Þjóðviljinn - 16.08.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.08.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Þessi mynd var tekin af flugvélinni TF-BEB skömmu eftir lendingu nálægt Hnausahvísl í Húnavatnssýslu. Mynd Ottarr Magni. Gálevsi Lenti flugvél á þjóðvegi Ekkertsem bannar slíkt segir Grétar Óskarsson hjá Loftferðaeftirlitinu Einhver hlýtur að vera þyrstur úr því að lekinn finnst ekki. Löggan Vinningar Dregið hefur verið í byggingar- happdrætti Lögreglufélags Reykjavíkur: 1. Sharp myndbandstæki á númer 9804 2. Fimm daga ferð til Amsterdam fyrir tvo á númer 10545 3. Fimm daga ferð til Amsterdam fyrir tvo á númer 10951 4. Pioneer hljómflutningstæki á númer 5729 5. Sharp litasjónvarp á númer 1142 6. Sharp heimilistölva á númer 5139 7. Sharp ferðatæki á númer 8044 8. Sharp ferðatæki á númer 10017 9. Sharp ferðatæki á númer 746 Handhafar vinningsmiða eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér til Jóns Arnars Guðmunds- sonar, lögreglustöðinni, Hverfis- götu 113, eða í síma 10200. Síðastliðið sunnudagskvöld varð ljósmyndari Þjóðviljans fyrir heldur óþægilegri lífsreynslu þegar hann var á ferð í bfl sínum í Húnavatnssýslu. Lítil flugvél af Beachkraft gerð renndi sér rétt fram fyrir bílinn og lenti á miðjum þjóðveginum, nálægt Hnausakvísl. Þetta olli því að sjálfsögðu að bíllinn fór næstum út af veginum. Seinna um kvöldið átti Ijósmyndarinn leið fram hjá Ljósaklefinn sem settur hefur verið upp í Heilsuverndarstöðinni fyrir psoriasis- sjúklinga hefur reynst vel og sjúklingar ánægðir. Psoriasissjúklingar Ljósaböðin hafa reynst vel UVB Ijósaklefinn sem settur var upp á Húðdeild Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur og er sér- staklega ætlaður Psoriasissjúk- lingum hefur reynst mjög vel og þeir sjúklingar sem hafa notað klefann eru mjög ánægðir með hann. Ljósaklefinn er mjög fljót- virkur og tekur Ijósabað aðeins örfáar mínútur. Talið er að UVB ljósaklefinn geti hjálpað psoriasissjúklingum í 70-80% tilfella og það er því vel þess virði fyrir psoriasissjúklinga að reyna klefann. Psoriasissjúk- lingar hafa reyndar ekki tekið eins vel við sér og vonast var til og mun fleiri ættu að notfæra sér þetta en gert er. Það er ekki nóg að fara einu sinni í slíkt ljósabað ef ná á góðum árangri. Helst þarf að fara daglega eða annan hvern dag í 2-3 vikur samfellt eða jafnvel lengur. Húðdeildin er opin virka daga frá kl. 8.00-9.00 og 12.00-15.00, en til að gefa þeim sem ekki kom- ast á þesum tíma vinnu sinnar vegna möguleika á Ijósaböðum verður opið fram á kvöld mánu- daga og föstudaga. gg Staðarskála og þar var sama flug- vélin komin, 'lagt fyrir framan skálann. „Það er ekkert sem bannar mönnum að lenda hvar sem er, svo framarlega sem þeir stofna ekki lífi og eignum annarra í hættu, sem lítur út fyrir að hafi verið gert í þessu tilviki," sagði Grétar Óskarsson framkvæmda- stjóri Loftferðaeftirlitsins í sam- tali við Þjóðviljann. „Menn hafa ágæta yfirsýn yfir lendingarstaði úr lofti og ef þetta er gert klaufalega þá er bara um gáleysi og vanrækslu að ræða. Flugmenn geta keypt sérstaka tryggingu ef eitthvað hendir við þessar aðstæður, og það á sér hliðstæður í öðrum löndum. Ef menn lenda á landareignum þá er það í lagi ef leyfi fæst hjá viðkom- andi landeiganda. En ef menn stofna lífi annarra í hættu með gáleysi, þá er sjálfsagt að kæra þá.“ Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Skúla Jóni Ósk- arssyni hjá Loftferðaeftirlitinu er umrædd flugvél í eigu Erlends Friðrikssonar, Heiðargerði 9 í Sandgerði, en ekki fengust upp- lýsingar um hver hefði verið flug- maður vélarinnar síðastliðið sunnudagskvöld. Áburðarverksmiðjan Árangurslaus fundur Ekkert þokast í samningsátt hjá iðnaðarmönnum í áburðar- verksmiðjunni og viðsemjendum þeirra. Árangurslaus fundur var í gær hjá sáttasemjara, að sögn Guð- jóns Jónssonar formanns félags járniðnaðarmanna. „Þeir koma ekkert til móts við okkur“ sagði Guðjón. -vd- -vd. Norrokk ’85 Grafík fulltrúi Islands íslendingar rokkuðu á vaðið - Danir eiga nœsta leik - Strax farið að velta fyrir sér Norrokki ’86 Hljómsveitin Grafík verður fulltrúi íslendinga á Norrokki ’85 sem fram fer í Danmörku 23. og 24. ágúst, í Árósum og Kaup- mannahöfn. Fyrri daginn spila fulltrúar Danmerkur, Islands og Noregs í Árósum (í Huset) og full- trúar Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar í Kaupmannahöfn (Saltlageret), en seinni daginn er dæminu snúið við. í fréttatilkynningu um Norr- okk segir m.a.: „Norrokk hug- myndin fæddist haustið 1983 þeg- ar ýmsir sem tengdust rokktónlist á einn eða annan hátt hittust í Osló til að ræða á hvern hátt væri unnt að efla veg norrænnar rokk- tónlistar og rokktónlistarmanna. Var það skoðun viðstaddra að a.m.k. einir samnorrænir rokk- tónleikar á ári í einhverju Norðurlandanna gætu stuðlað að kynningu tónlistarinnar og tón- listarmannanna. fslensku þátttakendurnir, þeir Ásmundur Jónsson og Hilmar J. Hauksson, viðruðu þessa hug- mynd við stjórn Listahátíðar í Reykjavík og fengu góðar undir- tektir. Var því fyrsta Norrokk hátíðin haldin í Reykjavík undir merki Listahátíðar. Það var von þeirra sem að há- tíðinni í Reykjavík stóðu að ef við riðum á vaðið myndu hin Norð- urlöndin ef til vill fylgja á eftir. Þetta virðist hafa gerst að því leyti að nú er farið að velta fyrir sér Norrokki ’86 og hvar sú hátíð á að vera. Frá upphafi hefur Satt verið íslenski aðilinn að þessu sam- starfi ásamt samsvarandi sam- tökum á hinum Norðurlöndun- um.“ Hátíð Nýjum björgunar- báti fagnað Sunnudaginn 18. ágúst tekur Slysavarnadeild Ingólfs í Reykjavík í notkun nýjan björg- unarbát og torfærujeppa. Af því tilefni verður haldin glæsileg há- tíð þar sem boðið verður upp á skemmtun og veitingar fyrir alla Qölskylduna. Hátíðin hefst kl. hálftvö og verður í húsi Slysavarnafélagsins á Grandagarði. Dagskráin hefst með því að Davíð Oddsson borg- arstjóri flytur ávarp og gefur nýja björgunarbátnum nafn, en þetta er 4ði báturinn sem hingað kem- ur. Því næst mun séra Sigurbjörn Einarsson biskup vígja bátinn. Einnig munu björgunar- sveitarmenn sýna listir sínar. Þeir munu m.a. klifra utan á húsinu og kafa niður á hafsbotn. Yngri borgurunum verður leyft að renna sér í björgunarstól og margt fleira skemmtilegt. SA. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.