Þjóðviljinn - 03.04.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.04.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Leigubílastríð Leikurinn æsist Ólafur Erlendsson hjá Hreyfli: Sannfœrður um að sterkir aðilar standa á bak við lögbrjótana á Steindórsplani Ólafur Erlendsson ielgubifreiðastjóri hjá Hreyfli við bifreið sína: Jakkinn minn er sundurslitinn og ég verð að ganga með kraga næstu dagana því hálsliður brákaðist þegar ég var gripinn hálstaki inni í bílnum. Ljósm.: E.ÓI. Það er auðvitað afskapiega slæmt þegar deilumál komast á það stig að menn láta hendur skipta og það er fjöldi vitna að því að Guðmundur Ásmundsson framkvæmdastjóri Sendibíla hf. réðst á mig, ekki bara einu sinni heldur tvisvar sl. föstudag. I síðara skiptið stjakaði hann við mér inni á lögreglustöðinni við Hlemm og nærstaddir lögreglu- AIDS Ekkert fé til prófana Island eitt þriggja landa þarsem sjúkdómurinn hefur ekkifundist. Nauðsynlegarprófanir kosta 2-3 miljónir Enn hefur enginn hér á landi fengið AIDS sjúkdóminn og mun ísland vera eitt þriggja landa í Evrópu þar sem sjúkdómurinn hefur enn ekki skotið upp kolli, svo vitað sé. Hin löndin eru Pól- land og Tékkóslóvakía. Þetta kom fram í spjalli við Harald Briem lækni á Borgarspítaianum. Mótefni gegn AIDS veirunni Úrsögn Feilskot Alþydubladsins r Eg skil nú satt að segja ekkert í þessari frétt Alþýðublaðsins, - það var einhvern tíma í fyrra að ég bað flokksskrifstofu Alþýðubanda- lagsins að strika nafnið mitt út, sagði Ævar Kjartansson varadagskrár- stjóri um þá frétt Alþýðublaðsins, að hann hefði sagt sig úr Alþýðu- bandalaginu eins og Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB. - Þetta er nánast ekki annað en framkvæmdaatriði. Ég hef aldrei verið dyggur flokksmaður og hef hvorki haft tíma né getu til að fara á fundi, greiða árgjöld og þess háttar. Þess vegna vildi ég líka hafa þetta á hreinu og bað um að nafnið mitt yrði strikað út. Alþýðublaðið fer því villur vegar þegar það „dramatíserar“ þetta mál. - Mér virtist nú í verkfallinu í haust að ég ætti ekki mikla samleið með hagfræðingum innan BSR%og það hefur heldur ekkert breyst. Hins vegar er það einkamál hvort og þá hvaða flokk rnaður styður. Partur af mannréttindum. Ég vil hins vegar upplýsa vini mína og kunningja að lífsviðhorf mín hafa að engu breyst, ef einhver vildi fá að vita það, sagði Ævar Kjartansson. - óg. hefur þó fundist í blóði eins ís- lendings, það þýðir hinsvegar ekki að viðkomandi sé haldinn ónæmisbæklun (AIDS). Ólafur Jensson yfirlæknir Blóðbankans sagði að erlendis væri farið að gera sérstaka könn- un á öllum þeim sem gefa blóð í blóðbanka, til að ganga úr skugga um hvort þeir hafa mótefni gegn AIDS veirunni. Þetta er leitunar- aðgerð sem er örugg uppá 90% til 95%. Þessi rannsókn myndi kosta hér á landi 200 til 300 kr. á mann, fyrir utan aukarannsókn- ir. Þetta myndi þýða kostnað uppá 2-3 milljónir króna á ári, sem er um 10% af rekstrarkost- naði Blóðbankans. Og á meðan menn hugsa sig um tvisvar hvort veita á 100 til 200 þúsund krónum til nauðsynlegustu hluta við bankann, þá er varla von til þess að fá þessa upphæð, sagði Ólafur Jensson. S.dór/ös menn þar veittu honum stranga áminningu fyrir, sagði Ólafur Er- lendsson leigubifreiðastjóri á Hreyfli sem lenti í átökum við framkvæmdastjóra Sendibíla hf. fyrir helgina. í gærmorgun gengu forsvars- menn leigubifreiðastjóra á fund dómsmálaráðherra Jóns Helga- sonar og óskuðu eftir því að hann beitti sér fyrir lausn deilna á milli Sendibíla hf. á Steindórsplani og leigubifreiðastjóra. Mun ráð- herra hafa tekið erindi bflstjór- anna ljúfmannlega. „Þetta er í fyrsta skipti síðan þessar deilur hófust sem ofbeldi er beitt. Við höfum fylgst með þessum litlu sendibflum, sem við raunar köllum bitabox, og rætt við bflstjórana en alltaf komið fram við þá með friði og spekt. Hins vegar er að færast meiri harka í þetta núna og það vekur furðu okkar leigubílstjóra hversu lögreglan er aðgerðarlaus. Mað- ur sér þessar litlu dósir aka á glannahraða með farþega innan- borðs og ég er ekki í vafa um að hægt væri að fá farþega til að vitna um óþægilega lífsreynslu á slíkum ferðum,“ sagði Ólafur ennfremur. „Ég er sannfærður um að veru- lega sterkir aðilar á bak við tjöld- in styðja lögbrjótana á Steindórsplani í þessari deilu. Það er hægt að nefna mörg dæmi en ég læt nægja að minnast á það þegar ráðherra greip fram fyrir hendur á Hæstarétti og gaf þeim sem þá óku hjá Steindóri langan aðlögunartíma og núna vekur at- hygli hve lögreglan er svifasein í þessu máli. Einnig veit ég ekki betur en nú sé farið að afgreiða eldsneyti á bflana á Steindórs- plani og er mér ekki kunnugt um að það sé í samræmi við lög og reglur," sagði Ólafur Erlendsson bflstjóri á Hreyfli að síðustu— v. Miövikudagur 3. apríl 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3 KEA Innrás Flokks mannsins „Flokkur mannsins er upphafs- maður að mótframboði til kosn- inga fulltrúa Akureyrardeilar á aðalfund KEA. Deildarstjórnin lagði fram lista með 117 fulltrú- um og voru 105 kosnir, en á lista mótframboðsins voru 12 fulltrúar sem allir hlutu kosningu,“ sagði Júlíus Valdimarsson hjá Flokki mannsins Þjóðviljanum. „Hornsteinninn í stefnuskrá okkar er raunveruleg samvinna og því mikill áhugi á þeim mála- flokki innan flokksins. Samvinn- ufélögin eru opin og lýðræðisleg og því sjálfsagt að fólk sýni virkni sína á þennan hátt. Fulltrúarnir 12 sem hlutu kosningu eru gamlir og nýir félagar í KEA en ég veit ekki með vissu hvort þeir eru allir líka í Flokki mannsins," sagði Jú- líus. - aró. Sigmundur Guðbjarnason. Rektorskjör Sigmundur kjörinn Hlaut 54% atkvœða. Páll Skúlason fékk tœp 40% Sigmundur Guðbjarnason pró- fessor í verkfræði- og raunvís- indadeild var í gær kjörinn rektor Háskóla íslands. Hann hlaut sam- tals 53,8% atkvæða en næstur honum varð Páll Skúlason pró- fessor f heimspekideild með 39,6% atkvæða. Sigmundur hlaut 181 atkv. starfsmanna og 615 stúdentaat- kvæði eða samtals 53,8%. Páll Skúlason hlaut 108 starfsmann- aatkvæði og 729 stúdentaatkvæði eða samtals 39,6% atkvæða. Jón- atan Þórmundsson prófessor í lagadeild hlaut 5 atkvæði starfs- manna og 77 stúdenta eða sam- tals 2,8% atkvæða og Júlíus Sól- nes prófessor í verkfræði- og raunvísindadeild hlaut 8 atkvæði starfsmanna og 27 stúdentaat- kvæði eða 2,4% heildaratkvæða. Aðrir hlutu færri atkvæði. Á kjörskrá í rektorskjöri voru 4694, þar af 332 starfsmenn og 4362 stúdentar. 302 starfsmenn greiddu atkvæði eða 91% og 1482 stúdentar eða 34%. -•g-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.