Þjóðviljinn - 25.08.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 25.08.1985, Blaðsíða 9
Tónleikar Ung tónskáld í Norrœna húsinu Tónleikartil styrktarog kynningará Tónlistariðju norrœns œskufólks I dag kl. 17.00 halda UNM (Ung Nordisk Musik) samtökin á Islandi tónleika með nýrri tónlist í Norræna húsinu. Norrænt æskufólk heldur árlega tónlistar- hátíð sína í Helsinki í haust og eru fyrrnefndir tónleikar í kynningar- og fjáröflunarskyni fyrir ferð íslensku þátttakend- anna. Efnisskráin í Norræna húsinu er all-rafmögnuð, en leikin verða rafhljóðverk eftir Lárus H. Grímsson, Kjartan Olafsson, Sig- urð H. Sigurðsson og Helga Pét- ursson. Þá mun Guðni Franzson leika Músík Hróðmars Sigur- björnssonar fyrir klarinctt, en verkið vakti athygli á síðustu UNM hátið í Málmey. Loks eru tvö söngverk á efnisskránni. Anders Torsten Josephsson syng- ur með gítarleik Páls Eyjólfs- sonar í Danslagi eftir Misti Þork- elsdóttur, og Andrea Gylfadóttir syngur þrjú lög eftir Báru Gríms- dóttur. Með Andreu leika Helga Laufey Finnbogadóttir á píanó og Kolbeinn Bjarnason á flautu. „Samtök norræns tónlistar- fólks hafa á íslensku hlotið nafnið Tónlistariðja ungs fólks en á skandinavísku ganga þau undir nafninu Ung Nordisk Musik, UNM. UNM var stofnað á Norðurlöndunum 1946 en ísland kemur ekki inní fyrr en á áttunda áratugnum", segir Atli Ingólfs- son, einn af félögum í UNM. „í samtökunum eru bæði tónskáld og hljóðfæraleikarar undir þrí- tugu. Hátíðir eða mót UNM eru haldin árlega. Á hátfðunum eru flutt verk eftir ung tónskáld og þau kynnt og kynnast hvert öðru. Þá eru iðulega í gangi námskeið á þessum hátíðum og fengin fræg nöfn utan úr heimi til að leiðbeina. Á sfðustu hátíð í Sví- þjóð í fyrra var Arditti strengjak- vartettinn meðal leiðbeinenda og einnig var boðið upp á slagverks- námskeið og námskeið fyrir tóns- míði. í Finnlandi verður nám- skeið í hljómborðsleik og leiðbeinandi þar er ung japönsk stúlka sem ég kann ekki að nefna en hún er mikill píanóvirtúós. Paul Zukofsky mun og leiðbeina á fiðlu. Tónskáld flytja oft fyrirle- stra á hátíðunum og fjalla venju- lega eitthvað um þau verk sem er flutt á hátíðinni. UNM eru ekki beint formleg samtök nema að því leyti að í hverju landi er stjórn. Við erum fjögur sem sitjum í stjóm hér á landi núna. Formenn stjórnanna hittast nokkmm mánuðum fyrir hvert mót til að skipuleggja en skipulagning hátíðanna liggur algerlega í höndum UNM. í flestum löndunum verður að velja á milli umsækjenda á hátíð- irnar. Við úrvalið er lagður bæði listrænn og praktískur dómur á verkið. Það verður að taka tillit til þess hvort hægt er að flytja verkin. Hér væri til dæmis ekki hægt að flytja verk fyrir stóra málmblásturshljómveit eða stór- an kór. Hingaðtil höfum við ekki verið það mörg á íslandi að þurft hafi að velja á milli. En það stefn- ir allt í það og við verðum líklega að koma á laggirnar hlutlausri dómnefnd til að velja verkin. Þau íslensku tónsícáld sem fara utan em Mist Þorkelsdóttir, Lár- us H. Grímsson, Hróðmar Sigur- björnsson, Helgi Pétursson, Kjartan Ólafsson, Haukur Tóm- asson, Hilmar Þórðarson og Atli Ingólfsson. Hljóðfæraleikarar sem fara á hátíðina eru Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, Gerður Guðmundsdóttir, fiðla, Bryndís Björgvinsdóttir, selló, Páll Eyjólfsson, gítar, og Helga Þórarinsdóttir, víóla. Jósef Fung frá Hong Kong sem búsettur er á íslandi slæst í förina sem tónskáld og gítarleikari. Hátíðin stendur í viku og byrj- ar 29. september og stendur til 6. október. Ferðin er styrkt af menntamálaráðuneytinu og nor- ræna tónlistarráðuneytinu. Við eigum eftir að sj á hvernig útkom- an verður, hvort styrkurinn dug- ir, og svo er auðvitað ágóðinn af tónleikunum", segir Atli bjart- sýnn. Mörg íslensku verkanna verða flutt af finnskum hljóð- færaleikurum vegna þess að við getum ekki sent alla hljóðfæra- leikara sem til þarf en alls erum við 13 auk Fungs sem förum að þessu sinni. -aró Atli Ingólfsson BILASYNING Laugardag frá kl. 10—5. Sunnudag frá kl. 1—6 Bíllinn, sem beðið var eftir er kominn! Nýr MAZDA 323 árgerð 1986 Það er erfitt að gera frábæran bíl eins og MAZDA 323 betri, en það hefur verkfræðingum MAZDA nú samt tekist. Nú um helgina kynnum við nýjan stórkostlegan MAZDA 323, sem kominn er á markaðinn með nýju og gjör- breyttu útliti og fjölmörgum tæknilegum nýjungum. MAZDA 323 er nú á ótrúlega hagstæðu verði, sem enginn getur keppt við. Sjón er sögu ríkari — Komið, skoðið og reynsluakið MAZDA 323 og þið sannfærist um að hjá MAZDA fáið þið alltaf mest fyrir peningana. BILABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 '

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.