Þjóðviljinn - 25.08.1985, Síða 20
„Atvinnuþátttaka
kvenna er
ekki
nýtilkomin”
- rœff við Margréti
Guðmundsdóttur,
sagnfrœðing, en hún er ein
affjöldamörgum konum
sem flytja erindi á ráðstefnu
um íslenskar
kvennarannsóknirá vegum
háskólans
■■■
„Verkakonur höfðu þriðjungi lægri laun en karlmenn í sömu störfum," segir Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur. Ljósm. E.ÓI.
Ráðstefna um íslenskar
kvennarannsóknir verður haldin í
Odda, hugvísindahúsi Há-
skólans helgina 29. ágúst til 1.
september og verða flutt þar
fjöldamörg erindi um kvenna-
rannsóknir og niðurstöður þeirra.
Fjallað verður um lögfræði, líf-
fræði, sagnfræði, félags- og sál-
fræði, guðfræði, íslensku og fleiri
greinar, en á kvöldin munu konu
fjalla í máli og myndum um starf
kvenna í ýmsum listgreinum, um
líf kvenna á Grænhöfðaeyjum og
líf verkakonu í Reykjavík.
Meðal athyglisverðar umfjöll-
unarefna er erindi Margrétar
Guðmundsdóttur sagnfræðings
og nefnist það „Konur hefja
kjarabaráttu“.
Við hittum Margréti að máli og
báðum hana að segja frá erindi
sínu.
„BA-ritgerð mín í sagnfræði
fjallaði um verkakonur í Reykja-
vík á árunum 1914-1940, og ég
mun segja frá niðurstöðum mín-
um á ráðstefnunni. Þetta er að
ýmsu leyti mjög merkilegt tíma-
bil í atvinnusögu kvenna og lítið
rannsakað og einmitt þess vegna
fékk ég upphaflega áhuga á því.
Verkakvennafélagið Framsókn
var stofnað árið 1914 og þvotta-
kvennafélagið Freyja síðan árið
1932, en bæði þessi félög voru
mjög tengd stjórnmálastarfinu á
þessum tíma. Framsókn er meðal
stofnenda ASÍ, sem þá var sama
skipulagsheild og Alþýðuflokk-
urinn. Konur í verkakvennafé-
lögum tóku því mikinn þátt í póli-
tíkinni á þessum tíma og öll
þeirra kjarabarátta var mjög
tengd henni. Þvottakvennafé-
lagið Freyja fylgdi fyrst Alþýðufl-
okknum að málum en síðan Sós-
íalistaflokknum.
Mikil pólitísk togstreita var
þarna á milli sem konurnar tóku
virkan þátt í.“
„Hvað með kjör kvenna á þess-
um árum, voru þau mjög léleg?
„Já, það er ekki hægt að segja
annað. Það er athyglisvert að
kynnast viðhorfinu sem ríkti til
launavinnu kvenna. Þær konur
sem voru í verkakvennafélögun-
um unnu úti af neyð, einnig þær
sem voru giftar. Þetta var gífur-
lega erfið og slítandi vinna, ekki
síst saltfiskverkunin, sem fram
fór í óupphituðu húsnæði þar sem
allar aðstæður voru mjög slæmar.
Til að byrja með höfðu konur að-
eins helming launa á við karla í
saltfiskinum, þótt þær bæru fisk-
börur á móti körlum og ynnu oft
nákvæmlega sömu störf. Síðar
komst á sú regla að konur hefðu
þriðjungi lægri laun en karlar og
má segja að það hafi verið reglan
í kjarasamningum þessa tíma.
Konur í þvottakvennafélaginu
Freyju höfðu ekki samanburð við
karlalaun, þar sem engir karlar
voru í ræstingum á þessum tíma
og misréttið því ekki eins
augljóst.“
„Er atvinnuþáttlaka kvenna
mikil á þessum tíma?“
„Já, hún er ótrúlega mikil. Því
er gjaman haldið fram að þátt-
taka kvenna í atvinnulífinu hér í
Reykjavík sé nýtilkomin, en það
er mikill misskilningur. Að vísu
er erfitt að meta hversu mikil hún
var, vegna þess að giftar konur
eru ekki skráðar útivinnandi í
manntölum og nánast ógerlegt að
finna út hversu stórt framlag
þeirra var. En af félagatali verka-
kvennafélaganna má sjá að þær
hljóta að hafa verið margar. Á
árunum 1911-36 er saltfiskurinn
47-60% af heildarútflutnings-
verðmætum landsmanna og frá
1925-31 kom 31-39% af heildar-
saltfiskframleiðslunni í hlut
reykvískra kvenna. Það er því
augljóst að þáttur reykvískra
kvenna í þjóðarframleiðslunni á
þessum tíma er mikill.“
„Er mikið til af heimildum sem
þú hefur haft aðgang að?“
„Ég hef byggt mikið á fundar-
gerðum verkakvennafélaganna
og einnig á hagskýrslum og dag-
blöðum. Það er hins vegar ljóst
að það væri hægt að halda lengur
áfram með þessar rannsóknir og
skoða t.d. bókmenntir sem
snerta verkakonur í Reykjavík á
þessum tíma,“ sagði Margrét.
Hún bætti því við að lokum að
hún vonaði að sem flestir mættu á
ráðstefnuna um næstu helgi. Er-
indin eru svo fjölbreytileg að efni
og innihaldi að allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Rit-
gerð Margrétar um verkakonur í
Reykjavík á árunum 1914-1940
verður væntanlega gefin út síðar
af Sagnfræðistofnun Háskólans.
þs
Götuskiltið: „Stræti baráttunnar gegn
endurskoðunarstefnunni", - þar sem
Rússneska sendiráðið í Peking hefur
aðsetur.
Sendiráð
Rússa við
Baráttugötu
gegn
endur-
skoðun
Um daginn var verið að viðra
hugmynd um að skíra upp götur
hér og þar á Vesturlöndum og þá í
höfuðið á Sakarov, í pólitísku
háðungarskyni við sovésk stjórn-
völd. Reykjavík var nefnd á nafn í
þessu sambandi og a.m.k. tveir
tjáðu sig um málið í mogganum;
Davíð sjálfur var hugmyndinni
heldur meðmæltur fyrir sína
parta, en Velvakandi á móti.
Héma mætti koma að kínvers-
ku útgáfunni af pólitískum götu-
nöfnum; sovéska sendiráðshöllin
í Peking stendur við Stræti barátt-
unnar gegn endurskoðunarstefn-
unni. Velheppnað spælingageim
hvað sem öðru líður. Rússagrey-
in geta ekki einu sinni tekið
leigara heim án þess að hafa yfir
þetta bölvaða götunafn.
VOLVOKJOR
SUÐURLANDSBRAUT 16 SlMI 35200
Volvo 340
frá: kr. 465.000.-
p&ó
Míöaö viö gengi 14/6 '85.
Dœmi:
Volvo Rio 340 DL:
Verð: 465.000
Lán........ 116.000
Gamli bíllinn
uppí....... 200.000
Utborgun... 149.000
Samtals: 465.000
Gjörðu svo veí -
komdu og kynnsfu
Volvonum af eigin
raun, f
Með þessum einstöku
greiðslukjörum gerum
við enn fieirum kleiff
að eignast Volvo.
Volvo 340,
- Auk þess að vera
búinn öllum bestu
kostum Volvo er
hann sparneytinn
og á verði frá:
Volvo 340kr. 465.000.-