Þjóðviljinn - 09.06.1985, Side 5

Þjóðviljinn - 09.06.1985, Side 5
íslenskir nazistar marsera eftir Austurstræti árið 1935. Afgreiðsla Morgunblaðsins til vinstri. I leiðara Morgunblaðsins eftir innrás Þjóðverja í Tékkóslóvakíu 15. mars 1939 var talað um glæsilega sigurgöngu þeirra án blóðsúthellinga. (Ljósmynd: Skafti Guðjónsson). Birgir Sörensen Morgunblaðið og nasisminn 1933-’38 Afstaða Morgunblaðsins til þriðja ríkisins og skoðanabrœðra Hitlers á íslandi Fjóröi áratugurinn var á marg- an hátt mikill umbrotatími. Kreppan varallsráöandi í heiminum. Margireygöu nýj- an og betri heim í kommún- ismanum. Með valdatöku Adolfs Hitlers 30 janúar 1933 eygöu enn aðrir bjartari tíma undir merki hans. Amk. stæði hann sem bjarg gegn heimsbyltingaráformum kommúnista. Heima á Fróni endurspegluð- ust atburðirnir í smækkaðri mynd. Harðvítug stjórnmála- átök hér á landi snerust öðrum þræði um afstöðunatil atburða úti í hinum stóra heimi. Hértöldumargirnas- ismann eina raunhæfa ko- stinn í baráttunni gegn heims- byltingarmönnum. Nasisminn hafði enn ekki fengið tækifæri til að sýna sína réttu ásjónu. Hér verður skýrt frá afstöðu Morgunblaðsins til Þriðja ríkisins og skoðanabræðra Hitlersá Islandi, þjóðernis- sinna. En hvað gerir stjórnmálaritnefnd Alþýðublaðsins við fregn þessa? Hún snýr henni við. Það eru ekki kommúnistar sem kveikt hafa í þinghúsinu í Berlín, segir hr. alþm. Hjeðinn Valdemarsson. Öðru nær það eru þýsk yfirvöld, sem lagt hafa hina glæstu þinghöll að miklu leyti í rústir (!). Eins og hann viti þetta ekki betur en t.d. lögreglan í Berlín (!). En hvers vegna þessi yfirbreiðsla yfir talandi staðreyndir, hvers vegna þessar barnalegu málsbætur fyrir athæfi og byltingarstarf þýskra kommúnista. í garð kommúnista ríkti hið mesta hatur hjá Morgunblaðinu. Kommúnistaflokkur íslands starfaði á þessum tíma sem deild í Komintern, það eitt var ærin ástæða til að líta hann hornauga. Reyndar hélt blaðið því fram að þessi flokkur væri stórhættulegur sjálfstæði íslensku þjóðarinnar og yrði að stemma stigu við fylgis- aukningu hans. í baráttunni fyrir völdum leyfðu kommúnistar sér allt eins og bruninn í Berlín hefði borið með sér: Kommúnistar byrjuðu kosning- ahríðina með því hermdarverki, að kveikja í ríkisþinghöllinni, og jafnframt ætluðu þeir að koma á stað borgarastyrjöld í landinu þannig að ekki væri unnt að ganga tU kosninga. En þessi Lok- aráð snerust svo í höndum þeirra, að nú er ríkisstjórnin einhuga um það, að eyða þeim óaldarflokki algerlcga. Fréttaflutningur Morgun- blaðsins af stjórnarskiptunum í Þýskalandi 30. janúar 1933 bentu tæplega til þess að nýir tímar væru í vændum fyrir ríki álfunn- ar. Stuttu eftir valdatöku Hitlers fylgdu fréttir um harkalegar að- gerðir stjórnarinnar gegn pólit- ískum andstæðingum svo og gyð- ingum. í Morgunblaðinu var nán- ast enga gagnrýni að finna á þess- ar aðgerðir. Engir atburðir höfðu enn gerst sem gáfu tilefni til þess. Til að byrja með var litið á nas- ismann sem heilbrigt andsvar gegn sýkingu kommúnismans. Fyrstu meiriháttar tíðindin sem Morgunblaðið færði lesend- um sínum frá Þriðja ríkinu var bruni ríkisþinghallarinnar. At- hugasemdarlaust var skýrt frá því sem þýsk stjórnvöld höfðu látið frá sér fara um málið. Ekki var Alþýðublaðið sama sinnis og það fór fyrir brjóstið á Morgunblaðs- mönnum: Aðgerðir Hitlers gagnvart kommúnistum voru vissulega litnar mildum augum. Tylliástæð- an sem fékkst með brunanum var á engan hátt gagnrýnd. Gagnvart kommúnistalýðnum dugði ekk- ert hálfkák. Skömmu eftir þing- kosningarnar birtist löng grein í Morgunblaðinu undir fyrirsögn- inni „Sigur Hitlers". Upphafsorð hennar voru á þessa leið: Hitler hefir ekki eingöngu komist til valda á löglegan hátt. Honum hefir líka tekist að skapa stjórn sinni þingræðislegan grundvöll við almennar þingkosningar. Skömmu fyrir þingkosningarnar 5. mars, sagði Goebbels, að kosn- ingadagurinn ætti að verða „dag- ur hinnar vaknandi þjóðar“. Morgunblaðið tók því vel hin- um nýju „löglega" kosnu hús- bændum í Berlín. í framhaldi af því mátti reikna með að blaðið liti vonaraugum til nýstofnaðrar þjóðernishreyfingar hér á landi. íslenska þjóðernis- hreyfingin Vorið 1933 var stofnuð hér ís- lensk þjóðernishreyfing. Fyrir- mynd hennar var sótt til Þýska- lands og sagði Morgunblaðið að vinstri menn og Hriflungaliðið hefði hlaupið upp til handa og fóta vegna þessa atburðar. Tók blaðið í byrjun upp hanskann fyrirhina nýstofnuðu hreyfingu. í Reykjavíkurbréfi, þann 14. maí 1933, var ma. farið þessum orð- um um hreyfinguna: „Er óþarft að taka það fram, að þjóðernis- sinnum detta engin spjöll lýð- ræðis í hug en fylgja af alhug efling ríkisvalds, er spornar viö hvers konar yfirgangi ofbeldis- seggja? Höfundur bréfsins viröist hafa haft brunann í Berlín til hlið- sjónar. Sókn væri besta vörnin gegn kommúnistum. Þessu voru gerð enn betri skil í forystugrein nokkru seinna: Eins og sjúkdómur í sæmilega heilbrigðum líkama hrindir af stað gagnverkandi starfsemi til varnar gegn sjúkdómum, eins fer með hvert þjóðfélag, sem á lífs- þrótt og framtíðarelju. Kommún- isminn rússneski, stjetta hat- urspólitík sósíaldemókrata og svikaflækja Hriflunganna eru sjúkdómar, sem þjáð hafa þjóð- ina á undanförnum árum. Stjórnarliðið fékk oft óþvegn- ar kveðjur í Morgunblaðinu. „Rauðka“ var jafnmikið glap- ræði þótt kommúnistar stæðu utan hennar. Þegar upp var stað- ið „lyktaði hún af vinstri vill- unni“. En nú var komin ný kjark- mikil hreyfing sem fleiri en Morg- unblaðið áttu að hafa boðið vel- kornna. „Æska landsins og hin uppvaxandi kynslóð, hefir tekið hinni vaknandi þjóðernishreyf- ingu með mesta fögnuði." Þótt fyrirmynd hreyfingarinn- ar væri erlend kom það ekki að sök. Unga kynslóðin átti ekki að vera að glepjast á innfluttri stefnu. Þjóðerniskenndin hefði Sunnudagur 9. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.