Þjóðviljinn - 10.09.1985, Page 4

Þjóðviljinn - 10.09.1985, Page 4
LEHDARI Lengra til framtíðar Stundum er sagt aö tími „patentanna'1, alls- herjarlausna í pólitík sé liðinn. „Kommúnismi" sem allsherjarlausn vekur andúö meöal íbúa á Vesturlöndum, vegna þess aö raungering hans í Austur-Evrópu höföar ekki til nema örfárra. Með sama hætti hefur frjálshyggjan reynst í praksís mannfjandsamleg þarsem hún hefur verið reynd í löndum einsog Bretlandi og Bandaríkjunum. Frjálshyggjan sem allsherjar- lausn vekur aðeins andúð í brjóstum flestra manna sem vilja samúö, samstöðu, bróöurþel og samhjálp. Þess vegna hlýtur þaö aö sæta nokkrum tíð- indum meö hversu afdráttarlausum hætti síö- asta þing Sambands ungra sjálfstæðismanna samþykkti frjálshyggjuna samkvæmt greinar- gerð Morgunblaðsins um helgina. Undir gunnfána frjálshyggjunnar hyggjast ungliöarnir í Sjálfstæöisflokknum rústa velferðarkerfið og koma á ávísanaþjóöfélagi, þarsem hinn ríki læsir klónum um æ fleiri þætti þjóðlífsins. Þaö er þó Ijóst, að gegndarlaus frjálshyggja hefur reynst leiöa til hins gagnstæöa viö „idealiö", hún hefur skert frelsi hins fátæka og aimennra borgara. Gera má ráö fyrir aö sigur frjálshyggjunnar innan Sjálfstæöisflokksins muni leiöa til þess, aö á næstunni verði meira fjallað um hug- myndafræðileg efni í pólitískri umræðu. í sjálfu sér er fyrir löngu kominn tími til aö á vettvangi stjórnmálanna sé meira fjallað um hugmynda- fræöileg efni; hvers konar þjóöfélag viljum viö?, og knýja þarf stjórnmálamenn til aö horfa lengra fram á veginn. Oft nær þankagangurinn ekki lengra en til næstu ríkisstjórnar í stað þess aó vinna aö bættri og betri gerö þjóðfélagsins breidd og lengd. í pólitískri umræöu er alltof oft hlaupið framhjá því aö ræöa innihald mála. Þannig er til dæmis ekki spurning fyrir börn og foreldra hvort skólar eru ríkisreknir einkaskólar eöa bara venjulegir grunnskólar. Þaö sem fólk vill eru betri skólar. Því væri eðlilegt að umræöan beindist að því atriði. Svipaö erfariö um þaö sem stjórnmálaflokkar hafa kallað grundvallaratriði í stefnuskrám sín- um. Einn flokkur hefur kallaö sjálfseignarstefnu í húsnæðismálum sitt aöal stefnumál. Síðan hefur sá flokkur stjórnaö peningamálum í landinu á þann veg, að sjálfseignarstefnan er ekki annað en oröin tóm. Aörir flokkar vilja tilaö- mynda koma í veg fyrir vinnuþrælkun, en sætta sig viö kjarasamning sem fela í sér ekki annaö en áframhaldandi vinnuþrælkun fólksins. En þjóöin lifir ekki einungis af krónum og aurum; gera má ráð fyrir aö á næsta þingi veröi töluvert fjallaö um grundvallaratriði á löggjafarsamkom- unni. Hvernig ætlast stjórnmálaflokkarnir til að samskiptum viö hernámsliðið veröi háttaö í framtíðinni? Hvernig skólakerfi á aö vera í landinu til framtíöar? Hvers konar atvinnulíf? Hvers konar öryggi og tryggingar fyrir aldraöa, sjúka og fatlaða? Hvernig á menningarlíf í landinu aö fá aukið olnbogarými? Hvernig er hægt aö auka velferð þegnanna? Það er kom- inn tími til aö viö stefnumótun stjórnmálaflokka og alþingis verði horft lengra til framtíðar en hingaö til og aö stefnur stjórnmálaflokkanna veröi sjálfar notaðar sem mælikvaröi á getu þeirra og árangur. Bréfið sem hvarf í Þjóðviljanum á laugardag kom fram, aö for- ráðamenn Kirkjusands höfðu sent borgarstjór- anum í Reykjavík bréf þarsem óskaö var eftir aöild aö viðræöum um framtíð fiskvinnslu í höf- uðborginni. Bréfið var sent í júnímánuði sl. en hefur enn ekki komið fram í viöræöunefnd borg- arinnar. Bréfinu var stungiö undan. „Sú máls- meðferð sýnir svo ekki verður um villst aö viö- ræöur varöandi framtíð fiskvinnslunnar snúast um þaö eitt aö sameina BÚR og ísbjörninn hvaö sem þaö kostar og að borgarstjóri lætur ekki svo lítiö aö sinna því verkefni sem haft er aö yfirskini, það er aö kanna alla möguleika til hag- ræðingar fiskvinnslunnar í Reykjavík," sagöi Sigurjón Pétursson í viötali viö Þjóðviljann. Þessi uppljóstrun ýtir enn frekar undir þær grunsemdir aö Sjálfstæðisflokkurinn sé meö sameiningunni að bjarga flokksfélögum í pen- ingavandræðum. Þaö er aumkunarvert mark- miö hjá Davíð. Borgarstjórinn í Reykjavík á aö gæta hagsmuna borgarbúa. -óg. KUPPT OG SKORID Hinir hógværu yfirbugaðir Þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson skipti Sjálfstæðis- flokknum í fylkingar í ítarlegri grein í Mannlífi fyrir nokkrum mánuði, vakti nokkra athygli hvernig yfirstjórn Morgunblaðs- ins var skipt á milli skoðanahóp- anna. Matthías Johannesen var sam- kvæmt þesari greiningu í fylkingu með mönnum einsog Geir og Haralz, leiftursóknaríhaldi sem þó aðhylltist ekki ómengaða frjálshyggju. Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri var hins vegar alveg útá frjálshyggjukantinum, meðan Styrmir Gunnarsson var settur á miðjuna. „Miðjumoðið“ var fylking hinna hógværu kölluð; fylking þeirra sem fram á þessa tíma hafa ráðið miklu í Sjálfstæðisflokknum, verið vald- amest. Styrmir í Síberíuvist Sú var tíð, að talið var að hinir hógværu myndu erfa landið. En í Sjálfstæðisflokknum er þessu ekki þannig farið, ef marka má grein Guðmundar Magnússonar blaðamanns í Morgunblaðinu, um SUS-þing sem nýlega var haldið á Akureyri. Greinin er samfelldur óður til frjálshyggj- unnar og sagt að ekkert annað hafi komist að á þinginu: „enginn kvaddi sér hljóðs til að andmœla frjálshyggjunn i “ og viðhorf „miðju-moðsins“ heyrðist ekki, að sögn Guðmundar. Höfundur viðurkennir að pó- litík hinna hógværu hafi gert Sjálfstæðisflokkinn að fjölda- hreyfingu, en hann sér greinilega glitta í nýja tíma, þarsem frjáls- hyggjan nær yfirhöndinni. Ekki er nóg með að sparkað sé í miðju- menn, - og þarmeð Styrmi Morg- unbiaðsritstjóra, heldur þarf endilega að fylgja með einn í verkalýðsforystu Sjálfstæðis- flokksins, Björn Þórhallsson. Það er orðað svona smekklega: „Ekki hefur tekist að sannfœra verka- lýðsforystu flokksins um að laun- þegar hafi meiri hag af frjálsum markaðsbúskap, en haftastefnu og ríkisforsjá". Það er dálítið merkilegt hvern- ig komið er í Sjálfstæðisflokknum einsog í kommúnistaflokkunum á fyrstu áratugum aldarinnar. Það er ekki nóg að Björn Þórhallsson hafi svikalaust lýst yfir hollustu sinni í orði og á borði við kapital- ismann, heldur er það ekkert að marka fyrr en hann hefur skrifað uppá Friedman og frjálshyggj- una. Þetta var eins hjá kommunum í gamla, gamla daga. Það var ekki nóg að lýsa yfir stuðningi við kommúnismann, heldur þurfti Lenín og síðan Stalín að fá upp- áskrift líka. Annars Síbería. Og hver veit nema fari fyrir Birni og Styrmi þegar SUS verður allsráð- andi, einsog fyrir Malenkof sem forðum varð rafveitustjóri nyrðra. Ætlar Björn Bjarnason og frjálshyggjuliðið í SUS að senda þá Björn Þórhallsson og Styrmi Gunnarsson í Síberíuvist? Handhafar réttlætisins Styrmir fær ekki beinlínis stuðningsyfirlýsingu frá blaða- manni sínum: „hefðbundin miðj- ustefna í stjórnmálum hefur beðið skipbrot". Og einsog þeir sem höfðu uppáskrifaða allsherjar- lausnina á fyrstu áratugum aldar- innar hefur stuttbuxnadei'din höndlað Veginn, Sannleikann, Lífið á SUS-þingi með túlkun blaðamannsins: „Leið frjáis- hyggjunnar er fersk og spenn- andi, sameinar hugmyndir um réttlœti og hagkvœmni, og höfðar sérstaklega til ungs fólks". Les- andi góður, reyndu að setja kunnugleg hugtök í stað „frjáls- hyggjunnar" í setninguna hér fyrir framan, og sjá, - kannastu ekki við hana? Píslarvætti Þó hrifningin sé mikil, þá er „raunsætt mat“ með í för blaða- mannsins um ódáinsakur frjáls- hyggjunnar. „Pað er hins vegar Ijóst að ýmsir áhrifamenn í Sjálf- stœðisflokknum munu beita sér gegn því að hinar róttæku tillögur SUS nái fram að ganga. “ Og þessi skýhnoðri í heiðríkju andans, angrar blaðamann Morgunblaðs- ins, þannig að á þetta er oftast minnst: „Tillögur SUS-þingsins munu mœta andstöðu innan Sjálf- stæðisflokksins og utan hans.“ Og síðar: ,rAuðvitað verður róð- urinn þyngri meðal eldri flokks- manna. “ Ávísana- félagið Hinar róttæku hugmyndir sem vitnað er til, eru mestanpart gam- alkunnar lummur úr bakaríi frjálshyggjunnar, svosem einsog að skera niður samfélagslegan rekstur dagheimila, skóla og heilbrigðisþjónustu. Það sem á að koma í staðinn, er t.d. ávísan- akerfi. Einna helst ber að skilja það þannig, að hver fjölskylda fái ávísanahefti uppá: a) skóla, b) dagheimili, c) lyf, d) spítala. Ávísunin gæti verið meðaltals- krónufjöldi per mann í landinu en allt sem fer fram yfir þá upp- hæð er viðkomandi fjölskyldu frjálst að greiða fyrir. Við látum útfærslu á þessu ávísanabraskerfi bíða um hríð en víkjum lítillega að öðrum gamanmálum á SUS- þinginu. Vantar fólk Skólakerfið í dag framleiðir „meðalmenni“ segja ungliðar og í heilbrigðiskerfinu er stöðug „hagsmunatogstreita stéttarfélaga heilbrigðisstarfsmanna sem sífellt taka til sín stœrri hlut útgjald- anna.“ Jamm, það er hátt kaupið! Greinarhöfundur viður- kennir að þeir hópar og stéttir sem ungir sjálfstæðisflokksmenn ætla að skera niður við trog hafi ekki verið ýkja fjölmennir á SUS- þingi: „Þar vantar t.d. fleiri grunnskólakennara, fóstrur og hjúkrunarfræðinga. “ Það er líka sjaldan að forysta Sjálfstæðisflokksins þekki til slíkra starfa. Hún er nú hin síðari árin tekin beint af kontórum Vinnuveitendasambands ís- lands. Áður en Þorsteinn Páisson varð formaður Flokksins, var hann framkvæmdastjóri VSÍ og á SUS-þinginu kusu ungliðarnir sér hagfræðing VSÍ, Viihjálm Egils- son að formanni. Aldrei verður heimssýn Fram- sóknarflokksins svo snautleg að sækja alla sína forystu í Sölv- hólsgötu, - Alþýðubandalagsins á Grensásveg, - Alþýðuflokksins Fálkagötu. Aldrei. _ óg. DJÚÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, Sævar Guð- björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Ólason, Valdís Óskarsdóttir. Útlit og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýslngastjórl: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttit, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bilstjóri: ólöf Sigurðardóttir. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 35 kr. Sunnudagsverð: 40 kr. Áskriftarverð á mánuði: 400 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.