Þjóðviljinn - 21.06.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Góður sigur Skagastúlkna í Kópavogi
og þœr standa mjög vel að vígi
Kvennaboltinn
UBKsotti
en ÍA skoraði
íslandsmeistarar Akurnesinga
stigu stórt skref í átt til varnar
titilsins í gærkvöldi með því að
sigra skæðasta keppinautinn,
Breiðablik, 3-1 á Kópavogsvellin-
um. Þó Blikastúlkurnar væru
mikið meira með boltann allan
leikinn vörðust meistararnir vel
og uppskáru þrjú dýrmæt stig.
Strax á annarri mínútu fékk í A
vítaspyrnu og úr henni skoraði
Ragnheiður Jónasdóttir af ör-
yggi. Aðeins fjórum mínútum
síðar var staðan orðin 0-2, Laufey
Sigurðardóttir notfærði sér hik í
Blikavörninni og skoraði með
laglegu skoti. Skömmu fyrir hálf-
Helgar-
sportið
Knattspyrna
Sjöttu umferðinni í 1. deild
karla lýkur um helgina. í kvöld kl.
20 leika Þór og Víðir á Akureyrar-
velli og Víkingur-Þróttur á
Laugardalsvelii. A morgun kl. 14
mætast síðan ÍBK og FH á Kefla-
víkurvelli og Valur-IA á Valsvelli.
f 2. deild leika á morgun kl. 14
Völsungur-Skallagrímur og
Leiftur-ÍBÍ, og kl. 17 Fylkir-ÍBV.
Á sunnudag leika Njarðvfk og KS
kl. 14 og Breiðablik-KA kl. 20. í
3. deild mætast á morgun HV-
Stjaman, Víkingur Ó.-
Grindavík, Reynir S.-ÍK, Leiknir
F.-Þróttur N, Magni-Valur Rf,
HSÞ.b-Huginn og Tindastóll-
Einherji en Ármann og Selfoss
leika á mánudagskvöldið. f 4.
deild er leikið í öllum riðlum - þar
eru þýðingarmestir leikir ÍR og
Víkverja á morgun og leikir Hvat-
ar í Eyjafirðinum, gegn Svarfdæl-
um í kvöld og Reyni Árskóg-
strönd á morgun.
í 1. deild kvenna eru tveir leikir
kl. 14 á morgun. ÍA og ÍBÍ leika á
Akranesi og KR-Þór A. á KR-
vellinum. Á sunnudag leika síðan
ÍBK og ÍBÍ í Keflavflc og Valur-
Þór A. á Valsvellinum og hefjast
báðir leikirnir kl. 14.
Golf
Dunlop-drengjamót verður
haldið hjá Golfklúbbnum Keili
um helgina. Aldurstakmark er 16
ára og yngri. Leiknar verða 36
holur með og án forgjafar. Þátt-
taka tilkynnist f síma 53360 fyrir
kl. 20 föstudaginn 21. júní. Ræst
verður út frá kl. 10. Æfingadagur
er föstudagurinn 21. júní. Verð-
laun til mótsins gefur Dunlop-
umboðið Austurbakki, Borgart-
úni 20.
Opna Johny Walker mótið,
forgjöf 0-11, fer fram á Nesvellin-
um á morgun, laugardag. Leiknar
verða 18 holur, með og án forgjaf-
ar. Þá verða Jónsmessumót hjá
öllum klúbbum landsins á morg-
un.
Frjálsar
Meistaramót íslands f fjölþrau-
tum fer fram í Laugardalnum í
kvöld og á morgun og á sunnudag
eru Reykjvíkurleikar þar á dag-
skrá. Bamamót HSS fer fram að
Sævangi í Strandasýslu á morgun,
og sömuleiðis vormót UDN í
Búðardal. Þá verður héraðsmót
USAH haldið á Skagaströnd
laugardag og sunnudag.
Siglingar
Erix Twiname-minningamótið
í opnum flokki fer fram á Fos-
svogi á morgun, laugardag, og
hefst kl. 10. Ymir sér um mótið.
leik fékk svo Breiðablik víta-
spyrnu. Ásta María Reynisdóttir
skaut, Vala Úlfarsdóttir varði en
sló boltann í stöng og út og Ásta
María náði að skora úr þröngu
færi, 1-2. En rétt á eftir skoraði
svo Halldóra Gylfadóttir, fyrir-
liði ÍA, með skalla eftir horn-
spyrnu, 1-3 í hálfleik.
Breiðablik pressaði stíft nánast
allan seinni hálfleikinn en ÍA
varðist af skynsemi og krafti.
Ásta B. Gunnlaugsdóttir og Erla
Rafnsdóttir fengu tvö mjög góð
færi hvor til að minnka muninn
en hittu aldrei markið. Laufey
var síðan nálægt því að skora
fjórða mark ÍA eftir varnarmis-
tök Breiðabliks en Ásta Óskars-
dóttir náði að verja skot hennar.
í A og Þór Akureyri eru þá einu
liðin í 1. deild kvenna sem ekki
hafa tapað stigi - Breiðablik er þó
áfram í efsta sætinu. -VS
Ásta B. Gunnlaugsdóttir sækir að Skagamarkinu í gærkvöldi en varnarmaður ÍA reynir að stöðva hana. Mynd: E.ÓI.
l.deild
Miklir yfirburðir
Guðmundarnir og Ómar áfram á skotskónum
Framarar koma ekki til með að
gefa eftir efsta sætið í 1. deildinni
ef þeir ná jafngóðum leikjum og
þeir náðu í gærkvöldi í Laugar-
dal. Nú urðu það KR-ingar sem
urðu fórnarlömb þeirra og það
var léttur sigur hjá Fram 4-1, en í
hálfleik var staðan 3-0.
Það þurfti ekki að bíða lengi
eftirfyrstamarkinu. Guðmundur
Torfason fékk góða sendingu inn
fyrir vörn KR og tók á sprett. Er
hann kom að vítateig skaut hann,
en Stefán Jóhannsson varði.
Hann hélt þó ekki boltanum og
Guðmundur Steinsson hafði bet-
ur í kapphlaupi við 2 varnarmenn
og renndi boltanum í autt mark-
ið. Framarar sóttu stíft og var
mark KR oft í hættu. KR komst
þó í sókn og varði þá Friðrik Frið-
riksson vel skot frá Ásbirni
Björnssyni. Sló hann boltann út
_____4.deild B___
Afturelding
gerði níu
Afturelding vann Mýrdæling 9-
1 í B-riðli 4. deildar í fyrrakvöld,
3-0 í hálfleik, og er þar með kom-
ið í annað sætið með 9 stig á eftir
Höfnum sem hafa tíu. Lárus
Jónsson 2, Einar Guðmundsson
2, Friðsteinn Stefánsson 2, Atli
Atlason 2 og Hafþór Kristjánsson
skoruðu mörkin.
Bikarinn
Einherji
eða Austri
Einherji frá Vopnafírði er
kominn í 3. umferð bikarkeppni
KSI eftir sigur á Þrótti í Neskaup-
stað, 6-5, eftir framlenginu og
vítaspyrnukeppni í fyrrakvöld.
Það verða því Austri og Einherji
sem leika um sæti í 16-liða úrslit-
unum og vcrður leikið á Eskifírði
í næstu viku.
og myndaðist þvaga við Fram-
markið, en þaðan fór boltinn útaf
og markspyrna. Guðmundur
Torfason náði að nikka boltann
áfram úr markspyrnunni og allt í
einu var Steinsson á auðum sjó.
Hann lék alla leið, framhjá Stef-
áni og renndi síðan í markið.
Stuttu síðar skoraði Ómar Torfa-
son, en markið var réttilega dæmt
af vegna rangstöðu. Þriðja mark-
ið var nánast endurtekning á því
fyrsta. Nú var hreinsað langt
fram, Steinsson hafði betur í bar-
áttu við KR-inga og Iék upp frá
miðju að vítateig og skaut. Stefán
varði, en hélt ekki boltanum sem
barst út til G. Torfasonar sem átti
ekki í vandræðum með að senda
hann í autt markið. Vörn KR-
inga var langt frá því að vera vak-
andi í öllum þessum tilvikum,
sem og mörgum öðrum.
Seinni hálfleikurinn var rétt
nýhafinn þegar Pétur Ormslev
tók aukaspyrnu og sendi á G.
Torfason. Hann skaut úr frekar
erfiðri stöðu og boltinn small í
þverslá og út. Fjórða markið kom
eftir hornspyrnu sem Pétur tók.
Skallað var til hans aftur og í ann-
arri tilraun rataði boltinn á höfuð
Ómars sem skallaði. Knötturinn
fór niður og hoppaði upp í blá-
hornið, óverjandi. Stuttu síðar
varði Sæbjörn Guðmundsson á
línu eftir samskonar undirbún-
Fram-KR 4-1 (3-0) ★ ★★
Mörk Fram:
Guðmundur Steinsson 10. og30. mín.
Guðmundur Torfason 34. min.
Ómar Torfason 63. mín.
Mark KR:
Saebjörn Guðmundsson 88. mín.
Stjörnur Fram:
Friðrik Friðriksson *»
Guðmundur Steinsson **
Guðmundur Torfason •*
Ómar Torfason *
Ásgeir Eliasson *
Pétur Ormslev *
Stjörnur KR:
Hálfdán Örlygsson *
Gunnar Gíslason •
Dórnari: Friðjón Eðvarðsson **
Áhorfendur: 1070.
ing. Og enn gaf Pétur fyrir, Ás-
geir Elíasson renndi laglega á
Guðmund Torfason, en þrumu-
skot hans sleikti stöngina að
utanverðu. Hægt væri að skrifa
mikið um yfirburði Fram í þess-
um leik. Þeir léku oft snilldarvel
og voru mótherjarnir oft nánast
eins og statistar. Spil KR-inga var
oft vandræðalegt þegar enginn
samherji var í sjónmáli. Þeir
komu þó aðeins inn í leikinn síð-
ustu 15 mínúturnar. Hálfdán lífg-
aði þá upp á sóknina. Friðrik
varði vel skot frá honum eftir að
hann hafði leikið á 3 Framara.
Friðrik sýndi síðan meistaratakta
þegar hann varði góðan skalla frá
Jósteini Einarssyni sem stefndi í
bláhornið. Dæmigert fyrir þenn-
an leik hjá KR var léleg samvinna
sem kom best í ljós þegar góð
fyrirgjöf kom og Sæbjörn og
Björn Rafnsson voru báðir í stór-
góðu færi, en samvinnu vantaði
og færið rann út í sandinn. Það
var síðan Sæbjörn sem minnkaði
muninn er hann skoraði af öryggi
úr vítaspyrnu sem var dæmd á
Jón Sveinsson fyrir að fella Hálf-
dán.
Þetta var fyllilega sanngjarn
sigur hjá Fram og hefði jafnvel
getað orðið stærri. Fram hefur nú
komið sér notalega fyrir á toppn-
um, með 6 stiga forystu.
-gsm
Golf
Þorbjörn
sigraði
Þorbjörn Kærbo, GS, sigraði í
keppninni um Ólafs Gíslasonar
bikarinn sem haldinn var hjá
Golfklúbbnum Keili um síðustu
helgi. í keppni án forgjafar urðu
þrír jafnir, Þorbjörn, Jóhann
Benediktsson, GS, og Knútur
Björnsson, GK, en Þorbjörn sigr-
aði í bráðabana. Ástráður Þórð-
arson, GR, sigraði örugglega í
keppni með forgjöf.
Stykkishólmur
Golf á
uppleið
Golfíþróttin hefur vaknað til
lífsins á Stykkishólmi. Stofnaður
hefur verið Golfklúbburinn Mo-
stri og er starfíð líflegt.
í fyrra sumar fengu áhuga-
samir golfarar smá landspildu til
afnota við Helgafell, en í sumar
hafa þeir útbúið 6 holu völl á
mjög góðum stað. Fyrsti teigur-
inn er aðeins um 10 m. frá hóte-
linu í bænum, og kemur það án
efa til með að verða ánægjuefni
fyrir þá sem ferðast um Snæfells-
nes með golfsettið í skottinu.
Á næstu vikum munu félagar
klúbbsins stækka völlinn og verð-
ur hann þá 9 holur. Stefnt er að
því að halda fyrsta opna mótið í
haust. Formaður Golfklúbbsins
Mostra er körfuknattleiksmaður-
inn gamalkunni Ríkharður
Hrafnkelsson.
-gsm
Augnablik
Stjómin
örvæntir!
Það verður mikið um dýrðir á
Kópavogsvellinum á morgun,
laugardag, þegar Augnablik og
Snæfell leika þar í 4. deildinni í
knattspyrnu. Fyrir leikinn, sem
hefst kl. 14, verða Augnabliks-
mönnum afhentir nýir og mjög
sérstakir búningar með auglýs-
ingu frá auglýsingastofunni
Tímabæ.
Ýmsar uppákomur verða
tengdar leiknum, „kraftajötnar"
reyna með sér í rómverskum
hjólbörudrætti, sætir strákar
verða fánaberar, svo eitthvað sé
nefnt. Tilgangurinn er sá að
draga athygli Augnabliksmanna
frá leiknum því stjóm félagsins er
farin að örvænta vegna sigur-
göngu liðsins í 4. deild! Vegna
velgengninnar hefur þjálfara liðs-
ins, Kristjáni Halldórssyni, verið
gefið frí frá leiknum og rætt er um
að endurráða hinn gamla þjálfara
félagsins, Ara Þórðarson, sem
hingað til hefur alltaf náð að
halda liðinu í réttri deild...
Föstudagur 21. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23