurnýja þau. Á fjárhagsáætlun þessa árs er gert ráð fyrir að hefja slíka endur- nýjun, en þegar áætlunin var af- greidd var ákveðið að ekki yrði endurnýjað nema með sérstöku samþykki borgarráðs og borgar- stjórnar. Er því ekkert hugað að viðreisn í Pípugerðinni meðan beðið er ákvörðunar borgarráðs. „Ef ekkert er ákveðið leggst Pípugerðin að mínu mati niður hægt og bítandi af sjálfu sér,“ sagði Valur við Þjóðviljann. Einar Þ. Vilhjálmsson forstjóri Steypuverksmiðjunnar Óss segir engar samningaumleitan'ir hafa farið fram milli sín og borgarinn- Við höfum kynnt þeim okkar ar. verð og okkar framleiðslu,“ sagði Einar við blaðið, „einsog öllum öðrum sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans er alls óvíst að hin nýja verksmiðja í Garðabæ sé sam- keppnisfær við þessa framleiðslu og mun sú óvissa meðal annars ráða drætti á afgreiðslu hjá borg- arráði. Það kemur hugsanlegri aflífun Pípugerðar Reykjavíkur svo sjálfsagt ekkert við að forstjóri Garðabæjarfabrikkunnar er bróðir Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar borgarráðsmanns Sjálf- stæðisflokks í Reykjavík. Stálfélagið hefur safnað saman „lager" til bræðslunnar þegar framkvæmdir hefjast og er þessi haugur hluti af þeim „lager". Stálfélagið Vonum að menn nái áttum Leifur ísaksson stjórnarformaður: Trúum því ekki að þetta sé lokaaf greiðsla málsins. Allir alþingismenn Reykjaness standa með okkur Við höfum haldið nokkra fundi að undanförnu og höfum ákveðið að bíða og sjá hvort menn ná ekki áttum í þessu máli. Við trúum því ekki að þetta sé lokaafgreiðsla málsins. Hér er um að ræða eitt þúsund manna hlutafélagið, sem komið var af stað af ríkinu sjálfu á sínum tíma og þessum endalokum trúum við ekki. Þetta sagði Leifur ísaksson stjórnarformaður Stálfélagsins h.f. en sem kunnugt er hefur Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra allt í einu tekið þá ákvörðun að neita félaginu um ríkisábyrgð á erlend lán sem fé- lagið ætlar að taka og frumvarp þess eðlis að veita ríkisábyrgð hefur verið lagt fram á Alþingi. Leifur sagði að skýrsla sú sem iðnaðarráðherra vísar í væri gam- all danskur draugur. Sú skýrsla væri illa unnið og ómerkilegt plagg sem ekki væri takandi mark á. Allir alþingismenn Reykjanes- kjördæmis standa saman með stjórn Stálfélagsins í málinu. Það er unnið af fullum krafti að lausn þess og því hefur verið ákveðið að bíða nokkra daga og sjá hverju fram vindur, sagði Leifur ísaks- son. - S.dór Landspítalinn Undirbýr kaup á línuhraðli Notaður við geislun á djúplœgum æxlum. Bráðnauðsynlegur. Fjársöfnun í gangi Kobalt-tækið var keypt hingað árið 1969 og hefur verið notað síðan til ytri geislameðferðar. Það auðveldaði mjög krabba- meinslækningar frá því, sem áður var. Hið nýja tæki, línuhraðall- inn, sem nú er hafinn undirbún- ingur að kaupum á, er að sínu leyti eins stórt stökk fram á við frá því, sem nú er, og tekið var með kaupum á kóbalttækinu á sínum tíma. Þannig fórust þeim orð, Þór- arni Sveinssyni yfirlækni við Krabbameinslækningadeild Landspítalans og Garðari Mýr- dal, eðlisfræðingi við deildina, í stuttu spjalli við Þjóðviljann í gær. Línuhraðallinn er notaður til geislunar á djúpt liggjandi æxl- um. Hann gefur orkumeiri og skarpari geislun en kóbalttækið, auk elektrónugeislunar, sem er sérstök grunngeislun. Hann var tekinn í notkun erlendis í lok sjö- unda áratugarins. Óskað var eftir að fá hann hingað þegar á árinu 1978. Þá hamlaði skortur á hús- næði en tækinu er ætlaður staður í hinni nýju K-byggingu Landspít- alans. Nú er þess hinsvegar að vænta, að úr taki að rætast með framkvæmdir við hana og þar sem þær voru áður komnar vel af stað má gera sér vomr um að unnt verði að hefja uppsetningu á „hraðlinum" árið 1987. Ekki er nákvæmlega vitað um hvað línuhraðallinn muni kosta, - talað er um 20-30 miljónir. Lionsmenn um land allt munu beita sér fyrir fjársöfnun til kaupanna. Vonandi gefst þeim góður byr. - mhg Hver ú bestu fluguna? Fyrsta fluguhnýtingarsam- keppni sem haldin er hérlendis stendur nú yfir. Kcppt er í tveimur flokkum, opnum frjáls- um flokki og öðrum þar sem hnýta á hina frægu flugu Thunder and Lighting. Það er verslunin Litla tlugan sem stendur fyrir þessari sam- keppni fluguhnýtingarmanna. Síðasti skilafrestur er til 20. apríl n.k. en flugurnar á að senda til Litlu flugunnar, pósthólf 958, Reykjavík. Allar flugurnar verða sýndar ásamt tækjum og tólum til flugu- hnýtingar á sýningu sem Landssamband stangveiðifélaga gengst fyrir í Norræna húsinu 2.- 5. maí n.k. _ |g_ 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.