Þjóðviljinn - 23.08.1985, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 23.08.1985, Blaðsíða 10
Simi: 18936 A-salur Micki og Maude Hartn var kvæntur Micki, elskaði hana og dáði og vildi enga aðra konu, þar til hann kynntist Maud. Hann brást við eins og heiðvirðum manni sæmir og kvæntist báðum. Stórkostlegaskemmtileg ný, banda- rísk gamanmynd, með hinum óborg- anlega Dudley Moore í aðalhlutverki (Arthur, ,,10„). (aukahlutverkum eru Annie Reinking (All that jazz), Army Irving (YYent’l, The Competition) og Richard Mulligan (Löður). „Micki og Maude" er ein af tíu vinsæ- lustu kvikmyndunum vestan hafs á þessu ári. Leikstjori Blake Edwards. Sýnd kl. 3, 7, 9 og 11.05. Bleiku náttfötin (She'll be wearing pink pyjamas) Bráðfyndin ný gamanmynd með fremstu leikkonu Breta í aðalhlut- verki. Julie Walters (Educating Rita), Antony Higgins (Lace, Falcon Crest), Janet Henfrey (Dýrasta djásnið). Leikstjóri: John Goldschmidt. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Prúðuleikararnir f B-sal kl. 3. Síðasti Drekinn THIlflir r , Aðalhlutverk leika Vanity og Taim- ak, karatemeistari. Tónlistin úr myndinni hefur náð geysilegufn vinsældum og er verið að frumsýna mvndina um heim allan. Sýnd í B sal kl. 5. Dolby Stereo. Hækkað verð. Bönnuð innan 12 ára. TÓNABÍÓ Sími: 31182 tý - * „... -r, Evrópufrumsýning Minnisleysi Blackout „Lík frú Vincent og barnanna fund- ust í dag í fjölskylduherberginu í kjallara hússins - enn er ekki vitað hvar eiginmaðurinn er niðurkom- inn..." Frábær, spennandi og snilldar vel gerð ný, amerisk sakamálamynd í sérflokki. Richard Widmark Keith Carradine Kathleen Quinlan Leikstjóri: Douglas Hickox. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Isl. texti. Bönnuð innan 16 ára. Frumsýnir: IIIISUW tlliu tHIIIIUt tiioiimi diiiu 1 “ Örvæntingarfuli leit að Susan Hvar er Susan? Leitin að henni er spennandi og viðburðarík, og svo er musikin.., með topplaginu „Into the Groove" sem nú er númer eitt á vinsældalistum. I aðalhlutverkinu er svo poppstjarnan fræga Madonna ásamt Rosanna Arquette - Aidan Quinn - Myndin sem beðið hefur verið eftir. Islenskur texti. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Hernaðar- leyndarmál ■*«» DONTTEU ANyOME ABOVTTHIS FILM iTS.. Frábær ný bandarísk grínmynd, er fjallar um...nei, það má ekki segja, - hernaöarleyndarmál, en hún er spennandi og sprenghlægileg, enda gerð af sömu aðilum og gerðu hina frægu grinmynd „I lausu lofti" (Flying Hig), er hægt að gera bet- ur??? Val Kilmer, Lucy Gutten- idge, Omar Sharif o.m.fl. Leikstjórar: Jim Abrahams, David og Jerry Zucker. íslenskur texti. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05, og 11.05. Vitnið „Þeir sem hafa unun af að horfa á vandaðar kvikmyndir ættu ekki að láta Vitnið fram hjá sér fara". HJÓ Mbl. 21/7. Harrison Ford - Kelly McGlllis Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10. Löggan í Beverly Hills Eddy Murphy heldur áfram aö skemmta landsmönnum, en nú i Regnboganum. Frábær sepnnu- og gamanmynd. Petta er besta skemmtun í bænum og þótt víðar væri leitað. Á.Þ. Mbl. 9.5.. Aðalhlutverk: Eddy Murphy, Judge Reinhold, John Ashton. Leikstjóri: Martin Brest. Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10. Bönnuð innan 12 ára. Atómstöðin íslenska stórmyndin eftir skáldsögu Halldórs Laxness. Enskur skýrlngartexti - English subtitles. Sýnd kl. 7.15. Indiana Jones Hin frábæra ævintýramynd, um kappann Indiana Jones og hin ótrú- legu afrek hans. - Frábær skemmtun fyrir alla, með hinum vin- sæla Harrison Ford. (slenskur texti. Bönnuð innan 10 ára. Endursýnd kl. 3, 5 og 7. Fálkinn og snjómaðurinn Afar vinsæl njósna og spennumynd, sem byggð er á sannsögulegum at- buröum. Fálkinn og .„iómaðurinnvoru menn sem CIA oy fikniefnalögregla Bandaríkjanna höfðu mikinn áhuga á að ná. Titillag myndarinnar „This is not America" er sungið af Dawid Bowie. Aðalhlutverk: Timothy Hutton(Ord- inary People), Sean Penn. Leikstjóri: John Sclesinger (Mid- night Cowboy, Marathon Man). Sýnd kl. 9.15. LEIKHÚS KVIKMYNDAHUS 7 LAUGARÁ SALUR A Morgunverðar- klúbburinn ■ Ný bandarisk gaman- og alvöru- i mynd um 5 unglinga sem er refsað i \ 't'. skóla með því að sitja eftir heilan laugardag. En hvað skeður þegar gáfumaðurinn, skvísan, bragðaref- urinn, uppreisnarseggurinn, og ein- farinn eru lokuö ein inni? Mynd þessi var frumsýnd í Bandaríkjunum snemma á þessu ári, og naut mikilla vinsælda. Leikstjóri: John Huges. (16ára-Mr. Mom.) Aöalhlutverk: Emilio Estevez, Ant- hony M. Hall, Jud Nelson, Molly Ringwald, og Ally Sheedy. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. __________SALUR B______________ Myrkraverk Áður fyrr átti Ed erfitt með svefn, eftir að hann hitti Díönu á hann erfitt með að halda lífi. Nýjasta 'mynd Johns Landis. (Animal house, American werewolf og Trading places). Aðalhlutverk. Jeff Goldblum (The big chill) og Mlchelle Pfeiffer (Scarface). Aukahlutverk: Dan Aykroyd, Jim Henson, David Bowie o.fl.. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Bönnuð innan 14 ára. SALUR C Að vera eða ekki að vera (To Be or Not to Be) Hvað er sameiginlegt meö þessum topp kvikmyndum? „Young Frank- enstein", „Blacing Saddles", „Twel- ve Chairs”, „High Anxiety”, „To Be or Not to Be". Jú það er stórgrinarinn Mel Brooks og grín, staðreyndin er aö Mel Brooks hefur fengið forhertustu fýlupoka til að springa úr hlátri. „A6 vera eða ekki að vera” er myndin sem enginn má missa af. Aðalleikarar: Mel Brooks, Anne Bancroft, Tim Matheson, Charles Durning. Leikstjóri: Alan Johnson. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Regnboginn- MKUBIO SJMI 2214Ö Evrópufrumsýning á mynd ársins RAMBO vinsælustu 1 JH Hann er mættur aftur - Sylvester Stallone sem RAMBO - harðs- keyttari en nokkru sinni fyrr - það getur enginn stoppað RAMBO, og það getur enginn misst af RAMBO. Myndin er sýnd í Dolby Stereo. Aðalhlutverk: Sylvester Stallone og Richard Crenna. Leikstjórn: George P. Cosmatos. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Hækkað verð. Horfinn sporlaust Hörkuspennandi og áhrifaríkt drama frá 20th Century-Fox. Sex ára gam- all veifar Alex litli móður sinni er hann leggur af stað morgun einn til skóla, en brátt kemur i Ijós að hann hefur aldrei komist alla leið og er leiðin þó ekki löng. Hvað varð um Alex? Leikstjórn er í höndum Stanl- ey Jaffe sem m.a. var framleiðandi Óskarsverðlaunamyndarinnar Kramer vs. Kramer. Aðalleikarar: Kate Nelligan, Judd Hirsch, David Dukes. Isl. texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJALDtÐ Stjörnubíó ------------------ Micki og Maude ★★ Karl elskar tvær konur útal lífinu: úr ' verðu gott gaman, faglega gert ogr . borið uppi af hæfileikamanni í aðal- hlutverkinu. Bleiku náttfötin ★★ Konur að reyna að standa á eigin fótum. Of margar til að hægt sé að kynnast peim, en ýmislegt ber samt til tiðinda. Islenskar konur á eigin fótum segja efnistök hérumbil fimmtán árum á eftir Reykjavikur- tíma. Síðasti drekinn ★ Karat og mússik. Myndarlegt fólk, litlirleikarar, söguþráðurafallra ein- faldasta tagi. Filman er búin til oni svarta slömmæsku, - það skemmtilegasta við hana er hvað allir hvitingjarnir eru miklir lúðar. Fálkinn ★★★ Ágætur leikstjóri með góða mynd, um kórbræður, stórveldatafl, dóp, samfélagsupplausn og samvisku.. Góðir teikarar, sannfærandi frá- sögn, leikstjórn og taka með ágæt- um. Jaðrar við fjórar stjörnur. flllSTURBÆJAHfílll Sími: 11384 Salur 1 Purple Rain Endursýnum þessa frábæru músik- mynd vegna fjölda óska. Aðalhlutverk: Popp-goðið: Prince. Dolby Stereo. Bönnuð innan 12 ára. Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 2 Frumsýning: Ljósaskipti Heimsf ræg, frábærlega vel gerð, ný, bandarísk stórmynd, sem alls staðar hefur verið sýnd við geysimikla að- sókn. Framleiðendur og leikstjórar meistararnir: Steven Spielberg og John Landis ásamt: Joe Dante og George Miller. Myndin er sýnd i Dolbý stereo. (sl. texti. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 3 auhJLfc; rnLjnncrt Blade Runner Hin heimsfræga bandaríska stór- mynd i litum. Aðalhlutverk: Harrison Ford. Isl. texti. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 5, 9 og 11. When the Raven flies (Hrafninn flýgur) Bönnuð innan 12 ára Sýnd kl. 7. Austurbæjarbíó Löggan í Beverly Hills ★★ Ristir ekki djúpt, en gamantröllið Eddie Murphy fer á kostum. Hernaðarleyndarmál ☆ Ófyndinn aulaháttur. Vitnið ★★★★ Harrison Fordstendur sig prýðisvel í hlutverki óspilltu löggunnar i glæpa- mynd þarsem gegn nútimaviðbjóði er teflt sakiausu trúfólki aftanúr öldum. Vel leikið, vel skrifað, vel tekið, vel gert. Hiklaus meðmæli. Laugarásbió ------------- Myrkraverk ★★★ Skemmtileg spennumynd/spenn- andi skemmtimynd þarsem allt og allir fara á vænum kostum, leikur pottþéttur, handritið gott, húmorinn viðfelldinn, uppákomur óvæntar. Ort um stein ★★ Gamansöm B-útgáfa (og skopstæl- ing) á Indiana Jones. Ljósaskipti ★★ Lagt i hugarflugspúkk og margt vel gert fyrir þá sem þyrstir í furður. Sveifluvaktin ★ Áhugaverðu efni klúórað niðrí dauf- legan bakgrunn fyrirstælana ÍGold: ie Hawn. Því miður: þreytt. Bleidrönner ★★★ Traustur SF-ari; Harrison Ford i hlut- verki meindýraeyðis, eða þannig... Bíóhöllin ----------------- Löggustríðið ★ Öfmargirog of klénir brandarar, ekki nógu snerpulegurgangur, enýmsar skemmtilegar hugmyndir og má oft hendagaman aðþessum bófafarsa. Víg í sjónmáli Morðin i sókn en húmorinnáundan- haldi frá fyrri Bond-myndum. Flottar átakasenur, lélegur leikur. Næturklúbburinn Leikstjórinn Coppola líkir eftir sinum eigin Guðföður: ekkialveg nógu vel. Dálega sungið og dansað. BtfPP HOIII Sími: 78900 Salur 1 Frumsýnir grínmyndina: „Löggustríðið” (Johnny Dangerously) Splunkuný og margslungin grin- mynd um baráttu bófa og löggæslu sem sýnd er á skoplegri hátt en oft- ast gerist. Bæði er handritið óvenjulega smelllð og þar að aukl hefur teklst sérstaklega vel um leikaraval. Aðalhlutverk: Michael Keaton, Joe Piscopo, Peter Boyle, Dom De- Luise, Danny DeVito. Leikstjóri: Amy Heckerling. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 2 A View to a Kill (Víg í sjónmáli) ROGtH MOORt JAMES UOM) 1)07*- AVtEW-AKII.L James Bond er mætturtil leiks í hinni splunkunýju mynd A View to a Kill. Bond á íslandi, Bond í Frakklandi, Bond í Bandaríkjunum, Bond l Englandi. Stærsta James Bond opnun í Bandaríkjunum og Bretlandi frá upphafi. Titillag flutt af Duran Duran. Tökur á Islandi voru í umsjón Saga Film. Aðalhlutverk. Roger Moore, Tanya Roberts, Grace Jones, Christop- her Walken. Framleiðandi: Albert R. Broccoli. Leikstjóri: John Glen. Myndin er tekin í Dolby. Sýnd í 4ra rása Starscope Stereo. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð innan 10 ára. Miðasala hefst kl. 4.30. Salur 3 Frumsýnir grínmyndina: Hefnd Porky’s (Porky’s Revenge) Allir muna eftir hinum geysivinsælu Porkys myndum sem slógu svo rækilega I gegn og kitluðu hlátur- taugar fólks. Porky's Revenge er þriðja myndin í þessari vinsælu seriu og kusu breskir gagnrýnendur hana bestu Porky's-myndina. Mynd sem kemur fólki til að veltast um af hlátri. Aöalhlutverk: Dan Monahan, Wyatt Knight, Mark Herrier. Leikstjóri. James Komack. Sýnd kl. 3, 7, 9 og 11. Salur 4 Frumsýnir nýjustu mynd Randals Kleiser: í banastuði (Grandview U.S.A.) Hinn ágæti leikstjóri Randal Kleiser sem gerði myndirnar „Blue Lagoon'' og „Grease" er hér aftur á ferðinni með einn smell íviðbót. Þrælgóð og bráðskemmtileg mynd frá CBS með úrvalsleikurum. Aðalhlutverk: Jamie Lee Curtis, C.Thomas Howeel, Patrick Swa- yze, Elisabeth Gorcey. Leikstjóri: Randal Kleiser. Myndin er i Dolby Stereo og sýnd i 4ra rása starscope. Bráðskemmtileg grínmynd frá Walt Disney. Sýnd kl. 3. Salur 5 n/ ■nr Hefnd busanna (Revenge of the Nerds) Einhver sprenghlægilegasta gam- anmynd síðari ára. Sýnd kl. 5 og 7.30. Næturklúbburinn (The Cotton Club) Frábærlega gerð og vel leikin stór- mynd, sem skeður á bannárunum í Bandaríkjunum. Sýnd kl. 10. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. ágúst 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.