Þjóðviljinn - 19.04.1985, Blaðsíða 2
FRETT1R
Fiskeldi
Álaræktarstöö í burðarliðnum
Talið vístað leyfifáistfyrir álarœkthér álandi. Stöðin verður staðsettí
Þorlákshöfn. Búiðerað hanna stöðina. Rolfog Ragnar íísal hluthafar
Alaræktarstöð er nú í burðar-
liðnum hér á landi og er að-
eins beðið eftir leyfi frá landbún-
aðarráðuneytinu til að hefja áia-
rækt hér á landi, en bannað hefur
verið að flytja inn glerál sem er
forsenda þess að hægt sé að hefja
álarækt. Búið er að hanna stöð-
ina sem staðsett verður í Þorláks-
höfn. Um leið og leyfið fæst verð-
ur haflst handa með tilraunarækt
í kerjum, þar til stöðin verður til-
búin. Talið er að á milli 25-40
tonn af ál vanti á heimsmarkað-
inn.
Þeir sem að þessari álastöð
standa eru Árni Gunnarsson
fyrrum alþingismaður, Ragnar
Halldórsson í ísal, Jón Ingvars-
son, Ólafur Stefensen og Rolf Jó-
hansen.
Rolf sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að áhugi væri hjá
þeim fimm-menningum á því að
fá erlent fjármagn inní fyrirtækið
uppá 50% eignaraðildar og væri
mjög auðvelt að fá það sökum
þess hve álarækt er ábatasöm.
Eins sagði Rolf að þeir myndu
leita til Dana um aðstoð til að
byrja með, en Danir hafa mikla
reynslu í álarækt.
ísland er mjög heppilegt land
til álaræktar vegna jarðhitans, en
állinn er alinn í allt að 24 gráðu
heitu vatni og við það hitastig nær
gleráll þeirri þyngd á einu ári,
sem tekur fimm ár úti í náttúr-
unni. -S.dór
)
Útflutningsuppbœtur
Ur 7%
í 4%
Ætlast er til þess að bændur
sjái þjóðinni jafnan fyrir nægum
búvörum. Nú er framleiðslan
sveiflukennd eftir árferði. Eigi
hún að nægja þjóðinni í meðalár-
um og lakari má búast við nokk-
urri offramleiðslu í góðæri. Hana
verður að reyna að selja á er-
lendum markaði. Til þess að
tryggja bændum skaplegt verð
fyrir þá framleiðslu var 10% út-
flutningsbótarétturinn lögfestur.
Hann er einskonar tekjutrygging
bænda.
Nú er stefnt að því að afnema
hann í áföngum. í 36. gr. hins
nýja frumvarps um Framleiðslu-
ráð er ráð fyrir því gert að dregið
verði úr útflutningsuppbótum.
Skulu þær að hámarki nema eftir-
farandi hlutföllum af heildar-
verðmæti búvöruframleiðslunn-
ar:
Árið 1986 7%. Árið 1987 6%.
Árið 19885%. Árið 19895%. Og
árið 1990 4%.
Og hvað svo? -mhg
Það er ekki ví»t að hópurinn á þessari mynd sé jafn glaðhlakkalögur í dag eins og í gær þegar myndin var tekin. Þarna eru efstu
bekkingar Verslunarskólans í kjólfötum og peysu að minnast upphafs síðasta lestraráfangans fyrir stúdentspróf. Ljósm. E.ÓI.
Fæðingarorlof
Afgreiðið málið!
4200 undirskriftir til stuðnings frumvarpi um lengingu
að voru konur á Egilsstöðum
sem hófu undirskriftasöfnun
til stuðnings frumvarpi Kvenna-
iistans um lengingu fæðingaror-
lofs, sagði ína Gissurardóttir,
starfsmaður Kvennalistans við
Þjóðviljann. Listarnir dreifðust
um landið þó hér væri ekki um
markvissa söfnun að ræða og
okkur þótt rétt að afhenda þá
heilbrigðis- og tryggingarmála-
nefnd Alþingis til að sýna að fólk
hefur áhuga á þessu máli.
Frumvarpið hefur nú verið 4
mánuði í nefnd og ekki enn verið
sent út til umsagnar sem hljóta að
teljast forkastanleg vinnubrögð.
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, þingmaður Kvennalistans
mælti fyrir frumvarpinu í febrúar
’84 og málinu var þá vísað til
nefndar að loknum umræðum. í
haust var frumvarpið lagt fram að
nýju og aftur svæft í nefnd.
Undirskriftarlistarnir með
nöfnum rúmlega 4200 íslendinga
fœðingarorlofs.
voru því afhentir heilbrigðis- og
tryggingarmálanefnd með
áskorun um að afgreiða frum-
varpið hið snarasta svo Alþingi
gæti fengið það aftur til umfjöll-
unar og atkvæðagreiðslu áður en
þingi lýkur,“ sagði ína.
-aró
Atvinnuleysisbœtur
18% hækkun
Framkvæmdastjóri Verka-
mannasambands íslands óskar
eftir að því verði komið á fram-
færi að við útgáfu laga um hækk-
un atvinnuleysisbóta myndu þær
hækka um 15,3% og að meðaltal-
inni hækkuninni 1. maí nk verði
heildarhækkunin um 18% en
ekki 22% eins og fram mun hafa
komið við umræður á Alþingi í
fyrradag.
Við gildistöku hinna nýju laga
hækka fullar dagsbætur úr 597,52
kr í 688,88 krónur. 1. maí hækka
bætur fyrir hvern dag upp í 705.36
krónur. v
Flokksstarf
Vorhappdrættí ABR
Vorhappdrætti 1985
Vinningar;
Dregid 10. mai 1. Ferð til uimarparidlurinnar Rhodos með Samvinnuíeröum - Landsýn 25.000 5. Dvöl 1 sumarhúsi f Karlslunde eða Gillelcjc ( Danmörku á vegum Samvinnufcröa - Landsýn 15.000 Verflkr 100
Samvinnufcröum - Landsýn . 20.000 3. Ferö til Rimini á Itallu meö Samvinnuferöum - Landiýn . 20.000 6. Dvól f sumarhúsi f Karlslundc eða Gillelcjc f Danmörku á vcgum Samvinnuferða - Landsýn 15.000
Hotlandi á vcgum Samvinnuferða - Landsýn . 15.000 Vlnnlnxar aUs 110.000 I'jökli mið 6.50
Alþýðubandalagið í Reykjavík
hefur hrundið af stað vor-
happdrætti 1985 og er fjöldi
glæsilegra vinninga í boði. í frétt
frá félaginu segir m.a.: „Verða
kosningar í vor? Þetta er spurn-
ing sem hvarvetna er verið að
ræða. Svarið vitum við ekki. Allir
eru þó sammála um að Alþýðu-
bandalagið þurfi að vera viðbúið
kosningum á árinu. Baráttan
gegn ríkisstjórninni verður hörð
hér á Reykjavíkursvæðinu. Þar
má Alþýðubandalagið í Reykja-
vík ekki láta sitt eftir liggja. Fé-
lagið býr sig nú til kosningabar-
áttu með því að efna til vor-
happdrættis. Alþýðubandalagið
minnir á að þeim krónum sem
varið er til baráttu gegn stjórn-
inni er vel varið. Þær munu
ávaxta sig betur fyrir launafólk en
nokkur banki býður“.
Vinningar eru m.a. ferð til
Rhodos með Sammvinnuferðum
Landsýn, ferðir til Rimini með
sömu ferðaskrifstofu svo og til
sumarhúsa í Danmörku og Hol-
landi. Eru allir þeir sem fengið
hafa heimsenda miða hvattir til
að kaupa eða selja þá öðrum.
Dregið verður 10. maí.
-v.
Bjórinn
r
Alit meirihlutans
komið fram
Meirihluti allsherjarnefndar
neðri deildar skilaði loks í
gær áliti og breytingartillögum
um hið svokallaða bjórmál. Má
því búast við að málið komi á dag-
skrá í næstu viku.
f meirihlutaálitinu kemur fram
að 12 aðilar voru beðnir um um-
sögn um frumvarpið. Örfáir aðil-
ar tóku ekki afstöðu, en annars
skiptust álitin í tvö horn, með og
á móti. Segir að nefndin hafi haft
það að leiðarljósi að athuga mál
þetta gaumgæfilega, vanda
vinnubrögð sín og hrapa ekki að
afgreiðslu þess, enda málið við-
kvæmt og umdeilt. Áður hefur
verið skýrt frá þeim breytingum
sem meirihlutinn leggur til að
gerðar verði við frumvarpið, þ.e.
að hámarksstyrkleiki verði 5%,
bjór verði aðeins seldur í verslun-
um ÁTVR og að lögin taki ekki
gildi fyrr en 1. mars 1986. Þá
leggur nefndin til að þau verði
endurskoðuð fyrir árslok 1988,
-ÁI
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN