Þjóðviljinn - 16.08.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Hlutabréfahneykslið mikla
Nú gerist það sem sjaldgæft er: öll blöð,
nema Morgunblaðið, sameinast í fordæmingu á
því, hvernig að var staðið útboði á hlutabréfum
ríkisins í Flugleiðum. Og vitaskuld er það mál
allt hið mesta hneyksli. Fjármálaráðherra hafði,
eins og allir vita, haft um það stór orð, að hann
ætlaði að selja bréfin á níföldu nafnverði - en
þegar til kastanna kemur er hann meira en fús
að ganga að greiðsluskilmálum sem færa ríkis-
sjóði í raun miklu minna fé fyrir hans snúð. Og
þó tekur steininn úr þar sem er hinn frægi „upp-
lýsingaleki” til Flugleiða um tilboð það, sem
fjármálaráðherra hafði borist frá íslenskum
Lúxemborgara. Nú síðast hefur Þorsteinn Páls-
son formaður Sjálfstæðisflokksins svo gott sem
viðurkennt það í svari til blaðamanns, að tilboð
þetta hafi verið til umræðu á fundi hans með
ráðherrum Sjálfstæðisflokksins áður en málið
kom til skoðunar hjá ríkisstjórninni. Verður ekki
betur séð, að einmitt þaðan hafi lekinn frægi
komið!
Þjóðviljinn, Alþýðublaðið og NT hafa lagt út af
þessu máli m.a. á þann veg, að það sýni að
Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki sá sem hann þyk-
ist vera. Ekki flokkur þess einkaframtaks sem
tekur ábyrgð á gjörðum sínum, heldur hags-
munabandalag fjársterkra og valdamikilla, sem
einatt leitar skjóls í þeirri sérhagsmunanýtingu á
ríkisvaldinu sem stundum hefur verið kölluð
pilsfaldakapítalismi.
Þeir á DV eru svo að fagna því að hlutabréf
ríkisins hafi verið seld, þótt þeim líki ekki alveg
aðferðin. En spurt er: hvers vegna er það fagn-
aðarefni? Ríkið, það er að segja okkar sam-
eiginlegu sjóðir, var kallað til hjálpar þegar Flug-
leiðir áttu í erfiðleikum. Gjöld til ríkisins voru felld
niður og gengið í miklar ábyrgðir og það þótti
ekki nema sjálfsagt að ríkið ætti þá hlut að stjórn
félagsins. Nú er sú hlutabréfaeign, sem vænt-
anlega átti að tryggja þessi áhrif hins opinbera,
úr sögunni. En hver efast um það, að ef far-
gjaldastríð á leiðum yfir Atlantshaf kemur Flug-
leiðum á ný í meiriháttar vandræði, þá muni á ný
„flogið undir pilsfaldinn” hjá ríkinu með beiðni
um aðstoð og fyrirgreiðslu með tilvísun til at-
vinnuástands og þjóðarhags? Áhrifamögu-
leikar fulltrúa hins opinbera hafa verið seldir -
en allar líkur benda til þess að kvaðirnar á
sameiginlega sjóði landsmanna muni í reynd
standa óbreyttar.
Og til hvers er þetta spil þá allt? Til að Albert
Guðmundsson geti sýnt, að hann geti líkt eftir
Margaret Thatcher eins og hver annar? Er um
einhverjar hefndarráðstafanir að ræða í garð
fjármálamanna sem eru fjármálaráðherra ekki
að skapi? Eða erum við eina ferðina enn fórnar-
lömb misvísandi pólitískra hagsmuna þeirra for-
ingja Sjálfstæðisflokksins sem sátu á þriðju-
dagsfundi á dögunum og kynntu sér ævintýri
hlutabréfamarkaðarins?
Eitt er Ijóst: Þetta mál verður að rannsaka
niður í kjölinn.
Sumarferð ABR
Á morgun, laugardag, er lagt upp í árlega
sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík og
liggur leiðin um Hvalfjörð, Akranes og Borgar-
fjörð. Þessar sumarferðir hafa einatt verið mjög
vel heppnaðar - enda lögð áhersla á það við
skipulagningu þeirra að saman færi það gagn
og gaman sem pólitískir samherjar og þeirra
vinir geta haft hver af öðrum, sú ítrekun sam-
bands við íslenska náttúru, sem enginn má án
vera og svo fróðleikur sá sem tengir okkur betur
við sögu landsins. Leiðarval, áfangar og farar-
stjórn í ferðinni á morgun lofa góðu um að allir
fyrrgreindir þættir nái að fléttastsaman. Mætum
sem flest við bílana hjá Umferðarmiðstöðinni í
fyrramálið!
ÁB
KUPPT OG SKORID
og upplýsingalekar
Hver gerði það
Langa lengi hafa íslendingar
rýnt í leynilögreglugátu sem þeim
finnst meira um vert en aðrar og
hefur þann kost að alltaf er hægt
að koma með nýjar kenningar
um lausn hennar. Við eigum þá
við það þjóðlega viðfangsefni
sem kallað hefur verið leitin að
höfundi Njálu.
En nú er uppi önnur öld og nú
býr allt annað á bak við þá sígildu
spurningu: hver gerði það? Nú er
spurt um hin óttalegu leyndarmál
úr stórpólitík og af verðbréfa-
markaði. Sem sagt: hver lak til-
boði hins íslenska Lúxemborgara
í hlutabréf ríkisins í Flugleiðum í
þá, sem svo endanlega keyptu
bréfin?
Um það mál er reyndar að
finna fróðlegar vísbendingar í
langri leynilögreglugrein í Morg-
unblaðinu í gær. Björn Vignir
Sigurpálsson skrifar greinina og
hefur dregið til hennar margar
upplýsingar, meðal annars eiga
lesendur kost á því að fylgjast
rækilega með því hvenær oddvit-
ar Flugleiða fara í lax og hvenær
þeir eru á sínum kontórum, en
eins og kunnugt er hafa leynilög-
reglusögur alltaf mikið af slíkum
upplýsingum með til að espa upp
í lesandanum sultinn. Annað
þekkt bragð úr leynilögreglusög-
unni er líka notað, en það er að
teyma lesandann inn á villigötur.
Þetta er gert svosem til svars
við tilgátum um að Birkir Bald-
vinsson hafi ekki staðið einn að
tilboðinu íFlugleiðabréfin heldur
væri hann fyrst og síðast fulltrúi
fjársterkra erlendra aðila sem
stæðu á bak við hann. Birkir
hafði, eins og menn muna, svarað
slíkum ásökunum af forneskju-
legum hetjuskap: það stæði eng-
inn á bak við hann nema kona
hans, og mátti vel heyra að hann
væri maður betur kvæntur en
Gunnar karlinn á Hlíðarenda á
sinni tíð. Nema hvað, þegar blað-
amaðurinn hefur svo rakið ítar-
lega allskonar undarlegar flækjur
í flugmálum og koma til sögu dul-
arfullir Saudi-Arabar og enn dul-
arfyllri sýrlensk fjölskylda - þá
kemur semsagt á daginn, að allt
eru þetta villuljós:
,JÞað er hins vegar ekkert sem
bendir til annars en Birkir Bald-
vinsson hafi staðið einn og ó-
studdur að tilboði sínu í Flug-
Ieiðabréfin og að það sé fyrir mis-
skilning að hann hafi verið orðað-
ur við United A viation Services og
NationaJ.“
„Nú svara
ég ekki“
Jæja. En þá er komið að há-
punkti spennusögunnar: hver lak
tilboðinu? Blaðamaðurinn hefur
kafað djúpt í málið og ber til baka
útbreidda skoðun um að upplýs-
ingarnar hafi lekið eftir ríkis-
stjórnarfund sem haldinn var á
fimmtudegi. Hann kemst að því,
að Flugleiðamenn vissu sínu viti
daginn fyrir þann ríkisstjórnar-
fund. Blaðamaðurinn sýknar
bæði Fjárfestingarfélagið og fjár-
málaráðherra, því þeim hafi ekki
verið „neinn akkur í því að leka
þessum upplýsingum“. Og þá er
eftir mjög þröngur hópur manna:
aðrir ráðherrar flokksins og for-
maður hans. Hér kemur há-
punktur sögunnar:
„Helst hlýtur þá athyglin að
beinast að vikulegum fundi ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins með
formanni hans, Þorsteini Páls-
syni, og Albert kunni við það taek-
ifæri að hafa skýrt frá efnisat-
riðum tilboðs Birkis, þótt ekkert
liggi fyrir um slíkt. Þorsteinn
Pálsson staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að slíkur fundur
hans og ráðherranna hafi verið
haldinn á þriðjudag í síðustu viku
og þann fund hafi setið allir ráð-
herrar flokksins nema Matthías
Bjarnason, sem var úti á landi.
Þegar Morgunblaðið spurði Þor-
stein Pálsson hvort tilboð Birkis
Baldvinssonar hafi verið til um-
ræðu á þessum fundi sagði hann:
„Nú svara ég ekki“.“
Það er semsagt búið að fækka
hinum grunuðu mikið, en enn er
sá Poirot ekki fram stiginn sem
bendi á hinn seka.
Undir harðri
hríð
Blaðamenn og stjórnmála-
menn eru svo vitanlega farnir að
heimta það, að slíkur maður
verði ráðinn - það er að segja sett
rannsóknarnefnd í málið. í
leiðinni finnst málgögnum sem
vonlegt er, að í þessu máli komi
það rækilega fram, að Sjálfstæð-
isflokkurinn sé óralangt frá því að
vera sá flokkur einstaklingsfram-
taks, er virði „aga markaðarins“
sem hann telur sjálfan sig vera.
Alþýðublaðið segir í gær m.a.:
„Þvert á móti. Sjálfstæðis-
flokkurinn er hagsmunabandalag
stórfyrirtækja eins og flugfélaga,
skipaféiaga, olíufélaga, trygg-
ingafélaga og mandarína í feit-
ustu embættum hins opinbera
kerfis.“
Og NT segir í leiðara í gær:
,4 NT hefur verið bennt á að
það væri verðugt verkefni fyrir
þá sem hæst hafa haft um frjáls-
hyggju og frelsi að vinna að því að
hlutafélög verði opnuð og komið
á siðmenntuðum viðskiptum með
hlutabréf hér á landi. Það er hins-
vegar Ijóst að Sjálfstæðismenn
ætla ekki að gera það. Að þeirra
dómi virðist það vera hæfileg
þátttaka í atvinnulífinu fyrir ein-
staklinga að borga tapið og axla
ríkisábyrgðir fyrir einkafyrir-
tæki fárra útvaldra.“
Morgunblaðið sjálfst segir sem
fæst um þessar og aðrar ásakanir í
garð helstu ráðamanna flokksins.
Hinsvegar er brugðið á það ráð í
gær að skrifa leiðara um „tilefnis-
laus ónot“ Sverris Hermanns-
sonar iðnaðarráðherra í garð
náttúruverndarmanna. Slíkur
leiðari um málfar Sverris Her-
mannssonar er eins og nú á stend-
ur í sjálfu sér afar athyglisverð
„þögn“ um hin stærri málin.
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Rit8tjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, Sævar Guð-
björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Valdís Öskarsdóttir.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttip, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsle: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, ólöf HúnQörð.
Innheimtumonn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Utkoyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Olga * lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 360 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. ágúst 1985