Þjóðviljinn - 19.04.1985, Síða 6

Þjóðviljinn - 19.04.1985, Síða 6
ÞJÓÐMÁL Ólöf Briem: Vfirleitt koma konurnar gersamlega peningalausar í athvarfið. (Mynd: Valdís). Jafnréttislög Ákvæðið ekki pappírsins virði Alþingismenn deila á jafnréttismálaráðherra vegna stöðuveitingar í félagsmálaráðuneyti Kvennaath varfið Stefnir í gjaldþrot! Ólöf Briem, gjaldkeri: Fengum aðeins 60% rekstrarkostnaðar í styrki. Vantar 1,4 miljón til að endar nái saman Nei, sá tími cr ekki kominn að við getum bara lokað kvenna- athvarfínu, því miður! Það er ekkert lát á ofbeldi á heimilum þó umræðan hafí vakið marga til umhugsunar og eflaust haft sín áhrif til þess að draga úr því. Að- sóknin heldur hins vegar áfram að aukast og reynslan hefur sýnt að það er gífurleg þörf fyrir kvennaathvarfið. Það stefnir í gjaldþrot seinni part árs, en við munum auðvitað leita eftir auka- Qárveitingum frá hinu opinbera en ekki loka þcgjandi og hljóða- laust,“ sagði Olöf Briem, gjald- keri Samtaka um kvennaathvarf. Eins og fram kom í Þjóðviljan- um í gær hefur orðið 70% aukning á dvalardögum í athvarf- inu á milli ára. Ólöf var spurð hvaða áhrif þetta hefði á rekstur- inn. „Þetta þýðir meira en 100% aukning á rekstrargjöldum. Það segir sig sjálft að heimilisrekstur, þar sem að meðaltali eru 12 manns í mat og fer stundum yfir 20 manns, er gífurlega þungur. Það er afskaplega hæpið að spara meira en þegar er gert í rekstri heimilisins. Launakostnaður er auðvitað mikill, enda er vakt í athvarfinu allan sólarhringinn. Þessi mikla fjölgun hefur líka orðið til þess að við urðum að bæta sérstökum starfsmanni við vegna barnanna, enda eru þau að jafnaði 6 á dag og eiga gífurlega erfitt mörg hver.“ - Borga dvalarkonur ekki fæði og húsnæði? „Yfirleitt koma konurnar ger- samlega peningalausar í athvarf- ið og þær eiga margar erfitt með að borga daggjaldið sem er 150 krónur á dag og óbreytt frá í júní í fyrra. Við treystum okkur ekki til að hækka þau vegna þess að margar þeirra geta hreinlega ekki borgað þetta eins og er. Ég vil taka fram að það er ekkert borg- að fyrir börnin. Kona með 4 eða 5 börn verður að eiga sama aðgang að athvarfinu og kona sem er með eitt barn eða barnlaus. Dag- gjöldin hafa innheimst illa og verst á síðustu mánuðum.“ - Hvernig er þá staðið undir rekstrinum? „Áætlaður rekstrarkostnaður 1985 er 3,4 miljónir króna og inni í þeirri tölu er falið nauðsynlegt viðhald á húsnæði athvarfsins. Eigið fé samtakanna úr söfnun- inni 1983 er nú uppurið enda fór- um við útí að kaupa hús, og þess vegna fórum við í fyrsta skipti framá að opinberir aðilar stæðu að fullu undir rekstrarkostnaði. Eins og staðan er nú höfum við aðeins fengið vilyrði fyrir 60% þeirrar fjárhæðar eða um 2 milj- ónir króna en í fyrra stóðu styrk- irnir undir 70% rekstrarkostnað- ar.“ - Hvaða fjárveitingar hafíð þið fengið? „Við fórum framá að ríkið stæði undir 60% af rekstrinum en 40% skiptust á sveitarfélögin hér í kring eftir íbúafjölda. Þannig fórum við framá 2,1 miljón frá ríkinu en fengum aðeins 1,4 og frá borginni fengum við 625 þús- und en fórum framá 837 þúsund. Frá hinum sveitarfélögunum á svæðinu frá Vestmannaeyjum til Akraness leituðum við eftir ríf- lega 500 þúsund krónum en við- brögðin eru ansi misjöfn. Það má segja að 5 sveitarfélög auk Reykjavíkurborgar hafi alltaf tekið vel í okkar beiðnir þó þau hafi ekki treyst sér til að verða við þeim að fullu. Þetta eru Kópa- vogur, Hafnarfjörður, Mosfells- sveit, Bessastaðahreppur og Sel- foss. Hin hafa yfirleitt neitað. Við teljum þessi sveitarfélög hins vegar fyllilega ábyrg fyrir rekstri kvennaathvarfsins, enda leita konur þaðan oftlega til okkar. Ég vil nota þetta tækifæri til að skora á sveitarstjórnarmenn að sinna nú umsóknum okkar, það veitir ekki af.“ - Nú eiga samtökin líka hús í byggingu, sem ætti að vera hægt að selja? „Það þjónar litlum tilgangi að fara að éta það upp í ár, enda skuldum við andvirði þess í Hús- næðisstjórnarlánum og í eftir- stöðvum af húsnæði athvarfsins og verðum að halda þeirri trygg- ingu. Hins vegar höfum við ekki getað lokið byggingunni hvað þá tekið húsið í notkun eins og til stóðvegnafjárskorts. Peningarn- ir sem til þess voru ætlaðir fóru í þessa miklu rekstraraukningu í fyrra,“ sagði Ólöf Briem að lok- um. -ÁI Þessi stöðuveiting gerðist á sama tíma og ráðherrann lagði hér fram frumvarp um jafna stöðu karla og kvenna. Hann leggur á það áherslu í ræðu sinni að tryggja verði konum jafna möguleika til atvinnu og stöðuhækkana og segist binda vonir við frumvarpið að því leyti. Vonir ráðherrans hafa nú brugðist en þar getur hann ekki sakast við neinn nema sjálfan sig. Hann hefur með gjörðum sínum staðfest að ákvæðið í frumvarpi hans er ekki pappírsins virði, sagði Jó- hanna Sigurðardóttir m.a. á al- þingi á þriðjudag. Langar umræður urðu um veitingu skrifstofustjóraembættis í félagsmálaráðuneytinu 1. mars s.l. í tilefni af fyrirspurn þing- manna Kvennalista. Þær spurðu hvaða rök hefðu legið að baki stöðuveitingunni og hvort ráð- herra teldi að hún samrýmdist jafnréttislögum. Guðrún Agnarsdóttir vitnaði í þau orð ráðherrans frá umræðum um jafnréttisfrumvarpið að kon- um hafi reynst erfitt að fá stöðu- hækkanir. Hún sagði það væri vissulega rétt, en spurningin væri hvers vegna. Hún sagði að ákvörðun ráðherrans um að ráða karl í umrætt embætti en ekki konu sem starfað hefði í ráðu- neytinu árum saman sem deildar- stjóri, krefðist skýringa. Alexander Stefánsson rakti að- draganda þess að ráðið var í stöðuna að nýju og þau ákvæði sem heimila ráðherra að skipa í slíka stöðu án auglýsingar. Hann sagði að Húnbogi Þorsteinsson, fyrrverandi sveitarstjóri í Borgar- nesi sem ráðinn var, væri sá sem hann vissi bestan til þess. Hann lýsti starfsferli Húnboga sem sveitarstjóra í 16 ár og lagði áherslu á að hann hefði notið trausts allra pólitískra flokka, ekki aðeins í sinni heimabyggð, heldur hefði honum einnig verið trúað fyrir störfum á vegum sveitarfélaganna í kjördæminu og á vegum Sambands ísl. sveitarfé- laga. Þá hefði hann átt sæti í stjórnarnefnd fatlaðara og væri einn þriggja höfunda þess bók- haldskerfis sem sveitarfélögin í landinu nota. Alexander baðst undan því að ræða eða bera sam- an kosti annarra starfsmanna ráðuneytisins og sagðist með svari sínu hafa skýrt hvaða rök lágu til grundvallar ráðningunni. Með vísan til þeirra vildi hann svara spurningunni um hvort þetta samrýmdist jafnréttislögum játandi. Hjörleifur Guttormsson sagði málstað ráðherra svo slæman að við lægi að honum væri vorkunn þegar hann nú kysi að verja hann. Hann sagði einsýnt að hér hefði verið vegið að jafréttislöggjöfinni á áberandi hátt og það hlytu menn að fordæma ef þeir meintu nokkuð með yfirlýstum stuðningi við jafnréttissjónarmið í sam- bandi við -stöðuveitingar þegar á hólminn væri komið. Kristín Halldórsdóttir sagði að ráðherrann hefði nú slegist í hóp þeirra sem tala fagurt um að auka hlut kvenna en opinbera síðan blygðunarlaust að hugur fylgir ekki máli. Ólafur Þ. Þórðarson taldi gagnrýnendur ráðherra halda því fram að 16 ára starfsaldur í Borg- arnesi kæmi ekki að gagni í Reykjavík, og efaðist um að gagnrýnin væri á heimildum byggð. Hér væri fremur um póli- tískt skítkast að ræða. Konan sem hér um ræðir hefði aðeins 7 ára starfsaldur sem deildarstjóri í fé- lagsmálaráðuneytinu. Hvar eru mörkin, spurði Ólafur, er það lögfræðiprófið sem ræður? Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir kvað þetta lýsandi dæmi fyrir aðstæður kvenna yfirleitt. Hér væri um hneyksli að ræða, þegar sjálfur ráðherra jafnréttis- mála viðhéldi þeim sjónarmiðum að taka karla fram yfir konur þeg- ar ráðið væri í störf. Guðrún Agnarsdóttir kvað svör ráðherra ófullnægjandi og sagði þau gefa til kynna að hann væri ekki fyllilega sáttur við ákvörðun sína. Tilgangur með fyrirspurninni hefði ekki verið að hygla eða varpa rýrð á einstak- linga, heldur vekja athygli á því hvernig málum væri komið í sjálfu jafnréttisráðuneytinu. Hún benti einnig á að umrædd kona hefði auk 7 ára starfa í ráðuneyt- inu stundað dómarastörf í 13 ár, þannig að starfsreynslan væri 20 ár, en ekki 7. MINNING Tyrfingur Þórarinsson Fœddur 27. desember 1916 - Dáinn 12. apríl 1985 Okkur langar til að segja örfá orð að Tyrfingi látnum. Hann var 68 ára að aldri er hann lést á Borgarspítalanum í Reykjavík. Við unnum með honum á bygg- ingartíma Hrauneyjarfossvirkj- unar og Sultartangastíflu. Hann var alltaf svo lifandi. Það var eng- in lognmolla þar sem hann var. Stórbrotinn var hann, fróður, skemmtilegur og góður. Hann var okkur afar kær. Oft var farið með Tyrfingi um vinnusvæðin er hann vann sín eftirlitsstörf. Þá voru rædd öll heimsins mál. Þetta voru mjög lærdómsríkar ferðir því að Tyrfingur hafði glöggt auga og skilning á öllu er viðkom slysa- og heilsuvernd. Við erum þakklátar fyrir allar samveru- stundirnar, öll spilakvöldin, öku- ferðirnar heim og að heiman. Við kveðjum Tyrfing með söknuði og virðingu. Eiginkonu og fjöl- skyldu vottum við okkar dýpstu samúð. Iða Brá og Jórunn. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. apríl 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.