Þjóðviljinn - 12.05.1985, Page 7
Reykjavík
Dansað
við
Dillons-
hús
Spjallað við Ragnheiði
Þórarinsdótturborgarminjavörð
um Árbœjarsafnið
Verðuropnað Ljúní
Vissulega er dapurlegt
að geta ekki opnað fyrr í
svona góðviðri sagði
Ragnheiður Þórarins-
dóttir minjavörður Ár-
bæjarsafnsins þegar
Þjóðviljinn heilsaði uppá
hana í sólskininu í vik-
unni, en safnið verður
opnað almenningi nú um
mánaðamótin.
Ragnheiður sagði okkur að
þrátt fyrir hina formlegu lokun
safnsins yfir vetrarmánuðina,
kæmu mjög margir að skoða
safnið. Þannig koma margir
skólakrakkar undir leiðsögn
kennara síns og stundum í tengsl-
um við einhver verkefni í skólan-
um til að skoða Árbæjarsafn.
Þegar Þjóðviljinn var á ferðinni
var til að mynda 7. bekkur eins
skólanna í Reykjavík í heimsókn
á safninu.
- Það er verið að vinna að mar-
gvíslegustu verkefnum á vegum
Árbæjarsafnsins. Stöðugt er unn-
ið að endurbótum á gömlu hús-
unum og við erum þátttakendur í
norrænu verkefni um gömul hús,
mannlíf og menningu í bæjum og
borgum fyrr á tímum. Ut hafa
Fundu
gamalt
kort
Nanna
Hermannsson og
Jón E. Böðvarsson
fundukortaf
Reykjavíkfró 1887!
Nanna Hermannsson og Jón E.
Böðvarson fundu gamlan upp-
drátt af Reykjavík eftir Svein
Sveinsson búfræðing, en ekki var
vitað um þetta kort áður. Þau
munu hafa fundið kortið í skjal-
asafni borgarinnar þar sem þau
voru að leita að eldri uppdrátt-
um.
Svein Sveinsson búfræðingur
sem dró upp þessa mynd af
Reykjavík, var fæddur árið 1849
en dó 1892. Hann nam búnaðar-
komið vandaðar bækur um þess-
ar rannsóknir og á okkar vegum
er nú unnið að útgáfu bókar um
Reykjavík á árunum 1876-1902.
- Þá er unnið að gagnasöfnun
um gömul hús, byggð fyrir 1920
vegna endurskoðunar á skipulagi
gamla borgarhlutans í Reykja-
vík.
- Meðal annarra verkefna sem
unnið er að á vegum Árbæjar-
safns er Sögusýningin sem á að
opna á 200 ára afmæli borgarinn-
ar á næsta ári. Áðurnefnd verk-
efni nýtast vel fyrir Sögusýning-
una og margvíslegur undirbún-
ingur er að henni. Nanna Her-
mannsson og Jón E. Böðvarsson
fundu kortið frá 1887, sem segir
frá á síðunni, einmitt þegar þau
voru að vinna í gagnaöflun.
Ragnheiður sagði okkur frá
Suðurgötu - sem nú stendur á
hlaðinu „pakkað" inní bárujárn,
þar til peningur fæst til endur-
byggingar á því. Stöðugt er unnið
að endurbyggingu gamalla húsa á
lóðinni og voru smiðir að vinna
að Dillonshúsi þegar okkur bar
að garði.
- Þeir eru m.a. að smíða dans-
palla fyrir framan Dillonshús, en
í gamla daga var bæði hægt að
drekka kaffið sitt á slíkum palli
og stíga danssporið. Ég vonast til
Borgarminjavörður í hlaðinu. I baksýn er íbúðarhús Ragnheiðar. Það var byggt árið 1902 af Hannesi Thorarensen
verslunarstjóra. Það er með svokölluðu svissnesku lagi sem algengt var um aldamótin. Húsið var síðar í eigu breska
ríkisins, sem gaf Árbæjarsafni það. Myndina tók Valdís.
að danspallarnir og endurbæt-
urnar á Dillonshúsi muni glæða
safnið nýju lífi, sagði Ragn-
heiður.
Hún kvað aðstandendur Ár-
bæjarsafns hafa mikinn áhuga á
því að fá menningarlega viðburði
inná svæðið og hefðu ýmsir hópar
notfært sér hina skemmtilegu að-
stöðu fyrir gleði- og menningar-
leiki á hlaðinu. Þannig hefðu t.d.
norrænir danshópar haldið sýn-
ingar og þeir sem hefðu áhuga á
því að skemmta sér eða öðrum á
hlaðinu gætu haft samband við
safnið.
ÍtEyKÍAVÍR
Ragnheiður Þórarinsdóttir borgarminjavörður fyrir framan hinn geysistóra uppdrátt af Reykjavík frá 1887, sem fannst á
dögunum innanum annan pappír á skjalasafni borgarinnar. Mynd: Valdís.
fræði í Noregi og átti vetursetur í
Danmörku. Sveinn var skóla-
stjóri á Hvanneyri síðustu þrjú
æviár sín.
Sveinn Sveinsson hafði áður
dregið upp kort af Reykjavík
1876 en ekki var vitað um hið
nýfundna fyrr ennú. Sveinn
Sveinsson skrifaði greinar í tíma-
rit og reit bæklinga; Leiðarvísi til
að þekkja landbúnaðarverkfæri
1873, Um meðferð mjólkur og
smjörs 1876, Fátt er of vandlega
hugað 1889.
-óg-
Ragnheiður kvað nýju byggð-
ina þrengja nokkuð að safninu en
hún vonaðist til að nábýlið ylli
ekki vandræðum. Hún kvað safn-
ið og húsin hafa fengið að vera í
nokkuð góðum friði fyrir
spellvirkjum en nú væri verið að
ganga frá mjög fullkomnu örygg-
iskerfi á svæðinu.
í sumar verður farandsýning
um grænlenska báta á svæðinu og
kaffiveitingar verða að nýju í
Dillonshúsi.
Ragnheiður tók við starfinu sl.
haust af Nönnu Hermannsson
sem er í leyfi. - Starfið leggst
prýðilega í mig, það er bæði erils-
samt og erfitt en gefandi, sagði
hún.
Sjálf býr hún í einu húsanna,
sem áður var Laufásvegur 31 1
Reykjavík og það var byggt árið
1902. Hún flutti að austan þar-
sem hún hefur verið fornminja-
fræðingur Austfirðingafjórðungs
undanfarin ár. Að þjóðlegum sið
var Ragnheiður spurð hvort hún
hefði orðið vör við eitthvað tor-
kennilegt í gamla húsinu, en hún
gaf lítið útá það. Nee-ei, það get
ég ekki sagt, sagði hún. Hins veg-
ar hittum við ektamann Ragn-
heiðar, Hans Vollertsen, dan-
skan mann og kennara, á Eiðum,
en hann er á leiðinni til Reykja-
víkur. Hann sagði uppá alíslen-
skan máta, að á nýársnótt hefði
mátt heyra klingt -'""im ogsuð í
röftum. Það fannst okkur í Árbæ-
jarsafni góður punktur.
-óg.
Sunnudagur 12. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7