Þjóðviljinn - 21.06.1985, Blaðsíða 7
Hvað með Traffic
meðan það var
og hét
„Það var öðru vísi“ segir Hjör-
leifur. „Það gerðist það sama, að
vísu, að fullt af krökkum safnað-
ist saman fyrir utan Traffic. En
þar er ekki hraðbraut fyrir fram-
an, og mannþröngin hægði á um-
ferðinni. Mikið af bflum stoppaði
líka fyrir framan Traffic því menn
voru að tékka á liðinu. Hættan
var því ekki fyrir hendi. Þar að
auki var umferðarlögreglan mjög
árvökur og hreinlega lokaði fyrir
umferð á stundum. Ástandið við
Traffic var því öðru vísi.
„Menn mega ekki gleyma því,
að þetta er partur af því hvernig
krakkarnir skemmta sér í dag.
Við fullorðna fólkið hímum með
hund í biðröðum til að komast
inn á skemmtistaðina, en krakk-
arnir koma allt eins til að vera
bara fyrir utan. Þetta ástand
verður því alltaf til staðar. Þess
vegna er rangt að veita stað, sem
er staðsettur einsog Villti Tryllti
Villi, skemmtanaleyfi, án þess að
gera mjög verulegar úrbætur á
umferðinni, að minnsta kosti á
þessum kvöldum um helgar.
Ui-^9 .
^leifur&n
i£ m- u/-bseturbraut * ~
8
Ur>giim
skúl
Urbætur
Þarna er nánast verið að
eftir stórsiysum ef ekkert verður
að gert. Við hjá Útideildinni höf-
um auðvitað miklar áhyggjur af
þessu og höfum meðal annars
rætt þetta við umferðarlögregl-
una og þeir hafa tekið þessu vel.
Þetta sagði Hjörleifur
Sveinbjörnsson, starfsmaður
Útideildar, þegar Glætan leitaði
álits á ástandinu við Villta Tryllta
Villa, þar sem Safarí var áður. En
Glætan hefur af því spurnir að
fyrir utan staðinn safnist saman
þröng unglinga á föstudags- og
stundum laugardagskvöldum. I
hópnum vill bera við að séu
drukknir krakkar sem er auðvit-
að ekki í frásögur færandi. En
hraðbrautin um Skúlagötu er
ekki nema nokkrum metrum frá
mannþrönginni, og bifreiðar
bruna þar hjá á miklum hraða.
Það er því veruleg hætta á, að
hálffullir krakkar álpist útá göt-
una og hreinlega verði keyrðir
niður.
Er forsvaranlegt að veita
staðnum skemmtanaleyfi með
þessi ósköp í huga? Glætan fór og
Ieitaði álits löggunnar og Úti-
deildarinnar.
Lögreglu-
stjóraembættið
- uhumm
Þegar við leituðum til lögreglu-
stjóraembættisins fengum við
þau svör hjá Signýju Sen, að Saf-
arí, sem var áður í húskynnum
Villta Tryllta Villa, væri með
veitingaleyfi sem væri forsenda
skemmtanaleyfa. Staðurinn
hefði síðan sótt um skemmtana-
leyfi og fengið það. „Við veitingu
leyfanna er einungis tekið tiliit til
þess sem fer fram innan dyra, og
við það er ekkert að athuga hjá
Villta Tryllta Villa" sagði Signý,
og kvað það sem gerðist utan
dyra vera vandamál umferðar-
deildar lögreglunnar.
Beðið eftir
slysum
„Mér sýnist raunverulega að
það sé verið að bíða eftir bana-
slysum“ sagði Hjörleifur hjá Úti-
deildinni. „Það er komin reynsla
á, að á unglingaskemmtistöðum
safnast saman mikill fjöldi af
krökkum fyrir utan staðina. Það
er bara orðinn partur af kúltúrn-
um, orðið munstrið sem gengur á
þessum stöðum. Unglingarnir
koma oft bara til að spá í lífið fyrir
utan. Það er líka dýrt inn og þeir
hafa ekki efni á því að borga. Það
er líka strangt eftirlit með aldurs-
takmörkunum og þau sem
freistuðu gæfunnar en voru of
ung til að komast inn hanga
áfram utandyra.
En hraðbrautin er alveg við
staðinn, og þar að auki koma bíl-
ar með fólki sem er að skoða lífið
fyrir utan og þeir leggja á götu-
ræmuna utan við staðinn og
þrengja þannig enn meir það
svæði sem krakkarnir geta verið
á. Auðvitað eru í hópnum krakk-
ar sem hella í sig slatta af brenni-
víni og verða full einsog gengur.
Þetta lið, drukkið að einhverju
leyti, metur auðvitað aðstæðurn-
ar kolvitlaust einsog drukkið fólk
gerir. Það er svo að álpast út á
hraðbrautina, og það er einungis
tímaspursmál, hvenær einhver
þeirra verður fyrir æðandi bfl.
nauTá
'stad.
Traffic var
öðru vísi
Hjörleifur tók fram, að þau hjá
Útideildinni hefðu í sjálfu sér
ekkert að athuga við staðinn
sjálfan. Ástandið innan dyra væri
ágætt. Það væri einungis staðs-
etningin og nálægðin við hrað-
brautina um Skúlagötu, sem ylli
þeim áhyggjum.
Hvað er til ráð, spurði Glœtan
hnýsin að vanda?
„Það mætti setja hindranir sem
hægðu á umferðinni. En þetta er
hraðbraut þar sem umferðin
verður að ganga hratt fyrir sig,
þannig að ekki er víst að menn
fallist á það. Það mætti setja upp
.tóra girðingu. Sá kostur er þó
ekki góður, og eins víst að krakk-
arnir klifri yfir hana, sér í lagi ef
menn eru ekki allsgáðir. En
skynsamlegast fyndist mér að
reyna að beina umferðinni annað
meðan skemmtanirnar standa
yíir. Þetta væri ekki nema örfáa
klukkutíma sem það þyrfti. Þeim
bflum sem eru á leiðinni austur í
bæ mætti til dæmis sem best beina
upp á Hverfisgötuna, sem er ekki
nema slatta í burtu“.
_ „En ég tek það fram að við hjá
Útideildinni erum ekkert fagfólk
í þessu. Þetta eru bara úrbætur
sem mér detta í hug einsog hverj-
um öðrum múg útí bæ sagði Hjör-
leifur að lokum. _ös
Föstudagur 21. júní 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 7
Villti Tryllti Villi
Oheppilegur
fyrir unglingaskröll
Óskar yfirlögregluþjónn: Þarf ekki annaö en einn álpist út á
götuna
Við höfum bent á að þetta er
óheppilegur staður fyrir ung-
lingaskemmtistað, sagði Óskar
Ólason hjá umferðardeild lög-
reglunnar í Reykjavík.
- Það er alltaf töluverður slæð-
ingur af krökkum fyrir utan,
sagði Óskar. Annað hvort fá
krakkarnir ekki að fara inn eða
vilja það ekki heldur safnast sam-
an fyrir utan. Það þarf ekki annað
en einn unglingur álpist út á götu-
na. Voldug girðing er kannski
það eins sem dugar en það er erf-
itt að koma því við því Skúlagat-
an er eina tengingin við húsið.
Önnur leið er að setja upp þreng-
: : JHi’i'. i~'r'' .
ingu í Skúlagötunni svo bílarnir
aki hægar.
„Það er greinilega þörf á ein-
hverjum stað fyrir unglingana en
ef svona skemmtistaður er inní
íbúðarhverinu er kvartað undan
hávaða en Skúlagata er heldur
ekki heppilegur staður vegna
hraðbrautarinnar!
„Við höfum haldið uppi lög-
gæslu fyrir utan en það kemur að
því að eigendur staðarins verða
að borga hana sjálfir því við
tökum þessa löggæslu frá öðrum
sem þurfa hennar með. En það
verður eitthvað að gera og gæti
komið til þess að skemmtana-
leyfið verði endurmetið.“ aró