Þjóðviljinn - 12.06.1985, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 12.06.1985, Qupperneq 5
Byggðaþróunin Framkvæmda- stofnun faldi tölurum fólksflóttann Hjörleifur Guttormsson: Verið að breiðayfir afleiðingar stjórnarstefnunnar. Stefán Guðmundsson: Forstjórunum að kenna, ekki stjórninni Eins og skýrt var frá í Þjóð- viljanum fyrir réttri viku hefur ekki verið meiri fólksflótti utan af landi frá því skýrslugerð hófst en var á síðasta ári. Á hverjum degi allt síðastliðið ár fluttí t.d. einn maður frá Norð- urlandi eystra „suður“ umfram þá sem þangað komu. Upplýs- ingar sínar hafði Þjóðviljinn m.a. úr greinargerð Hjörleifs Guttormssonar og Steingríms J. Sigfússonar með þingsál- yktun um nýja byggðastefnu og var þar vitnað í drög að Árs- Stálfélagið „Huldumaður“ kom til bjargar Þingmenn vara við fyrirhugaðri staðsetningu verksmiðjunnar í Fögruvík á Vatnsleysuströnd Efri deild alþingis hefur til umfjöllunar tillögu um ríkis- ábyrgð til handa Stálfélaginu hf. að upphæð 60 miljónir íslenskra króna. Kristín Astgeirsdóttir, Kvennalista, mælti ein gegn samþykkt málsins á mánudagskvöld og taldi m.a. að nóg væri komið af „hæpnum" fyrirtækjum í ís- lensku atvinnulífi. Þá taldi hún staðsetningu verksmiðjunnar í Fögruvík allsóviðunandi og of nálægt Látrum við Hvassa- hraun, sem eru á náttúruminja- skrá. I áliti meirihluta fjárhags- og viðskiptanefndar, sem fulltrúar allra flokka nema Kvennalista styðja segir að heimild fyrir ríkis- ábyrgð sé samþykkt í trausti þess að „hún verði því aðeins notuð að eiginfjárstaða fyrirtækisins verði trygg, bankaviðskipti með eðli- legum hætti og náttúruverndar- sjónarmiða gætt.“ Stálfélagið hf. óskaði eftir ríkisábyrgðinni snemma vetrar vegna láns sem félagið hefur sótt um hjá Norræna fjárfestinga- bankanum í nefndaráliti Kristín- ar Ástgeirsdóttur segir m.a. að málið hafi lengi velkst í nefndinni þar sem fjárhagsgrundvöllur fyrirtækisins hafi verið talinn með hæpnasta móti. Allt í einu hafi svo kviknað grænt ljós með tilkomu einhvers „huldumanns" sem lofaði fyrirtækinu 17-19 milj- ónum króna! Kristín sagði í sam- tali við Þjóðviljann að ekki hefði verið upplýst í nefndinni hver þessi einstaklingur væri, aðeins að hann væri íslenskur. Eiður Guðnason lagði þunga áherslu á að verksmiðjunni yrði fundinn annar staður en einmitt í Kúagerði sem væri fallegasti staðurinn við Reykjanes- brautina. Hann sagðist vona að Náttúruverndarráð léti málið til sín taka enda ætti Vatnsleysu- strandarhreppur nóg landrými. Ragnar Arnalds lagði í máli sínu áherslu á að þetta væri þjóð- þrifafyrirtæki, sem einnig gæti sparað þjóðinni umtalsverðan gjaldeyri, sem nú væri eytt í að kaupa inn steypustyrktarjárn. 1 Þetta átti að fela: Fólksflutningar 1984 (aðfluttir umfram brottflutta) Innanlands Útlönd Samtals Hlutfall Höfuðborgarsvæðið + 1130 -42 + 1088 0,8% Suðurnes -59 -27 -86 0,6% Vesturland -226 -64 -290 1,9% Vestfirðir -159 -19 -178 1,7% Norðurland-vestra -70 + 15 -55 0,5% Norðurland-eystra -365 -41 -406 1,5% Austurland -102 -83 -185 1,4% Suðurland -149 -8 -157 0,7% 1984 fluttu 1130 manns frá landsbyggðinni „suður" umfram þá sem þangað fluttu. Að auki tapaði allt landið 269 manns til útlanda. Heildartap landsbyggðarinnar 1984 var 1357 manns eða um 1,2% af íbúafjöldanum. Á sama tíma fjölgaði um 1088 í Reykjavík eða 0,8%. Þetta er mesti fólksflótti af landsbyggðinni frá því skráning hófst 1961. skýrslu Framkvæmdastofnun- ar Islands. Á alþingi sl. mánudagskvöld gerði Hjörleifur Guttormsson að umtalsefni þá staðreynd að í árs- skýrslunni er ekki að finna neinar upplýsingar um þessa hrikalegu byggðaþróun. Hann sagði að þessum upplýsingum hefði verið úthýst úr skýrslunni að undirlagi stjórnar Framkvæmdastofnunar og spurði formann hennar, Stef- án Guðmundsson, hverju slíkt sætti. „Þessar tölur, sem afhjúpa afleiðingar stjórnarstefnunnar eiga erindi til alls almennings,“ sagði Hjörleifur. Stefán Guðmundsson sagði að það væri margt sem ekki kæmist fyrir í skýrslunni en stjórnin hlut- aðist ekki til um hvað færi inn og hvað ekki. Það gerðu forstjórarn- ir. Stefán svaraði því í engu hvort honum þættu þessar tölur ekki eiga heima í skýrslunni. Á meðfylgjandi töflu má sjá hvernig allar byggðir landsins töpuðu fólki tÚ Reykjavíkur, samtals 1130 manns á síðasta ári. -ÁI Fiskverkunarfólk Þeir sögðu nei við lengri upp- sagnarfresti Nafnakail var viðhaft þegar 18 stjórnarliðar vísuðu frá til- lögu Guðmundar J. Guð- mundssonar o.fl. um lengri uppsagnarfrest í fiskiðnaðin- um. Þjóðviljinn birtir hér nöfn þeirra þingmanna sem sögðu nei við þessari sjálfsögðu rétt- arbót: Alexander Stefánsson, Birgir ísl. Gunnarsson, Eggert Hauk- dal, Friðjón Þórðarson, Friðrik Sophusson, Guðmundur Bjarna- son, Guðrún Tryggvadóttir (varamaður Halldórs Ásgríms- sonar), Halldór Blöndal, Matthí- as Bjarnason, Ólafur G. Einars- son, Páll Pétursson, Páll Dag- bjartsson (varamaður Pálma Jónssonar), Pétur Sigurðsson, Stefán Guðmundsson, Stefán Valgeirsson, Sverrir Hermanns- son, Þorsteinn Pálsson, Þórarinn Sigurjónsson. Gegn frávísuninni voru 16 þingmenn stjórnarandstöðunnar og tveir þingmenn stjórnarliðs- ins: Ellert B. Schram, Garðar Sigurðsson, Geir Gunnarsson, Guðmundur Einarsson, Guð- mundur J. Guðmundsson, Guð- rún Agnarsdóttir, Guðrún Agn- arsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Hjörleifur Guttormsson, Jó- hanna Sigurðardóttir, Karvel Pálmason, Kjartan Jóhannsson, Kristín Halldórsdóttir, Kristín S. Kvaran, Ólafur Þ. Þórðarson, Steingrímur J. Sigfússon og Svav- ar Gestsson. Fjarstaddir voru: Gunnar G. Schram, Jón Baldvin Hannibals- son, Matthías Á. Mathiesen, Ragnhildur Helgadóttir, Stein- grímur Hermannsson og Ingvar Gíslason. -ÁI Miðvikudagur 12. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.