Þjóðviljinn - 25.08.1985, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 25.08.1985, Blaðsíða 11
Ég var álitinn ágengur og vitlaus. Ég verð alltaf hundeltur. Ljósm.: GFr. Laugaból. Til hægri er gamla fjósið sem faðir Alla byggði upp. Kvígan var yxna og horfði með angistarsvip inn um eldhúsglugganh. Ljósm.: GFr. varðhús á svokölluðum Reykhól niðri við varpið sem hægt er að hita upp og þar get ég vakað yfir varpinu. Það voru vinir mínir sem reistu húsið fyrir mig. - Er gott verð fyrir dúninn? - Það er alltaf á uppleið. Síðast fékk ég rúm 11 þúsund í SÍS fyrir hreinsað kfló. Kaupmenn eru alltaf að nauða í mér að selja sér dún en mér finnst gott að versla við SÍS - þeir reynast okkur vel þar. - Mér var sagt að þú hefðir einu sinni œtlað að fara að gera út á rækju. - Já, ég keypti 6 tonna rækju- bát á ísafirði fyrir víxla en ég fékk ekki að veiða eins og aðrir menn. Gísli Jónsson á Bfldudal og Sverrir verkstjóri ætluðu að kaupa af mér rækjuna en þá gerðu sjómenn á Bfldudal sam- þykkt þar sem þeir hótuðu að hætta að veiða ef keypt yrði rækja af Aðalsteini á Laugábóli. Ég ætl- aði að fara út í þetta eftir að við móðir mín vorum orðin ein eftir en svona fór það. Enginn kvenmaður tollað - Er langt síðan faðir þinn dó? - Hann dó 1936 og tveimur árum síðar misstum við jörðina til ríkisins fyrir fátæktar sakir. Ég er því leiguliði hjá ríkinu með lífstíðar- og erfðaábúð. En hvað á ég að gera með erfðaábúð þegar enginn kvenmaður hefur töllað hjá mér. Nú hlær Alli og augun ljóma. - Þú segist hafa verið í Reykja- vík árum saman. Lokkar hún þig ekkert? - Nei, ég kvefast alltaf þegar ég kem til Reykjavíkur en aldrei hér í hreina loftinu. í»að vill nú verða sjúkhallt á Þingeyri líka. Ekki hefði ég viljað standa í frystihús- inu þar og flaka fisk, það er alltof mikið ófrelsi. Ég er frjáls maður. - Hefurðu ekki haldið ráðs- konur? - Ég hafði konur í nokkur ár á sumrin. Það voru tveir mánuðir og mest þrir. Þá var komin skóla- skylda á börnin og þá urðu þær að fara. En þetta hafa orðið ágætis Hvað á ég að gera með erfðaábúð þegar enginn kvenmaður hefur tollað hjá mér? Ljósm.: GFr. Ég kvefast alltaf þegar ég kem til Reykjavíkur en aldrei hér í hrema loftinu. Ljósm.: GFr. kunningjar mínir. Áður fyrr var alltaf hægt að fá menn í kaupa- slátt en það breyttist í stríðinu. - Hvernig var með skólagöngu þína? - Ég var fjóra vetur í barna- skóla á Þingeyri og svo í einn vet- ur á Núpi þegar ég hafði tvo um tvítugt. Þarna voru mest ung- lingar og ég var kallaður afi sem var auðvitað mesta meinloka. Það var mikið dansað en þá dró ég mig út úr því. Björn skólastjóri borgaði fyrir mig skólagjöldin og mikið hafði ég gott af þessu. Mig langaði annan vetur en það var ekki hægt. Annars munaði minnstu að ég yrði sendur til Am- eríku sem strákur. Guðný amma mín átti föður minn með Páli nokkrum en þau giftust ekki. Páll fór svo til Ameríku og varð bygg- ingameistari. Hann varð víst vell- auðugur af námagreftri. Hann skrifaði foreldrum mínum bréf þegar hann var kommn á gamals- aldur og vildi fá sendan strák sem héti Aðalsteinn, vildi mennta hann og láta hann sjá um sig í ellinni. Það var ég. Áður en við kveðjum þennan elskulega gamla bónda förum við upp í baðstofu sem er allsér- kennileg. Þar eru eins konar lok- rekkjur og segir AUi að pabbi hans hafi verið skipstjóri á Þing- eyri áður en hann gerðist bóndi og hann hafi smíðað bæinn, koj- umar minni óneitanlega á lúkar í skipi. Og hér uppi er allt bjart og hreint, gólfin rauð og veggir skærgulir. -GFr Sunnudagur 25. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.