Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 20

Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 20
 m \í \ átmk þúsund íbúa, en íslendingar fæsta, 525. Hins vegar skákum við frændum okkar í bflaeign. Hér á landi eru 408 bflar á þúsund íbúa, í Svíþjóð 361, í Noregi 336, Finnlandi 291 og danir reka lest- ina með 272 bfla á þúsund íbúa enda eru þeir allir á hjólum. Nfu sinnum í bíó Við skulum segja skilið við neysluna og líta á menninguna. Það kemur sjálfsagt engum á óvart að íslendingar fara oftast í ieikhús og heldur ekki að næstir koma finnar. Tölurnar í bókinni ná einungis til atvinnuleikhúsa en eflaust myndi samanburðurinn verða okkur enn meir í hag ef áhugaleikhúsin væru tekin með. En samkvæmt tölunum um leikhúsaaðsókn fara íslendingar þrisvar í leikhús og finnar tvisvar meðan danir, norðmenn og svíar láta sér nægja eina leikhúsferð. íslendingar eru líka iðnastir við að fara í bíó. Árið 1983 (en töl- urnar eru flestar frá því ári) fór hver íslendingur 9,2 sinnum í bíó meðan norðmaðurinn fór 3,7 sinnum, daninn 2,8 sinnum, sví- inn 2,3 og finninn aðeins 1,9 sinn- um. Á hinn bóginn eru íslendingar latastir á Norðurlöndum við að skoða söfn. Norðmenn fara rúm- lega helmingi oftar á söfn en við og danir og svíar eru enn dug- legri. Bœkur og blöð Tölfræðihandbókin segir okk- ur að íslendingar gefi mest út af dagblöðum, þau telj ast vera gefin út í 547 eintökum á hverja þús- und íbúa. Næstir koma svíar með 528 eintök, finnar með 505, norð- menn með 462 og danir hafa minnstan áhuga á dagblöðum því þar eru gefin út 366 eintök á hverja þúsund íbúa. Eitthvað segir mér að þessi forysta okkar þoli illa nána skoðun, t.d er upp- lagseftirlit allt í skötulíki hér á landi en mjög nákvæmt í hinum löndunum. En ef marka má útgefna bóka- titla stöndum við enn undir nafni sem bókaþjóð. Við gefum út 4, 71 titil á hverja þúsund íbúa með- an danir sem koma næstir verða að láta sér nægja 1,85 titla og sví- ar sem gefa minnst út komast af með tæplega 1 titil á hverja þús- ensku en sambærilegt hlutfall á íslandi er 47%, í Danmörku 52,3%, í Noregi 67,3% og í Sví- þjóð 68%. Með öðrum orðum eru 2 af hverjum þremur bókum sem þýddar eru á norsku og sænsku upphaflega ritaðar á ensku en tæplega helmingur þeirra bóka sem við þýðum. Fóstureyðingar og óskilgetin börn Það eru viðtekin sannindi að hvergi á byggðu bóli sé hlutfall óskilgetinna barna hærra en á ís- landi. Ekki er það nú alveg rétt þótt það fari nærri lagi. Græn- lendingar slá okkur rækilega við í þessumefnum. í>areru2afhverj- um þremur börnum fædd utan hjónabands en á íslandi eru 45% barna fædd utan hjónabands. Fast á hæla okkar koma svíar með 43,6%, danir með 40,6%, á Álandseyjum er hlutfallið 37%, í Færeyjum 32,9%, í Noregi 19,3% en fæst börn eru fædd utan hjónabands í Finnlandi, 14%. Á öllum Norðurlöndunum er hlut- fall óskilgetinna barna 31% árið 1983 og hækkar greinilega hröðum skrefum því meðaltal áranna 1976-80 er 24,3%. En þótt hlutfall óskilgetinna barna sé hátt á íslandi erum við ekki minna hrifin af hjónaband- inu en frændþjóðir okkar. Gift- ingar hafa verið ofan við meðal- lag en skilnaðir undir meðallagi mörg ár aftur í tímann. Kannski má finna einhverja skýringu á öllum þessum óskil- getnu börnum með því að bera saman fjölda fóstureyðinga hér á landi og á hinum Norðurlöndun- um. Þá kemur í ljós að árið 1983 voru þær fæstar í Finnlandi, 2,8 á hverja þúsund íbúa, síðan hér á landi, 2,9, í Noregi 3,3, í Svíþjóð 3,7, í Danmörku 4,1 en græn- lendingar eru í algerum sérflokki, þar eru fóstureyðingar 11,1 á hverja þúsund íbúa. Það hefur mikið verið býsnast yfir því að fóstureyðingar skuli vera leyfðar af félagslegum ástæðum hér á landi eins og í all- flestum nágrannaríkjum okkar. Ef litið er á það hversu stórum hluta þjóðartekna er varið til fé- lagslegrar aðstoðar hér á landi og á hinum Norðurlöndunum ætti mönnum að vera ljóst af hverju íslenskar konur vilja standa fast á rétti sínum til fóstureyðinga af fé- Tölfrœði Kakóþambarar með bíladellu íslendingar reykja mest, fara oftast í bíó og leikhús, enhafamisstforystunaíhlutfalli óskilgetinna barna. Blaðað í norrœnni tölfrœðihandbók Undirritaður er einn þeirra sem hafa gamanaftölum. Þess vegna týndi ég mér á dögunum í norrænni tölfræði- handbók sem datt inn á borð- iðmitt. Þarmásjáýmislegan samanburð á Norðurlöndum sem er forvitnilegur og gefur mynd af íbúum þeirra. Það hefur lengi verið viðtekinn sannleikur að íslendingar séu heimsins mestu kaffídrykkju- menn. En það er nú aldeilis ekki, við erum næstneðstir norður- landabúa, aðeins danir drekka minna kaffi en við. Hins vegar innbyrða íslendingar nær því tvö- falt meira kakó en svíar sem koma næstir okkur, og við reyfum níu sinnum meira en dan- ir sem eru minnstir kakóneytend- ur á Norðurlöndum. Danir og svíar drekka þjóðanna mest af tei en íslendingar, finnar og norðm- menn eru varla hálfdrættingar þeirra í tedrykkju. íslendingar reykja töluvert meira en frændur vorir á Norður- löndum. Tóbaksneysla er mæld í kflóum í bókinni og samkvæmt henni er tóbaksneysla hvers ís- lendings liðlega 2 kfló á ári, finn- ar koma næstir með 1,67 kfló, sví- ar með álíka, en danir og norð- menn reykja minnst, uþb. 1,35 kíló á mann. Svíar eiga flesta síma, 890 á und íbúa. Það er líka athyglisvert að skoða af hvaða tungum norðurlandaþjóðirnar þýða mest. Þær tölur sýna okkur að íslendingar eru iðnastir norður- landabúa að þýða af öðrum norðurlandatungum en svíar hafa langminnstan áhuga á bók- menntum frændþjóða sinna. Hins vegar er hlutfall þýðinga úr ensku næstlægst á íslandi en lang- hæst í Noregi og Svíþjóð. 44,3% þýddra bóka í Finnlandi eru af lagslegum ástæðum. Tölfræði- handbókin segir okkur að íslend- ingar verji 18,7% þjóðarfram- leiðslunnar til félagslegrar að- stoðar sem er lægsta hlutfallið á Norðurlöndum. Norðmenn koma næstir með 21,3%, síðan finnar með 23,6%, svo danir með 30% en svíar verja langstærstum hluta þjóðarframleiðslunnar til félagslegrar aðstoðar, 33,1% eða réttum þriðjungi. -ÞH 20 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. júní 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.