Þjóðviljinn - 16.08.1985, Blaðsíða 1
UM HELGINA
HEIMURINN
GLÆTAN
Erlent fjármagn
Leynimakk með stóriðju!
Skipulagsstofa höfuðborgarsvœðisins útbýr áróður. Magnús L. Sveinsson: Ekkert leyndarmál að við viljum laða að
erlenda aðila. Gestur Ólafsson: Erum að útbúa kynningarbœkling á ensku. Tollfrjáls iðnaðarsvœði við Sraumsvík.
Guðmundur Oddsson: Ekki rœtt innan stjórnarinnar svo ég viti. Björn Ólafsson: Ekki heyrt umþetta.
Jóhann Bergþórsson: Telþetta óeðlilegt. Adda Bára: Geri athuga semdir. Guðríður Þorsteinsdóttir: Veit lítið umþetta
Það er ekkert leyndarmál, að í
vinnslu er kynningarbækling-
ur á ensku, þar sem höfuðborgar-
svæðið er kynnt sem iðnaðar-
svæði og því er ekki að neita, að
tilgangurinn með slíkri útgáfu er
öðrum þræði að laða hingað að
aðila sem hugsaniega myndu hafa
áhuga á að koma upp einhverjum
atvinnurekstri á svæðinu. Ég veit
ekki annað en að atvinnumála-
nefnd höfuðborgarsvæðisins sé
jákvæð gagnvart slíkum hug-
myndum, sagði Magnús L.
Sveinsson, formaður nefndarinn-
ar í samtali við Þjóðviljann í gær.
Kynningarbæklingurinn sem
hér um ræðir er í vinnslu hjá
Skipulagsstofu höfuðborgar-
svæðisins og að því er Gestur ÓI-
afsson forstöðumaður hennar
tjáði blaðinu mun ætlunin að gefa
hann út í haust og dreifa erlendis.
í bæklingnum er dregin upp
mjög fögur mynd af íslensku
þjóðlífi á öllum sviðum og sam-
kvæmt honum eru möguleikar til
uppbyggingar ótæmandi, einkum
vegna hinnar vannýttu raforku,
„sem seld er gegn sanngjörnu
verði“.
Þar sem vikið er að fjárfestingu
segir m.a. að sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu hafi yfir að
ráða mjög góðri aðstöðu til iðn-
aðaruppbyggingar. Pá segir: „Nú
eru í gangi umræður um að koma
á fót iðnaðarfríhöfn á höfuðborg-
arsvæðinu, sérstaklega í
Straumsvík vegna hafnarað-
stöðunnar þar“. Um íslenska at-
vinnustefnu segir: „Þar sem fyrir-
sjáanlegt er að sjávarútvegurinn
mun ekki gefa af sér auknar tekj-
ur í framtíðinni eru íslendingar
farnir að huga í auknum mæli að
því að laða til íslands orkufrekan
iðnað til að geta hagnast á orku-
lindum sínum“.
Nokkuð er vikið að íslensku
vinnuafli. „Verkföll eru gerð
stöku sinnum en standa venju-
lega ekki lengi“.
Samkvæmt bæklingnum er vel-
megun mikil á íslandi og er þess
getið í því sambandi, að sam-
kvæmt skoðanakönnun Gallup
séu íslendingar meðal hamingju-
sömustu þjóða í Evrópu.
Pétur Pétursson
Bjartsýnn
ásölu
„Ég er mjög bjartsýnn á að ég
verði seldur til Hercules, en get
annars ekkert sagt um það fyrr en
á morgun eða á laugardaginn. Ég
er búinn að ganga frá samningum
við Hercules og lýst mjög vel á
mig hérna. Hercules er nýbúið að
kaupa Mario Kempes og 3-4 aðra
leikmenn og ég vona að ég komist
í þeirra hóp“, sagði Pétur Péturs-
son knattspyrnumaður í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Sjá bls. 3 8g
„Ég hef ekki heyrt um þetta“
sagði Björn Ólafsson sem á sæti í
stjórn samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu í samtali við
Þjóðviljann. „Ég hef ekki heyrt
minnst á neitt þessu líkt og tel það
óeðlilegt að svo sé“, sagði Jóhann
Bergþórsson formaður skipulags-
nefndar Hafnarfjarðar. „Ég hef
séð drög að þessu plaggi og gerði
ýmsar athugasemdir við þessar
hugmyndir“, sagði Adda Bára
Sigfúsdóttir, sem er í fram-
kvæmdastjórn Skipulagsstofnun-
ar og stjórn Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu. „Ég
kannast ekki við þetta og þessi
fríhafnarhugmynö hefur ekki
verið rædd innan . framkvæmda-
stjórnarinnar svo ég viti“, sagði
Guðmundur Oddsson í fram-
kvæmdastjórn Skipulags-
stofnunnar. „Það er lítið sem ég
get sagt um þetta, það hefur
eitthvað verið til umræðu innan
atvinnumálanefndar að kynna
svæðið, en ég veit voða lítið um
þetta“, sagði Guðríður Þor-
steinsdóttir í atvinnumálanefnd
fyrir hönd Reykjavíkurborgar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
gg
Lekinn
Orökstudd aðdróttun
í Morgunblaðinu
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstœðisflokksins: Veitekki um neinn
leka. Órökstudd aðdróttun í Morgunblaðinu. Segi ekki hvað rœtt vará
fundinum með ráðherrunum. Utiloka ekkiþingnefndar rannsókn.
Á lestarlúgunni. Ljósm. Ari.
r
Eg veit ekki til þess að
stjórnkerfið hafi lekið. Ég hef
engar sannanir í því efni og ég vil
ekki að mér séu bornar á brýn
sakir um það og geri það ekki
gagnvart öðrum“, segir Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins um tíðræddan leka á til-
boði Birkis Baldvinssonar í
hlutabréf rflrisins í Flugleiðum. í
fréttaskýringu í Morgunblaðinu í
gær er því haldið fram að lekinn
hafí átt sér stað eftir fund Þor-
steins með ráðherrum Sjálfstæð-
isflokksins daginn fyrir marg-
ræddan rflrisstjórnarfund í sl.
viku
„Þessi aðdróttun í Morgun-
blaðinu er órökstudd og ég vísa
henni frá sem tilhæfulausri.“ Að-
spurður hvort tilboð Birkis hefði
komið til umræðu á fundi hans
með ráðherrum flokksins sagðist
Þorsteinn ekki svara þeirri spurn-
ingu. „Við höfum haft það fyrir
venju að fjalla ekki opinberlega
um þau mál sem við tökum til
meðferðar á þessum fundum.
Við höfum ekki og munum ekki
fjalla um einstök mál sem tekin
eru til meðferðar á þessum fund-
um og það er regla sem ég ætla
ekki að byrja á að brjóta.
„Meginágreiningurinn stendur
um hvaða aðferð átti að nota við
söluna því sú aðferð sem notuð.
var býður uppá að eitthvað gerist
af þessu tagi, menn fái einhverja
vitneskju. Á þessu stigi málsins
er ég ekki viss um að það breyti
einu eða neinu hvort þingnefnd
verði látin skoða málið án þess að
ég ætli nokkuð að útiloka það að
menn grafist fyrir um þau efni“,
sagði Þorsteinn Pálsson. -Ig.
Löggæsla
Gegndarlaust
tillitsleysi
við
jarðarför
Teignmouth, Englandi - Mikil
reiði ríkir nú í garð eina lög-
regluþjónsins í þorpinu
Teignmouth eftir að hann tók
þá ákvorðun að sekta bílstjóra
líkbíls fyrir að trufla umferð
fyrir utan þorpskirkjuna með-
an verið var að jarða 100 ára
gamla konu.
Meðhjálpari kirkjunnar hefur
lýst þessu framferði lögreglu-
þjónsins sem „gegndarlausu til-
litsleysi". Lögregluþjnoninn
þvertekur hins vegar fyrir það að
framferði hans hafi verið ókristi-
legt. „Ég var einungis að sinna
mfnu starfi,“ segir hann. Yfirvöld
hafa látið málið niður falla.
-ÞH/Reuter