Þjóðviljinn - 18.10.1985, Síða 8
GLÆTAN
Melody Makers
Börn Bobs og Ritu
Marley
í fótspor foreldranna
Bob heitinn Marley var kyn-
sæll maður. Hann eignaðistá
annan tug barna- 5 með Ritu
konu sinni, sem þar að auki ól
upp tvö sem hann átti með
öðrumstúlkum;þáeignaðist
Bob barn með „Ungfrú al-
heimi 1976“, sem var f rá Jam-
aica, og bresku blaðakonunni
Vivian Goldman, en ekki
kunnum vér að mæðrafleiri
barna regg-konungsins.
Fjögur barna Bobs og Ritu
Marley hafa fetað í fótspor for-
eldranna út á hljómlistarbrautina
og starfað saman í nokkur ár í
hljómsveitinni Melody Makers.
Þau byrjuðu að koma fram á
barnsaldri með föður sínum á
Jamaica, hafa gefið út eitthvað af
plötum þar og sungu t. d. við útför
föður síns, ásamt Wailers, en
Bob Marley lést 11. maí 1981. Þá
hafa Melody Makers tekið þátt í
hinni árlegu regg-hátíð, Sun-
splash, sem haldin er í Montego
Bay á Jamaica.
I Melody Makers fer fremstur
sonurinn David „Ziggy“ Marley,
sem er laga- og textasmiður, að-
alsöngvarinn og leikur á ryþma-
gítar og ásláttarhljóðfæri (viður-
nefni hans gefur til kynna aðdáun
á David Bowie og söguhetju hans
Ziggy Stardust). Hann er 17 ára.
Hin systkinin syngja og heita Ste-
vie (15 ára), Sharon (16) og Ci-
della (19), en hún heitir í höfuðið
á föðurömmu sinni sem líka fæst
við söng og býr á Miami í Banda-
ríkjunum.
Rita Marley rekur nú hljóðver-
ið og hljómplötufyrirtækið Tuff
Gong sem Bob Marley stofnaði á
Jamaica og mun umsvifamikil í
plötuútgáfu þar og syngur líka
inn á plötur sjálf af og til.
Nýverið kom út plata með
Melody Makers sem ber nafnið
Play the game right, eiginlega
„Leiktu drengilega", og er átt við
lífið sjálft; textarnir eru í anda
Bobs Marley um óréttlætið í
heiminum, rangláta auðskiptingu
og sök „stóra mannsins" og
„vonda karlsins“ þar á og þeim
sagt að pakka saman ríkidæmi
sínu og fara til andskotans.
í fljótu bragði virðist sem David
„Ziggy" Bobsson Marley sé rót-
tækari en faðir hans í textagerð-
inni... en aðathuguðu máli skilur
líklega á milli þeirra að faðirinn
var myndrænni í hugsun og orð-
inn eldri og lífsreyndari þegar
hans textar komu fyrir almenn-
ingssjónir en raunin er með son
hans. Hins vegar eru raddir
þeirra ekki ólíkar en Bob var
töluvert rokkaðri í sinni músík-
iðju en sonurinn... enda hafa
„Melódíumakararnir“ líka tekið
ýmislegt í arf frá móður sinni sem
hefur sungið regg á Ijúfari nótum
og hefðbundnari en regg-
kóngurinn.
Hinn „Drengilegi leikur"
„Melódíugerðarfólksins“ er
skemmtilegur og jafnvel líka há-
tíðlegur að manni fínnst, en það
er nú kannski bara tilfínning sem
sumir fá við að hugsa um að bless-
uð bömin séu að reyna að halda
áfram starfi föðurins, sem var
blökkum og ranglæti beittum
einskonar pólitískur trúarleiðtogi
með tónlistina að vopni. Og enda
þótt sannkristnum eða sannó-
kristnum mönnum þyki leiði-
gjamt trúarhjal þeirra Rastafarí-
manna skulu þeir ekki gleyma því
að trú þeirra er sameiningartákn
gegn nýlenduherrum og auk þess
frjálslegri og róttækari en okkar
hvíta kristni, þótt sumt komi oss
spánskt fyrir sjónir.
A(men)
P.S.: Rétt er að geta þess að fé-
lagar Bobs úr Wailers og fleiri
þekktir regg-tónlistarmenn spila
með Marley-krökkunum á Play
the game right.
Marley-börnin við lúdóspil í Rastafar-
íastíl, þar sem byrjunarreitirnir heita
Zíon, Babýlon, Jerúsalem og Eþíóp-
ía. Hinum megin á umslaginu er
samskonar spil sem eigendur plöt-
unnar geta brugðið sér í. Stephen er
lengst til vinstri, þá Sharon og David,
sem líkist föður sínum töluvert. Hórna
megin við spilið er Cedella.
Hinn margra barna faðir Bob Marley.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir
(-) 1. Stronger together - Shannon
(3) 2. Secret - OND
(—) 3. Animal instinct - Commodores
(-) 4. You can win if you want
-Modern Talking
(5) 5.1’m a lover
(-) 6. We don’t need another hero
-Tína Turner
(10) 7. Into the groove - Madonna
(8) 8. Tarzan Boy - Baltimora
(7) 9. You are my heart you are my soul
-Modern Talking
(2) 10. All fall down - Five star
Grammid
(1) 1. Low life - New Order
(2) 2. Kona - Bubbi Morthens
(3) 3. Skemmtun - Meö nöktum
(7) 4. Theames 2 - Psychic TV 2
(-) 5. True sides of the beast - Gun Club
(-) 6. How will the wolf survive - Los Lobos
(-) 7. A seacret wish - Propaganda
(9) 8. First circle - Pat Metheny
(-) 9. Don’t forget that beat - Fats comet
(-) 10. The dream of the blue turtles - Sting
Rás 2
1. (1) Maria Magdalena - Sandra
2. (6) Cherish - Cool & the Gang
3. (2) Part time lover - Stevie Wonder
4. (9) This is the night - Mezzoforte
5. (3) Dancing in the street - Bowie/Jagger
6. (4) Unkiss that kiss - Stephen A. J. Duffy
7. (10) Take on me - A-ha
8. (15) Dress you up - Madonna
9. (12) You’re my heart you’re my soul
- Modern Talking
10. (7) Pop life - Prince
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN , Föstudagur 18. október 1985.