Þjóðviljinn - 09.05.1985, Page 5
Með vori og hækkandi sól fjölgar stöðugt þeim sem
njóta útiverunnar. Fley ýmiss konar tínast á flot og vog-
arnir hér í kringum Reykjavík iða af lífi og fjöri.
Góðviðrisdag nú í vikunni slóst Einar Ólason ljós-
myndari Pjóðviljans í för með áhugamönnum um segl-
bátasiglingar, þeim Niels Chr. Nielsen og Eru Hlöðvers-
dóttur. Önnur dóttir þeirra hjóna, Bryndís,skellti sér
með. Farkosturinn var Bláa dísin, 22ja feta plastbátur
með heimahöfn í Nauthólsvík.
Við segjum ekkert af afdrifum ljósmyndarans (sem er
allsendis óvanur sjómennsku) en heilsu hafði hann þó til
að taka nokkrar myndir sem hér fylgja með.
Fimmtudagur 9. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
I v.
iii'f •••:
Bláa dísin
í blíðum blæ