Þjóðviljinn - 21.06.1985, Page 8
GL4ETAN
Alison Moyet elskar hænur
Hún er söngkona og fyrsta sólóplatan hennar hefur selst í nær miljón eintökum.
Hún er verðandi móðir, elskar hrollvekjur og kynlífsmyndir. Hún á hús uppí sveit og ræktar hænur. Hún er æði!
Váááá - Alison í Yazoo er al-
gjört æði, sögðu breskir ung-
lingar þegar Alison Moyet kom
fyrst fram á sjónarsviðið i Bret-
landi fyrir þremur árum. Og
Alison tók sér næstum fasta
bólfestu á sjónarsviðinu, því
þar er hún búin að vera allar
götur síðan.
Um þessar mundir er allt á
fullu hjá henni. Hún er nýbúin að
gefa út fyrstu sólóplötuna sína,
„Alf’, sem hefur selst í hvorki
meira né minna en 860 þúsund
eintökum, og fer áreiðanlega yfir
miljón plötu strikið undir lokin.
Það er sannarlega ekki auðvelt að fá
hænur í heimsókn.
Barn á leiðinni
En „Alf’ er ekki eina dæmið
um frjósemi Alison Moyet. Eftir
tvo mánuði mun hún nefnilega
bera frumburð sinn í heiminn.
Flestir myndu vera í hennar spor-
um annaðhvort alveg í skýjunum
yfir barninu og plötunni, ellegar
alveg að hrynja sundur úr algjöru
stressi. En ekki Alison. Meðan
hinar súperstjörnurnar í bransan-
um eru með hausinn skýjum ofar
er hún sallaróleg og heklar á
krógann sem von er á innan
skamms. (Malcolm, maðurinn
hennar er talinn vera pabbinn!)
í viðtali við breskt blað fyrir
skömmu sagði hún bara að hún
væri ósköp ánægð með velgengi
plötunnar. „Annars hef ég meiri
áhuga á hænsnum þessa stund-
ina,” sagði Alison bara og horfði
til himins. „Púddur hafa nefni-
lega ofsalegan persónuleika. Þær
eru ekki algjör hænsn einsog
sumir í poppbransanum - ég
nefni engin nöfn,” bætti Alison
við og horfði á viðtalstakanda ís-
meygilegum augum...
Púdda-púdd
Alison elskar nefnilega hænur.
Þessa undarlegu ást skýrir hún á
eftirtaldan hátt: „Þegar ég var
stelpa var ég oft hjá afa og ömmu.
Þar voru engir aðrir krakkar til að
leika sér við. En afi og amma áttu
púddur. Æðislega sætar litlar
púddur. Það er eitthvað virkilega
hlýlegt við þær,” segir Alison sem
ásamt Malcolmi sínum á sex
stykki.
„Síðan þá elska ég púddur.
Best finnst mér að taka þéttings-
fast utan um hálsinn á þeim og
finna hvað þær eru í rauninni
heitar. Ekki þannig að mig langi
neitt sérstaklega til að snúa þær
úr hálsliðnum, þó ég geti ekki
svarið fyrir að það hendi. Sér-
staklega þegar ég er búin að vera
góð við þær, strjúka þeim og gæla
á alla kanta, og svo snúa þær sér
við og bíta mig, bölvaðar pjás-
urnar.”
Getnaðarverjurnar
brugðust
Hvað með barnið - var ekki
plötufyrirtækið hennar Alison
súrt þegar hún varð allt í einu
ólétt upp úr þurru, einmitt þegar
hún var að verða að mega-
stjörnu?
„Ætli þeir séu ekki dálítið orð-
nir leiðir á mér en mér er skít-
sama. Óléttan var ekki plönuð og
ef ég á að vera heiðarleg þá hélt
ég að ég vissi meira um getnaðar-
varnir.”
Alison er auðvitað byrjuð að
kaupa barnaföt og barnahús-
gögn?
Já, og þykir bara þrælskemmti-
legt en ég kaupi engin leikföng.
Krakkar taka hvort eð er kassann
undan spilunum fram yfir
leikföng og ég á nóg af slíkum
kössum heima.
Heima er fimm-herbergja hús
útí sveit, svo gott sem mubblu-
laust.
„Við eigum tvo sófa og sjón-
varp og eina ástæðan fyrir því að
það eru skápar í svefnherberginu
er sú að þeir voru þar þegar við
fluttum inn. En við erum líka
með éldhús, með uppþvottavél,
ofni, ísskáp og fleiri skápum...
„Eg horfi lítið á sjónvarp nú-
orðið. Hryllings- og kynlífsmynd-
ir eru mitt uppáhald en svoleiðis
myndir eru sjaldan sýndar í sjón-
varpi. Þeirri sögu hefur verið
komið á kreik að ég liggi í vídeói
og glápi á subbulegar myndir þar
sem einhver ráfar um og heggur
útlimi af fólki en þær myndir
finnst mér leiðinlegar. Ég vil hafa
hryllinginn á andlega planinu.”
Ætlar þessi verðandi móðir að
leyfa barninu sínu að umvefja sig
andlegum hryllingi?
Barnið fær að horfa á það sem
það þolir án þess að fá martraðir. -
En hvað með Óla Lokbrá? Sú
mynd getur stundum verið dálítið
martraðarleg?
„Ég verð bara að bíða þangað
til barnið hefur náð þeim aldri og
þroska að það getur horft á Óla
Lokbrá án þess að fá martröð.
Þegar ég var lítil og langaði til að
horfa á eitthvað í sjónvarpinu fór
pabbi alltaf að ryksjúga. Svo ég
fékk aldrei að sjá gott sjónvárp.
Ég varð bara að nýta tímann tvö-
falt þegar hann var í fótbolta.
Engin
kvikmyndastjarna
Vildirðu sjálf vera með í bíó-
mynd?
„Nema síður sé. Mér líður illa
fyrir framan myndavél og ég er
ekki neitt sérstaklega myndræn
og ég hata að búa til vídeómynd-
ir.”
Viðtalstakandi muldrar
eitthvað um að vídeómyndin
„Love Resurrection” sem Alison
gerði geti varla talist til mestu af-
reksverka vídeólistarinnar - allt
þetta flan fram og aftur um
eyðimörkina.
„Þetta var algjörlega mér að
kenna. Þú getur kennt mér um að
allar mínar vídeómyndir eru al-
gjört rusl. Ég hef bara ekki áhuga
á þeim. En á ég að segja þér
hvernig „Love Resurrection”
varð til? Ég ákvað að gera
hrollvekju, sem væri svo svaka-
leg, að fólk óskaði þess heitt og
innilega að þessi ógeðslega mynd
færi sem fyrst af skerminum. Og
það gerði ég. Hrollvekjur -
umm” segir Alison og hryllir sig
af unaði. „Ég elska þær.”
aró/ÖS
Alison Moyet með fiðraða vinkonu í fanginu.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir (2) 1. Nineteen - Poul Hardcastle (-) 2. View to a kill - Duran Duran (1) 3. Icing on the cake - Stephan TinTin Duffy (4) 4. Cloud across the moon - RAH Band (—) 5. Raspberry berets - Prince (6) 6. Celebrate youth - Rick Springfield (-) 7. The beast in me - Bonnie Pointer (10) 8. Roses - Heywood (-) 9. Just a gigolo - David Lee Roth (9) 10. Cherish - Cool and the Gang Rás 2 ( 1) 1. A view to a kill - Duran Duran ( 8) 2. Icing on the cake -Stephan TinTin Duffy ( 2) 3. Axel F - Harold Faltermeyer ( 6) 4. Raspberry beret - Prince ( 4) 5. Clouds across the moon - RAH-band ( 3) 6. Nineteen - Poul Hardcastle ( -) 7. Móðurást - Possibillis ( -) 8. Celebrate youth - Rick Springfield (10) 9. Get it on - Power Station ( -) 10. Left right - Drýsill Grammið (1) 1. Kona - Bubbi Morthens (4) 2. Rip, rap, rup - Oxsmá (2) 3. Low life - New Order (5) 4. Meat is murder - The Smiths (3) 5. The perfect kiss - New Order (9) 6. Beverly Hills Cops - Soundtrack (8) 7. Blá himmel blues - Imperiet (6) 8. Rockabilly psychosis - Cramps, Gunclub, Meteos ofl. (7) 9. Brothers in arms - Dire Straits (-) 10. Cotton Club - Soundtrack