Þjóðviljinn - 30.07.1985, Side 16
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Þrlðjudagur 30. júlí 1985 172. tölublað 50. örgangur
DJÚÐVIUINN
Kjötstríðið
Engin tollskoðun á kjöti
Kristinn Ólafsson tollgœslustjóri: Spurning hvort utanríkisráðherra vill láta stoppa uppígatið.
Lögreglustjóri Keflavík: Enginfyrirmœli um hreytta Jollskoðun“
Ekki sér enn fyrir endann á
kjötstríðinu sem geysar innan
ríkisstjórnarinnar á milli
fjármála- og utanríkisráðherra.
Vopnahlé ríkir nú á yfirborðinu
meðan ráðuneytis- og tollgæslu-
menn bíða þess að Rainbow Hope
snúi aftur. Á meðan eru næstu
aðgerðir undirbúnar.
Fjármálaráðherra fór með
sigur af hólmi í fyrstu lotu en
utanríkisráðherra á næsta leik og
hann er einfaldlega sá að flytja
kanakjötið með flugi beint inná
Völlinn. Par er að vísu tollgæsla,
en sú tollgæsla heyrir ekki undir
fjármálaráðherra heldur undir
varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins.
„Við höfum engin afskipti af
tollamálum inni á Vellinum. Her-
inn hefur þann möguleika að fara
aðrar leiðir með þessa kjötflutn-
inga ef þeir vilja nýta sér það.
Spurningin er hvort utanríkisráð-
herra vill láta stoppa uppí það
gat“, sagði Kristinn Ólafsson toll-
gæslustjóri í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Ólafur Hannesson aðalfulltrúi
hjá lögreglustjóraembættinu á
Keflavíkurflugvelli sagði að það
væri ekki venja að tollskoða
flutninga hersins með flugvélum
Olíufélagið
segir NT upp
Vilhjálmur Jónssonforstjóri ESSO: „Vilekki
kaupaþetta blað“. Grein ísíðasta helgarblaði
umgamla Olíufélagssvindlið á
Keflavíkurflugvellifylltimœlinn
Forstjóri Olíufélagsins h/f sagði
í gær upp áskrift sinni á NT og
jafnframt áskrift Olíufélagsins á
blaðinu en það hefur verið keypt í
Knattspyrna
Fram í
úrslit
Framarar leika til úrslita í bik-
arkeppni KSÍ annað árið í röð og
í tíunda skiptið alls eftir sigur á
Þórsurum frá Akureyri, 3-0, I
undanúrslitunum á Laugardals-
vellinum í gærkvöidi.
Ekkert mark var skorað í
venjulegum leiktíma og því fram-
lengt. Strax í upphafi framleiig-
ingarinnar skoraði Guðmundur
Torfason fyrir Fram og síðan
bætti Pétur Ormslev öðru marki
við. Undir lokin innsiglaði svo
Örn Valdimarsson sigurinn með
þriðja markinu. Fram leikur við
IBK eða KA í úrslitunum en þau
félög mætast í Keflavík 13. ágúst.
-gsm/VS
Sjá bls. 9-12
stóru upplagi á allar bensínaf-
greiðslur og skrifstofur félagsins.
Astæðan er grein í síðasta helgar-
blaði NT þar sem rifjuð voru upp
málaferlin út af margvíslegu mis-
ferli Olíufélagsins varðandi við-
skipti við bandaríska herinn á
sjötta áratugnum.
„Það er Ieiðinlegt þegar verið
er að tína svona upp. Það hefði
verið skynsamlegra að birta
hæstaréttardóminn heldur en að
vera að tína upp úr ákærum sem
ekki stóðust fyrir rétti eins og gert
er í þessari grein“, sagði Vil-
hjálmur Jónsson.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er tilurð greinarinnar um
brask Olíufélagsins á sínum tíma
nokkurs konar hefnd í garð fé-
lagsins en það hefur sýnt lítinn
áhuga á að styrkja útgáfu NT í
þeim þrengingum sem blaðið býr
við. Hefur verið lagst þungt á
hina ýmsu forstjóra Sambands-
fyrirtækjanna að leggja sitt af
mörkum en Vilhjálmur Jónsson
haft lítinn áhuga á málinu. Að-
spurður um þessi mál sagði Vil-
hjálmur: „Ég veit ekki um þeirra
tilfinningar eða þeirra ástæður
eða hvaða fólk þeir umgangast.
En það er rétt ég sagði blaðinu
upp. Ég vil ekki kaupa þetta
blað“, sagði forstjóri Olíufélags-
ins. -lg.
Togaraútgerð
Akureyringar drýgstir
Af togurum á botnvörpuveið-
um voru Akureyrartogarar
drýgstir ásamt Gullveri NS 12
hvað aflaverðmæti snertir fyrstu
fimm inánuði þessa árs. Harð-
bakur EA 303, Svalbakur EA
302, Kaldbakur EA 301 og
Gullver NS 12 öfluðu allir fyrir
meira en 25 miljónir króna á
tímabilinu frá janúar til maí.
Einungis fjórir togarar fengu
allan þorskafla sinn metinn í
fyrsta flokk á sama tíma. Þeir eru
allir frystitogarar, Örvar HU,
Akureyrin EA, Siglfirðingur SI
og Hólmadrangur. Langflestir
togaranna fengu 90% þorsk-
aflans eða meira í 1. flokk, en
togararnir Haukur GK 25, Snorri
Sturluson RE 219, Þorleifur
Jónsson HF 12, Ögri RE 72 og
Ý mir Hf 373 fengu minna en 70%
þorskins í hæsta gæðaflokk.
gg
inn á Völlinn. „Ég þori ekki að sagði að ekki hefðu borist nein inu um breyttar starfsvenjur við
segja hvaða vörur þetta eru því fyrirmæli frá utanríkisráðuneyt- „tollskoðun" á Vellinum, -lg.
þetta er ekki tollskoðað". Hann Sjáfrekar um kjötstríðið í Klippi á bls. 4.
Jóhann Hjartarson, nýbakaður stórmeistari í skák: fslendingar eiga nú fjóra stórmeistara í skák, til samanburðar má geta
þess að hinar Norðurlandaþjóðirnar eiga tvo stórmeistara hver. islendingar eiga nú flesta stórmeistara í heimi - að
sjálfsögðu miðað við fólksfjölda.
Stórmeistararabb
Allar skákir erfíðar
Jóhann Hjartarson útnefndur stórmeistari á nœsta þingi
FIDE.
íslendingar eigaflesta stórmeistara í heimi, miðað við
fólksfjölda.
inn ungi skákmaður Jóhann
Hjartarson, 23 ára, kom sl.
laugardag heim frá Noregi þar
sem hann hafði tekið þátt í skák-
móti í Gjövik. Á skákmóti þessu
aflaði Jóhann sér nægilegs fjölda
stiga til þess að hljóta stór-
meistaratitil. í þvi sambandi
hafði blaðamaður Þjóðviljans
samband við Jóhann.
Hvað varðar framtíðaráform
segist Jóhann Hjartarson munu
leggja stund á lögfræðinám við
Háskóla íslands eins og reyndar
fleiri þeirra íslendinga er náð
hafa langt í skákinni. Jóhann tel-
ur þetta vera vegna þess að lög-
fræðinámið sé ekki jafn krefjandi
hvað varðar tímasókn og aðrar
námsgreinar við Háskólann.
Hann hafi því frjálsari tíma og
hyggst reyndar einbeita sér að
skákinni að meðaltali 3 tíma á
dag. Annars segist Jóhann kunna
vel að meta lögfræðinámið.
Að lokum kvað Jóhann allar
skákir á skákmótum hafa reynst
sér erfiðar og gæti hann hvorki
nefnt andstæðing, skák né mót
sem hefði skorið sig þar úr.
Þjóðviljinn óskar Jóhanni
Hjartarsyni til hamingju með
þann rétt sem hann hefur áunnið
sér til þess að hljóta stórmeistara-
titil og óskar honum gæfu á skák-
brautinni.
-já-