Þjóðviljinn - 12.06.1985, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
DflðÐVIUINN
Miðvikudagur 12. júní 1985 131. tölublað 50. árgangur
Landsleikurinn
Dómarinn
í talbanni
Blaðamönnum Þjóðviljans var
í gær meinað að tala við Sviss-
lendinginn Andre Daina, sem
mun í kvöld dæma landsleik
Spánverja og Islendinga í knatt-
spyrnu. Daina dæmdi einmitt
hinn afdrifaríka úrslitaleik ítal-
ska liðsins Juventus og Liverpool
i Brússel á dögunum, en hátt á
fímmta tug manna létu þar lífíð í
óeirðum sem brutust út.
Úrslit leiksins í Brússel réðust
af vítaspyrnu sem Juventus fékk,
án þess að margra dómi að eiga
hana skilið. í fjölmiðlum í Belgíu
kom upp sterkur kvittur um að
vítaspyrnan hefði verið fyrirfram
ákeðin af forráðamönnum
UEFA til að tryggja Juventus sig-
urinn til að koma í veg fyrir meiri
óeirðir og forðast þannig frekari
blóðsúthellingar. Þessu var með-
al annars haldið fram í belgíska
sjónvarpinu.
Þegar Þjóðviljinn ætlaði að fá
viðtal við Andre Daina um málið
kom í ljós að verið er að rannsaka
á vegum UEFA hvort kvitturinn
á við rök að styðjast. Meðan sú
rannsókn er í gangi hefur Andre
Daina verið verið bannað, sam-
kvæmt skipunum UEFA, að
ræða málið við fjölmiðla þannig
að lesendur Þjóðviljans fá ekki
viðhorf Daina eins og til var
stofnað. -ÖS/VS
KampakátirlandsliðsmennílokaátökunumfyrirHM-leikinnviðSpánáLaugardalsvelli í kvöld. Sjá viðtöl við landsliðsmenn og Tony Knapp á íþróttasíðu.
Mynd E.ÓI.
Stjórnarliðið
Rífast um framleiðsluráð
Óánœgja með stjórnarfrumvarpið. Skilyrði Sjálfstœðisflokksins frá landsfundi setja
Framsóknarmenn í bobba. Forsœtisráðherra sendir bœndum sem ekki vilja samþykkja
frumvarpið strax tóninn. Talið að frumvarpið verði pínt hálfkarað úr landbúnaðarnefnd.
Gífurleg óánægja cr með frum-
varp til Framleiðsluráðslaga
sem nú er í landbúnaðarnefnd
neðri deildar. Fundir nefndar-
innar féllu niður alla síðustu viku
og ótal athugasemdir og umsagnir
eiga eftir að koma á frumvarpið.
Þrátt fyrir það hefur Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
hafnað beiðnum bænda um rýmri
Fálkabanar
Málið
fýmt?
Lögregluskýrsla um fálkaban-
ana á Húsavík verður tekin fyrir í
sakadómi bæjarins í þessari viku
og sfðan send saksóknara, sagði
sýslumaður Þingeyinga, Sigurð-
ur Gissurarson, við Þjóðviljann í
gær.
Fyrir skömmu fundust fjórir
fálkar frystir í hólfi á Húsavík og
hafa nokkrir ungir menn játað að
hafa komið fuglunum fyrir katt-
arnef. Einhverjir fálkanna voru
skotnir fyrir meira en tveimur
árum að sögn sýslumanns, og
gæti verið að þau mál séu fyrnd.
Ríkissaksóknari ákveður hvort
gerð verður dómsátt eða mál
höfðað. Samkvæmt upplýsingum
dómsmálaráðuneytisins eru
refsiákvæði við ólöglegar fugla-
veiðar sektir, varðhald eða fang-
elsisvist og ef um fágætar fugla-
tegundir er að ræða þyngjast við-
urlögin. -aró
tíma til athugunar frumvarpsins.
í Morgunblaðinu sl. viku sagði
forsætisráðherra að bændur
hugsuðu einungis um eigið skinn
en ekki fjöldann.
Steingrímur Hermannsson
leggur áherslu á að frumvarpið
verði afgreitt þrátt fyrir marga
lausa enda í frumvarpinu. í land-
búnaðarnefnd hefur ekki enn
fengist skýring á því hverjir eigi
að greiða bændum út það fjár-
magn sem til þarf eigi þeir að fá
fyrr greitt fyrir afurðir sínar en nú
er.
Á Varðarfundi í sl. viku upp-
lýsti Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins að hann
hefði ásamt Ólafi G. Einarssyni
farið á fund Steingríms Her-
mannssonar og Páls Péturssonar
þarsem Framsóknarmennirnir
féllust á skilyrði landsfundar
Sjálfstæðisflokksins um af-
greiðslu þingmála sem áttu að
hafa forgang. Meðal slíkra for-
gangsmála eru Framleiðsluráðs-
lögin. Hóta Sjálfstæðismenn
kosningum ella, ef þetta gengur
ekki eftir. Þess vegna mun nú for-
sætisráðherra leggja mikið kapp
á afgreiðslu frumvarpsins, en
Stefán Valgeirsson nefndarfor-
maður og fleiri þingmenn vilja fá
nánari útskýringar á fjölmörgum
málum. Talið er að látið verði
undan þrýstingnum og að nefnd-
in greiði frumvarpið í dag eða á
morgun.
Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður taldi í samtali við
blaðið í gær, að alls ekki hefði
tekist að sætta sjónarmið
neytenda og bænda í þessu frum-
varpi - og þegar af þeirri ástæðu
einni væri ástæða til að skoða það
nánar. Kvaðst hann einnig efast
um að þinginu lyki á föstudag ef
til kasta þingsins kæmi.
-óg
Kísilmálmverksmiðjan
Nýr vonbiðill
Islensk stjórnvöld leita hófanna hjá
alþjóðlegum auðhring, Ríó Tinto Zinc.
Um þessar mundir eru staddir
hér á landi fulltrúar frá al-
þjóðlega auðhringnum Ríó Tintó
Zinc til viðræðu um mögulega að-
ild hringsins að kísilmálm-
verksmiðju á Reyðarfírði. En
eins og kunnugt er, þá leita ís-
lensk stjórnvöld nú með logandi
Ijósi að erlendum aðila sem kynni
að hafa áhuga á þátttöku í verks-
miðjunni.
Fyrirtækið hefur mikil umsvif í
málmvinnslu víða í heiminum.
Það vinnur úraníum í Kanda og
Ástralíu, báxít í Ástralíu, hefur
ítök í blý-, sink-, og silfurvinnslu,
auk þess sem það vinnur kopar.
Þess má geta að við sögu Ríó
Tintó Zinc hefur mjög komið
auðjöfurinn Tiny Rowland, sem
Edward Heath, þáverandi for-
sætisráðherra Breta kallaði hið
óþolandi andlit kapítalismans
(„the unacceptable face of cap-
italism“).
-ÖS
Tiny Rowland, sem komið hefur
mjög við sögu Ríó Tintó Zinc. Hið
óþolandi andlit kapítalismans, að
dómi Edward Heath, fyrrum for-
sætisráðherra Breta.
Hafnarfjörður
Lax í
Lækirni
Yfir20löxum
sleppt í Hafnar-
fjarðarlœk eftir
nœstuhelgi. Tókst
mjög vel ífyrra og
vakti mikla
athygli.
Stangveiðifélag Hafnarfjarðar
tók upp á þeirri nýbreytni í fyrra-
sumar að sleppa nokkrum stæði-
legum löxum í Lækinn við
Lækjarskóla. Þetta framtak
Stangveiðimanna mæltist mjög
vel fyrir hjá bæjarbúum og eftir
næstu helgi verður leikurinn
endurtekinn.
Að sögn Sigurjóns Ingvars-
sonar stjórnarmanns í Stang-
veiðifélaginu undi laxinn sér vel í
Læknum í fyrrasumar og hafði
fólk gaman af að fylgjast með
ferðum hans upp og niður Læk-
inn. Um haustið gekk laxinn til
sjávar. í næstu viku verður síðan
um og yfir 20 löxum sleppt í Læk-
inn að nýju bæjarbúum og öðrum
vegfarendum til ánægju.
Stangveiðifélagið hefur haft
hug á því að rækta upp fisk í
Læknum svo hægt verði að veiða
þar. Til að svo megi verða þarf
m.a. að byggja fiskistiga við neð-
stu brúna í Læknum en hugmynd-
um um fiskirækt hefur verið
slegið á frest í bili að sögn Sigurj-
óns vegna mikils umróts í ný-
byggingarhverfi fyrir ofan Læk-
inn. „Við viljum hafa Lækinn al-
veg tandurhreinann þegar við
hefjumst handa“, sagði Sigurjón
Ingvarsson.
-•g-