Þjóðviljinn - 19.04.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
EnnstóöKRíFH
FH vann þó 25:23 og getur orðið meistari í kvöld
Guðmundur Steinsson tryggði Fram
aukastig með sínu fyrsta marki í
Fteykjavíkurmótinu í ár.
KR veitti FH harða keppni eina
ferðina enn þegar liðin mættust í
úrslitakeppni 1. deildar í Höllinni
í gærkvöldi. KR komst í 7:2 í
byrjun og leiddi til loka fyrri hálf-
leiks er FH náði að komast yfir
með nokkrum heppnisbrag og
leiða 15:14 í hléi. Seinni hálf-
leikur var síðan hnífjafn, KR
minnkaði muninn í 24:23 hálfri
mínútu fyrir leikslok þegar
Haukur Ottesen skoraði með
lúmsku skoti, en Hans Guð-
mundsson átti síðan lokaorðið,
25:23.
Þar með geta úrslit íslands-
mótsins ráðist í kvöld. Takist FH
að sigra Val er meistaratitillinn í
höfn hjá liðinu. Sá leikur byrjar
kl. 21.30 en kl. 20 leika Víkingur
og KR.
FH-ingar virkuðu ótrúlega
áhugalausir. Kristján Arason og
Hans Guðmundsson voru teknir
úr umferð allan tímann - Kristján
náði þó að rífa sig lausan hvað
eftir annað og var bestur FH-
inga. Jón Erling Ragnarsson,
Guðjón Árnason og Sveinn
Bragason áttu allir góða spretti.
KR dalaði eftir góða byrjun,
áhugaleysið fór vaxandi eftir því
sem á leið. Jóhannes Stefánsson,
Haukur Geirmundsson og Páll
Björgvinsson voru bestu menn
liðsins ásamt Jens Einarssyni
markverði. _____
Mörk FH: Kristján 8 (1 v), Jón Erlina 4,
Sveinn 4, Guöjón Á. 3, Þorgils Ottar
Mathiesen 2, Guöjón Guömundsson 2,
Hans 1 og Valgaröur Valgarösson 1.
Mörk KR: Jóhannes 6 (2 v), Haukur G. 4,
Páll 4, Haukur Ott. 3, Hörður Haröarson 3
og Ólafur Lárusson 3.
- hs/VS
Kristján Arason skoraði 8 mörk í gær-
kvöldi þrátt fyrir stranga gæslu.
Reykjavíkurmótið
Aukastigið hafðist
Handbolti
Víkingar steinlágu
Guðmundur tryggði það á síðustu sekúndu
Staðan
Guðmundur Steinsson tryggði
Fram aukastig gegn ÍR á síðustu
stundu í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu í gærkvöldi. Hann
skallaði knöttinn snyrtilega yfir
úthlaupandi markvörð IR á síð-
ustu sekúndum leiksins - ÍR rétt
gat byrjað á miðju áður en
flautað var af - úrslitin 3-0.
Guðmundur Torfason skoraði
fyrsta mark Fram eftir fimm mín-
útna leik og Ómar Torfason bætti
öðru við í byrjun seinni hálfleiks.
ÍR beit hressilega frá sér en sókn
Fram var þung undir lokin og hún
skilaði sér í þriðja markinu og
þriðja stiginu.
Staðan í A-riðli þegar einn
leikur er eftir:
Fram.................3 2 0 1 6-1 6
Þróttur..............2 2 0 0 4-1 5
KR...................2 0 111-41
IR...................3 0 1 2 2-7 1
Helgar-
sportið
íslandsmót íþróttasambands
Fatlaðra verða haldin í íþrótta-
höllinni á Akureyri um helgina.
Þátttaka í mótinu er geysilega
mikil, á annað hundrað keppend-
ur frá níu félögum.
í tengslum við mótin stendur ÍF
fyrir 5 km götuhlaupi á sunnudag-
inn, í Þórunnarstraeti. Þátttak-
endur verða bæði fatlaðir og óf-
atlaðir og mega þeir ferðast þessa
vegalengd á þann hátt er þeim
hentar. Vélknúin ökutæki og
hestar verða þó ekki leyfð.
Borðtennis
íslandsmótið í borðtennis fer
fram í Laugardalshöllinni um
helgina. Keppt verður bæði laug-
ardag og sunnudag og byrjað
13.30 báða dagana. Keppni lýkur
með úrslitum í einliðaleik kl.
20.30 á sunnudagskvöldið.
Knattspyrna
Bikarkeppni KRA hefst um
helgina en í henni taka þátt Akur-
eyrarfélögin Þór, KA og Vaskur
ásamt Leiftri frá Ólafsfirði. Fyrsti
leikurinn verður á Sanavellinum á
morgun, laugardag, kl. 16 og
leika þar KA og Vaskur. Kl. 14 á
sunnudag leika síðan KA og
Leiftur á sama stað.
Valur og Víkingur leika í
Reykjavíkurmótinu, meistara-
flokki karla, kl. 15 á morgun á
gervigrasinu. Kl. 19 á sunnudags-
kvöld mætast sömu félög í
meistaraflokki kvenna. Leikið
verður í Litlu bikarkeppninni um
helgina og mætast ÍA og FH á
Akranesi á morgun.
Handbolti
Síðustu leikir 3. umferðar
úrslitakeppninnar í 1. deild fara
fram .' Laugardalshöllinni í kvöld.
Víkingur og KR mætast kl. 20 og
síðan leika Valur og FH kl. 21.30.
Fram og Þróttur fara í undan-
úrslit, þaö lið sem verður ofar í
riðlinum þegar upp er staðið
leikur við lið númer tvö í B-riðli
en lið númer tvö við lið númer
eitt í A-riðli, sem verður örugg-
lega Valur.
Ómar Torfason hefur nú
skorað flest mörk í A-riðli, þrjú,
en Kristinn Björnsson, Val, mest
í B-riðli, fjögur.
-VS
í 1. deild karla i handknattleik
eftir leikina í gærkvöldi:
FH........... 14 10 3 1 368-330 23
Valur........ 14 7 4 3 299-283 18
Vlkingur..... 14 5 1 8 302-323 11
KR........... 14 1 2 11 294-327 4
Markahæstir
Kristján Arason, FH...............93
HansGuðmundsson, FH...............84
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi..78
Viggó Sigurðsson, Víkingi.........68
HaukurGeirmundsson, KR............64
Danmörk
Simonsen tilbúinn!
Átti stórleik með Vejle og gerði glœsimark
Frá Emil Björnssyni fréttamanni
Þjóðviljans í Danmörku:
„Allan Simonsen er klar for
landsholdet“, Simonsen tilbúinn í
landsliðið, var inntakið í aðalfyr-
irsögnum dönsku blaðanna í gær.
Simonsen, sem ekki hefur leikið
„alvörulandsleik“ síðan hann
brotnaði í fyrsta leik Evrópu-
Samningur
Framarar
endurnýja
Knattspyrnudeild Fram hefur
endurnýjað auglýsingasamning
sinn við IBM en í gildi er
rammsamningur til fimm ára frá
síðasta ári. Meistaraflokkur
Fram mun því áfram leika með
auglýsingu frá IBM á búningum
sínum.
Framarar hafa einnig gert á-
framhaldandi samning við
Heildverslun Björgvins Schram
um að allir flokkar félagsins leiki í
Adidas-búningum. Þetta er
fimmta árið í röð sem Fram notar
eingöngu Adidas-búninga.
Brynjar
Uppskurði
seinkað
Það er óvíst að Brynjar Kvaran
markvörður Stjörnunnar og
landsliðsinns í handknattleik
þurfi að gangast undir uppskurð
strax. Honum verður sennilega
seinkað þannig að Brynjar ætti
að geta leikið með Stjörnunni í
undanúrslitum bikarkeppninnar.
Til undanúrslitanna verður dreg-
ið í beinni sjónvarpsútsendingu í
íþróttaþættinum á laugardag.
-hs
keppninnar í Frakklandi í fyrra,
er kominn í sinn gamla ham.
Simonsen var potturinn og
pannan í öllu hjá Vejle um helg-
ina er liðið gerði jafntefli við
Lyngby, 1:1, í annarri umferð
dönsku 1. deildarinnar. Hann
kórónaði frammistöðu sína með
gullfallegu marki og danska
landsliðið hlýtur að geta nýtt sér
krafta hans í HM-leikjunum sem
framundan eru.
Eftir tvær umferðir í dönsku 1.
deildinni eru Kastrup og Næstved
einu liðin sem eru með 4 stig. Það
kemur mjög á óvart, Kastrup eru
nýliðar í deildinni og Næstved
slapp naumlega við fall í fyrra.
Valur Ingimundarson var stigahæst-
ur gegn Finnum í gær.
Aberandi áhugaleysiþegar Valur vann Víking
31
Hvorki áhorfendur né leik-
menn höfðu gaman af leik Vals og
Víkings í úrslitakeppninni í gær-
kvöldi. Leikið var í Laugardals-
höll og steinlágu Víkingar í lé-
legum leik. Valsmenn sigruðu
með 31 marki gegn 18, eftir að
staðan hafði verið 14:9 í leikhléi.
Leikurinn byrjaði þokkalega
og var jafnt á öllum tölum upp í
4:4. Þá skildu leiðir og Valur
skoraði næstu 4 mörkin og í hálf-
leik var staðan orðin 14:9.
Víkingar voru hálfvegis búnir
að missa áhugann, en héldu þó
svipuðum mun þar til að 10 mín.
voru eftir af leiknum og staðan
var 22:16. En þá nánast hættu
þeir og Valsmenn skoruðu 9 gegn
2 á lokamínútunum, og leiknum
lauk því 31:18.
Víkingarnir voru mjög daufir,
helst að Steinar Birgisson hafi
:18
reynt að standa sig, fyrir utan
Kristján Sigmundsson sem varði
vel. Valsmenn voru öllu skárri,
en smituðust af áhugaleysi Vík-
inga. Einar Þorvarðarson varði
mjög vel og Jón Pétur Jónsson
átti ágætan leik. Þá áttu þeir
Guðni Bergsson og Ingvar Guð-
mundsson góðan sprett í lokin og
skoruðu þeir samanlagt 7 af 8 síð-
ustu mörkum Vals.
Dómarar voru þeir Björn Jó-
hannesson og Rögnvaldur Er-
lingsson og voru þeir með betri
mönnum á vellinum.
Mörkin: Valur: Jón Pétur 8/1, Jakob Sig-
urösson 8/2, Guöni 5, Valdimar Grímsson
4, Geir Sveinsson 2, Ingvar Guömundsson
2/1, Theódór Guðfinnsson og Þorbjörn
Guömundsson 1.
Vikingur: Þorbergur Aöalsteinsson 6,
Steinar 6, Viggó Sigurösson 2, Hilmar
Sigurgislason 2, Siggeir Magnússon 1 og
Siguröur Ragnarsson 1.
- gsm
Körfubolti
Ekki stig í
hálfa níundu
mínútu!
Yfirburðasigur Finna eftir jafnan fyrri
hálfleik, 90:53
„Fyrri hálfleikur var jafn góð-
ur hjá íslenska liðinu og sá seinni
var lélegur. Finnar eru n\jög
stcrkir, léku fast og voru grimmir
eins og alltaf og i seinni hálf-
leiknum átti íslenska liðið aldrei
möguleika,“ sagði Kristinn Jör-
undsson fararstjóri íslenska
landsliðsins í körfuknattleik í
samtali við Þjóðviljann í gær.
ísland tapaði sínum fyrsta leik
á Polar Cup sem fram fer í bæn-
um Kouvola, skammt frá Hels-
inki, höfuðborg Finnlands, gegn
Finnum í gærdag. Finnar unnu
yfirburðasigur, 90:53, í þessum
fyrsta leik mótsins.
Fyrri hálfleikur var mjög góður
hjá íslenska liðinu, að sögn Krist-
ins, og það hafði oft forystu.
Finnar náðu þó yfirhöndinni fyrir
hálfleik, 36:31. Þeir Pálmar Sig-
urðsson, ívar Webster og Jón Kr.
Gíslason léku allir mjög vel í fyrri
hálfleiknum en undir lok hans
varð íslenska liðið fyrir því áfalli
að Pálmar Sigurðsson fékk högg í
andlitið. Hann var fluttur á slysa-
varðstofunna í Kouvola þar sem
saumuð voru fjögur spor í andlit
hans.
Föstudagur 19. apríl 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15
Þetta fói greinilega illa með ís-
lenska liðið og í byrjun seinni
hálfleiks skoraði það ekki stig
hvorki meira né minna en í hálfa
níundu mínútu! Finnar náðu al-
gerri yfirburðastöðu sem ísland
réð ekkert við. Þegar ljóst var að
hverju stefndi voru ívar og Torfi
Magnússon hvfldir fyrir átökin í
dag en ísland mætir bæði Svíum
og Norðmönnum.
„Ég reikna með Svíum svipuð-
um og Finnum og Norðmenn eru
mjög sterkir. Við getum þó unnið
þá ef við dettum niður á mjög
góðan leik. Það er raunhæfast að
ætla sér sigur gegn Dönum í loka-
leiknum á sunnudag. En fyrst og
fremst lítum við á þetta mót sem
fyrsta skrefið í undirbúningi liðs-
ins fyrir Evrópukeppnina næsta
vor,“ sagði Kristinn Jörundsson.
Stig Islands skoruðu: Valur Ingimund-
arson 14, Pálmar Sigurðsson 10, Ivar We-
bster 8, Birgir Mikaelsson 7, Guöni Guðna-
son 4, Tómas Holton 3, Torfi Magnússon
3, Gylfi Þorkelsson 3 og Jón Kr. Gíslason 1.
ísland leikur við Svíþjóð kl. 11
að íslenskum tíma í dag og við
Noreg kl. 17.