Þjóðviljinn - 09.05.1985, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN
i
!
I
í
;
Vantar
hnakk og beisli helst gegn staö-
greiðslu, aðrir skilmálar koma til
greina. Uppl. í síma 621699.
Vantar
Ijósritunarvél A3-A4. Helst með
greiðsluskilmálum. Staðgreiðsla
kemurtilgreina. Uppl. ísíma621699.
Gleraugu töpuðust
Frekar stór kvenmannsgleraugu
töpuðust (h-1) í Ijósri plastumgjörð
með svartri rönd í, töpuðust fyrir
nokkrum vikum. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 30854.
Vesturbær - barnagæsla
Óska eftir áreiðanlegri stúlku/dreng
til þess að gæta eins árs gæja, hluta
úr degi og stundum á kvöldin. Uppl. í
síma 21501.
Til sölu
Málverk eftir Eyjólf Einarsson. Uppl. í
síma 21501.
Svefnsófi til sölu
Tvíbreiður svefnsófi með slitnu á-
klæði fæst gefins. Uppl. í síma 40163.
Stálvaskur
Tvöfaldur stálvaskur ti sölu á kr.
2000.- Uppl. í síma 40163.
Þaulvanur ritari
Vélrita eftir handriti íslensku, ensku,
dönsku og sænsku. Uppl. fyrir hádegi
og á kvöldin í síma 18532 (Guðrún).
Barnapössun
Vill einhver unglingur passa 2 ára
strák í sumar, helst í nágrenni Hrefnu-
götu? Uppl. í síma 14888.
Píanó
Píanó til sölu, selst ódýrt. Uppl. í síma
19937 á kvöldin.
Lítil bátavél
Vantar 2ja cilindra Stewart eða aðra
litla vél á vægu verði. Uppl. í síma
82479 eða 19805.
Til sölu
notuð Atari leikjatölva. Uppl. í síma
75990.
Strauvél/svefnsófi
Til sölu ónotuð Kenwood .strauvél,
vals 61 sm. Einnig til sölu vel með
farinn svefnsófi. Uppl. í síma 78184.
Til sölu
skíði (100 sm, 120 sm og 140 sm),
skíðaskór nr. 31, Kenwood mixari,
Crown hljómtæki, 5 ára tjald og
norskur Linguaphone. Uppl. í síma
19848.
Einstæð móðir
óskar að taka á leigu 2-3ja herb. íbúð.
Á sama stað óskast barnastóll á hjól.
Uppl. í síma 74380 (Inga).
Hvolpar
fást gefins, skosk-íslenskir. Uppl. í
síma 13289.
Athugið
2 vængjahurðir óskast í stofuop.
Uppl. í síma 18681.
Fullorðinn maður
óskar eftir herb. með aðgangi að
snyrtingu og eldunaraðstöðu gegn
vægu verði. Góðri umgengni heitið. Á
sama stað fæst góður Rafha suðu-
pottur (minni gerð) til sölu. Uppl. í
síma 22682 eftir kl. 6 á kvöldin.
Sumarstarf
Óska eftir vinnu við garðyrkjustöð.
Uppl. í síma 75990.
Sjálfsvarnarnámskeið
6 vikna sjálfsvarnarnámskeið verður
haldið á vegum Samtaka um kvenna-
athvarf. Námskeiðið er einungis ætl-
að konum og verður hvern laugardag
frá kl. 10 - 13, í fyrsta sinn þann 11.
maí nk. og lýkur 15. júní. Innritun fer
fram milli kl. 10 og 12 alla virka daga,
sími 23720. Verði stillt í hóf.
Liggur ekki
ýmislegt gamalt dót ónotað hjá ykkur,
td. bækur, plötur, slæðureða annað?
Umsjónarfélag einhverfra barna er
að safna á basar og þiggur slíkt með
þökkum. Sækjum heim, Uppl. í síma
33458 eftir kl. 17.
Óska eftir að kaupa
homsófa eða sófasett. Uppl. í síma
29369. Einnig óskast rúm fyrir 10 ára
stúlku.
Til sölu
stóll (Kevi) og skrifborð (finnskt).
Uppl. í síma 620774 e.kl. 18.
Skodi
120 L árg. '77 til sölu. Er með nýupp-
gerða vél, en þarfnast lagfæringar.
Uppl. í síma 686854.
Húsnæði óskast
Óskum eftir 3ja-4ra herb. íbúð (hjón
með 2 börn). Uppl. í síma 37505.
Atvinna óskast
þrifalegt starf. Ýmislegt kemur til
greina. Uppl. í síma 82827.
íbúð óskast
Óska eftir 2-4ra herb. íbúð (helst í
Hólahverfi) frá 1. júlí. Uppl. í sima
74863.
Hnattlíkan
Fátækur námsmaður vill kaupa
hnattlíkan í góðu ástandi. Uppl. í síma
621454.
Svefnsófi
Vel með farinn svefnsófi til sölu. Er
með bakpúðum og rúmfatageymslu.
Uppl. í síma 29545.
Bamagæsla
Óska eftir konu eða stúlku til að gæta
9 mánaða gamals drengs ca. 4 klst. á
dag í sumar. Sími 29545.
íbúðaskipti - Stokkhólmur
Vil skipta á 3ja herb. íbúð í Stokk-
hólmi og íbúð í Reykjavík í júlí. Uppl. í
síma 31519 eftir kl. 17.
Lesbíur!
Opið hús á vegum Íslensk-lesbíska...
í Kvennahúsinu, Hótel Vík, á laugar-
dögum kl. 17 - 19. - Simatímar fyrir
lesbíur eru á fimmtudögum kl. 21 - 23
í síma: 28539.
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt að hver sé á sínum stað
- með beltið spennt.
wlUMFERÐAR
VRÁÐ
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. maí 1985
MANNLÍF
Sérhver íslendingur, 18 ára
og eldri, fer í sumarferðalag
innanlands í 3 daga eða lengur
annað hvert ár að meðaltali.
Þetta kom meðal annars fram í
skoðanakönnun sem Ferða-
málaráð lét Hagvang gera um
ferðavenjur íslendinga innan-
lands.
í skoðanakönnuninni, sem
gerð var í fyrrasumar, kom meðal
annars fram að fjórðungur að-
spurðra hugðist ekki fara í sumar-
ferðalag, en af þeim sem ætluðu
að ferðast hugðust 74,7% ferðast
innanlands á meðan 17,5%
Feröavenjur landans
Heima er best
Helmingur íslendinga fer í sumarleyfisferð innanlands annað hvert
ár. Upplýsingaskortur um ferðamöguleika og þjónustu tilfinnanlegur.
hugðu á utanlandsferð og 6,4%
hugðu á hvort tveggja.
Þetta sýnir okkur hvað innan-
landsmarkaðurinn er stór fyrir
ferðamannaþjónustu við íslend-
inga, og jafnframt hvað hann hef-
ur verið vanræktur miðað við fyr-
irferð utanlandsferðaauglýsing-
anna, sagði Birgir Þorkelsson hjá
Ferðamálaráði á blaðamanna-
fundi í gær.
í könnuninni kom jafnframt
fram að mikill skortur virðist á
upplýsingum fyrir almenning um
ferðamöguleika og þjónustu inn-
aniands. Sagði Birgir að það
gegndi furðu hvað innlendir
þjónustuaðilar sinntu því lítið að
kynna sína þjónustu við lands-
menn, því ætla mætti að sú fjár-
magnsvelta sem kæmi frá ferðum
íslendinga um landið gæti varlega
áætlað numið allt að 1000 miljón-
um á ári hverju, eða álíka miklu
og erlendir ferðamenn skilja eftir
hér á landi.
Það er þrennt, sem vekur at-
hygli í þessari könnun, sagði
Kjartan Lárusson forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins: Fjöldi
þeirra sem ferðast er meiri en bú-
ist var við, hlutfall þeirra sem
ferðast á einkabíl (85%) er ótrú-
lega hátt, og fjöldi þeirra sem
gista á einkaheimilum, hjá vinum
og kunningjum eða í sumarbúst-
að er einnig ótrúlega hár
(58,3%).
Er fulltrúi Hagvangs var spurð-
ur að því hvers vegna ekki kæmu
fram upplýsingar um ferðamáta
unga fólksins í þessari könnun
sagði hann að ekki hefði verið
hægt að spyrja fólk undir 18 ára
aldri vegna þess að í spurninga-
pakkanum hefðu einnig verið
spurningar um pólitískar skoðan-
ir og fleira, sem ekki tæki til ung-
linga.
Hins vegar kom það fram að
upplýsingamiðlun um landið og
ferðamöguleika er mjög ábóta-
vant, og að ekki síst ungt fólk úr
þéttbýli hefur takmarkaða þekk-
ingu á stöðum og staðháttum
vegna breyttra þjóðfélagshátta
og vegna þess rofs sem orðið hef-
ur á tengslum milli sveitar og
þéttbýlis á síðari árum.
Þegar Bjöm Þorgilsson var að
því spurður hvort nægilega mikið
væri að því gert að gera ungu fólki
kleift að ferðast um landið og
kenna því að þekkja það, sagði
hann að sínu mati væri þetta van-
rækt af skólum landsins. Slík
fræðsla ætti að vera liður í
grunnskólanáminu sagði Björn.
Tilgangurinn með könnun
Hagvangs var að sögn fulltrúa
Ferðamálaráðs að veita þeim sem
stunda ferðamannaþjónustu
upplýsingar um hvernig þeir geti
bætt þjónustu sína með það fyrir
augum að auka og nýta betur hlut
hins innlenda markaðs af ferða-
þörf landans. Það sparar gjald-
eyri, skapar atvinnu og eykur
þekkingu íslendinga á eigin
landi, sagði Birgir Þorgilsson.
ólg
Bjarnfríður
Ásmundur
Valgerður
Verkalýðsmáiaráð AB
Aríðandi
fundur
Verkalýðsmálaráð Alþýðu-
bandalagsins boðar til fundar
að Hverfisgötu 105 nk. laugar-
dag og hefst hann kl. 10. Um-
ræðuefnið verður: Baráttan
framundan og mun formaður
ráðsins Bjarnfríður Leósdóttir
hafa framsögu.
Viðhorf ASÍ: Ásmundur Stefáns-
son forseti ASÍ. Viðhorf BSRB:
Valgerður Eiríksdóttir kennari.
Viðhorf BHM: Ingólfur H. Ing-
ólfsson. Stuttar fyrirspurnir á
milli erinda. Eftir hádegi verða
almennar umræður um efnið:
Kröfur og leiðir verkalýðshreyf-
ingarinnar í baráttunni framund-
an. Fundarstjóri verður Guðrún
Ágústsdóttir.
VERKALÝÐSMÁLARÁÐ.