Þjóðviljinn - 22.05.1985, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Karate
Kennt á ísafirði
Drengjaliðið
Yfirburðir Grikkja
Skoruðu eftir 45 sek. og unnu 4-0
„Grikkirnir höfðu mikla yfir-
burði - skoruðu eftir 45 sekúndur
og okkar strákar áttu aldrei
möguleika þrátt fyrir góða bar-
áttu allan tímann. Grikkirnir eru
stórir og sterkir og spila góða
knattspyrnu og það var eins og
þeir væru tveimur til þremur
árum eldri en íslensku piltarnir,"
sagði Helgi Þorvaidssoa ungling-
anefndarmaður í knattspyrnu í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Island tapaði í gær þriðja og
síðasta leik sínum í úrslitum Evr-
ópukeppni drengjalandsliða í
Ungverjalandi, 4-0 gegn Grikkj-
um. ísland fékk því ekki stig i
keppninni og liðið er væntanlegt
heim í dag. Grikkirnir eru komn-
ir í undanúrslit og leika þar við
Spánverja en Sovétmenn og
Austur-Þjóðverjar mætast í hin-
um undanúrslitaleiknum.
-VS
Svanur Þór Eyþórsson úr Þórs-
hamri mun kenna karate á ísa-
flrði í sumar. Kennslan hefst nú
um hvítasunnuhelgina í sund-
laugarsalnum á ísafirði og fer
fram laugardag og sunnudag kl.
15-17. Kennari með Svani um
helgina verður Karl Gauti Hjalta-
son úr Gerplu. Innritun er hjá
Sverri Sverrissyni í síma 4517.
Karateíþróttin er smám saman
að ná aukinni útbreiðslu úti á
Skotfimi
Cai J.
þríðji
Carl J. Eiríksson náði mjög
góðum árangri á alþjóðlegu móti í
skotfimi sem fram fór í Dan-
mörku um síðustu helgi. Hann
varð í þriðja sæti í keppni með
riffli og hlaut 590 stig en sigurveg-
arinn sem var sænskur hlaut 594
stig. Carl keppir fyrir íslands
hönd á Ólympiuleikum smáþjóða
sem hefjast í San Marino á morg-
un.
landi. Ágúst Österby kennir á
Selfossi - hann hélt námskeið á
Neskaupstað í fyrrasumar og
vonir standa til að hann fari þang-
að aftur í sumar. Hörkulíf í kar-
ate er á Homafirði eins og undan-
farin ár undir stjórn Sveinbjörns
Imslands og á Akranesi og
Hvolsvelli hefur farið fram
kennsla í umsjón Karatefélags
Reykjavíkur.
Handbolti
Ársþing HSÍ
Ársþing HSÍ, það 29. í röðinni,
verður haldið í samkomusal
íþróttahússins við Strandgötu í
Hafnarfirði um næstu helgi.
Þingið verður sett á föstudag, 24.
maí, kl. 18 og stendur fram á
laugardag. Mörg þýðingarmikil
mál verða á dagskrá og er sér-
staklega búist við miklum um-
ræðum um keppnisfyrirkomulag
1. deildar karla.
Grindahlaup
Mark lA:
Sveinbiörn Hákonarson 9. mfn.
Skagamenn taka forystuna, Sveinbjörn Hákonarson horfir á eftir boltanum í
netið - Stefán Jóhannsson markvörður og varnarmaður KR fá ekkert að gert.
Mynd: E.ÓI. ^
deild
Hðrðurþó!
Mark KR:
Björn Rafnsson 90. mín. (víti).
Stjörnur KR:
Ágúst Már Jónsson *
BJÖrn Rafnsson *
Hálfdán Örlygsson »
Jóstelnn Elnarsson •
Stefán Jóhannsson »
Stjörnur IA:
Guðjón Þóröarson »»*
Árnl Svelnsson *
Jón Áskelsson •
Júlfus Ingólfsson •
Karl Þóröarson *
Dómari: Ragnar örn Pétursson *
Áhorfendur 1391.
Klúðraði dauðafœri í lokin og ístaðinn jöfnuðu 10 KR-ingar
Knatíspyrna
Trausti
í Víking
Trausti Ómarsson miðvallarspilari
úr Breiðabliki sem leikið hefur með
portúgalska 2. deildarliðinu Campin-
ese í vetur er á heimleið og er genginn
til liðs við 1. deildarlið Víkings. Hann
verður löglegur með liðinu 20. júní.
1. deild
Helga undir
60 sekúndum
Helga Halldórsdóttir úr KR
setti sitt annað íslandsmet í 400 m
grindahiaupi kvenna á stuttum
tíma um síðustu helgi. Hún hljóp
þá á 59,58 sekúndum á skólamóti
í Kaliforníu en „gamla” metið
hennar var 60,27 sek.
Á 89. mínútu slapp Hörður Jó-
hannesson alcinn uppað marki
KR. ÍA var með 1-0 forystu og
KR-ingar voru manni færri síðan
Jakob Pétursson var rekinn útaf á
72. mínútu. Nú eru úrslitin ráðin,
hugsuðu hörðustu KR-ingar með
sér. En, Hörður hefur áreiðan-
lega verið með martröð í nótt.
Hann var alltof seinn að skjóta,
renndi loks boltanum til hliðar á
Sveinbjörn Hákonarson sem
skaut framhjá. KR geystist upp -
í vítateig ÍA srnall knötturinn í
hendi Sigurðar Lárussonar. Víta-
spyrna! Spennan í algleymingi -
Björn Rafnsson stillti boltanum
V. Þýskaland
Völler til Napoli?
Þrír í
kvöld
Þrír leikir fara fram í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu í
kvöld. Þór og Víkingur leika á
Þórsvelli á Akureyri, Víðir og
ÍBK í Garðinum og Fram-Valur í
Laugardal. AUir hefjast kl. 20. Þá
fara fram einir 13 leikir í 1. um-
ferð bikarkeppni KSÍ í kvöld og
verður leikið víðs vegar um
landið.
Frá Jóni H. Garðarssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
ítalska knattspyrnufélagið
Napoli, sem hefur Diego Mara-
dona innan sinna vébanda, er á
höttunum eftir markakónginum
Rudi Völler frá Werder Bremen.
Napoli mun hafa boðið honum
samning til þriggja ára að verð-
gildi 3,9 miljónir vestur-þýskra
marka en Völler vill ekkert um
málið segja. Hann hafði áður lýst
því yfir að hann yrði kyrr í
V.Þýskalandi, a.m.k. framyfir
heimsmeistarakeppnina á næsta
ári.
Bernd Förster landsliðsmaður
hefur ákveðið að leika með Stutt-
gart næsta vetur og hefur skrifað
undir eins árs samning. Hann
hafði áður tilkynnt að hann sæi
enga framtíð fyrir sig hjá Stutt-
gart en talið er að bróðir hans,
Karl-Heinz Förster, eigi stóran
þátt í þessari ákvörðun.
upp á vítapunkti ÍA, tók tilhlaup
og þrumaði af krafti í netið. Úrslit
1-1, Skagamenn höfðu kastað frá
sér tveimur stigum.
En þegar á heildina er litið eru
úrslitin sanngjörn. KR-völlurinn
virðist bjóða uppá opna og
skemmtilega leiki og bæði lið óðu
í færum allan tímann. ÍA fékk
þrjú dauðafæri áður en
Sveinbjörn skoraði eftir góða
rispu - hann skaut með vinstri frá
vítateig (sjá mynd), óverjandi
fyrr Stefán Jóhannsson.
KR sótti í sig veðrið um miðjan
hálfleikinn og Ásbjörn Björns-
son, Gunnar Gíslason og Sæ-
björn Guðmundsson voru allir
nálægt því að jafna. Opnara varð
það þó ekki en á 44. mínútu þegar
Birkir Kristinsson markvörður
ÍA missti af boltanum í úthlaupi
og Björn skaut á opið markið
utan vítateigs en hitti ekki ram-
mann.
f seinni hálfleik var enn meira
um að vera í vítateigunum. Á 54.
mínútu bjargaði Karl Þórðarson
á marklínu IA, Skagamenn
geystust upp, Sveinbjörn komst í
gegn og skaut en Birkir bjargaði
naumlega í horn. Hörður skallaði
í stöng KR-marksins á 58. mín.
og Stefán bjargaði frá Karli rétt á
eftir. Ágúst Már Jónsson þrum-
aði rétt yfir Skagamarkið og Sæ-
björn hitti boltann hörmulega í
dauðafæri. Árni Sveinsson stakk
sér snilldarlega í gegnum vörn
KR en tókst síðan ekki að lyfta
yfir Stefán.
Þá kom rauða spjaldið á Jakob sem
sparkaði í Júlíus Ingólfsson sem áður
braut á honum. KR-ingar 10 það sem
eftir var, þrjú stig virtust komin í
Akraneshöfn, en knattspyrnan er ó-
útreiknanleg og leikurinn tók óvænt-
ar stefnur í lokin eins og áður er frá
sagt.
Skemmtilegur og opinn leikur,
bæði lið lögðu áherslu á spil og Skaga-
mönnum tókst öllu betur upp að því
leyti, með Guðjón Þórðarson sem al-
besta mann. Reyndur og útsjónar-
samur varnarmaður sem er geysilega
virkur í sóknarleiknum - hann steig
ekki í rangan fót í allt gærkvöld.
-VS
Jónsmálið
Hálfmaraþon
Steinar fyrstur
Steinar Friðgeirsson, IR, kom
fyrstur í mark á meistaramótinu í
hálfu maraþoni sem fram fór í
Keflavík og Njarðvík um helgina.
Hann hljóp 21 km á 1 klukku-
stund, 14,18 mínútum. Annar
varð Bragi Sigurðsson, Ármanni,
á 1:14,29 klst. og þriðji Jóhann
Ingibergsson, FH, á 1:19,05 klst.
Keppendur voru 12, þar af þrír
erlendir gestir.
England
Robson
velur
Bobby Robson landsliðs-
einvaldur Englendinga tilkynnti í
gær byrjunarlið sitt gegn Finnum
í dag. Þjóðirnar mætast í undan-
keppni HM í knattspyrnu í Hels-
inki. Liðið er þannig skipað: Pet-
er Shilton - Viv Anderson, Kenny
Sansom, Terry Fenwick, Terry
Butcher - Trevor Steven, Ray
Wilkins, Bryan Robson - Trevor
Francis, Mark Hatley, John
Barnes.
-VS
Enginn úrskurður
Þorsteinn Ólafsson fyrrum
landsliðsmarkvörður átti stórleik
þegar Magni og KA mættust í bik-
arkeppni KSÍ á Þórsvellinum á
Akureyri í gærkvöldi. Þorsteinn
er þjálfari Magna og hann sá til
þess að Grenivíkurliðið átti alltaf
möguleika á hinu óvænta í
leiknum. En þegar upp var staðið
skildi mark Tryggva Gunnars-
sonar á 48. mínútu liðin af - KA
vann 1-0 og leikur við Tindastól
eða Vask í 2. umferð.
-K&H/Akureyri
Bikarkeppni
Stórleikur Þorsteins
Aganefnd KSÍ kvað ekki upp
úrskurð í máli KR-ingsins Jóns
G. Bjarnasonar á fundi sínum í
gær. Stjórnarmenn KR mættu á
fundinn og gerðu grein fyrir sinni
afstöðu í málinu og því var síðan
frestað til næsta fundar, n.k.
þriðjudag. Það er því áfram á
huldu hvort KR heldur stigunum
eða hvort Þróttarar fá þau. -VS