Þjóðviljinn - 07.09.1985, Side 8
MENNING
Leikhús
Vetrarannir að hefjast
Meðal verkefna Þjóðleikhússins í vetur er nýtt leikrit eftir Birgi Engilberts og œskuverk Tsékofs
Margt nýtt verður á verkefna-
skrá vetrarinshjáleikhúsum.
Þjóðleikhúsið frumsýnir með-
al annars Grímudansleik eftir
Verdi og Alþýðuleikhúsið
frumsýnir nýtt breskt verk.
Þjóðleikhúsið
Grímudansleikur eftir Verdi
verður frumsýndur 21. septemb-
er. Leikstjóri er Sveinn Einars-
son, hljómsveitarstjóri Maruizio
Barbacini, leikmynd er eftir
Björn G. Bjömsson og búningar
eftir Malín Örlygsdóttur. í helstu
hlutverkum eru Kristján Jó-
hannsson, Kristinn Sigmunds-
son, Sigríður Ella Magnúsdóttir,
Elísabet Eiríksdóttir, Katrín Sig-
urðardóttir, Robert Becker og
Viðar Gunnarsson.
ítalski óperukóngurinn Gius-
eppe Verdi kom við snöggan
blett á ítalskri þjóðarsál með
þessu verki, eins og oft á sínum
ferli. Sagan er byggð á morðinu á
Gústaf III Svíakonungi á grímu-
dansleik í lok 18. aldar, en ítölsku
ritskoðuninni þótti ekki við hæfi
að sýna konungsmorð á leiksvið-
inu og varð tónskáldið þá að
flytja atburðarásina til Boston í
Bandaríkjunum. Það var svo
ekki fyrr en á þessari öld að farið
var að sýna upphaflegu leikgerð-
ina og sú gerð liggur til grundvall-
ar uppfærslu Þjóðleikhússins.
Önnur áskriftarverkefni eru:
Með vífið í lúkunum sem er nýr
breskur farsi eftir Ray Cooney
sem Þjóðleikhúsið sýndi í leikför
um Norður- og Austurland á
liðnu sumri. Þýðandi er Árni
Ibsen, leikstjóri Benedikt Árna-
son og leikmynd er eftir Sigríði
Haraldsdóttur.
Villihunang eftir Anton Tsjék-
hov. Þýðing er eftir Árna Berg-
mann, leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir og leikmynd eftir
Alexander Vassilev.
Villihunang er leikgerð breska
leikritahöfundarins Michael
BÍLASÖLUDEILDIN
er opin í dag frá kl. 1-4
DYRASTI
ALVÖRUJEPPINN
IbQíEwwort
varð í þriðja sæti
í torfærukeppni Stakks
Verð frá 362.000
Getum nú afgreitt læst
drif í allar tegundir Lada
Grayns á æskuverki Tsjékhov,
verki sem jafnan hefur gengið
undir nafninu Platonov. Verkið
er talið samið 1881. Frayn leit á
handritið sem hálfkarað uppkast
að leikriti og samdi upp úr því
gamanleik um ástina og ábyrgð
eða ábyrgðarleysi elskenda.
I deiglunni eftir Arthur Miller.
Þýðing dr. Jakobs Benedikts-
sonar, leikstjóri verður Gísli Al-
freðsson. Nú eru rösk 30 ár síðan
þetta verk kom fyrst fram, en
Þjóðleikhúsið sýndi verkið fyrst
hér á landi árið 1955. Síðan hefur
þetta magnaða leikrit verið sýnt
nánast linnulaust í heimalandi
höfundar og um allan heim. Þó
þeirri tvöfeldni sem bæði eigin-
maður og eiginkona beita til að
verða ekki undir í samskiptun-
um.
Verkefni frá síðasta leikári sem
tekin verða til sýninga að nýju
eru: íslandsklukkan eftir Halldór
Laxness í leikstjórn Sveins Ein-
arssonar kemur aftur á fjalirnar
nú í haust. Kardemommubær-
inn, barnaleikrit Thorbjörns
Egners sem naut gífurlegra vin-
sælda í fyrra. Sýningar hefjast að
nýju í haust. Chicago, söng-
leikurinn um bannárin, eftir Bob
Fosse, Fred Ebb og John Kander
í þýðingu Flosa Ölafssonar og
leikstjórn Benedikts Árnasonar
Galvaskt starfslið Þjóðleikhússins lætur hendur standa fram úr ermunum í
vetur með 8 áskriftarverkefnum. Fyrst á dagskrá er Grímudansleikur eftir Verdi
sem verður frumsýndur 21. september.
atburðir leiksins gerist árið 1692,
í tengslum við nornaréttarhöldin
í Salem í Massachusetts, þá er hér
á ferðinni dæmisaga um nútím-
ann, enda verkið beinlínis tengt
pólitískum viðburðum vestur í
Bandaríkjunum á sjötta áratug
þessarar aldar, McCarthyisman-
um, viðburðum sem höfðu mót-
andi áhrif á þankagang í
stjórnmálum allt fram til dagsins í
dag. í deiglunni verður jólaleikrit
Þjóðleikhússins í ár.
Upphitun sem er nýtt leikrit
eftir Birgi Engilberts. Leikstjóri
verður Þórhallur Sigurðsson.
Verkið lýsir því hvernig uppeldi
og kröfur sem gerðar eru til ung-
lings brjóta hann smám saman
niður og gera hann loks óhæfan
til að þroskast og lifa eðlilegu lífi.
Það að verða undir í lífinu verður
loks skilgreint sem veikindi,
jafnvel alvarlegur sjúkdómur.
Magnað leikrit sem höfundur
hefur samið fyrir tíu konur.
Ballett eftir Marjo Kuusela.
Einn fremsti danshöfundur
Norðurlanda Marjo Kuusela frá
Finnlandi, sem hér er kunn af
Tófuskinninu, Sölku Völku og
fleiri verkum, mun semja og
stjórna ballett fyrir íslenska
dansflokkinn í marsmánuði.
Ríkharður III eftir William
Shakespeare. Þýðinguna gerði
Helgi Hálfdanarson. Leikstjóri
verður John Burgess frá Breska
Þjóðleikhúsinu. Ríkharður III er
fyrsta söguleikrit Shakespeares
sem sýnt er hér á landi og jafn-
framt eitt mest leikna verk meist-
arans.
Passion Play - Ástríðuleikur
eftir Peter Nicholls. Leikstjórn
og þýðing Benedikt Ámason.
Nicholls hefur verið meðal
fremstu leikskálda Breta undan-
farin 20 ár og verður þetta í fyrsta
skipti sem íslenskir leikhúsgestir
fá að kynnast þessum forvitnilega
höfundi. Passion Play er fimm
ára gamalt verk og talið með allra
bestu leikritum höfundarins.
Þetta er hnyttin og vel samin út-
tekt á nútímahjónabandinu og
einkum er athyglinni beint að
og Kenn Oldfield. Þetta verk
kom á fjalirnar seint í vor og
verður tekið til sýninga að nýju í
janúar. Valborg og bekkurinn,
eftir Finn Metling naut gífurlegra
vinsælda á Litla sviðinu í fyrra og
verður tekið upp að nýju í haust.
Áskriftarkort verður hægt að
kaupa á átta fyrstu sýningarnar á
hverju verkefni, en verkefni í
áskrift eru átta að þessu sinni.
Verð áskriftarkorta er kr. 2.600,
en kr. 5.325 á frumsýningar.
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið hefur nú haf-
ið vetrarstarfið af krafti. Þrjár
sýningar eru nú þegar í undirbún-
ingi. I september verður frum-
sýnt á Hótel Borg nýtt breskt
verk undir leikstjórn Kristbjarg-
ar Kjeld. í október verður frum-
flutt nýtt íslenskt verk eftir Val-
garð Egilsson undir leikstjórn
Svanhildar Jóhannesdóttur. Það
verk er farandsýning sem frum-
sýnd verður í Kramhúsinu. Þriðja
verkefnið er nú þegar í æfingu, þó
gjörsamlega húslaust sé og æfa
þar 17 manns „á götunni." Verk
það sem hér um ræðir er Rómeó
og Júlía eftir Shakespeare og er
leikstjóri Bríet Héðinsdóttir.
Vonast er til að sú sýning verði
frumsýnd um miðjan mars.
Spurningin er: hvar? Svarið er
einhversstaðar.
Hitt leikhúsið
Á komandi hausti hefjast sýn-
ingar á Litlu hryllingsbúðinni á
ný með sömu meginkröftum. Eru
áætlaðar um tuttugu sýningar og
hefjast þær í lok september. Hafa
tekist samningar við íslensku óp-
eruna um leigu á Gamla bíó fram
eftir hausti. Má því búast við að
auk þeirra ríflega þrjátíu og sjö
þúsunda sem sótt hafa sýningar
og hljómleika Hins leikhússins á
fyrsta árshelmingi þessa unga fyr-
irtækis komi nokkur þúsund til á
næstu mánuðum. Skipulag næsta
starfsárs er þegar langt komið og
smærri verkefni eru í undirbún-
ingi fyrir áramót.
8 SlÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 7. september 1985