Þjóðviljinn - 19.04.1985, Page 5

Þjóðviljinn - 19.04.1985, Page 5
Spurt um... ...framkvæmd þingsályktana Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fram fyrirspurn til forsætis- ráðherra um framkvæmd þingsá- lyktana. Hún spyr hvaða afgreið- slu þingsályktanir sem alþingi hefur samþykkt s.l. 10 ár, hafi hlotið hjá stjórnvöldum. ...sjávarútveg á Suðurnesjum Kjartan Jóhannsson og Karl Steinar Guðnason hafa lagt fram fyrirspurn til sjávarútvegsráð- herra um úrbætur í sjávarútvegi á Suðurnesjum. Þeir spyrja hvort ráðherra sé reiðubúinn til að gera ráðstafanir sem megi verða til að endurbæta og endurreisa rekstur sjávarútvegsgreina á Suðurnesj- um, í ljósi þess uggvænlega ástands sem þar ríki. Þá spyrja þeir hvort ráðherrann sé tilbúinn til að úthluta viðbótarkvóta til Suðurnesjaskipa vegna óskar sem fram hefur komið. Loks spyrja þeir hvort ráðherra sé reiðubúinn til að leita leiða til að koma á miðlun afla til þessa svæðis frá öðrum svæðum sem verða að fá til sín erlent vinnuafl til að geta ráðið við þann afla sem á land berst. ....hvalveiðar Valdimar Indriðason hefur lagt fram fyrirspurn til sjávar- útvegsráðherra um hvalveiðar. Hann spyr hvort teknar hafi verið ákvarðanir um framhald hval- veiða og þar með hrefnuveiða við ísland eftir þetta ár. Sé ekki svo: Hvað hyggst sjávarútvegsráð- herra leggja til í þessum efnum? ...útflutning landbúnaðar- vara Eiður Guðnason hefur lagt fram fyrirspurn til landbúnaðar- ráðherra um útflutning niður- greiddra landbúnaðarafurða. Hann spyr hvernig háttað. hafi verið útboðum á flutningi þessara vara til útlanda 1983 og 1984, hvenær útboðin hafi átt sér stað, hvort þau hafi verið opin eða lok- uð og hvernig flutningar þessir skiptust á milli eftirtalinna aðila: Eimskips, Hafskips, Skipa- deildar SÍS, og annarra. ....lækninga- mátt Blá lónsins Gunnar G. Schram hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráð- herra um könnun á lækningamæti jarðsjávar við Svartsengi. Hann spyr hvað líði framkvæmt álykt- unar um þessa könnun sem sam- þykkt var á alþingi 1982. Ekki bólar á frumvarpi Málið búið að vera tœptár ínefnd. Alexander Stefánsson: Mun verða afgreittfyrirþinglok. Halldór Blöndal: Liggur ekkertfyrir um hvaða tillögur verða lagðarfyrirþingið Spurt um... ....lögreglu- varðstöð í Garðabæ Gunnar G. Schram hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráð- herra um lögregluvarðstöð í Garðabæ. Hann spyr hvort ráð- herra telji ekki tímabært að koma lögreglustöð á fót þar og ef svo er, hvenær búast megi við að hún verði opnuð. ... rannsóknir á hörpudiski Sturla Böðvarsson, sem er varamaður Friðjóns Þórðarsonar á þingi, hefur lagt fram fyrirspurn til sjávarútvegsráðherra um rannsókn á hörpudisksmiðum í Breiðafirði. Hann spyr hvort ráð- herra hafi gert ráðstafanir til að hörpudisksmiðin þar verði rannsökuð, eftir að aflamark á hörpudiski var aukið á þessu ári. Sé ekki svo, spyr Sturla hvort ráðherra muni þá beita sér fyrir því að nákvæmar rannsóknir fari fram á vegum Hafrannsókna- stofnunar er tryggi að veiðisvæði verði ekki ofveidd nú þegar sókn- in er aukin. Alexander Stefánsson fé- lagsmálaráðherra lýsti því yfir á alþingi í gær að nefnd sem hann skipaði í júní í fyrra myndi loks skila frumvarpi að nýjum lögum um húsnæðis- samvinnufélög og búseturétt- aríbúðir fyrir 27. apríl nk. Jafn- framt sagði ráðherrann að stefnt væri að því að Ijúka af- greiðslu frumvarpsins á þessu þingi. Þessi langi meðgöngutími á sér sem kunnugt er rætur í ágreiningi stjórnarflokkanna um húsnæð- ismál og það var ekki fyrr en eftir að fjórir þingmenn stjórnarand- stöðunnar höfðu eggjað Sjálf- stæðismenn til að lýsa sinni skoðun á málinu að Halldór Blöndal sté í stólinn. „Nefnd sem félagsmálaráðherra skipaði 4 mönnum til að samræma sjón- armið stjórnarflokkanna í hús- næðismálum hefur ekki lokið störfum. Meðan svo er ekki, liggur ekkert fyrir um hvaða til- lögur við munum leggja fyrir þingið," sagði hann. Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir hafði framsögu fyrirspurn nokkurra þingmanna um þetta efni. Hún rifjaði upp yfirlýsingar Alexanders 14. maí í fyrra þegar hann sagðist myndu skipa um- rædda nefnd og lofaði því að frumvaip yrði lagt fyrir strax í þingbyrjun sl. haust. Fyrir5 mán- uðum síðan hefði svo ráðherrann í tilefni fyrirspurnar sagt að frum- varpið væri rétt ókomið og þá tekið skýrt fram að stjórnarflokk- arnir væru sammála um þetta mál. „Af hverju tekur svona langan tíma að koma frá sér frumvarpi sem stjórnarflokkarnir eru sammála um?“ spurði hún. Steingrímur J. Sigfússon sagði það eftir öðru að þetta brýna hagsmunamál skuli þvælast svo lengi fyrir stjórnarliðinu og lenda í málasúpunni á síðustu vikum þingsins. Hann sagði ljóst að ekk- ert væri að marka yfirlýsingar fé- lagsmálaráðherra um húsnæðis- mál, fyrir því væru ótal dæmi. Þess vegna yrðu Sjálfstæðismenn að lýsa afstöðu sinni hér og nú. -ÁI. ... atvinnumál Hafnfirðinga Kjartan Jóhannsson hefur lagt fram fyrirspurn til forsætisráð- herra um úrbætur í atvinnumál- um í Hafnarfirði. Hann spyr hvort ríkisstjórnin hafi tekið hið alvarlega atvinnuástand þar til umfjöllunar í framhaldi af áskorun verkalýðsfélaganna þar um. Hann spyr einnig hvort ríkis- stjórninni eða ráðherrum hafi borist málaleitanir frá bæjar- stjórn Hafnarfjarðar varðandi aðgerðir til að bæta atvinnu- ástandið og þá einkum varðandi stöðu BÚH og loks hvort ríkis- stjórnin hafi einhver áform á prjónum til úrbóta í atvinnumál- um í Hafnarfirði. ...ábyrgðirvegna fiskeldis- stöðva Bókmenntaverðlaun Jóns Sigurðssonar Stofnskrá í undirbúningi Þrátt fyrir 300 þúsund króna fjárveitingu alþingis var bók- menntaverðlaunum sem kennd eru við Jón Sigurðsson ekki út- hlútað í fyrra. Frumdrög að stofnskrá sjóðsins liggja ekki enn fyrir, en forsætisráðuneytið hefur málið nú til athugunar. Er ætlun- in að tengja þessi verðlaun öðr- um sjóði sem helgaður er minn- ingu Jóns Sigurðssonar og nefnist Gjöf Jóns Sigurðssonar. Mun skammt að bíða endanlegra til- lagna um þetta efni og þá verður tiltækt fjármagn til verðlaunanna þrátt fyrir að ekki er gert ráð fyrir þeim á fjárlögum 1985. Þetta kom fram í svari Ragn- hildar Helgadóttur, menntamála- ráðherra, í gær við fyrirspurn frá Kristínu Halldórsdóttur. Kristín sagði svör ráðherra og þá töf sem orðið hefur á málinu hafa valdið sér vonbrigðum. Hvatti hún menntamálaráðherra til að hraða framgangi málsins. Það var sumarið 1983 að forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, setti fram hugmyndina að um- ræddum bókmenntaverðlaunum, þá stödd á fæðingarstað Jóns Sig- urðssonar að Hrafnseyri við Arn- arfjörð. Urðu nokkrar deilur vegna þessa, en þær snerust um formsatriði og fáir urðu til þess að gagnrýna verðlaunin sem slík. Alþingi samþykkti síðan sam- hljóða fjárveitingu til þeirra á fjárlögum næsta árs, þ.e. 1984. Kjartan Jóhannsson og Karl Steinar Guðnason hafa lagt fram fyrirspurn til forsætisráðherra um ábyrgðir Framkvæmdasjóðs ís- lands vegna lána til fiskeldis- stöðva. Þeir spyrja hvað tefji að Framkvæmdasjóður veiti Fisk- eldi Grindavíkur og íslandslaxi hf. ábyrgð á láni hjá Norræna fj árfestingarbankanum. ....Kolbeinsey Stefán Guðmundsson hefur lagt fram fyrirspurn til forsætis- ráðherra um Kolbeinsey. Hann spyr hvað líði framkvæmd þings- ályktunar sem samþykkt var 20. apríl 1982 um þar var áskorun á ríkisstjórnina um að koma upp sjómerki á eynni og að kanna hvernig tryggja mætti að eyjan standist heljarafl stórviðra og fsa. - AI. Mengunarvarnir Tillaga Helga felld Tillaga Helga Seljan um að út- vegað yrði 100 miljón króna lán til að endurlána fiskimjölsverk- smiðjum til mengunarvarna og orkuspamaðar var felld í efri deild alþingis á þriðjudag. Að- eins 4 þingdeildarmenn studdu tillöguna, 9 voru á móti. Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra sagðist hafa mik- inn skilning á þessum tillögu- flutningi, en ekki væri hægt að taka svo háa fjárhæð inn í láns- fjáráætlun þessa árs. Stutt væri hins vegar til undirbúnings fjár- laga fyrir árið 1986 og yrði málið þá tekið til athugunar. -ÁI. I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.