Þjóðviljinn - 16.08.1985, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Úrslitakeppni
Steinar með fjögur
Dómarinn sagði 7, Valsmenn sögðu 8!
Steinar Ingimundarson skoraði 4
mörk þegar KR sigraði Selfoss 7-0 í
úrslitakeppni 3. flokks í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikið er í Vcstmannaeyj-
um. Hilmar gerði 2 markanna og
Heimir Guðjónsson eitt.
Þróttur Reykjavík vann Hött 3-0
meö mörkum Péturs, Ingva og Rún-
ars en þau fjögur lið sem hér hafa
verið talin skipa A-riðil.
ÍK vann Fylki 2-0 í B-riðlinum.
Hinn marksækni Gunnar Guðmunds-
son skoraði annað mark Kópavogs-
liðsins og Ólafur Kristjánsson hitt.
Þar gerðu Týr og KA jafntefli, 1-1.
Hlynur Sigmarsson skoraði fyrir Tý
en Björn Pálmason fyrir KA. f dag
mætast Höttur-Selfoss og Þróttur-KR
í A-riðli og Fylkir-KA og ÍK-Týr í
B-riðli.
Á Akureyri er leikið í úrslitum 4.
flokks. í A-riðli vann Valur Leikni
Reykjavík 7-0 og Breiðablik sigraði
Hött 3-0. Valsmenn töldu sig hafa
gert 8 mörk gegn Leikni en dómari
sagði sjö. Kjartan Sigurðsson 2,
Gunnar Már Másson 2, Sigurjón
Hjartarson 2, Magnús Jónsson 1 og
Grétar Jónsson 1 eru markaskorarar
Vals samkvæmt þeirra talningu.
f B-riðli vann Fram sigur á Víkingi,
3-0, og Selfoss og KA gerðu jafntefli,
1-1. Kristinn Magnússon skoraði fyrir
KA en Guðjón Þorvarðarson fyrir
Selfoss.
f dag leika í A-riðli Höttur-Leiknir
R. og Breiðablik-Valur og í B-riðli
Víkingur og Fram-Selfoss.
-JR/K&H/VS
1. deild
Ný von nyrðra!
Ifyrsta sinn síðan 1968 er Akureyrarliðið íbaráttu um sigur í
1. deild. Forskot Fram horfið - ÍA er í efsta sætinu
Það var síðast árið 1968 sem Akur-
eyringar eygðu von um íslands-
meistaratign í knattspyrnu. Sú von
brást - en ný hefur kviknað í brjóstum
norðanmanna eftir góðan sigur Þórs á
Frömurum á Akureyrarvellinum í
gærkvöldi, 2-0. Þór er nú aðeins stigi
á eftir efsta liði og allt getur gerst.
Fram var betri aðilinn fyrstu 25
mínúturnar. Ómar Torfason átti gott
skot rétt yfir á 6. mínútu og Kristinn
Jónsson slapp innfyrir vörn Þórs á 10.
mín. en Baldvin Guðntundsson varði
vel. Síðan jafnaðist leikurinn en Guð-
mundur Torfason, sem var mjög
kröftugur og ógnandi, skallaði naum-
lega yfir Þórsmarkið á 33. mín.
Þórsarar fengu sitt fyrsta færi á 39.
mínútu. Halldór Áskelsson átti
lúmskt skot frá vítateig, boltinn fór í
innanverða stöng og út og Framarar
náðu að hreinsa. Sigurbjörn Viðars-
son átti rétt á eftir hörkuskot af 25 m
færi rétt yfir Framslána.
Þórsarar áttu nánast seinni hálfleik
og á 47. mínútu skaut Kristján Krist-
Italía
Falcao heim
Brasilíski knattspyrnusnillingurinn
Paulo Roberto Falcao gengur að
öllum líkindum til Sao Paulo í heima-
landi sínu nú á næstu dögum. Hann
hefur leikið í fimm ár með Roma á
Italíu en félagið rifti samningi sínum
við hann fyrr í sumar. Falcao
meiddist og leitaði lækningar hjár sér-
fræðingum í Bandaríkjunum. Roma
vildi fá hann í læknisskoðun en Falcao
sinnti því ekki og því fór sem fór. Tals-
maður Sao Paulo sagði í vikunni að
um 70 prósent líkur væru á að Falcao
myndi skrifa undir tveggja ára samn-
ing við félagið.
-VS/Reuter
Ítalía
Rossi seldur
AC Milano keypti nú í vikunni hinn
fræga knattspyrnumann Paolo Rossi
frá Juventus. Samningaviðræður fé-
laganna hafa staðið lengi yfir og enn
hefur kaupverðið ekki verið gefið
upp. Rossi gaf til kynna í júní að hann
vildi yfirgefa Juventus en sl. vetur
gekk hvorki né rak frá þessari stjörnu
Itala úr siðustu heimsmeistara-
keppni.
-VS/Reuter
jánsson utan vítateigshorn í þverslána
við samskeytin fjær. Og markið lét
ekki bíða eftir sér, í næstu sókn sendi
Jónas Róbertsson fyrir mark Fram-
ara, Siguróli Kristjánsson skallaði til
Halldórs sem negldi boltanum í netið
af markteig, 1-0.
Eins og venjulega drógu Þórsarar
sig til baka eftir að hafa náð foryst-
unni en að þessu sinni var það aðeins í
nokkrar mínútur. Þeir voru komnir í
stórsókn á ný 55. mínútu, Hlynur
Birgisson sneri á Sverri Einarsson og
sendi á Kristján en hann sneri vit-
lausum fæti að boltanum og kingsaði.
Halldór fékk boltann á vítateig en
skaut yfir.
Fram átti sín færi, aldrei betri en
þegar Guðmundur Steinsson hafði
betur eftir rimmu við Árna Stefáns-
son á 60. mín. Guðmundur skaut tví-
vegis en í bæði skiptin kastaði Baldvin
sér fyrir hann og bjargaði glæsilega.
Jónas skaut rétt framhjá marki Fram
eftir skemmtilega útfærða auka-
spyrnu á 66. mín. og Óskar Gunnars-
son skaut hörkuskoti í stöng og útaf
úr þröngu færi á 81. mín.
Sigurður Pálsson kom inná seint í
leiknum og hann gerði útunt vonir
Framara. Kristján gaf háa sendingu
inní vítateig Fram, Sigurður tók bolt-
ann skemmtilega niður með lærinu og
skoraði af öryggi, 2-0. Þriðja tap
Fram í síðustu fimm leikjununt og
forskotið góða er orðið að engu -
efsta sætið er nú í höndunt Skaga-
manna.
—K&H/Akureyri
1. deild
I álögum?
Víkingar síst lakari en töpuðu3-0. Guð-
mundur inná og gerði tvö
Fyrsti heimasigur Víðis í 1. deild er
á mörkum þess að teljast sanngjarn
þó stór hafi verið - 3-0 gegn botnliði
Víkinga. Víkingar voru síst lakari að-
ilinn í leiknum, áttu fyrri hálfieikinn
með húð og hári en eins og svo oft
áður í sumar dugði það þeim ekki til.
Eins og þeir séu í álögum og 12. tapið í
röð varð ekki umflúið. Guðmundur
Jens Knútsson var hetja Víðis, hann
kom inná sem varamaður í fyrri hálf-
leik - lék mjög vel og gerði 2 mark-
anna.
Víkingar sóttu stíft í fyrri hálfleik
en fengu lítið af hættulegum færum.
Annaðhvort brotnaði sókn þeirra á
Gísla Eyjólfssyni eða þeir skutu yfir
og framhjá. Gísli Heiðarsson þurfi
Víftir-Víkingur 3-0 (0-0) ★ ★★
Mörk Víðis:
Guðmundur J. Knútsson 67. og 81.
mín.
Einar Á. Ólafsson 88. mín.
Stjörnur Víðis:
Guðmundur J. Knútsson *•
Gísli Eyjólfsson •*
Einar A. Ólafsson •
Rúnar Georgsson »
Slgurður Magnússon •
Stjörnur Vikings:
Einar Einarsson •
Aðalsteinn Aðalsteinsson •
Dómari: Eysteinn Guðmundsson »**
Áhorfendur 304
ekki að verja skot þrátt fyrir press-
una.
Seinni hálfleikur byrjaði rólega en
á 51. mínútu átti Fáskrúðsfirðingur-
inn Helgi Ingason, sem þarna lék sinn
fyrsta leik með Víkingi, hörkuskot
rétt framhjá Víðismarkinu.
Það voru bara 23 mínútur eftir þeg-
ar fyrsta markið kom. Einar Ásbjörn
gaf fyrir mark Fram og Guðmundur
Jens var frír og skoraði örugglega,
1-0. Við þetta var einsog leikmenn
beggja liða vöknuðu af dvala og mik-
ill kraftur var í báðum liðum til leiks-
loka. Einar Einarsson átti þrumuskot
rétt framhjá Víðismarkinu á 69. mín.
Níu mínútur eftir - 2-0. Víkingar í
sókn en Víðismenn hreinsa. Guð-
mundur Jens komst einn uppað marki
Víkings og skoraði. Víkingar gáfust
ekki upp, Aðalsteinn skallaði yfir á
84. mínútu og síðan var Jóhann Holt-
on í hörkufæri en skaut beint í sam-
herja.
Óg í lokin innsigluðu Víðismenn
sigurinn. Einar Ásbjörn komst
innfyrir vörn Víkings, lék á Ögmund
Kristinsson og skoraði, 3-0. A loka-
mínútunni var svo Guðmundur Jens
rétt búinn að skora sitt þriðja mark og
fjórða Víðis, einn framanvið Víkings-
markið en skaut framhjá.
Við þessi úrslit er ljóst að ekkert
bjargar Víkingum frá falli úr þessu.
Víðismenn eiga hinsvegar góða
möguleika á að halda sæti sínu í 1.
deild, eru aðeins stigi á eftir FH og
Þrótti. -SÓM/Suðurnesjum
Ásbjörn Björnsson skallar að marki ÍBK, Willum Þórsson félagi hans úr KR er
við öllu búinn. Valþór „Heimaklettur" Sigþórsson býst til varnar. Mynd: E.ÓI.
1. deild
Þór-Fram 2-0 (0-0) ***
Mörk Þórs:
Halldór Áskelsson 48. mín.
Sigurður Pálsson 86. mín.
Stjörnur Þórs:
Halldór Áskelsson •*
Nói Björnsson •
Ámi Stefánsson •
Siguróll Kristjánsson •
Stjörnur Fram:
Ásgeir Elíasson *
Guðmundur Torfason •
Dómari: Magnús Theodórsson **
Áhorlendur 1122
(300 i viöbót með boðs-
miðum og í „Skotastúkunni")
Barátta í fyrimími
Góður sigur ÍBK á KR. Var víti á Þorstein?
Baráttan sat í fyrirrúmi í leik KR og
ÍBK á KR-vellinum í gærkvöldi.
Keflvíkingar voru öllu sterkari og
baráttugiaðari og uppskáru sigur 2-0
og eru þar með komnir á fullt í barátt-
unni um íslandsmeistaratitilinn.
Á fyrstu 5. mín. leiksins átti hvort
liðið eitt skot, en þau fóru bæði yfir.
Mikil keyrsla var hjá báðum liðum,
en Keflvíkingar þó ákveðnari. Liðin
náðu ekki að skapa sér tækifæri og fór
leikurinn að mestu fram um miöbik
vallarins. Eina hættulega tækifærið í
fyrri hálfieik fengu Keflvíkingar og
dugði það þeim til að ná forustu.
Helgi Bentsson lék upp að endalínu,
gaf aftur á Óla Þór Magnússon sem
Stadan
11. deildarkeppninni i knatfspyrnu:
lA............ 13 8 2 3 28-13 26
Fram.......... 13 8 2 3 26-19 26
Valur......... 13 7 4 2 19-10 25
Þór A..........13 8 1 4 22-16 25
IBK........... 13 7 1 5 22-14 22
KR.............13 6 3 4 23-20 21
Þróttur........13 4 1 8 14-22 13
FH............ 13 4 1 8 15-24 13
Viðir......... 13 3 3 7 14-28 12
Víkingur.......13 1 0 12 12-30 3
Á morgun kl. 14.30 leika IA og FH og á
sunnudagskvöld kl. 19 Valur og Þór. Á
mánudagskvöld mætast ÍBK-Þróttur og
Fram-Víðir og á þriðjudagskvöld
Víkingur-KR.
sendi fyrir á Sigurjón Kristjánsson.
Sigurjón skaut firnaföstu skoti og
söng í netinu en boltinn þandi það út.
Virkilega fallegt mark og vel að því
staðið.
ÍBK átti fyrsta færið í seinni hálf-
leik en Ingvar Guðmundsson skaut
rétt framhjá marki KR. Á 61. mín.
skallaði Ásbjörn Björnsson að marki
ÍBK, en yfir. Valþór varnarmaður
Sigþórsson brá sér í sóknina öðru
hvoru og á 64. mín. sendi hann vel
fyrir á Sigurjón sem skallaði, en laust
og Stefán Jóhannsson átti auðvelt
KR-IBK 0-2 (0-1) * * •
Mörk IBK:
Sigurjón Kristjánsson 26. mín.
Björgvin Björgvinsson 90. mín.
Stjörnur KR:
Hálfdán Örlygsson • •
HannesJóhannsson *
Björn Rafnsson *
Willum Þ. Þórsson *
Sæbjörn Guðmundsson •
Stjörnur ÍBK:
Sigurjón Kristjánsson • •
Valþór Sigþórsson • *
Freyr Sverrisson *
Sigurður Björgvinsson •
Gunnar Oddsson *
Helgi Bentsson *
Dómari: Þoroddur Hjaltalin
Áhorfendur: ca 840
með að verja. KR-ingar reyndu að
jafna og sóttu, en höfðu ekki erindi
sem erfiði á móti sterkri vörn Suður-
nesjamanna. í staðinn náðu
Keflvíkingar skyndisóknum og í einni
þeirra lék Gunnar Oddsson laglega í
gegn og sendi fyrir, en þar var enginn
samherji. KR komst næst því að
skora þegar Sæbjörn Guðmundsson
átti skot framhjá og svo þegar Ás-
björn komst innfyrir vörn ÍBK.
Reyndi hann að leika á Þorstein
Bjarnason. Báðir duttu og virtist Þor-
steinn grípa í fætur Ásbjörns, en
varnarmaður kom aðvífandi og
hreinsaði og dómarinn sá ekkert at-
hugavert. Það var síðan alveg í lokin
að Keflvíkingar tryggðu sigurinn. Sig-
urjón Sveinsson spyrnti fyrir mark
KR. Varnarmönnum mistókst að
hreinsa og gekk boltinn á milli and-
stæðinga. Loks barst hann til Björg-
vins Björgvinssonar, sem hafði kom-
ið inná 6. mín. áður, og hann var ekk-
ert að tvínóna við hlutina og skoraði
með góðu skoti. Þetta var hans fyrsta
mark í 1. deild.
Sigur ÍBK var sanngjarn. Liðið
barðist vel, vörnin sterk og oft góð
samvinna, sérstaklega á milli félag-
anna Helga og Sigurjóns. Valþór
„heimaklettur" stóð vel undir nafni í
þessum leik.
KR-ingar börðust vel, en reyndu of
mikið af þversendingum fyrir markið
sem vörn IBK náði flestum.
-gsm
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15