Þjóðviljinn - 27.10.1985, Síða 5
Netagerð og vélstjórn eru hlið við hlið ( Kvennasmiðjunni en
þessar greinar eiga það sameiginlegt að hafa aðeins eina konu
hvor innan sinna vébanda. Hér má sjá einu útlærðu netagerðar-
konuna á (slandi, Elvu Dís Arnórsdóttur kynna starfsgreinina.
„Nú skal ég sýna þér hver er munurinn á togi og þeli“, sagði Adda
Bára Sigfúsdóttir við flokkssystur sína Guðrúnu Helgadóttur, þeg-
ar Ijósmyndari gómaði þær á kynningarsvæði náttúrufræðinga.
Ljósm. A.l.
Kátína í bás dýrafræðinganna: Salóme Þorkelsdóttir og Sverrir
Hermannsson voru meðal þeirra sem heimsóttu Kvennasmiðjuna
á fyrsta degi en sýningin verður opin kl. 14-22 um helgina. Henni
lýkur 31. október. Ljósm. Ál.
Gífurlegt fjölmenni var við opnun Kvennasmiðjunnar í Seðlabankahúsinu kl. 11
þann 24. október. Á myndinni má í hópi Sóknarkvenna og náttúrufræðinga
þekkja Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur sem flutti þrumandi hvatningarræðu við
opnunina. Ljósm. Á.l.
Sumlr treystu sér ekki út í fríska loftið heldur fylgdust með út um glugga nálægra húsa. Þá er um að gera að velja sór hús
með róttu formerki. (Mynd: E.ÓI.)
Höfundar bókarinnar „Konur, hvað nú“ sem gefin var út f tilefni 10 ára afmæiis
kvennafrídagsins hittust allar og héldu uppá daginn. Myndin er tekin heima hjá
ritstjóranum, Jónínu M. Guðnadóttur. Spjaldið sem hún heldur á var á leið í
Kvennasmiðjuna, þar sem bókin er seld. Höfundarnir á myndinni eru auk
Jónínu, Fríða Björk Pálsdóttir (Menntun kvenna), Guðrún Guðmundsdóttir
(Atvinna og laun kvenna), Erla Þórðardóttir (Félagslegar aðstæður kvenna),
Esther Guðmundsdóttir (Konur og forysta), Helga Kress (Bókmenntir, List-
sköpun kvenna), Margrét Óskarsdóttir (Tónlist), Svala Sigurleifsdóttir (Mynd-
list), Þórunn Sigurðardóttir (Leiklist), Guðrún Jónsdóttir (Byggingalist), Þórhild-
ur Þorleifsdóttir (Ballett), Margrét Rún Guðmundsdóttir (Kvikmyndagerð). Á
myndina vantar þær Jóhönnu Bernharðsdóttur (Heilbrigði kvenna og heilsufar)
og Elínu Pálsdóttur Flygenring (Lög og réttarheimildir er varða konur). Mynd
E.ÓI.
JCARLAR
- kj r w -
Er það sem mór sýnist að stúlkan sé að geispa á kvennafundinum? (Mynd E.ÓI.)
Konur í Hafnarfirði tóku daginn snemma og fjölmenntu í Gúttó, þar sem Verkakvennafólagið
Framtíðin stóð fyrir opnu húsi. Troðfullt var út úr dyrum allan morguninn og um hádegisbil fluttu
langferðabílar konurnar inn í Reykjavík. Ljósm. E.ÓI.
Sunnudagur 27. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5