Þjóðviljinn - 25.08.1985, Blaðsíða 7
„Að láta
náttúruna
hljóma“
rœtt við Kjartan Ólafsson
tónsmið
Kjartan Ólafsson. Vatnaverk hans, „Hljómkelda", verður flutt á tónleikum UNM í Norræna húsinu í dag klukkan fimm.
Ljósm. Einar Ólason.
Eitt þeirra ungu tónskálda sem
verk eiga á tónleikum íslandsdeildar
UNM í Norræna húsinu í dag er Kjart-
an Ólafsson. Hann er ekki síður
þekktur fyrir að semja og spila popp-
tónlist og tónlist fyrir leikhús. Kjartan
var í hljómsveitinni Pjetur og Úlfarnir
sem starfaði fyrir nokkrum árum, en
nú eru þrír af fjórum meðlimum við
nám í klassískri tónlist. Hann samdi
líka tónlist við Gúmmí-Tarsan fyrir
Leikfélag Kópavogs og við margar
sýningar Stúdentaleikhússins. Síð-
astliðinn vetur flutti fslenska hljóm-
sveitin verk hans „Þúfubjarg" við tex-
ta Kolbeins jöklaraskálds. Við rædd-
um við Kjartan um tónlist og byrjuð-
um á því að spyrja hann um það verk
hans sem frumflutt verður í dag.
„Það er splunkunýtt verk sem
hefur fengið nafnið „Hljóm-
kelda“. Þetta er eiginlega vatna-
verk. Ég fór og tók upp ansi góð
hljóð í hvernum Grýtu í Hvera-
gerði, sem ég notaði svo í tón-
verk. Eða það má segja að hver-
inn hafi sjálfur búið til tónverk.
Þessi hljóð fóru svo í gegnum
ýmis tæki og þá kemur tónlistin
sem er í hvernum í ljós. Það er
gríðarlega mikið af tónum í þess-
um hver, og þetta er sannarlega
náttúruleg tónlist ef slík tónlist er
til. „Annars vann ég þetta þannig
að ég bjó til sönglínur inní þessa
hveratóna. Þórarinn Eldjárn
samdi texta við þær fyrir mig og
frú Jóhanna Linnet söngkona
(lýrískur spintó) syngur.
„Það verður þó annað verk
eftir mig sem verður flutt á Ung
Nordisk Musik í Finnlandi í októ-
ber. Það er verk fyrir víólu og
píanó og heitir „Dimma“. Það
verður frumflutt í Finnlandi og
þær Helga Þórarinsdóttir og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
--------------- ft-
spila. Það er engin raftónlist
heldur hefðbundinn dúett.“
Raftónlistar-
nám í Hollandi
- Nú ertu að lœra tónsmíðar og
elektróník í Hollandi?
„Já, ég er í ágætis konservatoríi
í Utrecht. Kennslan fer mikið
fram í stúdíói, með og án kenn-
ara. Annars er námið þarna með
svipuðu sniði og venjulegt
tónsmíðanám. Maður setur fram
einhverja hugmynd, og vinnur úr
henni og ber hana svo undir
kennarann sem ræðir þetta við
mann. Fyrsta árið var ég jafn-
framt þessu námi í Institut voor
Sonologi þar sem nokkrir íslend-
ingar hafa verið. Þar var meiri
tæknikennsla og alhliða þjálfun í
raftónlist fremur en í tónsmíðum.
Mér fannst því mjög gott að vera í
þessu tvennu samhliða.
- Hverju svararðu ef ég varpa
þeirri fullyrðingu fram, sem oft
heyrist, að raftónlist sé eingöngu
semjendunum til gleði og
nautnar?
„Ég hef nú orðið var við þetta
viðhorf. Þetta eru mikið til for-
dómar og það tilefnislausir. Þeir
sem segja svona hafa ekki lagt sig
fram við að kynnast þessari mús-
ik. Þetta er ung músik. Elektrón-
ík er nánast eitt af hljóðfærunum
og er ungt miðað við t.d. píanó og
fiðlu. Hin síðustu ár hafa orðið
gífurlegar framfarir í þessari tón-
list. Tæknin hefur tekið stökk-
breytingu og um leið breytist tón-
listin. Mér finnst margt af raftón-
listinni bera þess merki hvað
tæknin var vanþróuð þegar við-
komandi verk var samið. Tæknin
skiptir svo miklu máli í raftón-
list.“
- Á þessi tegund tónlistar
hljómgrunn á íslandi?
„Já, það held ég. Það er til
dæmis hlutfallslega meiri áhugi á
raftónlist á íslandi en í Hollandi.
Hér er mun meiri aðsókn að tón-
leikum þar sem raftónlist er
leikin en þar, og að mínu mati er
þetta jákvætt fyrir ísland. Það er
engin spurning um að þessi tón-
list á sér framtíð á íslandi. Tækn-
inni fleygir fram og það verður
sífellt skemmtilegra að vinna að
sköpun raftónlistar. Smám sam-
an verður hún fjölbreytilegri og
aðgengilegri fyrir almenna eyrna-
snepla.“
Frumleika-
komplexinn á
undanhaldi
„Við stöndum núna á eins kon-
ar tímamótum í tónlist og fleiri
listum ef til vill. Við erum að
losna undan frumleikakomplex-
num, sem var krafa á öllum á
tímabili. Allir áttu að vera svo
frumlegir og sniðugir. Það var
auðvitað nauðsynlegt uppbrot á
sínum tíma, segjum á fyrri helm-
ingi aldarinnar. Það hefur margt
nýtt og gott komið fram. í dag
getum við sem stöndum í þessu
litið yfir þróunina og valið úr
öllum þessum stefnum og
uppbrotum sem fram hafa kom-
ið. Við horfum á þetta úr vissri
fjarlægð og getum vonandi þróað
tónlistina áfram. En það er ör-
uggt að raftónlistin verður hluti
af þeirri þróun.“
- Hvernig er að vera menntaður
í klassískum tónsmíðum og semja
jafnframt poppmúsik eins og þú
hefur gert?
„Ja, það er bara grundvallar-
atriði að rugla þessu ekki saman,
frekar en öðru. Maður spilar t.d.
Beethoven öðruvísi en Bach.
Poppmúsik er öðruvísi en alvar-
legri músik, skulum við segja.
Grunnsprettan er sú sama en það
er farin önnur leið og auðveldari í
poppmúsíkinni. Popplag er
andartakshugmynd, en alvarleg
tónsmíð er lengri og erfiðari hug-
mynd. Á bak við hana liggur
meiri vinna og annars konar
metnaður. Þetta er eins og munur
á skáldsögu og skrítlu, án þess að
skrítlan þurfi að vera eitthvað lé-
legri eða verri. Það eru bara aðr-
ar forsendur og aðrar vinnsluað-
ferðir í poppinu. Þær eru staðl-
aðri.“
Popp er
nauðsynlegt
- Ber ekkert á þ ví að „klassíker-
ar“ séu með fordóma í garð
popptónlistar?
„Ég mundi nú kannski ekki
kalla það fordóma. Það er auðvit-
að upp og ofan hvernig menn líta
á poppið. Margir líta á það sem
svona léttara hjal, án þess þó að
það þurfi í sjálfu sér að vera
nokkuð niðrandi. Poppið á rétt á
sér eins og aðrar listgreinar, það
er alveg jafn nauðsynlegt og
klassíkm, djassinn og allt þetta.“
- Ætlarðu að halda áfram að
semja poppmúsík?
„Já, ætli það ekki. Mér finnst
þetta ágæt afslöppun og til-
breyting frá klassíkinni og raf-
tónlistinni. Það er fínt að semja
popplög inn á milli, - það er
skemmtileg tilbreyting. í popp-
inu vinnur maður meira beint og
spontant, framkvæmir um leið og
maður fær hugmynd. Það má
segja að maður sé í beinna sam-
bandi við það sem maður er að
gera þar sem maður framkvæmir
hana. í klassíkinni tekur allt
lengri tíma.“
- Þú hefur samið mikið tónlist
fyrir leikhús. Hvernig er það?
„Það er mjög skemmtilegt, en
um leið öðruvísi vinna en að
semja sjálfstætt tónverk. í
leikhúsi eru ákveðnar forsendur
frá upphafi. Maður er háður
leikverkinu og þarf að taka bátt í
að byggja upp stemmningu og
andrúmsloft sem á að ríkja í sýn-
ingunni. Þetta er líka meiri sam-
vinna en tónskáld eru vön. Ekki
eins einmanalegt og oftast er við
tónsmíðarnar. Það er ekki ósvip-
að að semja alvarlegt tónverk og
taka þátt í uppsetningu leikverks.
Það eru svipaðar grundvallar-
reglur í listgreinum sem eru háð-
ar tíma.“ -pv
Er ekki tilvalið
að gerast áskrifandi?
DJÓÐVIUINN
P * J
Fararstjóri verður Ólafur Guðbrandsson,
sem bjó um tima i Thailandi.
Látiö drauminn rætast!
Missiö ekki af þessu
einstaka tækifæri.
Látiö skrá ykkur strax!
UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFUNNI í SÍMA 297 40 OG 62 17 40
LAUGAVEGl 28, 101
UNDRAHEIMUR AUSTURLANDA OPNAST FARÞEGUM OKKAR
í THAILANDSFERÐINNI í ÓKTÓBER.
Viö heimsækjum ævintýraborgina Bankok,einhverja
stórkostlegustu ferðamannaborg Asíu. — Síðan
veröur dvaliö í tvær vikur á hinni víöfrægu
Pattayaströnd sem jafnan er talin besta ströndin í
allri Asíu, og hægt verður aö taka þátt í áhugaverðum
skoöunarferöum þaóan.