Þjóðviljinn - 19.04.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.04.1985, Blaðsíða 16
Aðaisími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. MOÐVIUINN Föstudagur 19. apríl 1985 88. tölublað 50. örgangur Heiðargerðið Bakkar Davíð? Húsbyggingum á róló frestað í borgarstjórn Það var samþykkt á borgar- stjórnarfundi 8. maí í fyrra að reisa þarna 2 hús og ég greiddi þá atkvæði gegn því að þetta land yrði tekið undir íbúðarbyggð í óþökk íbúa hverfisins,“ sagði Sig- urjón Pétursson borgarfulltrúi við Þjóðviljann. Mál þetta átti að koma fyrir borgarstjórnarfund í gærkvöldi en því var frestað. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans mun Da- víð Oddsson borgarstjóri nú vera að hugleiða að falla frá því að byggja á róluvellinum og sama er að segja um ýmsa aðra borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Á borgarstjórnarfundi í gær var dreift mótmælum þeirra sem upphaflega bentu á svæðið sem tilvalið íbúöarsvæði og óskuðu eftir að reisa þar hús. Telja þeir sem eru kennarar við hverfis- skólann að undirbúningsvinna sín hafi í heimildarleysi verið not- uð af Borgarskipulagi til þess eins að láta aðra en þau njóta lóð- anna. „Við teljum að meðferð þessa máls sé siðlaus og ekki í takt við þá stefnu sem meirihluti borgarstjórnar telur sig fylgja,“ segir í bréfi þeirra. Tillaga er um úthlutun á annarri lóðinni nú til óskylds aðila, til uppgjörs á 25 ára gamalli erfðafestu Guðmund- ar í Víði. - aró Tarkovskísöfnun 1851 skrifuðu undir Forsvarsmenn Tarkovskí-söfn- unarinnar afhendu í fyrradag so- véska sendiráðinu undirskrifta- lista með nöfnum 1851 konu með áskorun um að hjálpa syni Tark- ovskí hjónanna að komast úr landi í Sovétríkjunum til foreldra sinna sem búa á Ítalíu. Hefur á- skorunin verið send Gorbatsjov aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Undirskriftasöfnunin stóð í eina viku. Nokkrir íslenskar kon- ur áttu upptökin að söfnuninni en ýmis samtök komu þeim til liðs eins og Kvennahúsið, Kvenna- fylking Alþýðubandalagsins og Landsamband Sjálfstæðis- kvenna. - v Myndlistarþing í dag og á moigun Idag og á morgun verður haldið Myndlistarþing í Borgartúni 6 og er yfirskrift þess „Myndlist sem atvinna“. Hefst þingið kl. 10 árdegis í dag og stendur til kl. 18. Á morgun verður þingað frá 12.30 til 4. Að þessu þingi, sem er annað Myndlistarþingið sem haldið er, standa öll stéttarfélög mynd- listarmanna en þau mynda sam- eiginlega Samband íslenskra myndlistarmanna, SÍM. Vernd- ari þingsins er Vigdís Finnboga- dóttir forseti. Forseti myndlistarþingsins er Björn Th. Björnsson listfræðing- ur, fundarstjóri Flörður Ágústs- son listmálari og ritari Kristján Davíðsson listmálari. Þingið hefst á ávarpi Ragnhild- ar Helgadóttur menntamálaráð- herra en að því loknu flytja Hall- dór Blöndal alþingismaður, Sva- va Jakobsdóttir rithöfundur og Gunnsteinn Gíslason myndhög- gvari og formaður SÍM fram- söguerindi en að þeim loknum verður starfað í umræðuhópum. - ÞH Frétta myndir ársins 1984 Fréttamynd ársins 1984, valin úr safni 5811 mynda eftir 859 Ijósmyndara frá 55 löndum. Myndin sýnir greftrun barns sem varð fórnarlamb sprengingarinnar í verksmiðju Union Carbide í borginni Bophal á Indlandi. World Press Photo í Listasafni ASI Myndin sem fylgir þessari frétt er tekin af greftrun barns í Bop- hal á Indlandi eftir að sprenging hafði orðið í verksmiðju Union Carbide þar í borg. Þessi mynd var valin fréttamynd ársins 1984 og er hún á sýningu sem opnuð verður í Listasafni ASÍ í kvöld. Sýningin nefnist World Press Photo og kemur hingað frá Hol- landi en þar er stofnun með þessu nafni sem efnir árlega til verð- launasamkeppni meðal ljós- myndara um allan heim. Að verðlaunaafhendingu lokinni er sett upp sýning á bestu myndun- um og hún send víðsvegar um heim. Á sýningunni eru 137 myndir úr samkeppninni og er þeim skipt upp í 16 flokka, fréttamyndir, íþróttamyndir, náttúrumyndir osfrv. Eru verðlaun veitt fyrir hvern flokk, bæði einstakar myndir og myndaflokka. Myndin sem fylgir þessari frétt er úr myndaröð frá Bobhal eftir ind- verska ljósmyndarann Pablo Bartholomew en hann starfar fyrir mynddreifingarfyrirtækið Gamma. íslenskum blaðaljósmyndur- um var boðið að taka þátt í sýn- ingunni núna og eiga þeir nokkuð af myndum þar. Boðið barst þeim með litlum fyrirvara svo sýningin gefur ekki rétta mynd af hæfni íslenskra fréttaljósmynd- ara. Hana verður hægt að meta í haust en þá verður efnt til verð- launasamkeppni meðal íslenskra fréttaljósmyndara um mynd árs- ins. Er það stefna Listasafns ASÍ að sýningin World Press Photo verði árlegur viðburður og að þar verði jafnframt sýndar þær myndir íslenskrar sem verðlaun hljóta hér heima. - ÞH Eiturlyf Kröfu um rannsókn synjað Rannsóknarlögregla ríkisins telur ekki ástœðu til að rannsaka meintar lyfjagjafir lœkna til vímufíkins fólks. Sumum lœknum laus penninn Rannsóknarlögrcgla ríkisins hefur ákveðið að verða ekki við beiðni aðstandenda fíknilyfja- neytanda í Reykjavík um opin- bera rannsókn á lyfjagjöfum lækna til vímufikins fólks sem hann óskaði eftir 2. apríl sl. Segir í bréfl sem aðstandendum barst í gær að „svo sem málatilbúnaði yðar er háttað, þykja ekki efni til að verða við beiðni yðar um opin- bera rannsókn en beiðni yðar fylgdu engin önnur gögn.“ DV og Þjóðviljinn hafa birt Eiturlyf Krafa um opinbera rannsókn Lögð hefur verið fram krafa um opinbera rannsóVn á lyfjagjöf- um lsekna í vímufíkið fólk hér á landi um margra ára skeið svo og í nútfð, einsog það er orðað í kröf- unni sem lögð var fram hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins fyrir páska. Samkvæmt heimildum Þjóö- Tveir lœknar sviptir leyfi á síðasta ári viljans hefur maðurinn sem lagði í frétt DV sl. miðvikudag fram kíöfuna þckkingu á þessum greinir frá því að tveir læknar hafi málum, þarsem hann ólst upp á verið sviptir levfi til að ávísa lyfj- heimili með fórnarlambi vímu- um á sl. ári. I viðtali við DV á neyslu. „Ég óska að hraðað verði aö megni rannsókn þessari því um líf og heilsu fólks er að ræða." segir í kröfu mannsins. miðvikudaginn segir Guðjón Magnússon landlæknir að sér væri „engin launung á því, það er alltaf einhverjum læknum laus penninn". - 6g fréttir að undanförnu um baráttu þessa manns, sem er sonur fíkni- efnaneytanda, fyrir því að rann- sókn fari fram á meintum, óhóf- legum lyfjagjöfum íslenskra lækna til vímufíkins fólks. í kröfu mannsins segir: „Ég óska að hraðað verði að megni rannsókn þessari, því að um líf og heilsu fólks er að ræða.“ Þess skal getið að settur land- læknir, Guðjón Magnússon, hef- ur látið hafa eftir sér í blaðavið- tali að „sér væri engin launung á því að alltaf sé einhverjum lækn- um laus penninn" eins og hann orðaði það. Kvennaathvarfið Vantar 1,4 miljónir 1,4 miljónir króna vantar uppá að endar nái saman hjá Kvenna- athvarfínu í Reykjavík í ár, og segir gjaldkeri samtakanna, Olöf Briem að stefni í gjaldþrot seinni part ársins. „Við munum auðvit- að leita eftir aukafjárveitingum frá hinu opinbera, en ekki loka þegjandi og hljóðalaust,“ segir hún og bendir á að mörg sveitarf- élaganna á suð-vestur horninu hafi synjað styrkbeiðnum kvenn- aathvarfsins. Sjá bls. 6.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.