Þjóðviljinn - 17.04.1985, Side 3
FRÉTTIR
Lyfseðlamisnotkun
Læknamir of auðtrúa
Skortur á heimilislœknum í Reykjavík kemur í veg fyrir einstaklingsbundna
lyfseðlaútgáfu og auðveldar misnotkun lyfseðla
Útgáfa lyfseðla til einstaklinga
ætti að vera bundin ákveðnum
lækni eða staðgengii hans. Þar
sem komið hafa upp tilfelli um
misnotkun lyfseðla er ástæðan
fyrst og fremst sú að sjúklingar
ganga á milli lækna og biðja um
ávísun á sama lyfið. Þar sem
heimilislæknakerfið í Reykjavík
er í rnolum og margir hafa ekki
aðgang að heimilislækni hefur
það komið fyrir að læknar hafa
ekki sýnt nægilega tortryggni
gagnvart því fólki sem þannig
gengur á milii lækna. Slík mis-
notkun þekkist hins vegar varla
út á landsbyggðinni, þar sem
læknisþjónustan er einstakiings-
bundnari. Þetta sagði Guðmund-
ur Sigurðsson hjá landlæknisem-
bættinu í samtali við Þjóðviljann.
Guðmundur sagði jafnframt
að öll sterk verkjalyf og svefnlyf
væru eftirritunarskyld, og væri
útgáfa lyfseðla á slík lyf gerð upp
eftir hvern mánuð. Eftirlit þetta
er í höndum Lyfjaeftirlitsins og
Landlæknisembættisins. Reglu-
legt eftirlit fer ekki fram á öðrum
lyfjum sem eru talin geta verið
vanabindandi, en hins vegar eru
teknar stikkprufur þegar ástæða
þykir til. Jafnframt er fylgst með
innflutningi og sölu þessara lyfja.
Sérstakt átak var gert á árinu
1976 til þess að draga úr notkun
ávanabindandi lyfja hér á landi
með þeim árangri að notkun
þeirra dróst saman um sem næst
60% á 5 árum. Nú er til umræðu
hjá heilbrigðisyfirvöldum að
sögn Guðmundar að tölvuskrá
alla útgefna lyfseðla, meðal ann-
ars til þess að auðvelda uppgjör
við Sjúkrasamlagið. Slíkt myndi
auðvelda mjög allt eftirlit, en
meðferð slíkra gagna er einnig
vandasöm, þar sem hér er um
upplýsingar að ræða er snerta
einkamál manna. Því mun þurfa
samþykki tölvunefndar um fram-
kvæmd slíks eftirlits, en tölvu-
nefnd hefur með höndum eftirlit
á framkvæmd laga um verndun
einstaklingsréttar gagnvart tölvu-
tækum gagnasöfnum um einka-
hagi manna.
Athyglisvert er að í skýrslu
Landlæknisembættisins um
neyslu áfengis, tóbaks, fíkniefna
og ávanalyfja frá 1982 kemur
fram að á sama tíma og sölumagn
svefnlyfja og róandi lyfja minnkð
um 43% jókst sala áfengis um
13% í hreinum vínanda eða um
0.47 lítra á mann. Segir í skýrsl-
unni að ástæða sé til að ætla að
margir neytendur svefnlyfja og
róandi lyfja noti sér róandi og
svæfandi verkun áfengis. ólg
KRON
Halliá
síðasta
r m
ari
Nokkur halli varð á rekstri
Kaupfélags Reykjavíkur og ná-
grennis á síðasta ári eða upp á 3.9
miljónir króna en heildarvöru-
sala að frádregnum söluskatti var
276 miljónir króna. Kom þetta
fram I skýrslum stjórnarfor-
manns og kaupfélagsstjóra á að-
alfundi félagsins sl. sunnudag.
Á síðasta ári opnaði KRON
nýja og glæsilega verslun við Fur-
ugrund í Kópavogi og var það eitt
meginverkefni félagsins ásamt
því að treysta rekstur Miklagarðs
og annarra verslana KRON eins
og segir í frétt frá Kaupfélaginu.
Á fundinum voru kosnir 19
fulltrúar á aðalfund Samband ís-
lenskra samvinnufélaga.
Aðalfundur KRON samþykkti
tillögu frá 1. og 2. deild félagsins
þess efnis, að skipuð skuli nefnd
til að endurskoða félagsuppbygg-
ingu KRON. Nokkrar aðrar til-
lögur komu fram varðandi skipu-
lagsmál samvinnuhreyfingarinn-
ar. Voru þær ræddar, en ekki
teknar til afgreiðslu, heldur
ákveðið að halda fulltrúafund um
þær í lok maí.
Frá vígslu Kirkjuhússins. Biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sigurgeirsson, flytur ávarp. Mynd: E.OI.
Þjóðkirkjan
Síðastliðinn mánudag var tekið
í notkun, við hátíðlega athöfn,
nýtt Kirkjuhús, Suðurgata 22.
Voru þá liðin rétt 200 ár frá því að
biskupsstóllinn í Skálholti var
fluttur frá Skálholti til Reykjavík-
ur samkvæmt konungsbréfí frá
15. aprfl 1785.
Nýtt Kirkjuhús
Undanfarin 25 ár hefur bisk-
upsskrifstofan og aðrar kirkju-
legar stofnanir verið í leiguhus-
næði við Klapparstíg, óhentugu á
margan hátt. Með kaupum á hinu
nýja húsnæði skiptir mjög um til
hins betra og var ekki vanþörf á.
Þar munu nú m.a. hafa bækistöð
sína biskupsembættið, æskulýðs-
starfsemi þjóðkirkjunnar, Hjálp-
arstofnun kirkjunnar og eftirlit
með kirkjugörðum.
Húsið, sem keypt er af
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur,
er tvær hæðir, kjallari og ris, 150
ferm. að grunnfleti. Kaupverð
þess var 8.5 milj. kr. en viðgerðir
og breytingar kostuðu rúmar 4
milj.
Við munum síðar víkja nánar
að þessum vistaskiptum.
- mhg
Vetrarvertíð
Flestir að veiða síðustu tonnin
Sigurður Kristjánsson skipstjóri á Skarðsvík SH: Man ekki eftir jafn
miklu magni affiski á jafn stóru svœði. Mokafli hjá bátum á Snœ-
fellsnesi afmjög stórum og góðum þorski
Maður er nú búinn að vera
ansi lengi við þetta, en ég
man ekki eftir jafn miklu magni
af fiski á jafn stóru svæði og núna.
Það er alveg sama hvar netin eru
sett niður, það mokfiskast alls-
staðar. Enda er það svo að flestir
eru að veiða upp síðustu tonnin af
kvótanum sínum. Ætli ég eigi
eftir nema einn eða tvo róðra og
maður er bara rétt að byrja,
sagði Sigurður Kristjánsson skip-
stjóri á Skarðsvík SH er Þjóðvilj-
inn ræddi við hann í gær.
Sigurður sagði að hér væri um
mjög góðan þorsk að ræða og
greinilega allir árgangar í aflan-
um, allt uppí 10 kílóa þorska.
Hann sagði bátana vera að koma
með þetta 20 og uppí 40 tonn úr
róðri. Bátar frá ýmsum stöðum á
Norðurlandi væru nú komnir á
Breiðafjarðarmiðin og svo mikið
bærist að landi á Snæfellsnesi að
aka þyrfti aflanum allt til Akra-
ness, svo hægt væri að vinna
hann.
Það er alveg hroðalegt að
verða að stoppa svona á miðri
vertíð í mokfiskiríi, sagði Sigurð-
ur Kristjánsson skipstjóri.
- S.dór
Miðvikudagur 17. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Sendinefnd
suður
Hópur Grímseyinga hefur ver-
ið í Reykjavík að undanförnu til
að vekja athygli ráðamanna hér
syðra á hinu alvarlega atvinnu-
ástandi í Grímsey og sagt var frá í
Þjóðviljanum sl. föstudag. M.a.
hitti sendinefndin þingmenn kjör-
dæmisins og í dag er ætlunin að
hitta sjávarútvegsráðherra að
máli þar sem hann verður stadd-
ur á Akureyri.
Ástæða hins alvarlega atvinnu-
ástands sem nú blasir við eyjar-
skeggjum er að meginhluti bát-
anna er að verða búinn með afla-
kvóta sína. Minni bátamir geta
ekki sótt á djúprækjumið sakir
smæðar og eru því allar bjargir
bannaðar nema aflakvóti verði
rýmkaður. 95% atvinnufærra
Grímseyinga hafa atvinnu sína af
útgerð.