Þjóðviljinn - 22.05.1985, Side 3
FRETTIR
Samningaleiðir
Vildum vorsamninga
Guðmundur Þ. Jónsson: Þess virði að prófa þessa leið. Verðum að ná
einhverri sameiginlegri niðurstöðu mjögfljótlega
Við höfum viljað ná bráða-
birgðasamkomulagi nú í vor
og stöðva það kaupmáttarhrap
sem við sjáum framá í sumar og
erum þá um leið tilbúnir að teygja
okkur eitthvað lengra en til 1.
september með samningstíma,
hugsanlega til áramóta en alls
engan langtímasamning. Um ára-
mótin er allur kjarsamningurinn
laus en ekki þann 1. september,
sagði Guðmundur Þ. Jónsson for-
maður Landssambands iðn-
verkafólks í samtali við Þjóðvilj-
ann i gær um stöðu samninga-
mála.
„Mér finnst málin ekki hafa
skýrst mikið við formannafund-
inn á mánudag, hreint ekki og
það þarf hreinlega að ræða málin
betur og reyna að samræma sjón-
armið ef við ætlum að standa
saman í baráttunni. Það er alveg
ljóst að það verður að koma
niðurstaða fljótlega þannig að
sumarmánuðirnir verði dekkaðir
með þeim samningum sem við
hugsanlega gerum. Við förum
ekki að semja um miðjan júlí eða
í ágúst. Ef menn ætla í sumar-
samninga þá verða þeir að nást
fyrir miðjan júní.“
Ert þú bjartsýnn á að eitthvað
náist fram í sutnarsamningum?
„Það er náttúrulega alltaf
ástæða til að vera með efasemdir
og ekki síst eftir yfirlýsingar VSÍ.
Hins vegar finnst mér það þess
virði að prófa þessa leið. Við
fórnum engu með því að reyna
hana, en það eru greinilega mis-
stemmningar í okkar röðum og
við verðum að ná niðurstöðu al-
veg á næstu vikum um hvaða leið
við veljum“, sagði Guðmundur
Þ. Jónsson.
-*g-
Krakkarnir í Ölduselsskóla skemmta sér vel þessa dagana í alls konar skemmtilegum uppákomum í tilefni 10 ára afmælisins.
— Mynd Valdís.
Mannlíf
Félagsheimili
verður grillbúlla
Borgarráð samþykkti í gær er-
indi frá hestamönnum í Fáki um
að fá að selja gamla félagsheimil-
ið sitt við Bústaðaveg. Það verð-
ur nú gert að skyndibitastað, en
til skamms tíma kom líka til
greina að hafa þar bílasölu.
Fáksmenn eru langt komnir
með nýtt félagsheimili á Víði-
völlum efst í Elliðaárdal. -m
Skoðanakannanir
Samstarf eða sameiginlegur listi?
Ef sameiginlegur listi allra ann-
arra flokka en Sjálfstæðis-
flokksins yrði boðinn fram í borg-
arstjórnarkosningum í Reykja-
vík, hlyti sá listi 41,3% fylgi, sam-
kvæmt skoðanakönnun DV í gær,
en ef „hinir“ flokkarnir byðu
fram hver í sínu lagi fengju þeir
10% minna samkvæmt sömu
könnun. Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 58,7% gegn sameiginlegum
lista, en tæplega 70% ella.
Þjóðviljinn leitaði álits fulltrúa
minnihlutaflokkanna í borgar-
stjórn: Samkvæmt niðurstöðum
könnunar DV fengi sameigin-
legur listi vinstri flokkanna þriðj-
ung meira fylgi en flokkarnir
saman ef þeir byðu fram hver í
sínu lagi. Er þetta vísbending um
nauðsyn vinstra samstarfs í borg-
arstjórn?
Sigurjón
Pétursson,
Alþýðubandalagi:
Krafa um
aukið
samstarf
Sigurjón Pétursson, Alþýðu-
bandalagi:
Það er enginn vafi á að þetta er
vísbending um nauðsyn á vinstra
samstarfi. Hvort það er vísbend-
ing um nauðsyn á sameiginlegum
Iista, það dreg ég frekar í efa.
Það er ótvírætt að af hinum
óákveðnu, þeim sem ekki svör-
uðu þegar spurt var um listana,
eru margir sem ætla að kjósa ein-
hvern af andstöðuflokkum í-
haldsins en hafa ekki gert upp við
sig hvern þeirra. Reynslan bendir
til þess að ýmsir taki ekki endan-
lega afstöðu fyrren þeir koma í
kjörklefann.
Um 40 prósent sögðust kjósa
Sjálfstæðisflokkinn gegn mörg-
um listum en þegar spurt var um
sameiginlegan lista sögðust um
45 prósent kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn. Þetta bendir til þess að
einhverjir mundu hika við að
styðja minnihlutaöflin í borgar-
stjórn ef listinn yrði sameigin-
legur og kjósa íhaldið í staðinn.
Sú ráðstefna sem var haldin um
daginn á Hótel Hofi bendir ekki
til þess að líkur séu á sameigin-
legum lista. Hinsvegar er enginn
vafi að það er krafa allra íhald-
sandstæðinga í borginni að vinstri
flokkarnir hafi með sér verulega
aukið samstarf í borgarstjórninni
og fyrir næstu kosningar. -m
Gerður
Steinþórsdóttir,
Framsóknarflokki:
Vinstri
fiokkarnir
vinni saman
Gerður Steinþórsdóttir, Fram-
sóknarflokki:
Mér finnst þetta bera vott um
að þeir sem svari hafa trú á eða
viiji að vinstri flokkarnir vinni
saman.
Ég tel að við kæmum sterkari
út gagnvart núverandi meirihluta
ef við ræddum meira um málin og
kæmum meira saman sem heild
til dæmis með sameiginlegar
bókanir.
Það er ekki nema gott um sam-
starf vinstri flokkanna að segja út
þetta kjörtímabil. Síðan verður
að láta reyna á það fljótiega hvort
hægt sé að undirbúa sameiginlega
stefnuskrá í mikilvægum mála-
flokkum. -aró.
Sigurður E.
Guðmundsson,
Alþýðuflokki:
Enga trú á
sameigin-
legum lista
Sigurður E. Guðmundsson, Al-
þýðuflokki:
Þar sem ég hef ekki séð DV í
dag hef ég ekki tök á að leggja
mat á skoðanakönnunina en það
er margt inní þessu sem þyrfti að
taka tillit til.
Til dæmis hefur 1 af flokkunum
4 enn ekki tekið afstöðu til hvort
hann ætlar yfirleitt að bjóða fram
í næstu borgarstjórnarkosningum
og það er Kvennaframboð.
Þá eru líka 2 aðilar sem gætu
bæst við og það er Bandalag jafn-
aðarmanna og Flokkur mannsins
og hvað gerist þá?
,É8. er meðmæltur samstarfi
vinstri flokkanna í daglegu starfi
borgarstjórnar en ég hef enga trú
á að sameiginlegur listi vinstri
flokkanna nái tilætluðum ár-
angri. -aró.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir,
Kvennaframboði:
Samstarf
á málefna-
grundvelli
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Kvennaframboði:
Ég túlka þessar niðurstöður
ekki þannig að sameiginlegur listi
vinstri manna fengi þriðjungi
meira fylgi en ef þeir byðu fram
aðskildir.
Það voru margir óákveðnir eða
42% og stór hluti þess fólks er
ekki búið að gera upp við sig
hvem af vinstri flokkunum það
mundi kjósa. Ég tel þetta segja
meira um styrkleikahlutföllin
hægri - vinstri, og tel ekki einsýnt
að túlka þetta sem vísbendingu
um nauðsyn á sameiginlegum
lista vinstri flokkanna en það má
eflaust túlka þetta þannig.
Samstarf er alltaf góðra gjalda
vert en verður þá að vera á ein-
hverjum málefnalegum grund-
velti, ekki bara samstarf sam-
starfsins vegna.
-aró
Jónína Leósdóttir,
Bandalagi
jqfnaðarmanna:
Mótvægi
við sterku
flokkana
Jónína Leósdóttir, Bandalagi
jafnaðarmanna:
Það er erfitt fyrir mig að svara
þessu, ég er lítið inn í borgar-
stjórnarmálinu þar sem við eig-
um ekki fulltrúa í borgarstjórn.
En mér finnst þetta ákveðin
vísbending um hvað fólk vill sem
mótvægi gegn þessum sterku
flokkum, Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki.
En sem sagt, ég veit ekki nógu
vel hvernig þetta gengur fyrir sig
til að geta metið niðurstöðu skoð-
anakönnunarinnar.
-aró