Þjóðviljinn - 18.10.1985, Síða 2

Þjóðviljinn - 18.10.1985, Síða 2
FRETTIR Stúdentaráð Vaka heldur í hefðina Kosið um breyttfyrirkomulag 1. desember hátíðahaldanna ínœstu viku. Vinstri menn vilja vekja meiri áhugafólks á dagskránni. Vaka á móti Við trúum ekki öðru en að fólk sem hefur verið að tala um brcytt fyrirkomulag hátíðahald- anna 1. dcscmber, muni veita þessum nýju hugmyndum okkar stuðning sinn í kosningunum í næstu viku. Kosningarnar munu snúast um tilraun okkar til að vekja meiri áhuga fólks fyrir 1. desember, eða viija Vöku til að halda í hið hefðbundna fyrir- komulag, sagði Guðmundur Auðunsson fulltrúi vinstri manna í Stúdentaráði Háskólans í sam- tali við Þjóðviljann í gær. í síðustu viku slitnaði upp úr viðræðum vinstri manna, Um- bótasinna og Vöku um að hátíða- höldin verði skipulögð af þessum félögum sameiginlega. Rætt var um að breyta fyrirkomulagi há- tíðahaldanna þannig að brugðið yrði út af hinu hefðbundna fundarformi eingöngu. Auk fundarins í Háskólabíói vildu vinstri menn að haldin yrði ráð- stefna um Háskólann og stöðu hans í hátíðasal skólans og að jafnframt yrði opið hús í Félags- Alþingi Spurt um... ...ráðningu í kennarstöður og starfsréttindi kennara Hjörleifur Guttormsson spyr menntamálaráðherra hversu margir réttindalausir menn hafi verið ráðnir til starfa í skólunum í haust og hvaða ráðstafanir ráðu- neytið hyggist gera til að greiða fyrir því að eingöngu kennarar með full réttindi ráðist til skóla- nna. Þá spyr Hjörleifur hvað líði undirbúningi frumvarps til laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum kennara. ...aukafjárveitingar Kjartan Jóhannsson spyr fjár- málaráðherra hvaða aukafjár- veitingar hafi verið veittar fram til 15. október að þessu ári. Kjartan biður um upplýsingar um hverja fjárveitingu fyrir sig og spyr jafnframt hvort viðkomandi fagráðherra hafi óskað eftir aukafj árveitingum. ...löggæslu á höfuðborgarsvæðinu Salóme Þorkelsdóttir og Olafur G. Einarsson spyrja dómsmála- ráðherra hvað líði úttekt á lög- gæslu á höfuðborgarsvæðinu og hvort þess sé að vænta að komið verði upp lögregluvarðstöð í Mosfellshreppi og Garðabæ. ...kjötflutning á Völlinn Kjartan Jóhannsson hefur lagt svofellda fyrirspurn fyrir forsæt- isráðherra: „Nú þegar fyrir liggur að dómstólar muni ekki úrskurða um stjórnarstefnuna eins og ríkis- stjórnin hafði óskað eftir, varð- andi innflutning á kjöti til varn- arliðsins, hvaða tökum hyggst þá ríkisstjórnin taka þessi mál eða er þess að vænta að áfram verði sú skipan að kjötinnflutningurinn með skipum sé bannaður, en leyfður með flugvélum?" stofnun, þar sem unnt yrði að vera með listadagskrá með meiru. „Hugmyndin var þá að hafa fundinn í Háskólabíói af léttara taginu, en ráðstefnan myndi þá fjalla um hin alvarlegri málefni. Þessu hafnaði Vaka og vill halda fast við gamla fundarf- orrnið," sagði Guðmundur. Kosið verður um 1. desember dagskrána á þriðjudagskvöldið og miðvikudaginn í næstu viku. Kosið verður um yfirskrift dags- ins og sjö manna lista frá Vöku annars vegar og vinstri mönnum hins vegar. Yfirskrift vinstri manna verður Háskólinn í allra þágu, og ef hún verður ofan á í kosningu munu vinstri menn að sögn Guðmundar bjóða fjöl- mörgum aðilum til samstarfs um framkvæmdina, Vöku, Umbóta- sinnum, kennurum og öðru starfsfólki, deildafélögum stúd- enta og jafnvel öðrum náms- mannahreyfingum. gg Björn Th. Björnsson og Guörún Kjarval virða fyrir sér litskyggnur fyrstu bókarinnar. Ljósm. E.ÓI. Kjarval Lilskyggnur koma út Itilefni 100 ára fæðingarafmælis Jóhannesar S. Kjarvals gefur Listasafn ASÍ út þrjár 36 mynda litskyggnubækur með verkum Kjarvals. Fyrsta bókin Jóhannes S. Kjarval 1885-1930 eftir Björn Th. Björnsson er komin út. Hinar tvær bækurnar eru eftir Hrafnhildi Schram og ná yfir tímabilin 1930-1946 og 1946 til 1968. Ljósmyndirnar í litskyggnu- bækurnar tók Kristján Pétur Guðnason hjá Skyggnu og eru þær fjölfaldaðar í Englandi. Bæk- umar eru gefnar út í 500 ein- tökum hver og kosta 900 krónur. Björgunartæki Að komast í nauð Hafinn er innflutningur á hinu heimsfræga björgunartæki „Survival“ frá Toledo á Spáni. Hér er um að ræða hníf, sem hef- ur 20 aukatæki sem miða að því að menn geti komist af með þau á sér við erfiðustu aðstæður. Hníf- urinn í hylki er 600 grömm. Hjálpar tækin eru auk hnífs- blaðsins Hægt er að mynda víraklippur með því að beita hnífnum og hylkinu saman. Á hylkinu er skrúfjám og morsspegill. Á bakka hnífsins eru bæði járn og trésög. Á blaðinu er skali til að taka sólarhæðina ef menn eru villtir. Þá er einnig skali til að mæla vegalengdir á korti. Al- þjóðleg hjálparmerki eru einnig grópuð á hnífsblaðið. Á hnífs- bakkanum er mið til að mæla hæðir fjallstinda. Á enda hand- fangsins er hamar. Inní . handfangi hnífsins er kompás. Þá er þar einnig hylki og utan á því er starfrófið ásamt morsstafrófinu. Inní hylkinu er fiskilína, sem hægt er að festa við hnífinn og breyta honum þar með í veiðistöng. I hylkinu eru einnig Hnífurinn góði frá Toledo, en hann koma í góðar þarfir ef menn lenda í önglar, flotholt og sökkur. Þrjár neyðarblyseldspýtur, brenni- steinn, málmstöng til að kveikja með eld ef eldspýtur blotna. Saumnál, dauðhreinsuð læknas- aumnál, dauðhreinsaður lækna- hnífur, og plástrar; einnig vökvi til að hreinsa sár. Þetta tæki var 5 ár í hönnun og prófun áður en farið var að fram- leiða það, en mesta viðurkenn- ingu fékk tækið þegar öllum v- þýskum hermönnum var gert að bera svona hníf og keyptu v-þýsk hernaðaryfirvöld alla ársfram- leiðslu verksmiðjunnar í Toledo 1984. Allar líkur eru á að jap- anski herinn muni einnig taka þetta tæki upp hjá sér. Það er Marto umboðið sem sel- hefur að geyma 20 fylgihluti sem hrakningum. Ljósm. E.OI. ur þennan hníf hér á landi og er hægt að fá hann sendan í póst- kröfu. Upplýsingar eru gefnar í síma 671190 eftir kl. 19.00 á kvöldin og allar helgar. ■T0RGIÐ' Skyldu konurnar skipta um stól við Nordal? SAVES Vilja byggja hvfldar- heimili Stofnuð hafa verið samtök að- standenda vímuefnasjúklinga, SAVES og segir í frétt frá sam- tökunum að eitt meginverkefni þeirra sé að byggja hvíldarheimili fyrirþreytta aðstandendur. Kjör- orð þeirra er „Eitur af eyju“. Er áheita óskað til að starfrækja samtökin og geta menn greitt inn á gíró 63890-0 en póstfangið er SAVES pósthólf 9062 Reykja- vík. í frétt frá SAVES segir m.a.: Við erum hópur fólks á öllum aldri, sem erum orðin þreytt á að vera tvístruð í feluleik með hugs- anir okkar varðandi ýmsar úrbæt- ur. Við höfum áhuga á að stilla saman strengi allra aldurshópa. Reynum að muna að góðir hlutir gerast hægt.“ Nánari upplysingar um sam- tökin er að fá í ofangreindu póst- fangi. Hlutaffélag um áramót Um næstu áramót verður sú breyting á rekstrarformi ferða- skrifstofunnar Útsýnar að fyrir- tækinu verður breytt í hlutafélag. Ingólfur Guðbrandsson stofn- andi og einn eigandi verður áfram eigandi að 50% hlutafjár en meðeigendur Þýsk-íslenska hf, Ómar Kristjánsson forstjóri, Magnús. Gunnarsson viðskipta- fræðingur og Helgi Magnússon. Ingólfur Guðbrandsson verður áfram forstjóri. Gert er ráð fyrir að allt núver- andi fastráðið starfsfólk Útsýnar, um 30 að tölu, muni starfa áfram hjá Útsýn hf. Er ætlunin að fyrir- tækið hasli sér völl að nýju í mót- töku erlendra ferðamanna. Fyrstu 9 mánuði þessa árs ferð- uðust um 10.000 farþegar í áætl- unarflugi milli landa á farseðlum frá Útsýn auk um 4000 farþega f leiguflugi. - v. 2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. október 1985 Fjórðueigs samdráttur Pað sem af er árinu hefur orðið um fjórðungs samdráttur í nýbyggingum samkvæmt upplýs- ingum sem Þjóðviljinn hefur aflað sér hjá Húsnæðisstofnun. Frá ársbyrjun til september- loka höfðu stofnuninni borist 949 vottorð um fokheldi íbúða en á sama tíma í fyrra höfðu stofnun- inni borist samtals 1227 fokheldis- vottorð samkvæmt upplýsingum Sigurðar E. Guðmundssonar for- Husnæðisstofnunar. Inm hvorugri þessari tölu eru bygg- ingar samkvæmt verkamanna- bústaðakerfinu, en ljóst er að al- mennar íbúðabyggingarfram- kvæmdir hafa dregist saman um fjórðung frá fyrra ári. ~lg-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.