Þjóðviljinn - 12.06.1985, Qupperneq 14
Auglýsing
um starfslaun
til listamanns
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um starfs-
laun til listamanns í allt aö 12 mánuði.
Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun starfs-
launa, sem búsettir eru í Reykjavík, og að öðru jöfnu
skulu þeir ganga fyrir við úthlutun, sem ekki geta
stundað listgrein sína sem fullt starf. Það skilyrði er
sett, að listamaðurinn gegni ekki fastlaunuðu starfi
meðan hann nýtur starfslauna.
Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum samkv. 4.
þrepi 105. Ifl. í kjarasamningi Bandalags háskóla-
manna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfslaun
eru greidd án orlofsgreiðslu eða annarra launa-
tengdra greiðslna.
Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir
starfi sínu með greinargerð til stjórnar Kjarvalsstaða,
framlagningu, flutningi eða upplestri á verki í frum-
flutningi eða frumbirtingu, allt eftir nánara samkomu-
lagi við stjórn Kjarvalsstaða hverju sinni og í tengslum
við Listahátíð eða Reykjavíkurviku. Ekki er gert ráð
fyrir sérstakri greiðslu samkv. þessari grein, en lista-
maðurinn heldur höfundarrétti sínum óskertum.
I umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því, sem
umsækjandi hyggst vinna að og veittar aðrar
nauðsynlegar upplýsingar.
Umsóknum skal komið til listráðunauts Kjarvalsstaða
fyrir 15. júlí 1985.
10. júní 1985
Stjórn Kjarvalsstaða.
Útboð
Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í lagningu hita-
veitu á Flateyri.
Um er að ræða tvöfalt dreifikerfi með 6 greinibrunnum,
heildarskurðalengdir ca 2;5 km. Útboðsgögn verða
seld á skrifstofu O.V. á Isafirði og kosta þau 400
krónur.
Tilboð merkt „Hitaveita Flateyri” skulu hafa borist til
aðalskrifstofuOrkubúsinsfyrirkl. 11 fimmtudaginn27.
júní n.k. og verða þau opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Orkubú Vestfjarða,
Stakkanesi 1,
400 ísafirði, sími 94-3211.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald-
dagi söluskatts fyrir maímánuð er 15. júní. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt
söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið 7. júní 1985.
Laus staða
Staða fulltrúa á skattstofu Austurlandsumdæmis er
laus til umsóknar. Starfið krefst bókhaldsþekkingar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Um-
sóknir er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum
skulu sendar skattstjóra Austurlandsumdæmis Lag-
arási 4, Egilsstöðum fyrir 1. júlí nk.
Egilsstöðum 1. júní 1985
Skattstjóri Austurlandsumdæmis.
Þjóðleikhúsið:
Laust er starf í miðasölu Þjóðleikhússins frá og með 1.
september n.k. Laun skv. samningum BSRB.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí.
Nánari upplýsingar veitir miðasölustjóri Þjóðleik-
hússins, sími 11204.
Þjóðleikhússtjóri.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Ingólfur Pétursson,
verkstjóri,
Kleppsvegi 18, Reykjavík,
sem lést 8. júní s.l. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 14. júní kl. 10.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir.
Sæbjörg Jónasdóttir
Erling Aðalsteinsson Ragnheiður Jónsdóttir
Hilmar Ingólfsson Edda Snorradóttir
Pétur Ingólfsson Nanna Aradóttir
barnabörn
er unnt að benda á möguleika til
stórfelldrar aukinnar þjóðar-
framleiðslu.
Ný sókn
Ég ætla hér aðeins að nefna
fjögur dæmi:
1. Með því að nýta framleiðslu-
fjármuni betur en nú er gert
hvort sem er í verslun, sjávar-
útvegi, landbúnaði eða iðnaði
má auka þjóðarframleiðslu
um 10-15% að mati færustu
hagfræðinga okkar, en það
jafngildir 10-12 milljörðum á
ári á verðlagi þessa árs.
2. Með því að leggja áherslu á
rannsóknir og vöruþróun og
hvers konar nýtækni sem
byggist meðal annars á há-
menntun, hugviti okkar og
reynslu má tryggja hér stór-
stígar framfarir. Talið er raun-
sætt að 18.000 störf geti orðið í
nýjum iðngreinum hér á landi
eftir aðeins 15 ár þar með tal-
inn svonefndur upplýsinga-
iðnaður.
3. Með því að fullvinna sjávar-
aflann betur en nú er gert má
gera ráð fyrir því að unnt sé að
auka útflutningsverðmæti
hans um þriðjung. Samhliða
slíkri breytingu þarf að eigasér
stað skipulagsbreyting í
sjávarútveginum, þar sem
fiskverkunarfólkinu eru
tryggð mannsæmandi laun,
fast mánaðarkaup og atvinnu-
öryggi og almenn mannrétt-
indi ekki lakari en tíðkast í
öðrum atvinnugreinum.
4. Margt bendir til þess að ís-
lendingar eigi stórfellda mögu-
leika í fiskeldi. Össur
Skarphéðinsson ritstjóri er
einn þeirra ungu sérfræðinga
sem fjalla um þessi mál. Hann
segir í blaði okkar um helgina
að gera megi ráð fyrir allt að 11
milljörðum króna í
útflutningsverðmæti í þessari
grein - en það er meira en allt
verðmæti þorskafurða.
Hér hafa verið nefnd fjögur
dæmi sem sýna að það er unnt að
tryggja mikið betri efnahagsleg
lífskjör en nú er um að ræða hér á
landi.
íslenskt hugvit
Stjórnvöld landsins þurfa að
hætta að hlaupa á eftir erlendum
stórfyrirtækjum um allar jarðir
með orku á útsölu. í staðinn
eigum við að einhenda okkur í að
hagnýta til fulls nýjar atvinnu-
greinar sem byggjast á þekkingu
og hugviti, reynslu okkar í aldir,
og hámenntun af hvaða tagi sem
er. Fyrsta skilyrðið er að búa vel
að almennri menntun og skólum í
landinu, sem skapa grunninn að
hvers konar vísindastarfi og rann-
sóknum sem markvisst vinni í
þessa átt að raunverulegri ný-
sköpun verðmæta. Við nýtingu
þessara möguleika má ekki láta
neinar kreddur ráða hvorki um
rekstrarform né almennar
fjármögnunaraðferðir. Við
eigum einfaldlega að hagnýta þá
möguleika sem bestir bjóðast,
við eigum að verja verulegum
fjármunum til þess að leita að
þessum möguleikum og til þess
að finna þá. Núverandi ríkis-
stjórn gerir allt sem hægt er til
þess að koma ríkinu út úr at-
vinnurekstri. Þó er ljóst að meiri
háttar átak á þessum sviðum mun
ekki eiga sér stað nema með for-
ystu og þátttöku ríkisvaldsins.
Það þarf ekki að þýða að ríkið
eigi öll fyrirtæki - fjarri fer því.
Aðalatriðið er að stjórnvöld
nálgist vandamálin opnum huga
en ekki á grundvelli kreddu-
sjónarmiða eins og nú er gert og
birtist í allsherjarsölu ríkis-
fyrirtækja og í leit erlendum
samstarfsaðilum ístóriðnaði. Það
virðist vera það eina sem ríkis-
stjórnin hefur til málanna að
leggja í þessum efnum.
Samhliða nýrri sókn í atvinnu-
málum þarf að tryggja að lýðræð-
isleg sjónarmið ráði úrslitum
þannig að starfsfólkið sjálft ráði
sem mestu, þar sem heimaaðilar
Fiskeldi gæti við bestu aðstæður gefið árlega um 11 miljarða af sér, eða meira
en nemur öllum þorskafla okkar.
hafa frumkvæði og forystu og
ráða úrslitum um gang mála.
Með því að byggja á hugsjónum
lýðræðis, með valdreifingu og
með áherslu á þá stórfelldu
möguleika sem tæknin býður upp
á, má byggja hér nýtt samfélag.
Lýðræði á vinnustöðunum á að
vera hornsteinn nýrrar sóknar í
atvinnu- og efnahagsmálum og
lýðræði í byggðarlögunum sjálf-
um þar sem sköpuð er ný byggð-
astefna sem sækir líf sitt til fólks-
ins sjálfs, sjómanna, bænda og
verkamanna.
Ef við hagnýtum okkur nýja
tækni hámenntunar og hugvits og
kosti lýðræðisins út í æsar getum
við gert okkur vonir um að
eignast nýtt ísland, frjálst og
fullvalda, þar sem lífskjörin eru
ekki einasta sambærileg við það
sem gerist í grannlöndum okkar
heldur betri. Þannig yrði vinnu-
tími styttri en hér er nú, húsnæði
ódýrara og hamingjan á heimil-
unum yrði ekki aðeins í skoðana-
könnunum Seðlabankans. Við
þurfum að leggjast á eitt: Fyrst er
að safna liði og koma ríkisstjórn
ríka fólksins frá, en jafnframt að
berjast og standa saman um
sterkan stjórnmálaflokk eins og
Alþýðubandalagið sem ætlar að
beita sér fyrir því sem við hljótum
öll að kjósa um: Nýtt ísland,
jafnréttis og lýðræðis, frjálst og
fullvalda ísland.
FERÐAVASABOK
FJÖLVÍS 1985
Viö höíum meira en 30 ara reynslu í
utgafu vasabóka, og su reynsla kemur
viðskiptavinum okkar aö sjalfsögðu til
góöa. Og okkur hefur tekist einkar vel
meö nýju Ferðavasabókina okkar og
erum stoltir af henni. Þar er aö finna
ótrulega fjölbreyttar upplysingar, sem
koma feröafóJki aö ometanlegu gagni
jafnt heima sem erlendis.
Meöal efnis t.d.: 40 islandskort - Kort
af öllum hringveginum - Heimshluta*
kort - Sendiráö og ræðismannaskrif-
stofur um allan heim - Ferðadagbók -
Feröabókhald - Öryggiskort - Gjald-
eyristöflur - Kaupstaðakort - Evrópu-
vegirnir - Neyðar- og viögeröaþjón-
usta - Vegalengdatöflur - Bandaríska
hraðbrautakerfið - o.m.fl. sem of langt
er upp aö telja.
ÓMISSANDI I
FERÐALAGIÐ!
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN