Þjóðviljinn - 07.09.1985, Blaðsíða 15
Niðurskurður á sviði heilbrigðismála hefur verið eitt af helstu hitamálum kosn-
ingabaráttunnar í Noregi. Hérá myndinni sést forsagtisráðherrann, Káre Will-
och, í heimsókn á sjúkrahúsi í Bergen.
HEIMURINN
gagnrýnin á þessa þætti stjórnar-
stefnunnar hafa fengið góðan
hljómgrunn meðal kjósenda því
félags- og heilbrigðismál hafa
verið höfuðmál kosningabarátt-
unnar.
Loftbólur í
utanríkismálum
Öryggis- og utanríkismál hafa
á hinn bóginn verið mun minna á
dagskrá. Að vísu hefur Hægri-
flokkurinn, dyggilega studdur
tveim stærstu blöðum landsins,
Aftenposten og Verdens Gang,
reynt að fæla miðjukjósendur frá
Verkamannaflokknum með því
að gera stefnu hans í utanríkis-
málum róttækari en hún er í raun
og veru.
Þannig hafa hægrimenn reynt
að blása það út að ef Gro Harlem
Brundtland formaður Verka-
mannaflokksins verði forsætis-
ráðherra muni hún skipa varafor-
mann sinn, Einar Förde, í emb-
ætti utanríkisráðherra. Förde til-
heyrir vinstriarmi flokksins og er
yfirlýstur andstæðingur aðildar
Noregs að Nató. Gro Harlem
hefur svarað þessum fullyrðing-
um hægrimanna á þann veg að ef
flokkur hennar kemst til valda
Noregur
En Gro Harlem hefur vaxið
með erfiðleíkum sínum. Hún hef-
ur lært að bregðast við kímnigáfu
Kára og það sem þó hefur vænt-
anlega reynt enn meira á hana:
nenni hefur tekist að koma á ein-
ingu í flokki sínum sem um tíma
ieit út fyrir að vera að leysast upp
í ótal parta. Það kom upp mikill
ágreiningur milli þingflokksins
annars vegar og grasrótarinnar í
flokknum hins vegar um stefnuna
í öryggismálum. Eins og í mörg-
um öðrum krataflokkum álfunn-
ar óx vinstrisinnum í flokknum
mjög ásmegin samfara vexti frið-
arhreyfinganna. Róttækari krat-
ar kröfðust þess að flokkurinn
beitti sér af fullri hörku gegn
staðsetningu nýrra kjarnorku-
vopna Nató í Vestur-Evrópu og
gengju jafnvel úr bandalaginu ef
ekki yrði hætt við hana. Þessar
öldur hefur nú að mestu lægt og
þótt Willoch hafi reynt hvað hann
gat til að berja í brestina hefur
honum ekki tekist að æsa til ó-
friðar um öryggismálin.
Eini flokkurinn sem hefur úr-
sögn Noregs úr Nató á kosninga-
stefnuskrá sinni er Sósíalíski
vinstriflokkurinn, SV. Hann hef-
ur valið sér það hlutverk að toga
um toga. Þeir eru fulltrúar
dreifbýlisfólks og eiga sín höfuð-
vígi á Suðvesturlandinu þar sem
trúarhiti er mestur og mikil hrifn-
ing ríkjandi á hvers kyns boðum
og bönnum. Kristilegir sjá því
rautt þegar Willoch talar um að
hleypa unglingunum í áfengið og
Miðflokkurinn heldur dauða-
haldi í þá stefnu að það verði að
varðveita byggð í afskekktum
sveitum og veita fjármagni frá
nkari svæðum landsins til hinna
fátækari.
En þessir þrír flokkar snúa þó
bökum saman gegn Framfara-
flokki Anders Lange sem dregur
mjög dám af flokki Glistrups í
Danmörku. Hann gengur á flest-
um sviðum svo langt til hægri að
hinir borgaraflokkarnir vilja ekk-
ert við hann kannast, hvað þá
starfa með honum. Til dæmis á
Miðflokkurinn afar erfitt með að
fyrirgefa Lange þau ummæli að
réttast væri að selja Sovétríkjun-
um norðurhéruð landsins, það
borgaði sig engan veginn að
standa undir eilífum taprekstri af
þeim. Samt sem áður hefur
Hægriflokkurinn þurft að reiða
sig á stuðning Framfaraflokksins
af og til þegar liðhlaup hafa kom-
ið upp í samstarfsflokkunum.
Tvisynar kosningar
Vinstriflokkarnirhafa verið í sókn og gœtu veit
hœgristjórn Willochs úrsessi. Þóttþaðgerðister
ekki mikilla breytinga að vœnta í norskri pólitík.
Á mánudaginn ganga norskir
kjósendur að kjörborðinu og á-
kveða hvort framlengja eigi líf-
daga ríkisstjórnar borgaraflokk-
anna eða hleypa hinum sósíal-
demókratíska Verkamannaflokki
að kjötkötlunum. I upphafí kosn-
ingabaráttunnar leit allt út fyrir
öruggan sigur stjórnarflokkanna
þriggja - Hægriflokksins, Mið-
flokksins og Kristilega þjóðar-
flokksins - en á siðustu vikum og
dögum hafa vinstri flokkarnir -
Verkamannaflokkurinn og þó
sérflagi Sósíalíski vinstriflokkur-
inn, SV - mjög sótt í sig veðrið.
Það er því útlit fyrir spennandi
kosninganótt hjá frændum vor-
um.
Staðan á norska þinginu er sú
að stjórnarflokkarnir þrír hafa 79
af 155 þingsætum. Hægriflokkur-
inn er langstærstur með 53 þing-
menn, Miðflokkurinn hefur 11 og
þeir kristilegu eru 15. Stærsti
n _ i i_:_ ' ' ■ • . . - , ,
nOKKuinii) a pingi er po verKa-
mannaflokkurinn með 66 þing-
sæti. Auk þess eiga þrír smá-
flokkar menn á þingi: Framfar-
aflokkurinn sem er yst til hægri
hefur 4, SV sem er lengst til
vinstri á þingi hefur sömuleiðis 4
og miðflokkurinn Vinstri hefur 2
þingmenn.
Blómlegur
efnahagur
Því verður ekki móti mælt að á
þeim fjórum árum serh stjórn
Káre Willochs hefur Verið við
völd hefur efnahagslíf Noregs
dafnað vel. Olían hefur malað
gull, vöruskiptajöfnuðurinn við
útlönd verið hagstæður, verð-
bólgan minnkað og kaupmáttur
mjakast upp á við. Fyrir bfagðið
eiga norðmenn nú digran gjald-
eyrisvarasjóð: 90 miljarða doll-
ara á erlendum bönkum. Eini
bletturinn á þessari glæsilegu
mynd er atvinnuleysið sem hefur
ekki minnkað neitt að ráði þótt
það sé talsvert undir því sem
gengur og gerist í öðrum löndum
Evrópu.
Um þetta er í sjálfu sér ekki
deilt þótt stjórnarandstaðan segi
að þetta sé ekki Willoch og hans
liði að þakka heldur hagstæðum
vindum og uppsveiflum í við-
skiptalífi Vesturlanda. Kosninga-
baráttan hefur snúist um hluti
sem ættu að vera orðnir okkur
íslendingum kunnugir: hvort
stjórnin stefni að því að grafa
undan því velferðarkerfi sem
komið hefur verið á í Noregi.
Þar eins og hér hefur hægri-
stjórnin fylgt þeirri stefnu að
draga úr samneyslu og auka
einkaneyslu. Þó ekki með því að
draga úr skattheimtu því tekju-
skattur hefur sáralítið verið lækk-
aður ef undan eru skilin efstu
skattþrepin; af þeim hefur verið
tekinn mesti brattinn. Á móti
hefur komið hækkun neyslu-
skatta sem leggst jafnt á alla.
Langir biðlistar
En það hefur verið dregið úr
félagslegri þjónustu af ýmsu tagi
en einkum og sérflagi þjónustu
við börn og gamalmenni, svo og
þjónustu sjúkrahúsa. Stórlega
hefur dregið úr byggingum dag-
vistarstofnana með þeim afleið-
ingum að biðlistar hafa lengst; er
talið að 155 þúsund börn bíði eftir
plássi á slíkum stofnunum. Svip-
aða sögu er að segja af elliheimil-
um.
Biðraðir eftir leguplássi á
sjúkrahúsum eru lengri en
nokkru sinni fyrr og bíða 50 þús-
und manns eftir að geta lagst inn.
Á sama tíma standa 2.500 sjúkra-
rúm ónotuð vegna þess að yfir-
völd hafa skorið niður fjár-
veitingar og fækkað starfsliði á
sjúkrahúsum. Það segir svo sína
sögu um framtíðarsýn stjórnar-
innar að í Osló er búið að opna
fyrsta einkasjúkrahús landsins.
Þá geta þeir sem ráð hafa á keypt
sig framhjá biðröðunum. Það
geta þó áreiðanlega ekki þeir 200
þúsund norðmenn sem sagðir eru
lifa af tekjum sem eru undir því
lágmarki sem þarf til mannsæm-
andi framfærslu.
Það er því ekki undarlegt að
stjórnarandstaðan skuli spyrja
hvort ekki megi nota eitthvað af
miljörðunum sem liggja og safna
vöxtum á erlendum bönkum til
að stytta biðraðirnar. Virðist
muni Noregur örugglega halda
áfram að vera í Nató og þar að
auki standi alls ekkert til að gera
Förde að utanríkisráðherra.
Flokkurinn eigi ágætan mann,
Knut Frydenlund, sem hafi gegnt
þessu embætti áður og verði skip-
aður í það aftur ef svo ber undir.
Önnur tilraun hægrimanna til
þess að afflytja stefnu Verka-
mannaflokksins í öryggismálum
var heldur misheppnaðri þótt
Morgunblaðið hafi reynt að gera
sér mat úr henni á forsíðu. Síð-
degisblaðið Verdens Gang birti
þá bréf sem njósnarinn Arne Tre-
holt ritaði þáverandi umhverf-
ismálaráðherra, Jens Evensen,
fyrir mörgum árum og innihélt
ýmsar ábendingar og ráðlegging-
ar á sviði utanríkismála. Þetta
taldi blaðið vera sönnun þess að
Treholt væri í raun og veru höf-
undur öryggismálastefnu Verka-
mannaflokksins. Þessi loftbóla
Gro Harlem Brundtland á fundi með helstu leiðtogum Verkamannaflokksins, í
forgrunni sjást þeir á tali Einar Förde varaformaður flokksins (t.h.) og Tor
Halvorsen formaður norska alþýðusambandsins, LO.
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
sprakk eftir tvo daga og hefur
Treholt að öðru leyti verið haldið
utan við kosningabaráttuna.
Einvígi
Gróu og Kára
Kosningabaráttan hefur öðru
fremur einkennst af einvígi þeirra
Gro Harlem Brundtland og Káre
Willoch. Það er eðlilegt því ann-
að hvort þeirra verður forsætis-
ráðherra að loknum kosningum.
Fyrst eftir að Gro Harlem tók við
forystu í flokki sínum átti hún í
erfiðleikum með að hafa stjórn á
skapi sínu í návist Kára. Kímni-
gáfa Kára er sögð vera fremur
þurrleg útgáfa af kaldhæðni sem
fór endalaust í taugarnar á Gróu
og espaði hana upp.
Verkamannaflokkinn til vinstri
og halda honum við efnið. í kosn-
ingabaráttunni hefur flokkurinn
þó reynt að sveigja hjá beinum
árekstrum við Verkamanna-
flokkinn og það sama hefur verið
uppi á teningnum hjá Gro Harl-
---1------ fw*
Cm Og iClO^Uiii iiCliiiai. rdu w-i
eins og flokkarnir hafi gert með
sér þegjandi samkomulag um að
einbeita sér að baráttunni gegn
höfuðóvininum, Hægriflokkn-
um.
Seljum
Norður-Noreg!
Þótt stjórnarflokkarnir þrír
hafi borið gæfu til að standa sam-
an um stjórnarsamstarfið er ekki
þar með sagt að þeir séu sammála
í einu og öllu. Þvert á móti eru
þeir um margt ólíkir og á sumum
sviðum algerar andstæður.
í Hægri flokknum gætir mjög
þeirrar frjálshyggju sem farið
hefur sem eldur um sinu á Vest-
urlöndum undanfarin ár. Þar á
bæ er talið sjálfsagt að öll höft á
frelsi manna séu afnumin og er þá
yfirleitt sett samasemmerki milli
manna og atvinnurekstrar. Will-
och státar af því að hafa rýmkað
mjög opnunartíma verslana og
vill reyndar afnema allar reglur
þar um. Eins vill hann lækka
aldurstakmarkið sem gildir um
kaup á áfengi og hefur illan bifur
á byggðastefnu.
Miðflokkurinn og Kristilegi
þjóðarflokkurinn eru áf allt öðr-
Hefur það einkum gerst í örygg-
ismálunum.
Engin bylting
í aðsigi
Eins og fram kom í frétt hér í
hlaninu Ó fimmturlnoinn rt* rtlrlri
L..uv>mu U uiiliiuuuugmtl Ll CKKl
við því að búast að iriynduð verði
samsteypustjórn þótt vinstri-
flokkarnir nái meirihluta á þingi.
Gro Harlem mun þá mynda
minnihlutastjórn sem verður að
reiða sig á stuðning SV og
Vinstri. Síðarnefndi flokkurinn
hefur heitið Gro stuðningi á
þingi, svo fremi hann eigi þar
nokkra fulltrúa að kosningum
loknum sem er alls ekki víst.
Sama máli gegnir um SV sem hef-
ur verið í mikilli sókn að undan-
förnu og bætir örugglega við sig
2-3 mönnum.
En þótt stjórnarskipti yrðu
eftir kosningar er þess ekki að
vænta að stórvægilegar breyting-
ar verði í pólitísku lífi Noregs.
Eins og kosningabaráttan hefur
þróast verður engin meiriháttar
breyting á utanríkisstefnunni og
Noregur mun áfram verða í Nató.
Á innanlandsvettvangi má búast
við því að samneysla verði aukin
og áhrif hægristefnunnar á félags-
og heilbrigðismálin þurrkuð út.
Norski Verkamannaflokkurinn
hefur aldrei talist ti! róttækari
flokka álfunnar og SV er of lítill
til þess að hann geti neytt Gro
Harlem til einhverra sósíalískrar
tilraunastarfsemi. - ÞH
Laugardagur 7. september 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15