Þjóðviljinn - 12.05.1985, Side 2
FLOSI
Miku
skammtur
af eggjahryðiuverkamönnum
Þeir sem gæta eiga laga og réttar í landi hverju hafa
jafnan í mörgu að snúast því alltaf eru bölvaðir prakk-
ararnir samir við sig.
Afbrotamenn eru afskaplega litríkur hópur og af-
brotin fjölskrúðug eftir því, en afþrot er það að fara ekki
að lögum, sem skilgreind eru í prentuðum bókum og
pésum. Þetta eru lagaboð, reglur og samþykktir, sem
maður þarf helst að kunna utanað, ef maður ætlar sér
að vera góð, heiðarleg og elskuleg manneskja.
Til eru smáglæpamenn og stórglæpamenn og allt
þar á milii. Smáglæpamenn eru skattsvikarar, ökuníð-
ingar, menn sem ekki spenna öryggisbeltin og lakkrís-
þjófar.
Þegar ég var krakki var það talið minnsta afbrot í
heimi að stela lakkrís.
Með alvarlegri afbrotum eru afturámóti yfirsjónir
einsog fjöldamorð.
Það skrítnasta við þetta allt saman er þó það að
lakkrísþjófnaður mundi aldrei í neinu landi vera fyrir-
gefinn, en fjöldamorð þykja stundum sjálfsögð og eru
jafnvel undirvissum kringumstæðum lögboðin, guðitil
dýrðar. Slíkt hefur þó enn ekki skeð á Islandi.
Sem betur fer.
Stundum hendir það, að angar alþjóðlegrar glæp-
astarfsemi ná hingað til lands, en sem betur fer halda
verðir laganna á Islandi vöku sinni og hafa hingaðtil
brugðið við hart og tekið skúrkana óblíðum tökum og
er skemmst að minnast Þjóðverja sem reynt hafa að
koma hingað til lands og gætu verið eggjaþjófar. Ef
marka má þiaðafregnir eru þetta alþjóðlegir glæpa-
menn sem fara um varplönd og stela eggjum undan
fuglum til að selja Alí Baba eða einhverjum soldáni í
barbaríinu.
Löggæslumenn, tollyfirvöld og útlendingaeftirlitið
hafa lengi átt í höggi við eggjaglæpamenn og hefur
viðskiptum íslenskra yfirvalda og útlendra eggjaþjófa
venjulega lyktað með því að þeir síðarnefndu hafa
verið teknir fastir og settir í svartholið en sloppið svo
þaðan til útlanda framhjá löggæslunni með eggin og
ungana.
En nú virðast tímamót í eggjaglæpamálum (slend-
inga. Löggæslan er að byrja að ná tökum á vandan-
um, eða eins og talsmaður dómsmálaráðuneytisins
sagði um málið á dögunum:
- Þið skuluð sjá
að við munum ná
að bægja frá
þessari vá.
Nú hefur íslenska lögreglan semsagt fundið óbrigð-
ult ráð til að þekkja eggjaþjófa frá öðrum túristum.
Yfirlögregluþjóninn á Húsavík leiddi semsagt blaða-
mann Dagblaðsins Vísis s.l. þriðjudag í allan sann-
leika um það hvernig þekkja mætti eggjaþjóf. Og
hvernig líta eggjaþjófar út?
- Þeir eru yfirleitt með góðan útbúnað í góöum
skóm og aka um á bílaleigubílum.
Lögreglan var því vel í stakk búin að bregða hart við
þegar hin alþjóðlegi eggjahryðjuverkamaður Christi-
an Krey reiddi til höggs á íslandi fyrir skömmu.
Það kom semsagt í Ijós að fjögur fálkaegg vantaði í
fálkahreiður í Aðaldal einmitt þá dagana sem Krey var
hér og féll þegar grunur á hinn grunaða.
Því má skjóta hér inn - þó það skipti að vísu ekki
meginmáli - að ekki var við hinn seka, Christian Krey,
að sakast heldur fálkann sjálfan sem hafði verpt eggj-
unum í felulitum svo þau sáust ekki. Talið er fullvíst að
hryðjuverkamaðurinn hefði tekið eggin hefði hann séð
þau, svo nú reið á að hafa í hendur í hári hins seka.
Allt tiltækt lögreglulið í landinu var kallað út til að
handsama illvirkjan en allt kom fyrir ekki, Krey hafði
bókstaflega „gufað upp“, eins og eitt dagblaðanna
komst að orði. Loks fann þó lögreglan hann með
aðstoð tollyfirvalda, útlendingaeftirlitsins og leynilög-
reglunnar þar sem hann var að afhenda farseðilinn
sinn í afgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli.
- Við þekktum hann á skónum, sagði einn leynilög-
reglumannanna þegar búið var að berhátta þennan
unga þýska fuglavin, svo hægt væri að leita að fálka-
eggjunum á dónalegustu felustöðum líkamans, en
þegar eggin fundust hvorki í farteski mannsins, inn-
vortis né í saurveginum var Ijóst að hann hafði komið
eggjunum á einhvern samferðamannanna. Um 699
farþega var að ræða og var farangri þeirra snúið við í
þessari dæmalausu eggjaleit. Sumir voru kroppvísi-
teraðir, aðrir gegnumlýstir en engin fundust eggin, að
minnsta kosti ekki fálkaegg.
- Við höfum rökstuddan grun um að alþjóðlegir
eggjahryðjuverkamenn feli eggin innvortis, sagði einn
leynilögreglumannanna og annar bætti við:
- Við fundum fjóra fálkaunga inná klósettinu hérna
fyrir framan útlendingaeftirlitið um daginn og við telj-
um það fullvíst að fálkaeggjaþjófaur hafi gleypt fálka-
egg með skurni og öllu saman, til að koma þeim úr
landi en eggin hafi síðan klakist út við ylinn í meltingar-
veginum og ungarnir gengið útaf manninum á sínum
vitjunartíma, ófleygir eða jafnvel andvana.
- Ja það má nú með sanni segja að það eru fleiri
vegir órannsakanlegir en vegir guðs, sagði hlaðfreyja
sem þarna var stödd fyrir tilviljun.
Nú var flugvél að renna í hlaðið og öll löggæslu-
hersingin snéri sér að því að láta hendur standa fram-
úr ermum. Meðal farþega voru tveir Þjóðverjar í grun-
samlegum skóm. Þeir voru umsvifalaust færðir í járn
og settir í gæsluvarðhald, svo þeir gerðu sig ekki seka
um að vera grunaðir um að ætla að stela eggjum til að
selja Alí Baba og soldáninum í barbaríinu fyrir miljón
dollars.
Og fulltrúi dómsmálaráðuneytisins, sem þarna var
staddur í tilefni dagsins endurtók vísuna:
Þið skuluð sjá
að við munum ná
að bægja frá
þessari vá.
Ævintýri í
bílageymslu
Þjóðviljinn upplýsti lesendur
sína um síðustu helgi um hina
gljáfægðu og þykklökkuðu
bifreiðargeymslu í kjallara
Seðlabankahallarinnar. Ekki
mun hafa gengið átakalaust
að gera gólfið svo úr garði að
byggingarnefnd væri ánægð.
Eftir að tillaga hafði komið
fram um að lakka gólfið og
gera það „skemmtilegra" en
það sementsgráa í Kola-
geymslunni í hinum enda
byggingarinnar þar sem al-
múginn fær að geyma bíla
sína gegn gjaldi, var haft sam-
band við einn ágætan málara
meistara. Honum leist að
sjálfsögðu vel á að lakka gólf-
ið, enda drjúg vinna. Þegar
búið var að lakka og gólfið
orðið þurrt ákvað byggingar-
nefnd að skoða aðstæður.
Menn söfnuðust saman á bíl-
um sínum inn i geymslunni en
það gekk hálfbrösulega. Úti
var rigning og þegar menn
óku inn á glansandi gólfið
réðu menn lítið við
járnfákana. Ákveðið var að
hafa samband við málaram-
meistarann, þettagat ekki
gengið. Ekkert vandamál
sagði málarinn, viö sandber-
um bara gólfið. Ofaná fína
lakkið var siðan málað með
sendnu gólflakki og allir voru
að lokum ánægðir með sitt,
ekki síst málarinn sem fékk
tvöfalda vinnu. En hvað gólf-
ævintýrið kostaði skattborg-
arana skiptir víst minna
máli.B
Svartur dagur
hjá KR
Síðastliðinn mánudagur var
einn sá svartasti í sögu
Knattspyrnufélags Reykjavík-
ur. Þá var æfingaleikur á
gervigrasvellinum í Laugardal
á milli meistaraflokks KR og 4.
deildarliðsins Árvakurs. Fóru
leikar svo að amatörarnir fóru
með sigur af hólmi eftir bar-
áttuglaðan leik. Hinn útlendi
þjálfari KR mun hafa sleppt
sér í búningsherbergjunum
eftír leikinn og rifið hár sitt í
örvæntingu. Eru KR-ingar
mjög uggandi um framtið
sína. Sérfræðingar segja
skýringarnar á úrslitunum
þær að KR hafi á síðustu
misserum verið að missa
hverja skrautfjöðrina á fætur
annarri yfir í raðir Árvakurs.
Eggið sé því farið að kenna
hænunni... ■
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. mai 1985
Gróðinn erlendis
íslenskir iðnrekendur eru
ævareiðir við stjórnvöld sín
vegna starfsleyfis sem útibú
bandaríska fyrirtækisins
Hewlett Packard fékk hjá
Steingrími og félögum.
Á opnunarfundi HP-
umboðsins hélt Steingrímur
Hermannsson ræðu og
óskaði þess, að fyrirtækið yrði
nýtur „íslenskur þjóðfélags-
þegn“. Nú kemur nefnilega í
Ijós að viðskiptavinir fyrirtæk-
isins verða sjálfir látnir panta
vörur erlendis frá, þannig að
útibúið hefur engar tekjur.
Það eina sem Islendingar
hafa uppúr krafsinu, þjóð-
hagslega séð, er laun starfs-
mannanna, en gróðinn af
vöruviðskiptunum situr eftir
erlendis.
Starfsleyfi fyrir útibúið var
veitt án nokkurra skilyrða, en
iðnrekendur telja að veita
hefði átt leyfi til fimm ára og
setja auk þess þau skilyrði, að
einhver hluti framleiðslu
þessa stórfyrirtækis færi fram
hérlendis. Þess má geta til
gamans að enginn fulltrúi frá
IBM var mættur við opnun
HP-útibúsins. Það verðurhins
vegar í húsnæði öreiganna,
- Watergata-byggingu ís-
lenskra aðalverktaka. ■
Ég vona að þið verðið nýtir ís-
lenskir þjóðfélagsþegnar....
Dýrindis fótbolti
Einsog slúðurdálkar Sunnu-
dagsblaðsins hafa áður hermt
kemur út dýrindis bók fyrir fót-
boltaáhangendur og byrjend-
ur í knattspyrnu á vegum Máls
og menningar í samráði við
Knattspyrnusamband íslands
nú um mánaðamótin maí/júní.
Með bókinni fylgir mynds-
nælda og er sýningartími
hennar vel yfir þrjár klukku-
stundir. Á snældunni eru sýnd
brot úr frægum knattspyrnu-
leikjum, snilldartaktarfærustu
knattspyrnumanna heims -
og það sem hæst ber í ís-
lenskri knattspyrnu. Sigurður
Svavarsson fór nýverið utan,
til Lúxemborgar, Belgíu, Hol-
lands og V-Þýskalands,
ásamt tæknimönnum m.a. til
að taka upp viðtöl við íslensku
atvinnumennina á megin-
landinu og fara þau inná
snælduna. Hermann Gunn-
arsson er þulur á snældunni,
- og fer á kostum að sögrí
sérfróðra. Bókarinnar og
myndsnældunnar mun beðið
með mikilli eftirvæntingu
áhugamanna og ungu knatt-
spyrnukynslóðarinnar. ■