Þjóðviljinn - 02.10.1985, Side 3
FRETTIR
Tryggingafélögin
Verðstríð hafið
Ingi R. Helgason forstjóri BÍ: Samvinnutryggingar köstuðu
stríðshanskanum. Tryggingafélögin komin á sömu braut og
bankarnir ísamkeppninni. Verðstríðið mun leiða til bullandi
taps hjá tryggingafélögunum
Brunabótafélagið átti ekki ann-
arra kosta völ en að lækka ið-
gjöldin eftir að Samvinnutrygg-
ingar höfðu kastað stríðshansk-
anum með hinni stórfelldu lækk-
un iðgjalda í tilboði sínum til
Hafnarfjarðarbæjar. Vissulega
hefur verið samkeppni milli
tryggingafélaganna, en nú er
bullandi verðstríð bafið, sams-
konar kapphlaup og bankarnir
hafa átt í undanfarin misseri.
Umferðarmenning
Unga fólkið
og umferðin
Umferðarvika í Reykja-
vík 7.-13. október
Stefnt að slysalausum
föstudegi
Dagana 7.-13. október n.k.
gengst umferðarnefnd
Reykjavíkurborgar fyrir áróð-
urs- og upplýsingaherferð til að
bæta umferðarmenningu og
fækka slysum í borginni. M.a. er
stefnt að slysalausum föstudegi í
Reykjavík og myndi það sæta tíð-
indum, því föstudagarnir eru erf-
iðustu dagar vikunnar og slys og
árekstrar aldrci fleiri en þá.
Ólafur Jónsson framkvæmda-
stjóri Tónabæjar hefur undirbúið
þessa umferðarviku, þar sem sér-
staklega verður beint kastljósi á
unga fólkið m.a. í tilefni af ári
æskunnar. Ólafur sagði í gær að
yrði gefinnn út bæklingur þar sem
umferðin yrði skoðuð með
augum barna og unglinga og
skólabekkir 11-14 ára barna
myndu gera umferðarkönnun
upp á eigin spýtur og vinna úr
niðurstöðunum í skólunum.
Ólafur sagði að þó áhersla yrði
lögð á unga fólkið í umferðinni þá
ætti umferðarvikan erindi til allra
borgarbúa og verður sérstaklega
fjallað um gamla fólkið sem verð-
ur helst fyrir slysum þegar það er
að fara yfir götu. Margt verður
um að vera þessa fyrirhuguðu
umferðarviku og verður dagskrá-
in kynnt síðar. _
Þetta sagði Ingi R. Helgason
forstjóri Brunabótafélagsins í
samtali við Þjóðviljann í gær í ti-
lefni þeirra miklu iðgjaldalækk-
ana sem Samvinnutryggingar í
Hafnarfirði og Brunabótafélagið
í Garðabæ hafa boðið að undan-
förnu.
Ingi benti á að Samvinnutrygg-
ingar hefðu aðeins boðið Hafn-
arfjarðarbæ þessi kjör en þar
hefðu einmitt orðið hvað fæst
brunatjón miðað við önnur
bæjarfélög á undanförnum árum.
Ingi sagðist ekki vita hvort Sam-
vinnutryggingar væru tilbúnar til
að bjóða sömu kjör á þeim stöð-
um þar sem tíðni brunatjóna væri
hvað mest.
Brunabótafélagið hefur samn-
inga við 187 sveitarfélög og stjórn
félagsins ákvað 29. september að
lækkun sú á grunniðgjöldum,
sem samið var um við Garðabæ,
taki til allra sveitarfélaga sem
hafa samninga við Brunabótafé-
lagið, en það er yfir 90% af
samanlögðu brunabótamati utan
Reykjavíkur.
Þá nefndi Ingi sem dæmi að
þegar frystihúsið á Hellissandi
brann hefði það fé sem Bruna-
bótafélagið varð að greiða numið
sem nemur öllum iðgjöldum
vegna brunatrygginga á Hellis-
sandi næstu 80 árin. Tjónið vegna
brunans á Seltjarnarnesi í gær
nemur öllum iðgjöldum sem Sel-
tirningar greiða fyrir sínar trygg-
ingar næstu 10 árin.
Það er því alveg ljóst að þetta
iðgjaldastríð sem nú er hafið mun
leiða til mikils tapreksturs á
tryggingafélögunum í framtíð-
inni, sagði Ingi R. Helgason að
lokum.
- S.dór
Samkeppni
Útilista-
verk í nýjan
miðbæ
Ákveðið hefur verið að efna til
samkeppni um gerð útilistavcrks
eða skúlptúrs í tilefni af 200 ára
afmæli Reykjavíkurborgar næsta
sumar. Skipulagsnefnd hefur lagt
til að verkinu verði fundinn stað-
ur á torgi norðan Borgarleikhúss-
ins í Nýja miðbænum.
Það er stjórn Kjarvalsstaða
sem hefur samþykkt að efna til
samkeppninnar og sagði Þóra
Kristjánsdóttir, listráðunautur
hússins, í gær að hún yrði auglýst
strax og tekin hefði verið ákvörð-
un um staðsetningu.
Þá hefur einnig verið ákveðið
að Kjarvalsstaðir sýni „Reykja-
vík í myndlist" á listahátíð næsta
vor en ekki hefur enn verið
gengið frá sýningartíma.
- ÁI
......imirfitiTl----
V,n 'l" > •>
Hlutavelta var haldin í Breiðholtinu um helgina. Félagarnir Óttar örn Helgason, Arnór Hauksson og Haukur Snær Hauksson sem eiga
heima í Kleifarselinu komu í ritstjórn Þjóðviljans í gær með 500 kr. sem þeir báðu blaðið um að afhenda Hjálparstofnun kirkjunnar. Höfðu þeir
á orði að fólkið í Mexíkó myndi örugglega hafa þörf fyrir peninginn. Ljósm. Sig. _____________________________
Bótahœkkunin
Gamla folkið
fær 670 krónur
Hámark bóta 15.557 kr. til einstaklinga,
22.828 kr. til hjóna.
Ellilífeyrir hækkar um 231 kr.
í gær fengu ellilífeyrisþegar
sem búa einir og hafa engar tekj-
ur 670 krónu hækkun á trygginga-
bætur sínar. Bætur almanna-
trygginga hækka í dag í samræmi
við kjarasamninga um 4,5% og
verður elli- og örorkulífeyrir ein-
staklinga þá 5.354 krónur, full
tekjutrygging 7.844 krónur og
heimilisuppbót 2.359 krónur.
Hámark bóta til einstaklinga
verður því 15.557 krónur á mán-
uði, 670 któnum hærra en í sept-
ember.
Hjónalífeyrir hækkar í 9.637
krónur og full tekjutrygging
hjóna í 13.261 krónu, samtals að
hámarki 22.828 krónur á mánuði.
Barnalífeyrir vegna eins barns
hækkar í 3.278 krónur og mæðra-
laun vegna eins barns í 2.055
krónur. Fullt fæðingarorlof verð-
ur 23.958 krónur. Þessar hækk-
anir svo og samsvarandi hækkan-
ir á öðrum bótum almannatrygg-
inga verða greiddar út 10. októ-
ber n.k.
-ÁI
Mlftvikudagur 2. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Kasparov jafnar
Hvítt: Garry Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Nimzoindversk vörn
1. d4
Leikið eftir langa umhugsun.
Ekki vegna þess að Kasparov
væri í vafa um hverju hann ætti að
leika í fyrsta leik, heldur vegna
þess að hann vildi með þessu
mótmæla þeirri ókurteisi Karp-
ovs að mæta alltaf of seint til
leiks. Þegar Karpov var ekki
mættur eftir dágóða stund, þá
gekk Kasparov til yfirdómarans
og bað hann kurteislega um að
láta gera ráðstafanir til að finna
manninn. En að lokum kom
Karpov og svaraði upphafsleik
áskorandans með...
1. - Rf6
2. c4 eó
3. Rc3 Bb4
Það má heita öruggt að þessum
leik leikur Karpov ekki aftur í
einvíginu.
4. RO 0-0 6. e3 cxd4
5. Bg5 c5 7. exd4 h6
8. Bh4 d5 11. 0-0 Be7
9. Hcl dxc4 12. Hel b6
10. Bxc4 Rc6 13. a3 Bb7
Báðir keppendur hafa nú lokið
liðskipan sinni og miðtaflið hefst.
14. Bg3 Hc8 18. hxg3 exd5
15. Ba2 Bd6 19. Bxd5 Df6
16. d5 Rxd5 20. Da4 Hfd8
17. Rxd5 Bxg3 21. Hcdl Hd7?
21. - Hc7 hefði verið tilvalið.
Þá má svara 22. Dg4 með Bc8 23.
Dc4 Hcd7 með ágætri stöðu.
22. Dg4!
Hér kemur einn af hinum
frægu löngu leikjum Kasparovs.
Hann er auk þess þræl lúmskur.
metin
22. - Hcd8?
Uggir ekki að sér. Hérna hefði
verið betra að leika H7d8 þó að
hvítur sé í stórsókn eftir
23. He4
23. Dxd7! Hxd7
24. He8+ Kh7
25. Be4+ gefið.
Eftir 25. - g6 26. Hxd7 kemst
svartur ekki hjá frekari Iiðstapi
(26. - Ba6 27. Bxc6).