Þjóðviljinn - 12.05.1985, Page 17

Þjóðviljinn - 12.05.1985, Page 17
LEIÐARAOPNA HA, nýgift hjón og AIDS? Hver fjárinn! Hvers vegna? Það er von lesendur furði sig á þessari tengingu. En á fundi hjá landlæknisembættinu kom fram sú skoðunaðþarsem„lauslæti‘‘ykilíkuráAIDSsmiti, þáværi barabestaðskella á sig hnaþþheldunni fyrir fullt og allt og ganga í það heilaga. Staðreyndin er nefnilega sú að rannsóknir hafa sýnt að líkur á AIDS aukast með fjölda rekkjunauía. Föst sambönd án nokkurra framhjáhlaupa eru ráð læknavísind- anna. Mynd Valdís. Bóluefni enn ófundlð ÓlafurJensson, yfirmaður Blóðbankans: Mótefnamœlingar ó döfinni. Hitameðferð minnkar smithœttu af blóði. Sex lyf koma að einhverjum notum Guðni Baldursson: „Aids er enginn hommasjúkdómur, einsog er nú ber- lega að koma í Ijós erlendis". Ljósm.: E.ÓI. Ólafur Jensson: Miklar upplýsingar safnast um AIDS á skömmum tíma. Sjúk- dómurinn gerir ekki mannamun Guðni Baldursson: Hérlendis hafa fjölmiðlar ekki viljandi alið ó fordómum Sýkingar- hœtta Smit berstvið kynmök, blóðgjöf og með óhreinum sprautum. Lítil smithœtta með snertingu, hósta, hnerra eða matvœlum. Smit getur borist með bióðvökva og blóðfrumum. í hvert sinn sem blóðblönd- un á sér stað getur smitið borist milli fólks. Þetta get- ur gerst við kynmök, blóð- gjöf og hjá eiturlyfjaneyt- endum sem nota gjarnan óhreinar nálar tii að sprauta sig með. Veiran sem veldur AIDS hefur líka fundist í sæði, brjóstamjólk og munnvatni. Hins vegar er rétt að leggja áherslu á, að AIDS er ekki talinn mjög smitandi sjúk- dómur. Þannig er talið að smitun verði ekki við venjulega snert- ingu, hósta, hnerra eða með mat- vælum. Því má segja að öll venju- leg umgengni við þá sem eru smitaðir sé hættulaus. í Bandaríkjunum var fylgst með fósturfjölskyldum níu ung- barna sem fæddust með AIDS sjúkdóminn (en hann getur borist gegnum fylgju frá móður til barns í móðurkviði), í talsvert langan tíma. Engin fósturmæðranna né fóstursystkina sýndi nokkur merki um að hafa fengið sjúk- dóminn. Ekki bara hommar Fréttir óábyrgra fjölmiðla bæði hér á íslandi og víðar hafa verið þess eðlis að flestir eru haldnir þeirri firru að AIDS berist ein- göngu milli homma. Það er al- rangt. Veiran getur borist við kynmök karls og konu ekki síður en við samræði karla, þótt líf- fræðilegur munur valdi að sýk- ingarhættan er líklega meiri millum karla. Alls konar sögusagnir hafa verið á lofti um að AIDS sé þeg- ar kominn til íslands. í viðtali við Þjóðviljann kvað Ólafur Jensson yfirmaður Blóðbank- ans það alrangt. Hann greindi jafnframt frá því að ýmsar að- gerðir væru í gangi til að greina AIDS-veiruna í blóði og til að fyrirbyggja dreifingu hennar. „Á næstu tveimur til þremur mánuðum munum við koma upp aðstöðu til mótefnaleitar í blóði hjá bæði blóðgjöfum og áhættu- hópum. En það eru til dæmis sjúklingar sem eru með einhver einkenni sem gætu líkst forstigi AIDS. Ef mótefni finnst í blóði - eins og hefur gerst hjá tveimur íslendingum - þá þýðir það hins vegar alls ekki að viðkomandi sé með sjúkdóminn, heldur bendir það til að einhvern tíma hafi hann komist í kast við AIDS veiruna, og myndað mótefni gegn henni. En mótefnamælingar eru ekki al- veg öruggar, það geta komið það sem við köllum „falskar pósitív- ar“. Þá mælist mótefni í blóði án þess raunverulega að vera til staðar. Það kemur þá í Ijós þegar framhaldsrannsóknir hafa verið gerðar á viðkomandi“. Miklar upplýsingar Ólafur kvað heilbrigðismála- ráðherra myndu sjá um aukafjár- veitingu til að standa straum af mótefnamælingunum. Talið er að hver einstök mæling kosti 3- 400 krónur, og þar sem mæla þarf blóð hvers einstasta blóðgjafa er um talsverðan rekstrarkostnað að ræða. - Dreyrasjúklingar þurfa á innfluttum blóðstorknunarþætti að halda, svonefndum Faktor 8, sem í dag er keyptur af Finnum. Þar sem smit getur borist með blóðgjöf, eru þá ekki á kreiki hug- myndir um að fara að framleiða Faktor 8 hér á landi? „Jú, það hafa komið upp hug- myndir um að fullvinna storkn- unarþáttinn úr blóði hér á landi í samvinnu við lyfjaframleiðendur og Háskóla íslands. En þetta yrði mjög dýrt. Ætli það kosti ekki um 8 miljónir að setja upp tæki til þess. Aftur á móti vil ég benda á, að það er hægt að draga allveru- lega úr smithættu frá blóðgjöf með því að setja blóðið í hitam- eðferð, láta það vera eina klukkustund í 60 gráðu hita. Þetta eru Finnar nú að fara að gera“. - Bólusetning? „Því miður. Sú varnarleið er ekki opin enn. En við vonum að rannsóknir leiði senn til þess að bóluefni verði að veruleika“. -ÖS Guðni Baldursson er for- maður samtaka lesbía og homma hér á landi. Þjóðviljinn spurði hann fyrst hvernig hon- um þætti umfjöllun fjölmiðla um AIDS og tengsl sjúkdóms- ins við homma, hafa verið hér- lendis. „Mér er ekki launung á því að ég er ekki mjög ánægður með hana. En ég held þó að það hafi ekki gerst hérlendis einsog ytra að menn hafi viljandi reynt að ala á fordómum eða reynt að efna til æsinga. En fjölmiðlar hafa vissu- lega reynt að gera sér mat úr sjúk- dómnum og stundum finnst mér einsog það hafi hlakkað í sumum þeirra. Fréttamenn taka mest af umfjöllun sinni úr erlendum blöðum eða fréttaskeytum sem oft eru full af fordómum, og gjarnan ákveðinni mistúlkun. Það er kannski fyrst og fremst gagnrýnisleysi á slíkt efni sem ég get fundið að við blaðamenn, fremur en þeir hafi einhverja prívat fordóma.” - Erlendis hefur fjöimiðlahyst- ería kringum AIDS breytt við- horfum til homma á verri veg. Verður þessa vart hér á landi? „Nei, ekki hef ég fundið það.” Guðni benti á, að í umfjöllun um málið væru oft ýmsar fullyrð- ingar óbotnaðar. Hann tók sem dæmi, að á blaðamannafundi landlæknisembættisins fyrir skömmu hefði - samkvæmt tjöl- miðlafréttum af fundinum - verið talað um „lauslæti” sem einn þátt í útbreiðslu AIDS, og þar á með- al hjá hommum. Guðni vildi ekki neita því að svokallað lauslæti ætti þátt í því. Hann benti hins vegar á, að til dæmis hér á íslandi væru aðstæður allar þannig að mjög erfitt væri fyrir homma að mynda varanlegt samband. „Öll viðhorf í þjóðfélaginu eru þannig að það er erfitt fyrir homma að mynda varanleg sambönd. Slíkt fólk er til dæmis stundum rekið úr húsnæði, ég veit um nýlegt dæmi þess. Viðhorfið hjá löggjafanum og kannski ekki síst inná heimil- unum er líka þrándur í götu. Þessu þyrfti auðvitað að breyta, þó menn geri sér almennt ekki grein fyrir hvaða máli þetta skiptir.” „ AIDS er auðvitað bara einsog hver annar sjúkdómur, krabba- mein, lungnabólga eða bara slys. Þannig að við erum ekki sérstak- lega hræddir við hann, umfram aðra sjúkdóma. AIDS er enginn hommasjúkdómur, einsog er nú berlega að koma í ljós erlendis. Hann getur lagst á hvern sem er, þó í fyrstu hafi verið reynt að gera hann að einhverju hræðilegu sem tengist bara hommum. Hann ein- faldlega leggst á fólk, hvort sem það eru hommar eða ekki. Það er staðreynd.” _ö§ í Bandaríkjunum var fylgst með eiginkonum sjö manna sem höfðu sýkst af AIDS. Fimm þess- arra kvenna sýndu merki um AIDS og fjórtán mánuðum síðar voru þrjár þeirra komnar með óræk merki um AIDS. Þetta sýnir að sjúkdómurinn getur til að mynd borist við samræði hjóna. Varúðarreglur Ljóst er að því fleiri rekkju- nautar sem menn eiga þeim mun meiri líkur eru á að fá sjúkdóm- inn. Samförum við vændiskonur fylgja auknar líkur á AIDS og á næstu árum er öruggt að meðal þeirra mun tíðni sjúkdómsins vaxa. í sumum hlutum Afríku, þar sem AIDS veiran virðist næsta víðförul, sýna mótefna- mælingar að hvorki meira né minna en 80 prósent af vændi- skonum hafa einhvern tíma borið veiruna þó auðvitað hafi þær ekki allar tekið sjúkdóminn. Meðal homma má draga veru- lega úr smithættu með því að fækka rekkjunautum, og heim- sóknir til vændisfólks af hvoru kyni sem er ættu menn ekki held- ur að stunda vilji þeir fríir af sjúk- dóminum. Með notkun gúmmí- verja má líka draga allverulega úr smithættu. -ÖS Sunnudagur 12. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.