Þjóðviljinn - 30.07.1985, Page 7
Magnús Sigurðsson og Sigríður Ólafsdóttir á Úlfsstöðum á Völlum.
Fljótsdalshérað
Nóg til af kjötinu
í heimsókn hjá Magnúsi og Sigríði á
Úlfsstöðum áVöllum.
Það er fallegt að aka upp að
bænum á Úlfsstöðum á
Völlum á Fljótsdalshéraði,
vegurinn og bílaplanið mal-
bikað, tré gróðursett við
veginn og stórt og fallegt
steinhæðabeð framan við
húsið. Umhverfið berábú-
endunum, þeim Magnúsi
Sigurðssyni og Sigríði Ól-
afsdótturfagurt vitni. Fljót-
lega eftir að þau tóku við
jörðinni byggðu þau upp öll
útihús og endurnýjuðu
íbúðarhúsið. Þá voru túnin
aðeins tveir ha. en eru nú
um 25 ha. Magnús erfrá
Sauðhaga á Völlum og Sig-
ríður er frá Siglufirði.
Auk þess að sinna sauðfjárbú-
skap sjá þau hjón um félags-
heimilið Iðavelli og sumarbústaði
Alþýðusambands Austurlands
að Einarsstöðum. Við spyrjum
þau um búskapinn og önnur störf
þeirra.
Skógrækt
- Ég vil gjarnan fara að breyta
svolítið til, fækka bústofninum og
fara að hugsa um aðra hluti, það
er víst nógtilafkjötinu.Égvarnú
aldrei mikið fyrir skógrækt hér
áður, en fékk áhugann allt í einu.
Það hefur orðið mikil breyting á
skóginum hérna eftir að hætt var
Þriðjudagur
að beita fé á hann. Nýgræðingur-
inn rýkur hér upp fyrir ofan, sér-
staklega eftir að fé var haldið inni
alveg frá september og fram í
júní, sagði Magnús.
- Ár trésins hafði líka mikil
áhrif, þá fóru margir af stað,
sagði Sigríður. Kvenfélagið á
Völlum gróðursetti tré, sem
Kvenfélagasamband íslands gaf,
við Iðavelli í vor.
- Skjólbelti auka tvímælalaust
grasvöxt og ég er viss um að slík
ræktun mun aukast mjög á næstu
árum. Hér á Héraði þrífst t.d.
lerki mjög vel.
Félagsheimilið
á Iðavöllum
Félagsheimilið á Iðavöllum,
sem er í eigu Vallahrepps var
reist árið 1964. Magnús hefur
verið umsjónarmaður þess frá
upphafi. Hann segir húsið mikið
notað. Þar eru söngæfingar og
dansleikir.
- Þetta er vandað hús og fal-
legt, sagði Magnús, og við leggj-
um áherslu á að hafa það alltaf
tiltækt þegar á þarf að halda.
Sumarbústaðirnir á
Einarsstöðum
Við spyrjum þau um sumar-
bústaðina á Einarsstöðum sem
Magnús og Sigríður hafa séð um
frá byrjun, eða 1971.
- Nú hér eru 32 hús, en það
l. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
vantar þjónustumiðstöðina. Hús-
in eru í stöðugri notkun á sumrin
og notkun á vetrum fer vaxandi.
Þau eru í eigu flestra aðildarfé-
laga Alþýðusambands Austur-
lands auk félaga annars staðar á
landinu.
- Fólk gengur hér vel um og er
þakklátt á allan hátt sagði Sig-
ríður, við erum bara leið yfir því
að ekki skuli alltaf vera gott
veður.
Hafa þau hjón þá nokkurn tíma
til að sinna fénu?
- Við erum nú bara með 150
ær, við höfum fækkað talsvert hjá
okkur, en þær gefa ágætis arð,
mest allt tvílembt. Við höfum
verið hér með vetrarrúningu til
þess að fá ullina sem hreinasta og
án mors, sagði Magnús.
- Ærnar eru nú í afrétt austur í
Skagafelli á Fagradal og það er
dæmi um hvað samgöngur og
vegir hafa batnað mikið að við
förum með féð á fjall alla leiðina
á bundnu slitlagi.
Við höfum frétt að Magnús og
Sigríður ættu góða hesta. Talið
berst að þeim að lokum.
- Já við eigum góða gripi og
höfum mjög gaman af hestunum.
Ég ætla mér með tvær hryssur á
landsmótið á næsta ári, en hvort
sá draumur rætist veit ég nú ekki,
sagði Magnús brosmildur, þegar
við kveðjum þau hjón á tröppun-
um á Úlfsstöðum með útsýnið
yfir fagurt Lagarfljótið og Fljóts-
dalshéraðið.
GGÓ
ísland
spennandi
„Okkur fannst ísland spennandi, -
hér er hægt að ferðast frjáls um allt.
Við vonum bara að veðrið haldist
svona" - sögðu þessir Svisslending-
ar, sem við hittum í sólskininu austur
við Skógafoss. Þeir ætla að ferðast á
bílaleigubíl um landið næstu þrjár vik-
urnar, en nöfnin eru (frá vinstri): Rue-
di Nageli, Heinz Eberhart, Lukas
Rothlisberger og Peter Schreiber.
mynd-eik.