Þjóðviljinn - 27.10.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 27.10.1985, Blaðsíða 14
Friðurinn kemur frá Assisi Um 50 þúsund friðarsinnargengu 25 km leið frá Perugia tilAssisi til að krefjastafvopnunar. Meðal þeirra var Ólafur Gíslason, sem sendirÞjóðviijanum þennan pistil frá Ítalíu Margir göngumenn höfðu klætt sig sérstaklega í tilefni dagsins. Orðið Pace, sem þessi friðarboði ber á brjóstinu þýðir friður. Það var brennheit októbersól sem hellti geislaflóði sínu yfir skrælnaðajörð Umbríu þann 6. októbersíðastliðinn. Tóbaksplönturnarog maísinn á ökrunum teygðu sig til him- ins í örvæntingarfulltri bið eftir regnskúr, og rykið ívegkant- inum blandaðist ilmi af villtri piparmintu sem tróðst undir fótum 50 þúsund friðarsinna, sem lögðu það á sig þennan sólbjarta sunnudag að ganga 25 kílómetra leið frá Perugia, höfuðborg Umbríu, til Assisi og leggja þannig áherslu á kröfuna um stöðvun vígbún- aðarkapphlaupsins, minnkuð útgjöld til hermála og eyðingu þeirra ógnarvopna, sem nú haldaöllu lífi ájörðinni ístöð- ugum heljargreipum. Þetta var 4. friðargangan frá Perugia til Assisi, og sú fjölmenn- asta til þessa. Að henni stóðu fjölmörg stjórnmálasamtök, sveitarfélög, stéttarfélög og samtök friðarsinna. Þátttakend- ur voru komnir frá öllum héruð- um Ítalíu auk þess sem fjölmargir erlendir fulltrúar lögðu einnig leið sína til Assisi þennan dag. Áberandi var þó að yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda var ungt fólk. Meðal erlendu þátttakend- anna voru varaborgarstjórinn í Berkley í Kalifomíu, ráðherrar úr ríkisstjóm sósíalista í Grikk- landi, sendinefnd frá Hiroshima í Japan og fulltrúar nokkurra al- þjóðasamtaka um frið og afvopn- un. í göngunni vom einnig ýmsir þekktir ítalskir stjómmálamenn, þar á meðal Alessandro Natta, formaður ítalska kommúnista- flokksins, forystumenn úr röðum ítalskra sósíalista, Róttæka flokksins og æskulýðssamtökum kommúnista og kristilegra demó- krata, sem einnig áttu formlega aðild að göngunni. En fyrirmennin hurfu fljótt í raðir fjöldans sem fyllti veginn á Ólafur Gíslason í göngunni. milli Pemgia og Assisi, en gangan varð um 6 kílómetra löng og það liðu um tvær klukkustundir frá því að þeir fyrstu voru komnir upp í virkisborgina fyrir ofan Assisi þar til þeir síðustu voru komnir inn í bæinn. Leiðin frá Perugia til Assisi liggur um breiðan og fagran dal, blómlegt landbúnaðarhérað, þar sem mikið er ræktað af hveiti, maís, sólblómum og tóbaki. Á milli akranna má sjá aldintré og víngarða, og hávaxin fumtré og aspir meðfram veginum veita vel- þeginn skugga. Moldin í ökmn- um er hörð og skorpin af þurrki og jafnvel olívutréin í hlíðunum fyrir neðan Assisi bera skorpna ávexti. En þrátt fyrir þurrkinn, sem staðið hefur nær óslitið síðan um miðjan maí, ríkir gleði meðal þess fjölskrúðuga liðs, sem þarna fyllir götumar með þúsundum fána, borða og mislitra blaðra. Þarna eiga hinir ólíkustu þjóð- félagshópar sína fulltrúa, og margir hafa skreytt sig sérstak- lega í tilefni dagsins með andlits- farða eða öðrum kennimerkjum. Anarkistar og grasætur, Krishna- munkar, pönkarar og umhverfis- verndasinnar em þarna innan um gamlar kempur úr andspyrnu- hreyfingunni gegn nasismanum og fasismanum. Fulltrúar stétt- arfélaga og sveitarfélaga bera skrautlega fána síns félags, og þarna má sjá allmarga borgar- stjóra marsera með skrautlegan grænan, rauðan og hvítan borða yfir bringunni. Slagorð eru hróp- uð, blásið í lúðra og sungið. Það eru sungnir gamlir baráttusöngv- ar úr andspyrnuhreyfingunni, en hugmyndaflugið hefur einnig verið notað til þess að snúa út úr nýjustu og vinsælustu dægurlög- unum með viðlaginu „Ma la NATO no!“ Rauðir fánar og brúnir munkar Þótt hinir rauðu fánar ítalska kommúnistaflokksins hafi verið mest áberandi í þessu litríka Göngufólk hvílir lúin bein að aflokinni langri göngu. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. október 1985’

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.