Þjóðviljinn - 16.08.1985, Síða 9
HEIMURINN
Suður-Afríka
Botha bifast ekki
Utgöngubann í Soweto og víðar. Mannfallið heldur áfram
Tanzanía
Eftirmaður
Nyerere valinn
Durban, Jóhannesarborg - í
ræðu sem beðið hefur verið
eftir með óþreyju drap P.W.
Botha forsætisráðherra hvítu
minnihiutastjórnarinnar í
Suður-Afríku í dróma allar
vonir manna um að stjórn
hans hyggði á endurbætur á
stjórnkerfi landsins. Samtímis
var tilkynnt að útgöngubann
hefði verið fyrirskipað í Sow-
eto, útborg blökkumanna við
Jóhannesarborg.
í ræðunni sem Botha hélt á
þingi stjórnarflokksins í Durban
sagði hann að stjórn hans væri
skuldbundin til að semja við
svarta meirihlutann í landinu en
London - Breski íhaldsflokkur-
inn undir forystu Margaret
Thatcher heldur áfram að tapa
fylgi í skoðanakönnunum. í
Vinátta
Rússar
þrýsta á
finnska
komma
Helsinki - Að sögn heimilda
innan meirihluta finnska
kommúnistaflokksins beitir
sovéska stjórnin nú þrýstingi
á armana tvo í flokknum í þá
veru að þeir taki upp nánara
samstarf og leggi ágreinings-
efni sín til hliðar.
Þessi þrýstingur birtist ma. í
heimboðum sem nú berast ýms-
um úr minnihluta flokksins en
hann stendur nær sovéska
flokknum en meirihlutinn sem
hefur hallað sér að evrópukomm-
únistum. Með því hundsar so-
véska stjórnin skipulagsbreyting-
ar sem gerðar voru á finnska
flokknum í síðasta mánuði.
Skipulagsbreytingar voru sam-
þykktar á sérstöku flokksþingi
sem minnihlutamenn kusu að
mæta ekki á. Þar voru ýmsar hér-
aðsdeildir flokksins sviptar völd-
um, þe. þær sem lutu stjórn
minnihlutans, en í þeirra stað
stofnaðar nýjar deildir sem
meirihlutinn hafði tögl og hagldir
í.
Nú ber svo við að ýmsum úr
þeim héraðsstjórnum sem þannig
var ýtt til hliðar berast heimboð
frá Sovétríkjunum. Sama máli
gegnir um ritstjóra blaða sem
minnihlutamenn gefa út. Hins
vegar hefur ritstjórn aðalmál-
gagns flokksins, Kansan Uutiset,
ekki borist neitt heimboð að
austan.
Þetta er sagt stilla meirihlutan-
um upp frammi fyrir tveimur
valkostum: annað hvort að láta
undan þrýstingnum frá Moskvu
eða rjúfa tengslin við sovéska
flokkinn og reka minnihlutann á
dyr. Nýleg afsögn Grigori Rom-
anoffs úr æðstu stjórn sovéska
flokksins var talin hafa svipt
minnihlutamenn mikilvægum
stuðningi í Moskvu en nú þykir
sýnt að Gorbatséf hafi ekki síður
áhuga á að líma finnska bróður-
flokkinn betur saman en Roma-
noff.
að hann væri ekki reiðubúinn að
leiða hvíta íbúa landsins út í
valdaafsal og sjálfsmorð. Hann
sagði að áfram yrði haldið að gera
endurbætur á aðskilnaðarstefn-
unni en nefndi engar breytingar
sem væru fyrirhugaðar á næst-
unni.
Fyrirfram hafði verið búist við
því að Botha myndi kunngera
róttækar breytingar á stjórn-
skipan landsins í þá veru að auka
réttindi blökkumanna og áhrif
þeirra á stjórn landsins. Heimild-
armenn innan stjórnarinnar í
Pretoríu sögðu hins vegar í dag að
Botha hefði ekki viljað láta svo
líta út sem hann léti undan þrýst-
Gallupskönnun sem birt var í
blaðinu Daily Telegraph i gær
kom í Ijós að einungis 24%
kjósenda sögðust myndu
kjósa íhaldsflokkinn. 40%
spurðra kváðust fylgja Verka-
mannaflokknum að málum og
miðjubandalag sósíaldemó-
krata og frjálslyndra naut
stuðnings 34% spurðra.
Aðeins einu sinni fyrr hefur
Thatcher notið minna fylgis, það
var í desember 1981, stuttu áður
en stríðið um Falklandseyjar
hófst. Persónufylgi forsætis-
ráðherrans hefur ekki verið
minna í þrjú ár því 65% spurðra
kváðust óánægðir með frammi-
stöðu hennar.
Thatcher hefur mætt ýmsu
mótlæti að undanförnu. í síðasta
...Bandarískur læknir segist hafa
fundið upp aðferð til að lækna lifr-
arkrabba sem kominn er á hátt
stig. Hingað til hefur þessi sjúk-
dómur verið ólæknandi en læknir-
inn segist hafa dregið úr vexti
ingi erlendis frá um að víkja frá
aðskilnaðarstefnunni.
Óeirðirnar í landinu halda
áfram og kostuðu þær fimm
manns lífið á síðasta sólarhring.
Meðal þeirra sem féllu var 16 ára
piltur sem varð fyrir hand-
sprengju. Stjórnvöld hertu á
framkvæmd herlaganna þegar
þau fyrirskipuðu útgöngubann í
borgarhluta blökkumanna í út-
jaðri Jóhannesarborgar. Gildir
það frá 10 á kvöldin til 4 á morgn-
ana. í Soweto búa uþb. tvær milj-
ónir blökkumanna. Áður hafði
útgöngubann verið sett á ýmis
hverfi blökkumanna í austurhé-
ruðum landsins.
mánuði gerðu næstum 100 þing-
menn íhaldsflokksins uppreisn
gegn þeim áformum hennar að
hækka verulega kaup hæst settu
embættismanna ríkisins á sama
tíma og launum þeirra lægra settu
var haldið niðri. í Gallupkönn-
uninni svöruðu 70% spurðra ját-
andi spurningu um það hvort
íhaldsmönnum væri sama um
vondar afleiðingar gerða sinna og
74% voru sammála því að flokk-
urinn gætti hagsmuna hinna ríku
en ekki almennings.
Thatcher er nú í orlofí í
Austurríki og er sagt að hún noti
tímann til að setja saman nýjan
ráðherralista sem sagður er vera
talsvert ólíkur þeim sem nú er í
gildi.
krabbameinsæxla í 50 af 104 sjúk-
llngum sem hann hefur meðhöndl-
að með hinni nýju aðferð. Einn
sjúklinganna hefur lifað í sex ár
eftir meðhöndlun.
Dar es Salaam - Stjórnarflokk-
urinn í afríkuríkinu Tanzaníu
útnefndi í gær Ali Hassan
Mwinyi sem eftirmann Juliusar
Nyerere forseta landsins en
hann lætur af embætti í októ-
ber nk. Mwinyi, sem er sex-
tugur, hefur gegnt embættf
forseta á eynni Sanzibar sem
nýtur takmarkaðrar sjálf-
stjórnar innan sambandslýð-
veldisins Tanzaníu.
Kjör Mwinyi var mjög eindreg-
ið því 1.731 fulltrúi á sérstöku
flokksþingi greiddi honum at-
kvæði en aðeins 14 voru á móti.
Það kom samt á óvart því fyrir
þingið var Mwinyi talinn standa
lakast af þremur líklegum fram-
bjóðendum í embættið. Að sögn
heimildarmanna í stjórnar-
flokknum ber kjör hans að skoð-
ast sem málamiðlun þar sem ekki
náðist eining um tvo líklegustu
frambjóðendurna, Salim Ahmed
Salim forsætisráðherra og aðal-
ritara flokksins, Rashidi Kaw-
awa.
Mwinyi er til þess að gera lítt
þekktur á meginlandi Tanzaníu
en hefur þótt fær stjórnandi á
Sanzibar. Hann hefur innleitt
aukið frjálslyndi í efna-
hagsmálum eyjarinnar, ma. gefið
innflutning frjálsan, og er það tal-
ið hafa bætt lífskjör mjög á eynni.
Frjálslyndisstefna hans hefur
vakið athygli á meginlandinu og
eru ýmsir þættir hennar komnir
til framkvæmda þar.
Nýi leiðtoginn er sagður
heiðarlegur og fær stjórnandi og
góður diplómat en Mwinyi var
um skeið sendiherra Tanzaníu í
Egyptalandi. Hann er múhamm-
eðstrúar, ólíkt Nyerere sem er
...Vestur- og austurþjóðverjar hafa
komist að samkomulagi um að
endurbæta hluta af hraðbrautinni
mllli Bæjaraiands og Berlínar. Er
þessi samningur talinn vera vitni
um batnandi sambúð ríkjanna.
Julius Nyerere sem senn lætur af
völdum í Tanzaníu ruddi brautina fyrir
það sem nefnt hefur verið afriskur
sósíalismi og hefur fyrir vikið notið
virðingar langt út fyrir landamæri
Tanzaníu.
kristinn, en blandar henni saman
við þann afríska sósíalisma sem
Nyerere er aðalhöfundur að. í
krafti þeirrar stefnu nýtur Nyer-
ere og Tanzanía áhrifa og virð-
ingar víða um álfuna.
Þótt Nyerere láti af embætti
forseta í haust hyggst hann ekki
segja skilið við pólitík. Hann
mun áfram gegna formennsku í
stjórnarflokknum og getur í
krafti þeirrar stöðu kippt í spott-
ann þyki honum eftirmaðurinn
ætla að víkja of langt frá réttri
línu. Samkvæmt stjórnarskrá
Tanzaníu ríkir þar einsflokks-
kerfi og getur flokkurinn ógilt ák-
varðanir ríkisstjórnarinnar ef svo
ber undir.
REliTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
Argentína
Herforingjar sóttir til saka
Buenos Aires - í Argentínu
standa nú yfir tvenn réttarhöld
yfir herforingjunum sem
stjórnuðu landinu á árunum
1976-1983. í öðrum er verið að
rannsaka blóði drifna herferð
þeirra gegn vinstrisinnum en í
Sækjandinn í málinu gegn argen-
tínsku herforingjunum hefur krafist
lífstíðarfangelsis fyrir Jorge Videla
fyrrum forseta landsins sem hér sóst
á velmektardögum sínum.
hinum frammistöðu þeirra í
stríðinu um Falklandseyjar.
Fyrrnefndu réttarhöldin snúast
um ábyrgð herforingjanna á
hvarfí amk. 9.000 manna og
hvort þeir hafi beitt pyndingum á
pólitískum föngum. Tæplega eitt
þúsund vitni hafa verið leidd og
hafa þau skýrt frá óhugnanlegum
aðferðum öryggissveita hersins
við pólitíska fanga sem voru
pyndaðir á hroðalegan hátt og
myrtir þúsundum saman. Ætlun
sækjandans var að leiða helmingi
fleiri vitni en þess gerðist ekki
þörf því framburður þeirra sem
mættu fyrir réttinum var yfrið
'nógur til að sakfella allar deildir
hersins.
Sækjandinn hefur í hyggju að
krefjast lífstíðarfangelsis til
handa fjórum æðstu mönnum
herforingjastjórnarinnar, Jorge
Videla og Roberto Viola sem
báðir gegndu forsetaembætti og
tveim fyrrverandi yfirmönnum
flotans, Emilio Massera og Arm-
ando Lambruschini. Hann mun
krefjast minni refsingar fyrir
fimm aðra sem eru fyrir rétti,
þám. Leopoldo Galtieri fyrrum
forseta.
Masður þeirra sem hurfu undir herforingjastjóm mótmæla.
Verjandi eins af sakborningun-
um hefur sagt að skjólstæðingur
hans hafi borið við lokuð réttar-
höld að herforingjarnir sem
stjórnuðu landinu hafi engan þátt
átt í að skipuleggja herferð gegn
skæruliðum í landinu á valdatíma
þeirra. Hann var spurður hvort
hann teldi líklegt að öryggis-
sveitir hefðu pyndað fanga í
leynilegum fangabúðum og svar-
aði: „Það er útilokað. Leiðarljós
stjórnarinnar var vestræn og
kristin manngildishugsjón.“
í hinum réttarhöldunum eru 16
herforingjar ákærðir fyrir að hafa
átt sök á ósigri Argentínu í stríð-
inu gegn Bretlandi um Falklands-
eyjar eða Malvinaseyjar eins og
þær heita þar syðra. Hefur sækj-
andi krafist þess að Leopoido
Galtieri þáverandi forseti lands-
ins verði rekinn úr hernum og
dæmdur í 12 ára fangelsi. Krefst
hann 8 ára fangelsisvistar tveimur
öðrum herforingjum til handa og
vægari refsingar til handa sjö öðr-
um.
Dómar munu upp kveðnir í
báðum þessum málum með
haustinu.
Bretland
Thatcher tapar fylgi
Þetta gerðist líka...
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9