Þjóðviljinn - 09.06.1985, Blaðsíða 23
200 ára afmœli
borgarinnar nœsta sumar
Afmœlismerkið valið
og undirbúningur langt kominn
Eins og flestum mun kunn-
ugt verður Reykjavíkurborg
200 ára 18. ágúst að ári.
Verður afmælisins minnst
veglega á ýmsan hátt og hef-
ur undirbúningur staðið yfir frá
því í mars 1984.
Yfirstjórn afmælishaldsins er
skipuð eftirfarandi: Davíð Odds-
son, borgarstjóri, formaður,
Markús Örn Antonsson, Ingi-
björg Rafnar, Jóhanna María
Lárusdóttir, Gísli B. Björnsson,
Gerður Steinþórsdóttir og Sig-
urður E. Guðmundsson. Fram-
kvæmdastjóri er Stefán Krist-
jánsson.
Nýlega var valið afmælismerki
fyrir afmælið og varð tillaga
Tryggva T. Tryggvasonar auglýs-
ingateiknara fyrir valinu.
Meðal þess sem ákveðið er í
sambandi við afmælishaldið má
nefna hátíðadagskrá á Arnarhóli.
Væntanlega verður unnt að nota
á afmælinu sviðið sem hin nýja
tillaga að Arnarhóli gerir ráð
fyrir að reist verði neðst á hóln-
um. Fegrunarátak verður skipu-
lagt í borginni, en formaður
nefndar sem hefur með höndum
undirbúning er Gerður Stein-
þórsdóttir. Þá verður veisluborð í
miðbænum, fjölskylduhátíð í
Hljómskálagarði, sýning í Árbæ-
jarsafni og mörg fleiri atriði eru í
undirbúningi. Stórar sýningar
verða að Kjarvalsstöðum og í
anddyri nýja Borgarleikhússins,
sem væntanlega verður tilbúið á
afmælinu. Þá verður efnt til sam-
keppni um Reykjavíkurlag og
undirbýr Svavar Gests keppnina.
Reykjavíkurmynd Hrafns Gunn-
laugssonar verður frumsýnd, en
Listahátíð, sem haldin er í maí að
ári verður að hluta helguð afmæl-
inu. Þá verður gefið út frímerki,
skákmót, skátamót og íþrótta-
mót fara fram í tenglsum við af-
mælið.
Merki 200 ára afmælis borgarinnar minnir á Tjörnina og fuglalífið, en
syndandi svanur sýnir töluna 200. Höf: Tryggvi T. Tryggvason.
Þetta eru pallarnir
sembyggðirverða
á Arnarhólnum of-
an við leiksviðið,
sem væntanlega
verður tekið í notk-
un á 200 ára af-
mælinu. Afmælis-
dagskráin um
kvöldið verður í
umsjá þeirra
Hrafns Gunn-
laugssonar og
Kjartans Ragnars-
sonar.
STJORNMAL
OG
KVENN ABARÁTT A
OPNIR FUNDIR
Konur í Alþýðubandalaginu gangast fyrir opnum fundum um
stjórnmál og kvennabaráttu. Málin verða reifuð og rædd af mál-
svörum Alþýðubandalagskvenna og öðrum fundargestum.
SIGLUFIRÐI
Laugardaginn 8. júní kl. 15.00, í Vökusal
Suðurgötu 10.
Á fundinn koma:
Álfheiður Ingadóttir, Reykjavík
Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi
Gerður Óskarsdóttir, Reykjavík
Hallveig Thorlacius, Varmahlíð
Jóhanna Karlsdóttir, Sauöárkróki
Signý Jóhannsdóttir, Siglufirði
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Hafnarfirði
SELFOSSI
Sunnudaginn 9. júní kl. 20.30, í Árvirkjahúsinu,
Eyravegi 29.
Á fundinn koma:
Adda Bára Sigfúsdóttir, Reykjavík
Auður Guðbrandsdóttir, Hveragerði,
Eltn Oddgeirsdóttir, Gnúpverjahreppi
Guðrún Agústsdóttir, Reykjavík
Hansína Stefánsdóttir, Selfossi
Helga Sigurjónsdóttir, Reykjavík
Margrét Frímannsdóttir, Stokkseyri
BLÖNDUÓSI
Sunnudaginn 9. júní kl. 15, í Hótel Blönduósi.
Gerður Oskarsdóttir, Reykjavík
Haliveig Thorlacius, Varmahlíð
Kristín Mogensen, Blönduósi
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Hafnarfirði
akranesi
Sunnudaginn 9. júní kl. 15.00 í Rein.
Á fundinum verða auk heimakvenna:
Elna Jónsdóttir, Egilsstöðum
Elsa Kristjánsdóttir, Sandgerði
Guðrún Helgadóttir, Reykjavík
Margrét Pála Ólafsdóttir, Reykjavík
SAUÐÁRKRÓKI
Sunnudaginn 9. júní kl. 15.00, í Safnahúsinu:
Álfheiður Ingadóttir, Reykjavík
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
Sauðárkróki
Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi
ÍSAFIRÐI
Sunnudaginn 9. júní kl. 16.00 á Hótel ísafirði:
Hanna Lára Gunnarsdóttir, ísafirði
Kristín Á. Ólafsdóttir, Reykjavík
Svanfríður Jónasdóttir, Dalvík
Þuríður Pétursdóttir, ísafirði
Fundirnir eru öllum opnir meðan húsrúm leyfir
Konur í Alþýðubandalaginu.
SAMA VERÐ
UM LAND ALLT!
Ef þú býrð utan Reykjavíkur og pantar í
póstkröfu einhvern af eftirtöldum vara-
hlutum, greiðum við pökkunarkostnað,
akstur í Reykjavík og póstburðargjald
hvert á land sem er.
Þannig færð þú varahlutina á sama verði
og viðskiptavinir í varahlutaverslun okkar
í Reykjavík.
Hringdu og pantaðu og við sendum
varahlutina samdægurs.
• Varahlutir án f lutningskostnaðar
• Kerti • Bremsuklossar
• Platínur • Bremsuborðar
• Kveikjulok • Bremsuslöngur
Þurrkublöð
Viftureimar
Tímareimar
• Loftsíur
• Olíusíur
• Bensínsíur
Stýrisendar
Spindilkúlur
Stýrishöggdeyfar
Kúplingsdiskar
Kúplingslegur
Kúplingspressur
Aurhlífar
Höggdeyf ar - aftan
Höggdeyf ar - f raman
Flautur
Bensíndælur
Vatnsdælur
Pö
friuSZ
dzgiiz
VIÐURKENND VARA MED ÁBYRGD
öö ™
m %
RANGE RQVER
m
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Sunnudagur 9. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23