Þjóðviljinn - 25.08.1985, Síða 14
Frá Fjölbrauta-
skólanum
í Breiðholti
Innritun í öldungadeild Fjölbrautaskólans í
Breiðholti
fer fram dagana 28., 29. og 30. ágúst í húsakynnum
stofnunarinnar við Austurberg kl. 18.00-21.00.
Greiða á gjöld jafnhliða því sem nemendur velja
námsáfanga. Mat á fyrra námi svo og sérstök náms-
ráðgjöf er veitt innritunardagana. Sími skólans er
75600.
Dagskóli F.B. verður settur í Bústaðakirkju laugar-
daginn 31. ágúst kl. 10.00 árdegis. Allir nýnemar eiga
að koma á skólasetninguna.
Allir nemendur dagskólans fá afhentar stundaskrár
mánudaginn 2. september kl. 9.00-14.00 og eiga þá
að standa skil á gjöldum.
Kennarar F.B. eru boðaðir á almennan kennarafund
mánudaginn 2. september og hefst fundurinn kl. 9.00
árdegis.
Skólameistari
Þroskaþjálfar
Deildarþroskaþjálfi óskast til starfa á Vonarlandi á
Egilsstöðum.
Starfið felur í sér skipulagningu á þjálfun og þjálfun á
3-4 einstaklingum.
Laun skv. taxta BSRB og ríkisins.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 97-
1577 eða 97-1177.
St. Jósepsspítalinn Landakoti
Lausar stöður:
Barnaheimili
Starfsmaður óskast á skóladagheimili (börn 5-9 ára)
frá 1.9.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 19600-260
milli kl. 9-16.
Einnig óskast starfsmaður á dagheimili fyrir börn á
aldrinum 3ja-6 ára. Upplýsingar í síma 19600-250 milli
kl. 9-16.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækningadeildir l-A
og ll-A, handlækningadeildir l-B og ll-B og barnadeild.
Fastar næturvaktir koma til greina. Boðið upp á að-
lögunarkennslu fyrstu vikurnar.
Hjúkrunarfræðingar óskast á aukavaktir á
lyflækninga- og handlækningadeildir.
Einnig vantar skurðstofu-hjúkrunarfræðing.
Námsstaða er fyrir hendi fyrir hjúkrunarfræðing sem
vill öðlast starfsreynslu á skurðstofu.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir við eftirtaldar
deildir:
- Lyflækningadeild ll-A
- Handlækningadeildir ll-B og lll-B
- Barnadeild
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsing-
arísíma 19600 frá kl. 11-12og 13-14 alla virkadaga.
Röntgen-hjúkrunarfræðingur
eða röntgentæknir
Vantar nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur deildarstjóri röntgendeildar í síma
19600-330.
Starfsfólk
Starfsfólk í ræstingar vantar við allar deildir spítalans.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 19600-259.
Starfsmaður
Óskum að ráða starfsmann til starfa í þvottahúsi
okkar að Síðumúla 12. Upplýsingar gefur forstöðu-
kona þvottahússins í síma 31460.
Reykjavtk, 24.8. 1985.
Stöður í
háskóla
! Nýlega var auglýst laus staða
lektors í íslenskum bók-
menntum við Háskóla (slands
til þriggja ára. Umsóknarfrest-
urinn rann út í gær þannig að
brátt mun Ijóst hverjir hafa sótt
um stöðuna, en ýmsir
bókmennta- og fræðimenn
hafa verið nefndir sem hugs-
anlegir umsækjendur. Þar á
meðal Helga Kress lektor í
almennri bókmenntafræði,
Matthías Viðar Sæmunds-
son cand. mag og dr. Örn Ól-
afsson. ■
Herra Sensuross
á Prövdu
Leiðarinn umtalaði í Alþýðu-
blaðinu sl. miðvikudag sem
bar yfirskriftina „Eigi víkja“, og
sagður er skrifaður af Helga
Má Arthúrssyni, fræðslufull-
trúa hjá BSRB, hefur víða
valdið miklum pirringi, einkum
þó og sér í lagi á æðstu rit-
stjórnarskrifstofum Morgun-
blaðsins.
Flestir blaðamanna tóku
hins vegar leiðaranum fagn-
andi og sín á milli kalla þeir
Björn Bjarnason ritstjóra
aldrei annað en Herra Sens-
uross og málgagnið að sjálf-
sögðu Prövdu. ■
r Ertþu ^
búinn að fara í
Ijósg-
skoöunar
-ferð?
w
Halló
Hvað ætlar þú að gera í vet-
ur?
Langar þig að breyta um umhverfi?
Langar þig að skipta um vinnu?
Langar þig að kenna við nýjan skóla?
Ef svo er, þá talaðu við okkur. Við bjóðum þér kennar-
astarf við grunnskólann á ísafirði, sem er nýr skóli,
byggður á gömlum merg. Við höfum nú sameinað allt
grunnskólakerfið undir eina yfirstjórn og okkur vantar
nokkra kennara. Þér gefst því tækifæri sem kennara
að taka þátt í uppbyggingu nýs skóla með okkur. Við
getum ekki boðið upp á gull og græna skóga, en
flutningur til okkar verður þér að kostnaðarlausu. Við
höfum líka húsnæði fyrir þig og fjölskyldu þína, fyrir
utan góða vinnuaðstöðu við skólann.
Á ísafirði er stórbrotið, sögulegt umhverfi, auðgað af
menningar- og viðskiptalífi. Hér er líka glænýtt dag-
heimili.
Formaður skólanefndar, Lára G. Oddsdóttir í síma
94-3580 og skólastjóri, Jón Baldvin Hannesson í
símum 94-3146 og 94-4294 eru fús til að veita frekari
upplýsingar.
Utboð
Tilboð óskast í gröft, fyllingu og lagningu holræsa í
Vogatungu vegna íbúða aldraðra.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræð-
ings Fannborg 2, frá og með þriðjudeginum 27. ágúst
’85, gegn 2000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11, mánudag-
inn 9. september og verða þá opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Bæjarverkfræðingurinn í Kópavogi
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
á Vestfjörðum
Kjördæmisráðstefna
24. og 25. ágúst
Dagskrá:
Laugardagur 24. ágúst
Kl. 10.00
1. Þingsetning
2. Skýrsla stjórnar og reikn-
ingar
3. Skýrsla um útgáfu Vest-
firðings
4. Atvinnu- og byggðamál.
Framsögumenn: Kjartan
Ólafsson og Ragnar Arn-
alds.
Umræður
5. Stefnuumræðan.
Framsögumaður: Kristinn
Á. Gunnarsson.
Sunnudagur 25. ágúst
Kl. 9.00
6. Nefndastörf
7. Almennar umræður/
Nefndastörf
8. Afgreiðsla frá nefndum
9. Kjör stjórnar kjördæmis-
ráðs og uppstillingarnefnd-
ar. Tilnefning fulltrúa til
miðstjórnarkjörs.
Kl. 17.30 — Þingslit
AB Norðurlandi eystra
Sunnlendingar athugið!
Síðsumarferð ABS
Athugið breytta tímasetningu Síðsumarferðar Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi til Víkur í Mýrdal. Farið verður helgina 31.
ágústtil 1. september. Fararstjóri verður Ingi S. Ingason og honum
til aðstoðar verður Margrét Gunnarsdóttir á Laugarvatni.
Lagt verður af stað laugardaginn 31. ágúst frá Messanum
Þorlákshöfn kl. 8.30, Olís Hveragerði kl. 9.00 og frá Kirkjuvegi 7
Selfossi kl. 9.30. Þeir sem vilja slást í hópinn á austurleið verða
teknir í hópinn eftir samkomulagi.
Byggðasafnið á Skógum verður skoðað, ekið að Sólheimajökli
og Dyrhólaey skoðuð. Farið að Görðum í Reynishverfi og upp í
Hlíðardal og að lokum til Víkur í Mýrdal. Kl. 21.00 um kvöldið hefst
vaka í Leikskálum í umsjá heimamanna og gist í svefnpokapláss-
um um nóttina. - Reiknað er með að hver komi með sitt nesti.
Sunnudaginn 1. september verður ekið af stað kl. 10.00 austur
um og gengið á Hjörleifshöfða. Eftir hádegi verður Víkin og um-
hverfi hennar skoðuð. Væntanlega komið á Selfoss um kl. 18.00.
Félagar og stuðningsfólk! Takið með ykkur fjölskylduna og
kunningjana. Skráið ykkur hjá Ármanni Ægi í síma 4260, Önnu
Kristínu í síma 2198 eða hjá félagsmönnum eigi síðar en 27.
ágúst. - Stjórnin
Alþýðubandalags-
fólk á
Akureyri
Vinna er að hefjast við endurbæt-
ur og viðhald á Lárusarhúsi. Þeir
sem vilja hjálpa til hafi sambandi
við Ingibjörgu í síma 25363 eöa
Hilmi í síma 22264.
Munið! Margar hendur vinna létt
verk. - Hússtjórn
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
ÆFR
Stjórnarfundur
Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík verður haldinn sunnudaginn
25. ágúst kl 17.00. Rabbað um starf vetrarins og starfsreglur
stjórnar ÆFR. Einnig fjallað um haustfund ÆF. Fundurinn er opinn
öllum sem áhuga hafa.
Formaður