Þjóðviljinn - 09.06.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.06.1985, Blaðsíða 2
FLOSI \iku skammtur Ég hef alltaf haft afskaplega mikinn áhuga fyrir fegurö, bara veriö undirlagöur þegar ég hef þóst geta skynjað fegurö meö augunum, eyrun- um, nefinu eöa húöinni. Alveg trylltur í fegurð. Nú það er eins meö feguröina og annað í heimi hér, ekki minnkar dálæti manns á fyrir- brigðinu, (3Ó hægt sé aö hafa uppúr því peninga. Þetta veit ég af eigin reynslu því bæði hef ég prangað með hross, landslag og meira að segja staðiö fyrir fegurðarsamkeppni og það sem enn meira er, þetta er satt. Það var nefnilega ég, sem stóð fyrir fegurðar- samkeppni karla og árið 1957, ef ég man rétt, en hef víst aldrei sagt frá þeirri furðulegu uppá- komu á prenti. Ég ætla nú heldur ekki að segja ítarlega frá þeirri fegurðarsamkeppni hér, vegna þess að sú frásögn á að koma í öðru bindi ævisögu minnar, sem nú er í smíðum. Á þessum árum var ég nýgiftur, alveg rosa- lega blankur og var svona nokkurn veginn til í að gera hvað sem var fyrir peninga. Slíkt fer nú af sumum þegar þeir komast í álnir en þó ekki öllum einsog dæmin sanna. Nema einn daginn kemur til mín þáverandi eigandi kvenlegrar fegurðar í landinu og segir við mig formálalaust: - Þú ert svo andskoti talenteraður og ég er með alveg óborganlega hugmynd. Þessi ræða fannst mér lofa góðu, fann strax af henni peningalykt, svo ég sagði: - Lát heyra. Þá tók hann svo til orða: - Ef þú getur útvegað tíu „herramenn” til að taka þátt í fegurðarsamkeppni karla úti í Tívolí í vor, þá skal ég borga þér þúsund krónur á skrokkinn. af fegurð Og til að gera langa sögu stutta, þá náði ég í tíu „herramenn”, fegurðarsamkeppni karla var haldin í Tívolí og ég lagði grundvöllinn að fjár- hagslegri velgengni, sem ég hef borið gæfu til að njóta æ síðan. Ég er nú bara að segja frá þessu til þess að öllum sé Ijóst að ég veit hvað ég er að tala um þegar um fegurðarsamkeppnir er að ræða. Mér er sagt að til séu afskaplega margar skoðanir á fegurðarsamkeppnum og það má vel vera. Sjálfur hef ég svosem enga skoðun á fyrirbrigðinu. Ég hugsa bara sem svo: - Djarfir og dugmiklir piltar með takmark í lífinu hafa yndi af því að græða peninga. Fal- legar ungartelpur með löng læri hafa yndi af því að sýna á sér sköpulagið. Og er þetta svosem ekki gráupplagt? Eða eins og segir í vísunni: Lærin og brjóstin í flóðljósum flæða fegurðarkóngarnir græða og græða af því að gestirnir biæða og blæða blæða fyrir að drekka og snæða. Þegar frá er talin fegurðin hef ég alltaf haft mestan áhuga á að fylgjast með áhugamálum fegurðardísanna, því þau eru jafnan tíunduð gaumgæfilega, svona einsog til að undirstrika að hér fari ekki bara belgirnir tómir. Hér fyrr á árum voru áhugaefnin oftast listir, Laxness, Slaughter og Shakespeare, en nú er öldin önnur, einsog fegurðarsamkeppni 1985 í sjónvarpinu ber með sér. Nú eru horn þeytt og bumbur barðar. Hátíðin hefst. Hver af annarri tínast þessar elskur fram á rauða dregilinn, fallegar, elskulegar, feimnar, hræddar, ungar - sumar nærri barnungar - og það er ekki laust við að maður fái kökk í hálsinn. Þetta er eitthvað svo skringilega átakanlegt ÆIÆIÆIÆIÆ! - Litlu greyin. Og í hljóðnemann segir fulltrúi piltanna, sem reka þessa forretningu frá hverjum skrokki fyrir sig: - Er í fjölbrautaskóla á listabraut. Áhugamál listir. - Er í fjölbrautaskóla og kljáist þar við ekki færri en fjögur tungumál. - Er á viðskiptabraut, brennandi áhuga á tölv- ufræðum. - Lyfta lóðum, synda, hlaupa eðafaraá skíði. - Ferðalög og keiluspil. - Átján, og sálfræðin á hug hennar allan. - Sautján, og ef hún fær að hreyfa sig, þá hefur hún áhuga. - Sautján, á tungumálasviði og franskan heillar mest. O.s.frv. o.s.frv. Svo sungu Rod, Bjöggi, Egill og Kristján, dömur sýndu sig í fötum og veislugestir grétu, þegar fegurðardrottningarnar voru krýndar og þær sungu alheimssigursöng fegurðardrottn- inganna, sem þýddur var í fyrra yfir á íslensku og er alltaf sunginn, þegar ein er dæmd vera fegurri en allar hinar: Með klókindunum keppnina ég vann. Eg kannaðist við yfirdómarann. Ætli maður uppá toppinn um að gera að nota kroppinn og að þekkja réttan mann. Piaf suður Edit Piaf, leikrit Pam Gems, sem Leikfélag Akureyrar hef- ur sýnt viö mikinn fögnuð norðanmanna flyst nú suður heiðar. Stykkið verður gesta- leikur hjá Hinu-leikhúsinu, í sumar og frumsýningin verð- ur þann 22. júní. Edda Þórar- insdóttir leikur aðalhlutverk- ið sem fyrr en hún hefur þótt afburða góð í hlutverki Piaf og sýningin mun öll þykja hin besta. Stykkið verður flutt af sama fólki og norðanlands, en þó munu reykvískir dans- arar og hljóðfæraleikarar koma inn í sýninguna.B en hefurgjarnan titlað sem sig sem endurskoðanda var í vik- unni dæmdur í nær heils árs fangelsi fyrir þjófnað og háar fjársektir og vörusvik. Hann var áður starfsmaður á Kefla- víkurflugvelli og einn af þeim fimmmenningum sem tóku þátt í hinu umfangsmikla dek- kjasvindli á Vellinum á árun- um 1976-78, en þá var herinn látinn borga fyrir fjöldann all- an af dekkjum sem aldrei bár- ust inná Völlinn en starfs- menn þar sáu um að hag- ræða birgðaskýrslum.B Plebbinn og aristókratinn Iðinn í braskinu Braskararnir sem sviku út hátt á aðra miljón með sölu fals- aðra skuldabréfa sitja nú báð- ir í gæsluvarðhaldi. Annar sit- ur inni til 26. júní n.k. en félagi hans lögmaður var úrskurð- aður í gæsluvarðhald til 17. júlí n.k. Sá fyrrnefndi sem er bókari Smávægileg eftirmál urðu út af viðtali Stefáns Jónssonar og Þjóðviljans á dögunum, og Stefán sendi blaðinu litla eftirskrift. Þetta varð til þess að þekktum hagyrðing hraut af vörum eftirfarandi vísa: „Norðurland eystra í sár- um sat, er Soffía vék fyrir Stebba, þar kjósa menn ekki arist- ókrat, eigi þeir völ á plebba.B Jónsmessu- næturdraumur í Öskjuhlíð? Mikil aðsókn hefur verið að aukasýningum á „Draumi á Jónsmessunótt" í Iðnó og færri komist að en vildu. Ekki er hægt að taka sýninguna upp næsta haust, þar sem samkomulag á milli Leikfé- lagsins og Leiklistarskólans nær aðeins til þessa leikárs, og eru nemendur skólans sem í sýningunni taka raunar ekki lengur nemendur, heldur nýútskrifaðir leikarar. Allra síðustu sýningará verkinu eru í kvöld, laugardagskvöld og á föstudagskvöld. Nú ræða menn hins vegar í fúlustu al- vöru að hafa sýningu utan- dyra fyrir þá sem ekki komast á þessar sýningar á Jónsmessunni sjálfri 24. júní. Og þá er helst talað um að leika verkið í Öskjuhlíðinni...B Gísli Halldórsson í hutverki Spóla í Draumnum. Mynd Valdís. ____Hassið í farangrinum Nokkrir borgarfulltrúar úr Reykjavík fóru í síðustu viku til Færeyja að bera saman bækur sínar með kollegum í Færeyjum. Á fimmtudag komu þeir til baka með ferj- unni og tóku land á Seyðis- firði. Þegar þangað kom var mikill viðbúnaður af hálfu tollgæslunnar. Farangri allra farþeganna var raðað upp og heljarmikill hasshundur látinn ganga á röðina og þefa af töskunum. Þegar kom að far- angri reykvísku borgarfulltrú- anna æstist hvutti heldur en ekki. Mitt í farteski þeirra var nefnilega afskaplega virðuleg skjalataska sem hafði greim- lega að geyma hið forboðna efni. Borgarfulltrúarnir litu skelfdir hver á annan, fullir illra grunsemda. Þeim til mik- ils léttis kom þó í Ijós að tösk- unni hafði verið plantað af tollgæslunni sjálfri, svona til að halda hvutta við efnið, og tilviljun réði að hún lenti méðal farangurs hinna reykvísku fyrirmenna...B 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. júní 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.