Þjóðviljinn - 21.06.1985, Blaðsíða 6
ÞJÓÐMÁL
Leikfélag Akureyrar
í Gamla biói
6Pa
%
eftir Pam Gems
¥
EDDA ÞÓRARINSDÓTTIR
ásamt
EMELÍU BALDURSDÓTTUR,
GESTIJÓNASSYNI,
GUÐLAUGU MARI'U
BJÁRNADÓTTUR,
MARINÓ ÞORSTEINSSYNI,
PÉTRI EGGERZ,
SUNNU BORG,
THEODÓRI JÚLÍUSSYNI,
ÞRÁNI KARLSSYNI,
dönsurum og hljómsveit.
Leikstjóri:
SIGURÐUR PÁLSSON.
Þýðandi:
ÞÓRARINN ELDJÁRN.
Leiktjöld:
4 GUÐNÝ B. RICHARDS.
Dansar:
ÁSTRÓS GUNNARSDOTTIR.
Hljómsveitarstjóri:
ROAR KVAM.
Frumsýning föstudag 21. júní kl. 20.30. Sýningar 22. 23. 25. 26. 28. 29. og
30. júní. Miðasala í Gamla bíó opin frá 18. júní kl. 16 - 20.30 daglega, sími
11475 Visapantanir teknar frá í síma og pantanir teknar fram í
tíma. Munið starfshópafsláttinn. Hitt Leikhúsið
COUNTRY FRANKLIN
"m ik
Kaminuofnar með griligrind hentugir fyrir
sumarbústaði, garðstofur o.fl., 3 stærðir.
Verð frá kr. 24.430.-
Ennfremur fleiri gerðir t.d. VERSAILLES
Útsölustaðir:
Sumarhús h/f Háteigsvegi 20, s. 12811
Efnalaug Suðurlands, Selfossi
s. 99-1554
STÁLÍS s/f s: 671130
kSRARIK
BK ^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Til sölu
límtré í skemmu
6 stk. burðarrammar úr límtré til bygginga skemmu.
Stærð grunnflatar 12 x 25 m
Rafmagnsveitur ríkisins byggingadeild
Laugavegi118
105 Reykjavík
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar og
bróður
Hersteins Magnússonar
Sigríður Skúladóttir
Herdís Hersteinsdóttir Áslaug Hersteinsdóttir
Þórdís Árnadóttir Áslaug Ágústsdóttir
Árni Magnússon Móeiður Þorláksdóttir
Jensína Magnúsdóttir Hjörleifur Þórðarson
og systkinabörn.
Alþingi
Samkomulag
á bláþræði
Nýting Seðlabanka undir Stjórnarráð ógnaði samkomulagi um
þinglausnir
Litlu munaði að samkomulag
um þinglausnir í dag færi út um
þúfur vegna andmæla Davíðs Að-
alsteinssonar við tillögu um könn-
un á nýtingu Seðlabankahússins
fyrir Stjórnarráðið í gærdag.
Forseti gaf 10 mínútur til um-
ræðna um tillöguna og sagðist
ekki myndu taka máiið til af-
greiðslu ef umræður yrðu lengri.
Davíð talaði nokkra stund og
óskaði í lok ræðu sinnar eftir upp-
lýsingum frá forsætisráðherra og
bankamálaráðherra og var því
sýnt að forseti myndi taka málið
af dagskrá. Þessu mótmæltu for-
menn stjórnarandstöðuþing-
flokkanna harðlega sem broti á
samkomulaginu svo og formaður
þingflokks Framsóknar, sem
skoraði á stjórnarþingmenn að
gæta hófs í ræðustólnum.
Þingsályktunartillagan var síð-
an samþykkt að viðhöfðu nafna-
kalli með 28 atkvæðum gegn 9.11
greiddu ekki atkvæði og 12 voru
fjarverandi. í umræðunni kom
m.a. fram að fyrirhugað er að
Þjóðhagsstofnun fái inni í nýja
Seðlabankahúsinu þar sem um
500 fermetrar verða til útleigu og
að viðræður eru þegar hafnar við
bankann um nýtingu á því plássi.
-ÁI
I Þótt þreyta, kapp og taugaveiklun hafi sett sinn svip á þessa síðustu daga þingsins fremur en kátína, er greinilegt að
þremenningarnir á þessari mynd, Jóhanna Sigurðardóttir, Karvel Pálmason og Kristín S. Kvaran hafa hér dottið niður á
eitthvað skemmtilegt. Ljósm.: E.ÓI.
Alþingi
Bætt þjonusta i
tannréttingum
Tillaga Helga Seljan samþykkt
Alþingi samþykkti í gær þings-
ályktunartillögu frá Helga Seljan
um að fela ríkisstjórninni að leita
leiða til að koma ákveðnu skipu-
lagi á þjónustu í tannréttingum á
landsbyggðinni. Að tillögu Ellerts
B. Schram voru orðin „á lands-
byggðinni“ þó felld út í endan-
legri gerð ályktunarinnar.
Kjartan Olafsson mælti fyrir
áliti allsherjarnefndar um þessa
tillögu og sagði tilgang hennar að
aflétta þeim kostnaði sem leitt
hefur af ferðalögum ungmenna
til Reykjavíkur vegna
tannréttinga. Sjúkrasamlögin
bera nokkurn hluta þessa kostn-
aðar, eða 50% en hlutur þeirra
hafði áður verið 75%. Samkvæmt
upplýsingum Tryggingastofnun-
ar ríkisins er 41% allra ferða-
kostnaðargreiðslna, sem úr-
skurðað er um vegna
tannlæknakostnaðar, fyrst og
fremst vegna tannréttinga. Til-
lagan miðaði því að því, sagði
Kjartan, að koma á sparnaði fyrir
íbúa landsbyggðarinnar og
sjúkrasamlögunum. Hann sagð-
ist ekki vilja stefna afgreiðslu
málsins í hættu með því að leggj-
ast gegn tillögu Ellerts, en sagðist
gera það í trausti þess að við
framkvæmd þingsályktunarinnar
verði megintilgangur hennar
hafður í huga. - AI
Skuldaskil
Jarðboranimar dauðar?
Stjórnarflokkarnir hafna samningi Davíðs og Sverris
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra fékk hvorki blessun
Framsóknarmanna né ýmissa
samflokksmanna sinna til að
leggja fram frumvarp sitt um
inngöngu Reykjavíkurborgar í
Jarðboranir ríkisins. Hafa menn í
báðum flokkunum deilt á ráð-
herrann fyrir tvennt: að veita
ekki öðrum sveitarfélögum tæki-
færi til að ganga inn í fyrirtækið
og fyrir að hafa undirritað samn-
inginn við Davíð Oddsson án
fyrirvara.
Síðast var til umfjöllunar í
þingflokkum stjórnarinnar þriðja
útgáfan af Jarðboranafrumvarp-
inu. Fyrstu útgáfunni um að
Reykjavíkurborg ein ætti 50% í
fyrirtækinu á móti ríkinu var
hafnað í báðum flokkunum. f
næstu útgáfu gerði Sverrir Her-
mannsson ráð fyrir því að önnur
sveitarfélög gætu gerst aðilar að
fyrirtækinu og myndi hlutur ríkis-
ins þá minnka sem því næmi.
Þessu höfnuðu Framsóknarmenn
og töldu að borgin yrði þá allsráð-
andi í fyrirtækinu. Þriðja útgáfan
gekk út á að önnur sveitarfélög
gætu gengið inn í fyrirtækið og
hlutir ríkis og Reykjavíkurborgar
minnkuðu þá jafnt sem nýja
hlutnum næmi.
Jarðboranir nkisins eru með
óreiðuskuldir upp á 120 miljónir
króna og er reiknað með að
Reykjavíkurborg leggi fram 50
miljónir í beinhörðum peningum
um leið og fjármálaráðherra
„strikar" yfir skuldirnar. Ekki
var haft samráð við Albert Guð-
mundsson um þetta mál fyrirfram
og mun hann ekki hafa verið sér-
staklega hrifinn af því.
Davíð Oddsson borgarstjóri í
Reykjavík skrifaði upp á samn-
inginn með fyrirvara og hefur
honum nú verið vísað til umsagn-
ar í stjórn veitustofnana borgar-
innar að tillögu Guðrúnar Ág-
ústsdóttur. Tilgangslaust er hins
vegar að staðfesta samninginn
hjá borginni því frumvarp Sverris
kemur ekki einu sinni fram, hvað
þá að það verði samþykkt á þessu
þingi. - ÁI
6 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Föstudagur 21. júni 1985