Þjóðviljinn - 12.06.1985, Síða 1
ÞJÓPMÁL
MENNING
Hafnarfjörður
Sala BÚH keyrð í gegn með offorsi
Meirihluti bœjarstjórnar neitaði að látafarafram útboð. Forseti bœjarstjórnar er
lögfrœðingur og íbúðasali stœrstu eigendanna íHvaleyri h/fsem var afhent eignir B UH
Magnús Jón Arnason bœjarfulltrúi AB: Eignirseldar undir verði
essi kaupsamningur hefur
verið keyrður í gegn með of-
forsi meirihlutans og hagsmunir
bæjarins eru alls ekki nægjanlega
tryggðir með þessari sölu. Eg
held því fram að það sé verið að
selja eignir bæjarins undir verði,
sagði Magnús Jón Árnason
bæjarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins I Hafnarfirði á sögulegum
fundi bæjarstjórnar sem stóð
fram undir miðnætti í gær.
Meirihluti bæjarstjórnar ásamt
fulltrúa Framsóknarflokksins
samþykkti á fundinum að selja
hlutafélaginu Hvaleyri h/f eignir
BÚH og bæjarbúa fyrir 280 milj-
ónir. Sami meirihluti felldi áður á
fundinum dagskrártillögu frá
bæjarfulltrúum Alþýðu-
bandalagsins og Alþýðuflokksins
um að sala BÚH yrði tekin út af
dagskrá fundarins, þar sem
fullkomlega óeðlilegt væri að
selja eignir sveitarfélagsins til
einkaaðila án undangengins út-
boðs auk þess sem ekki lægi fyrir
viðhlítandi mat á veðum og
ábyrgðum ífyrirliggjandi kauptil-
boði Hvaleyrar h/f. Bentu fulltrú-
ar minnihlutans á að hér væri ver-
ið að versla með hagsmuni bæjar-
ins og bæjarbúa á mjög óviðfelld-
inn hátt.
Magnús Jón Árnason upplýsti
það á fundinum að Árni Grétar
Finnsson forseti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar er lögfræðingur
Hagvirkis h/f og sér um sölu á
söluíbúðum verktakans, en
eigendur Hagvirkis eru eignarað-
ilar að 40% hlutafjár í Hvaleyri
h/f.
Eins og áður hefur komið fram
höfðu tveir aðrir útgerðaraðilar
sýnt áhuga á kaupum á eigum
BÚH en bæjaryfirvöld gáfu þeim
ekki einu sinni tækifæri til að
bjóða formlega í eignir BÚH og
lögðust síðan í gærkvöld gegn því
að hagsmunir bæjarins yrðu
tryggðir með formlegu útboði á
eignunum. -Jg
Sjá bls. 2.
Sjómenn
Alþjóðlegur
stuðningur?
Sambandstjórnarfundur á mofgun
Formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, Guðmundur
Hallvarðsson, er nú í Englandi og
á þar meðal annars í viðræðum
við forystumenn í Alþjóða flutn-
ingaverkamannasambandinu
(ITF) um hugsanlegan stuðning
við sjómannaverkfallið í Reykja-
vík. Ekki er enn Ijóst í hvaða for-
mi stuðningurinn yrði.
Ákveði ITF-menn að styðja
reykvíska sjómenn í verkfalli
kemur ýmislegt til greina annað
en fjárhagsleg hjálparhönd þar-
sem deilan er að því leyti alþjóð-
leg að útgerðarmenn láta sigla
með aflann á erlendar hafnir.
Stjórn Sjómannasambands ís-
lands kemur saman fyrir hádegi á
morgun til að ræða sjómanna-
verkfallið í Reykjavík. Stjórn
Reykjavíkurfélagsins fór í fyrra-
kvöld formlega frammá aðstoð
sambandsins og bíður á meðan
átekta um hugsanlegar aðgerðir.
Enginn fundur hefur enn verið
boðaður í deilunni.
-m
Eyjaskák
Lein sigraöi
Jóhann hálfum vinningi og einufýlukasti
frá stórmeistaratitli
Bandaríski stórmeistarinn An-
atoly Lein stóð upp frá tapskák
sinni gegn hinum enska Short i
gær sem sigurvegari alþjóðam-
ótsins í Eyjum. Helstu keppinaut-
ar hans, Helgi Ólafsson og Jó-
hann Hjartarson, gerðu báðir
jafntefli og dugði Lein því fyrri
forysta.
Jóhann var hálfum vinningi frá
stórmeistaratitli, hefði þurft að
vinna Jón L. í gær, - og reyndar
að endurtaka skákina sem Lomb-
ardy mætti ekki til vegna ósættis á
sunnudag. Slíkir vinningar eru
ekki taldir með við titlatog, en
Lombardy mun hafa boðist til að
tefla skákina. Raunar muni Jó-
hanni hafa verið á móti skapi að
ná stórmeistaratitli á þann hátt.
Lein fékk 9>/2 vinning. í öðru til
þriðja sæti urðu Jóhann og Helgi
(9v.), Short í fjórða (8V2V.), í
fimmta til sjötta sæti Karl Þor-
steins og Guðmundur Sigurjóns-
son (8v.). Sex efstu menn unnu til
peningaverðiauna.
-m
Með kóp í garðinum
Fágætt hcimilisdýr var á
Norðurvangi 15 í Hafnarfírði, en
eins og lesendur Þjóðviljans hafa
tckið eftir er dýralíf þar Qöl-
skrúðugra en í öðrum bæjum.
Selurinn Skjöldur er nýjasti
bæjarbúinn, - iítill og mjósleginn
kópur sem hefur dvalist þar síðan
á sunnudag. Hann sefur í baðker-
inu og unir sér vel í sólbaði á dag-
inn í garðinum, þar sem hann get-
ur líka svamlað í litlum potti.
Forsaga kópsins er sú að brim-
ið þeytti honum á land við Nýja-
bæ. Sonur hjónanna á Norður-
vangi 15 er þar í sveit og fann
hann kópinn illa haldinn í fjör-
unni, síðastliðinn fimmtudag. En
Norðurvangur er ekki framtíðar-
heimili þessa litla kóps. í gær var
hann fluttur í Sædýrasafnið til
samfélags við aðra seli. Heimilis-
fólkið mátti þó varla sjá á bak
honum, því hann hefur verið
þeim til mikillar ánægju. Hann
svaf stillilega um nætur og hagaði
sér sem besta heimilisdýr í hví-
vetna, - var aðeins tregur til að
borða. Skjöldur er mikil félags-
vera og sagði heimilisfólkið að
hann hafi alltaf viljað hafa ein-
hvern hjá sér og farið að væla ef
fólk fór frá honum. -pv