Þjóðviljinn - 07.09.1985, Síða 3
Útvarpsráð
FRETTIR
Þátturinn verður sýndur
Inga Jóna Pórðardóttir: „Ekki er vitað nóg um þennan svarta lista. “
Aútvarpsráðsfundi á föstudag-
inn báru Eiður Guðnason og
Jóhanna María Lárusdóttir fram
tillögu þess efnis að fella niður
þáttinn með söngvaranum Cliff
Richard sem á að sýna á laugar-
daginn í íslenska sjónvarpinu.
Inga Jóna Þórðardóttir for-
maður útvarpsráðs bar fram frá-
vísunartillögu á það að fella þátt-
inn niður á þeim forsendum að
ekki væri nóg vitað um þennan
svarta lista sem Cliff Richard er á
hjá Sameinuðu þjóðunum.
Greidd voru atkvæði og þau féllu
þannig að Árni Björnsson, Eiður
Guðnason og Jóhanna Mana
Lárusdóttir vildu láta fella þátt-
inn út af dagskrá en hinir 4 út-
varpsráðsmennirnir vildu láta
sýna hann.
Skólamál
Umræður um einkaskóla
Félag skólastjóra og yfirkennara kynnir
ólík sjónarmið á fundi á Hótel Esju í dag
Nú um helgina heldur Félag
skólastjóra og yfirkennara
aðalfund sinn og ársþing og fer
það fram á Hótel Esju. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
verður í dag, laugardag, efnt til
umræðna um einkaskóla og ríkis-
skóla.
Umræður þessar hefjast klukk-
an 9.30 og standa til kl. 12.30. Þar
verða flutt fimm framsöguerindi
um kosti og galla einkaskóla og
ríkisskóla. Málshefjendur eru
Inga Jóna Þórðardóttir aðstoðar-
maður ráðherra, Gerður G. Ósk-
arsdóttir , endurmenntunarstjóri
Háskóla íslands, Haukur Helga-
son skólastjóri í Hafnarfirði og
þær María S. Héðinsdóttir og
Margrét Theódórsdóttir en þær
eru skólastjórar Tjarnarskóla. Á
eftir verða panelumræður og taka
þátt í þeim auk framsögumanna
skólastjórarnir Kári Arnórsson
og Ragnar Júlíusson.
Eftir hádegi í dag, kl. 13.00,
S-Afríka
Frelsum
Mandela!
AB skorar á ríkis-
stjórnina að stöðva
viðskipti við S-Afríku
Eftirfarandi samþykkt var
gerð á fundi framkvæmdastjórn-
ar Alþýðubandalagsins varðandi
Suður Afríku:
Framkvæmdastjórn AB lýsir
fyllsta stuðningi við baráttu
blökkumanna Suður Afríku og
lýsir ítrustu fordæmingu sinni á
kynþáttaaðskilnaðarstefnu hinn-
ar hvítu yfirstéttar þar í landi.
Framkvæmdastjórnin telur að
ríkisstjórn íslands beri þegar í
stað að hlutast til um að öll við-
skipti íslenskra fyrirtækja við
Suður Afríku verði stöðvuð, og
jafnframt að fulltrúum íslands
beri að styðja allar tillögur á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna, sem
miða að því að koma á refsiað-
gerðum gegn stjórn Suður Afr-
íku.
Þarlend stjórnvöld hafa myrt á
áttunda hundrað manna í yfir-
standandi átökum og fangelsað
þúsundir. Einungis með alþjóð-
legri samstöðu mun hryðjuverk-
um stjórnarinnar ljúka og hinar
undirokuðu þjóðir blökkumanna
Suður Afríku ná rétti sínum.
Jafnframt skorar framkvæmd-
astjórnin á ríkisstjórn íslands og
Alþingi að beita öllum mætti sín-
um til þess að Nelson Mandela,
hinn óskoraði leiðtogi blökku-
manna í Suður Afríku, sem hefur
verið í fangelsi um áratugaskeið
verði látinn laus þegar í stað.
kynnir formaður FSY, Viktor A.
Guðlaugsson, niðurstöður úr
nýrri könnun sem félagið hefir
gert á aðstöðu og búnaði í grunn-
skólum og ber þær saman við nið-
urstöður hliðstæðrar könnunar
sem gerð var fyrir fjórum árum.
Sjálfur aðalfundurinn hefst svo
kl. 16 í dag og stendur fram á
sunnudag. _þ|f
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins sendi Útvarpsstjóra
og öllum í útvarpsráði bréf þar
sem bent er á að útsending þáttar
þessa er óbeinn stuðningur við
aðskilnaðarstefnu Suður-Afíku—
stjórnar. Því Cliff Richards hefur
ekki farið eftir þeim tilmælum
Sameinuðu þjóðanna að hætta
við hljómleikaför sína til S-
Afríku, í mótmælaskyni við að-
skilnaðarstefnu stjórnarinnar.
Æskulýðsfylkingin hefur einn-
ig sent starfsmannafélagi sjón-
varpsins bréf þar sem þeir eru
hvattir til að beita sér fyrir því að
þátturinn verði ekki sýndur.
Þorgeir Ástvaldsson sat út-
varpsráðsfundinn og sagði að í
næstu viku yrði flutt á rás 2 viðtal
sem Arnþrúður Karlsdóttir tók
við Cliff Richard í Noregi.
SA
Teigamálið
Borgar-
stjóri
for-
dæmdur
„Stjórn ABR fordæmir fram-
göngu borgarstjórans í Reykja-
vík í hinu svokallaða Teigamáli.
Með tilboði sínu um kaup
Reykjavíkurborgar á húseign
Verndar við Laugateig ýtir borg-
arstjórinn undir kröfur íbúanna
sem byggðar eru á ótta við þessa
nýju nágranna og vanþekkingu á
störfum samtakanna Verndar.
Ærlegur borgarstjóri vinnur að
auknum skilningi og samstöðu
borgarbúa en reynir ekki að not-
færa sér tortryggni eða vanþekk-
ingu til atkvæðaveiða.“
VEGNA HAGSTÆÐRA SAMNINGA VIÐ FRAMLEIÐENDUR
Pkl 1 HJ
m ml H ™ rai - vfcMi H
H Hsm I HP HP'fmi Hn
NISSAN SUNNY
NISSAN PULSAR
336 non
a kr. yvwiUlnli
NISSAN MICRA
á kr.
Aðeins þessi eina sending. Tökum flesta notaöa bíla upp I nýja.
Munið okkar landsfrœgu kjör. Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14-17.
IIXIGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.