Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 8

Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 8
Titringur í Hafskip HP birti í vikunni ítarlega út- tekt á Hafskip, þar sem sitt- hvað fróðlegt kom í Ijós. Sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans ætlaði hins vegar allt af göfl- unum að ganga á skrifstofum fyrirtækisins þegar fréttist af úttekt HP. Björgúlfur Guð- mundsson setti sína menn í Frímúrarareglunni af stað og jafnframt notaði hann tengsl| sín gegnum SÁÁ batteríið til að reyna að hafa áhrif á HP. Ingólfur Margeirsson, rit- stjóri HP, sem staddur er er- lendis um þessar mundir, fékk þannig upphringingu frá Björgúlfi en þverneitaði að draga grein blaðsins til baka, þrátt fyrir eindregin tilmæli Björgúlfs. Annar úr SÁÁ batt- eríinu, Gísli Ólafur Lárus- son, hjá Reykvískum Endur- tryggingum (sem hann á ásamt Björgúlfi og Ragnari Kjartanssyni hjá Hafskip) mun einnig hafa hringt í vini sína á HP og lagt strengilega að þeim að hætta úttektinni. Þeir Hafskipsmenn munu telja að bak við upplýsingar HP sé fyrrverandi starfsmað- ur hjá dótturfyirirtæki Haf- skipa í Bandaríkjunum, Gunnar Andersen, sem hér er staddur í stuttri heimsókn. Hafa þeir haft í hótunum við Gunnar, samkvæmt upplýs- ingum Þjóðviljans, og ógnað honum með lögsókn bæði hér heima og í Bandaríkjunum. Greinilega telja þeir því að Gunnar viti eitthvað fremur skuggalegt um hagi Hafskipa. Svo mikill varð þrýstingurinn að á HP telja menn sig aldrei hafa fundið annað eins, og fyrrnefndur Gunnar, sem ekki mun vera aðalheimild HP, þurfti að fara í felur. Hið hlálega í málinu er þó, að þegar Hafskipsmenn lásu greinina vörpuðu þeir öndinni léttar. Þeir höfðu búist við mun verri uppljóstrunum. Sannleikurinn er nefnilega sá, að í úttekt HP kom bara topp- urinn á ísjakanum í Ijós. í djúp- unum leynist enn margt...B Útvarp SÍS Innan Sambandsins ríkir mikil ólga hjá almennum félögum sökum aðildar SÍS að fjölmiðl- arisanum ísfilm. Nú eru uppi raddir innan SÍS að draga sig út úr ísfilm og á aðalfundi Sambandsins um næstu helgi er líklegt að um það verði rætt af gaumgæfni. Þess í stað munu Sambandsmenn íhuga að efla útvarpsstöð sem yrði á snærum samvinnuhreyfing- arinnar, þegar búið er að breyta útvarpslögunum. Helgi Pétursson nýbakaður ritstjóri NT hefur átt í óform- legum könnunarviðræðum um þessi mál við áhrifafólk hjá Sambandinu og Framsókn. Toyota Tercel 4WD er framúrskarandi stationvagn sem sannar aö fjórhjóladrifnir bílar geta verið þægilegir. Hvort heldur á hann er litið eða í honum ekið er hann ekki eins og aðrir stationbílar - hann fer þar sem aðrir sitja fastir. Tercel 4WD er sparneytinn og ör- uggur svo sem við er að búastfrá Toyota. Þægindi fólksbifreiðarinnar, seigla og styrkur bíls með drifi á öllum hjólum sameinastJ Tercel station. Harðger 1,5 lítra bensínvél sinniraf samaöryggi 2 og4 hjóla drifunum. TERŒb Nýbýlavegi8 200 Kópavogi S. 91-44144 Helgi Pétursson nýbakaður rit- stjóri NT. Bubbi og TV Útgáfustarfsemi Grammsins blómstrar um þessar mundir. í fyrradag kom út platan Kona með Bubba Morthens, sama dag og garpurinn varð 29 ára gamall. Hún var rifin út strax á fyrstu dögunum, þannig að ríf- lega 1000 eintök munu hafa farið í verslanir strax á fyrsta degi. Grammið sá líka um al- þjóðlega útgáfu á plötu Pshychic TV, sem hingað kom og lék á hljómleikum um árið. Undirtektir urðu hreint út sagt frábærar: Af þeim 6000 eintökum sem Grammið fékk að pressa seldust 5600 um leið og hitt er að fara líka. Ás- mundur og Dóra sem reka Grammið gera það því bæri- lega þessa dagana...B Innan NT hefur hann einnig gefið sterklega í skyn, að NT muni hasla sér völl á öldum Ijósvakans við fyrsta tækifæri. Telja menn að þetta sé agnið sem notað var til að fá hann frá útvarpinu yfir á NT. En skýrendum frétta hefur ekki gengið vel fram að þessu að skýra hvernig stóð á því að Helgi P. kastaði vísum frama innan útvarpsins fyrir róða tii að taka við blaði sem nú er komið í strítt flokkstjóður Framsóknar...B Kona með Bubba Morthens rifin út. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.